Morgunblaðið - 30.05.1999, Page 58
58 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999
J----------------------
FOLK I FRETTUM
MORGUNBLAÐIÐ
Siglandi
slagparadís
TONLIST
Geisladiskur
HI-CAMP MEETS LO-FI
Hi-camp meets lo-fí, diskur Dip. Öll
tónlist; er eftir Jóhann Jóhannsson og
Sigtrygg Baldursson. Jóhann Jó-
hannsson spilar á hljómborð og for-
ritar og Sigtryggur Baldursson
trommar og spilar á slagverk. Mar-
grót Kristín Blöndal, Ása Júmusdótt-
ir, Sara Guðmundsdóttir, Emiliana
Torrini og Jón Þór Birgisson syngja,
Pétur Hallgrímsson spilar á gítar,
Óskar Guðjónsson á saxófón og
Gunnlaugur Guðmundsson á bassa.
STRÁKARNIR í Dip eru mætt-
ir til leiks með sína fyrstu plötu,
Hi-camp meets lo-fi. Sigtryggur
Baldursson trommari og smella-
söngvari hittir Jóhann Jóhannsson
Lhooq-er í slagparadís tölvustuðs-
ins. Það eru nokkrir hressir sem
stinga sér í ídýfuna hjá strákunum,
meðal annarra fjörpían Magga
Stína og Jónsi úr Sigur Rós, sem
bæði fara á kostum á plötunni með
innleggi persónuleika og raddar.
Diskurinn hefst á bútnum
Drinking With the Fishes sem er
þriðjungur úr stemmningu sem
skýtur upp sjónpípunni aftur í lag-
inu To safely sail, past the bar og
kemur að landi í lokalaginu, Just to
perish on the rocks. Stemmningin
bindur diskinn skemmtilega sam-
an, enda víða komið við í millitíð-
inni.
Utvarpsslagarinn Come out, sem
að sögn Dip er „gay anthem" (óður
til samkynhneigðra), myndi setja
hvaða diskótek eða kokteilbar á
annan endann ef ekki væri fyrir
söngleikjagargið hennar Emiliönu
Torrini. Lagið hefði staðið fullkom-
lega með sjálfu sér án söngs!
Lagið Glands, sem Asa Júníus-
dóttir syngur í af stakri snilld, sýn-
ir frábæran samruna Jóhanns og
Sigtryggs í hljóða/slag-pælingum
og tekur mann meira og meira með
sér eftir því sem líður á lagið. ítalir
eru greinilega jafnhrifnir, því
Howie B hefur verið að æra diskó-
tek óperuþjóðarinnar með Glands
við argandi undirtektir.
Við af Glands tekur töffaralegur
spæjarasmellur sem ég skil ekki al-
veg tilganginn með en er fínn und-
irleikur stífrar kaffidrykkju og tek-
ur vel á móti náttúrulegri Söru í
laginu 10% More Free, sem er eitt
besta lag plötunnar. Strákunum
tekst að renna með stuðið ljúflega
niður í lægðina og aftur upp í partí-
ið og Sara siglir með „grúvskút-
unni“ af fullum karakter. I laginu á
eftir dýfir Gunnlaugur Guðmunds-
son í flottustu bassalínu eftir stríð,
með órafmagnaða bassanum sín-
um. Það ætti eiginlega að skrifa
nafnið hans tvisvar á umslagið fyr-
ir afrekið.
Dramatíska hápunktinum er svo
náð af drottningu uppákomanna,
Möggu Stínu, í laginu Trampoline.
Það slær heimsmetið í dýnamík og
virkar á ólíklegustu afkima tauga-
kerfisins, kannski sérstaklega slag-
æðarnar. Laglínan er áhrifamikil
og fer með lagið út í stemmningu
sem ekki sést annars staðar á disk-
inum. Trampólínið er ábúðarfullt
en samt liðugt og leikandi.
Skyscraper Heart er lokalag Hi-
camp meets lo-fi og jafnframt feg-
urðarblettur disksins. Það er kór-
drengurinn Jónsi sem trallar af
innlifun og hljómar ekki síður
sannfærandi í því samhengi en með
Sigur Rós. Það hlýtur að vera eftir-
sóknarverður hæfileiki að geta að-
lagast hvaða hljóðumhverfi sem er.
Flestum sem koma að þessum
diski með Jóhanni og Sigtryggi
tekst frábærlega upp í að koma
sínum persónuleika til skila og um
leið gera það fyrir lagið sem það
þarfnast. Það fékk mig til að hugsa
um hvað stíll hvers og eins er af-
gerandi þegar einstaklingar eru
settir í nýtt samhengi. Pétur Hall-
grímsson getur hvergi falið sig
með Kjöltustálið sitt, söngleikjag-
argið hennar Emilíönu þekkist
hvar sem er rétt eins og vægðar-
kórinn er rækilega merktur Jónsa.
Það sem er svo mest um vert.er að
Jóhanni og Sigtryggi tókst einfald-
lega að sjóða saman frábæra ídýfu.
Kristín Björk Kristjánsdóttir
Æ
HLAUPASKOR
Falcon 3
Nubuk
Cushion
Þægilegur
hlaupaskór fyrir
hlaupara með eðlilegt niðurstig.
Response
Cushion
Hlaupaskór fyrir
hlaupara með
eðlilegt niðurstig.
Radiant
Trail
Cushion
Frábær
Feet You Wear
torfæru hlaupaskór
fyrir hlaupara með
eðlilegt niðurstig.
Galaxy
Cushion
Alhliða
hlaupaskór
fyrir hlaupara
með eðlilegt
niðurstig.
Universal
Cushion
Þægilegur
hlaupaskór fyrir
hlaupara með
eðlilegt niðurstig en
óska eftir stýringu í niðurstigi.
TS
Support
Fyrir hlaupara
sem þurfa aukinn
innanverðan stuðning.
KIRKJUBRAUT 8, AKRANESI
SÍMI431 1301
Sértilboð
tii Costa
del Sol
29. júní
frá kr. 44.955.
Nú getur þú tryggt þér
glæsilegt tilboð til vinsælasta
áfangastaðar íslendinga í
sólinni, Costa del Sol.
Heimsferðir bjóða nú sértilboð á íbúðarhótelinu E1 Pinar
þar sem þú finnur frábæran aðbúnað, rúmgóð studio eða
íbúðir, glæsilegan garð með sundlaugum, íþróttaaðstöðu,
loftkældar íbúðir með sjónvarpi og síma. Hvergi finnur
þú þvílíkt úrval veitinga- og skemmtistaða og fyrir hina
ferðaglöðu er einstakt tækifæri
Granada, Afríku, Gíbraltar eða
spænsku sveitinni með
fararstjórum Heimsferða á
staðnum.
Verð kr. 44*955
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, 2
vikur, íbúð m/1, með sköttum.
Verð kr. 49*900
M.v. 2 í studio, 2 vikur, E1 Pinar.
Austurstræti 17, 2. hæð • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is
Aðefns 10
s®ti i boðf
Keppt í félagsvist á kaffihúsi
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SIGURVEGARINN Ingi Bjarmar Guðmundsson tekur við verðlaunum
úr hendi Dagnýjar Davíðsdóttur.
Heppni í spilum
og ástum
► GESTIR kaffihússins í túninu
heima í Mosfellsbæ hafa síðustu
vikur keppt í félagsvist og réð-
ust úrslitin nú síðastliðið
fímmtudagskvöld. Sigurvegari
var Ingi Bjarmar Guðmundsson
og hlaut hann að launum ferð til
London.
Að sögn Dagnýjar Davíðsdótt-
ur, eiganda kaffihússins, var spil-
að á fimmtudagskvöidum og var
úrslitakvöldið það sjöunda í röð-
inni. „Hugmyndin kom frá einum
viðskiptavina staðarins og okkur
fannst hún sniðug til þess að laða
að nýtt fólk,“ sagði Dagný.
Keppendur voru sextán talsins
frá fjórtán ára og eldri. Ekki er
hægt að segja að heppni í spilum
og ástum hafi ekki farið saman
að þessu sinni því Ingi Bjarmar
fékk 1.156 stig og næst kom eig-
inkona hans með 1.098 stig, son-
ur þeirra Eyþór varð þriðji.
HÉR eru þau Valgerður Sig-
urðardóttir, sem hlaut flest stig
á úrslitakvöldinu, og Eyþór
Ingason, sem fékk skammar-
verðlaun kvöldsins. Valgerður
náði 181 stigi en Eyþór 135,
sem sýnir að keppnin hefur ver-
ið jöfn og hörð.
Aðspurð sagðist Dagný vonast
til þess að hægt verði að endur-
taka mót af þessu tagi á kaffihús-
inu.