Morgunblaðið - 30.05.1999, Side 64

Morgunblaðið - 30.05.1999, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SlMI 5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 30. MAÍ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Fyrsta ferðin? HÚN HÉLT sig þétt saman v «íþessi myndarlega æðarfugls- fjölskylda á Tjörninni í gær. Að sögn Arnórs Sigfussonar fugla- fræðings hjá Náttúrufræði- stofnun eru ungarnir á mynd- inni eflaust með þeim fyrstu í ár en æðarvarp, sem nú er að hefjast, stendur yfír fram undir júh'mánuð. „Ég hef heyrt svona utan að mér að þetta sé svolítið seint af stað sums staðar úti á landi. En varp er nú oft fyrst á ferðinni hérna á suðvesturhorn- inu,“ segir Arnór um þennan afurðamesta fugl landsins. Morgunblaðið/Ómar Biflijólamað- ur slasaðist Samgönguráðherra um einkavæðingu Landssímans Ein af spurningun- um er um hraðann MAÐUR á bifhjóli slasaðist á vegamótum Biskupstungnabraut- ar og Suðurlandsvegar í fyrrinótt. Að sögn lögreglu á Selfossi mættu lögreglumenn á eftirlitsferð bifhjólamanninum undir Ingólfs- fjalli, á móts við Laugabakka. Rad- ar lögreglunnar sýndi hraða - hjólsins 176 km/klst. Að sögn lögreglu sneru lög- reglumennirnir bifreið sinni við en misstu á meðan sjónar á hjólinu. Þegar lögregla kom að mótum Biskupstungnabrautar og Suður- landsvegar, þ.e. á gatnamótin rétt vestan við Selfoss, kom í ljós að maðurinn hafði misst stjóm á hjól- inu og hafnað úti í skurði. Að sögn Bergþóru Sigurðar- dóttur, svæfíngalæknis á gjör- gæsludeild, var maðurinn nokkuð alvarlega slasaður en ekki í lífs- hættu. STURLA Böðvarsson, samgöngu- ráðherra, segist ekkert vilja segja um hvort einkavæðingu Landssím- ans ljúki á þessu kjörtímabili. „Ég mun fara ofan í þetta mál og kynna mér allar hliðar þess hvað undirbúninginn varðar. A þessu stigi vil ég ekkert annað segja um málið,“ sagði Sturla. Um það hvort hann vildi ljúka einkavæðingu Landssímans á þessu kjörtímabili sagði hann að stjómar- sáttmálinn kvæði á um að undirbúa ætti sölu fyrirtækisins. „Þegar sala er undirbúin er vitað að hverju er stefnt. Ein spumingin er um hraðann og mat manna á því hvemig skuli staðið að þessu og þá, þegar undirbúningi er lokið, hvort kostimir séu nægjanlega fýsilegir til að hægt sé að stíga þessi skref um sölu,“ sagði Sturla. Sami símkostnaður í þéttbýli og dreifbýfi? „Þetta er margflókið mál. Annars vegar er um að ræða að tryggja hagsmuni eigandans, þ.e. að ríkis- sjóður fái sem mest fyrir þessa eign þegaj- seld verður og hins vegar að tryggja hagsmuni neytenda, sem eiga mikið undir því að fá ódýra þjónustu hjá þeim fyrirtækjum, sem sinna fjarskiptunum." Sturla var spurður hvort hann sæi t.d. fyiir sér að skilyrði um jafnan símkostnað landsbyggðar og þétt- býlis kæmu til greina við einkavæð- inguna. „Nú er ekki sami símkostn- aður þegar litið er til gagnaflutnings, en ég held að þeir sem ætla sér að taka þátt í þjónustu og viðskiptum við íbúa landsins eigi mjög mikið undir því að þetta markmið, sem Síminn í ríkiseigu hefur sett sér, nái einnig tú þeirra sem vilja hasla sér völl í þessum viðskiptum.“ Sturla sagðist þó ekkert vilja um það segja á þessu stigi hvort til greina kæmi að binda einkavæðing- una skilyrðum um jafnan símkostnað á landinu. Ölkelda í Staðarsveit • • Olkelduvatn á krana af 30 m dýpi BÆRINN Ölkelda í Staðar- sveit hefur nú kolsýruríkt öl- kelduvatn á krana á bæjar- hlaðinu eftir að tilraunaboran- ir juku rennsli ölkelduvatns á bænum, að sögn Kristjáns Þórðarsonar, bónda á Ölkeldu. Tilraunaboranir voru gerðar á bænum vegna hitaveitu, seg- ir Kristján, og við þá borun var komið niður á ölkelduvatnsæð- ina, sem fætt hefur ölkelduna, sem bærinn er kenndur við. Eftir boranirnar dró úr rennsli í gömlu kelduna en þegar borholunni var lokað og settur við hana krani jafnaði keldan sig, að sögn Kristjáns. Ölkelduvatnið frá Ölkeldu er nú til rannsóknar en það kem- ur af 30 metra dýpi og er ómengað með öllu og kolsýru- ríkt, segir Kristján. Markaðs- setning ölkelduvatnsins verður e.t.v. tekin til skoðunar í fram- haldi af þeim rannsóknum. Seldu um 100 sjónvörp FJÖLMARGIR nýttu sér endur- greiðslutilboð verslunarinnar BT en verslunin lofar að endurgreiða öll sjónvörp keypt í gær, vinni Selma Björnsdóttir Eurovision-söngva- keppnina. Jón Jón Steingrímsson, framkvæmdastjóri, taldi að um 100 tæki hefðu selst og aðeins örfá væru eftir þegar haft var samband við hann um tvöleytið í gær. Morgunblaðið/Hulda Guðnadóttir Bónus-merkið á markaði í Portúgal ÍSLENSKIR sokkar til sölu í Portúgal. Alexander Kjartans- syni, 9 ára Grafarvogsbúa í sum- arfríi, fannst hann kannast við glaðlegan grís á sokkaplöggum sem voru til sölu á sígaunamark- aði í Loulé, skammt frá Albufeira Portúgal og reyndist þar vera ^‘komið vörumerki Bónus-verslan- anna. Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastóri Bónuss, vildi ekki kannast við að fyrirtækið væri lagst í víking með sokkasölu á suðrænum slóðum. Sokkarnir væru að vísu framleiddir í Portú- ^Pfcjal en Bónus fengi þá þjá Sænsk- íslenska verslunarfélaginu. Framkvæmdastjórí Sænsk-ís- lenska, Gunnar Lúðvíksson, kom af fjöllum en gat sér til að um væri að ræða gallaða vöru sem framleiðslufyrirtækið væri að koma í lóg. „Þeir hafa sjálfsagt stoiist til að skella miðum á afgangssokka sem þeir hafa viljað losa sig við. Og þeir hafa eflaust valið á þá miða sem þeir hafa ekki búist við að nokkur maður þekkti. Þetta er fyrsta skýringin sem mér dett- ur í hug. En þeir hafa auðvitað enga heimild héðan til að nota Bónus-merkið,“ sagði Gunnar. Bankastjóri Búnaðarbanka um skatt á hlutabréf starfsfólks Munum fylgja þessu eftir eins og við getum „VIÐ ERUM ekki sammála þessari skoðun ríkisskattstjóra og munum fylgja því eftir eins og við getum,“ sagði Sólon R. Sigurðsson, banka- stjóri Búnaðarbanka íslands, þegar Morgúnblaðið leitaði viðbragða hans við ákvörðun skattstjórans í Reykjavík um að skattleggja sem hlunnindi og með 25% álagi mis- muninn á verði því sem starfsmenn bankans og almenningur greiddu fyrir hlutabréf í bankanum. Starfsmönnum bankans var í október 1998 veittur forkaupsréttur að hlutabréfum í bankanum á verði sem svaraði til gengisins 1,26, sem var innra virði bankans um áramót- in 1998. Almenningi var um sl. ára- mót seldur hlutur á genginu 2,15. í dag er skráð gepgi þessara bréfa á Verðbréfaþingi íslands 3,45. Alla leið í gegnum skattkerfíð Sólon Sigurðsson sagði að þótt skattayfirvöld hefðu á sínum tíma skrifað bankanum bréf með ábend- ingum um að þau teldu mismuninn á gengi til starfsmanna og almenn- ings skattskyld hlunnindi, hefðu forsvarsmenn bankans verið ósam- mála þessari lagatúlkun stjóm- valdsins. Einhverju þessara mála yrði fylgt eftir alla leið í gegnum skattkerfíð. I bréfi skattstjórans til þeirra starfsmanna, sem keyptu hlutabréf- in, segir m.a. að ráðleggingar og at- hafnir stjómenda Búnaðarbankans hafí ekki samrýmst niðurstöðum skattyfn-valda og almennum skyld- um bankans sem launagreiðanda samkvæmt ákvæðum skattalaga. Þarna segir Sólon vísað til bréfa- skrifa skattstjóra til bankans vegna sölunnar. „Við teljum þetta ekki skattskyld hlunnindi því það var ekkert annað útboðsgengi til á bréf- unum en þetta á þessum tíma. Þetta mál okkar er öðm vísi vaxið en mál starfsmanna Landsbankans. Þegar við seldum starfsmönnum á genginu l',26 var ekkert annað gengi til hjá okkur. Það er ekki fyrr en rúmum mánuði síðar sem útboðsgengið verður til hjá okkur. En hjá Lands- bankanum fer útboð til almennings og starfsmanna fram á sama tíma. Þá vita menn hvert gengið er. Hjá okkur var ekkert útboðsgengi til annað en þetta á þessum tíma. Þetta var gert í samráði við ríkis- stjórnina, fjármálaráðherra og við- skiptaráðherra, og ákveðið þá að gengið yrði innra virði bankans um áramót. Þá var aldrei rætt um skattlagningu þar til viðbótar,“ sagði Sólon. Bréf seld þriðja aðila á 1,26 fyrir útboð til almennings „Það má fullyrða að starfsmenn hefðu aldrei samþykkt að létta af ríkisábyrgð á eftMaunum sínum ef þeir hefðu vitað að ríkisskattstjóri mundi túlka þetta svona,“ sagði Sól- on. „En þungamiðjan í þessu er sú að það var ekki til annað útboðs- gengi á þessum tíma og ekkert hægt að skattleggja. Það er meira að segja til dæmi um það að starfsmað- ur hafi selt sín bréf til annars manns á þessu sama gengi, 1,26, áður en út- boð til almennings fór fram. Hvem- ig á að skattleggja þá manneskju?" Sólon sagði að starfsmenn bank- ans hefðu hins vegar verið varaðir við um afstöðu skattyfirvalda og þeim ráðlagt að skýra frá þessu í sínu skattframtali. „Það gerðu menn vonandi allir,“ sagði Sólon.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.