Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999 FRETTIR AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Fundurinn 1 Bonn um samning SÞ um loftslagsbreytingar Gagnrýnin kom ekki fram á blaðamannafundi Félagsstofnun stúdenta á Akureyri semur við SJS verktaka Morgunblaðið/Kristján FULLTRÚAR SJS verktaka, Sigurður Björgvin Bjömsson og Jdn Trausti Bjömsson t.v., skrifuðu undir samkomulagið fyrir hönd fyrir- tækis síns, en þeir Dan Brynjarsson, Bjami Hjarðar og Olafur Búi Gunn- laugsson skrifuðu undir fyrir hönd FÉSTA. Kaupir og leig- ir 29 íbúðir ÞÓRIR Ibsen hjá utanríkisráðu- neytinu hefur sent Morgunblaðinu eftirfarandi athugasemdir fyrir hönd sendinefndar íslands á fundi í Bonn vegna rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar: „í Morgunblaðinu þriðjudaginn 8. júní sl. var frétt undir fyrirsögninni „íslendingar gagnrýndir vegna Kyoto-bókunar“. I fréttinni er fjallað um grein sem birtist í fréttabréflnu ECO, sem er gefið út af umhverfis- vemdarsamtökunum „Climate Act- ion Network". I fréttinni er fullyrt að umhverfisverndarsamtök hafí gagnrýnt íslendinga í fréttabréfinu, en nú um þessar mundir standa yfir í Bonn fundir í vinnunefndum Rammasamnings Sameinuðu þjóð- anna um loftslagsbreytingar. Rétt er að það komi fram að höf- undur umræddrar greinar í ECO er Arni Fmnsson, Náttúruverndarsam- tökum Islands. Sendinefnd Islands á ofangreindum fundi átti fund með fulltrúum „Climate Action Network“ sama dag og ofangreind grein birt- ist. Hafði fundurinn verið ákveðinn deginum áður. Á fundinum kynnti ís- lenska sendinefndin stöðu íslands og þá tillögu sem hún hefur lagt fram og gerði grein fyrir öllum takmörk- unum og skilyrðum sem tillagan fel- ur í sér. í framhaldi af því skiptust aðilar á skoðunum um efni tillögunn- ar. Á fundinum voru 8 fulltrúar um- hverfisvemdarsamtaka, þ.ám. Ami HERBERT Leon MacDonnell, for- stjóri réttarrannsóknarstofunnar í Coming, New York, hélt fyrirlestur 8. júní sl. á vegum Ríkislögreglu- stjóra. Fyrirlesturinn nefndist „Gildi efnislegra sönnunargagna“, og sóttu hann um 50 manns, lögreglumenn, lögmenn, fulltrúar ákæruvalds og dómarar. MacDonnell hefur stjómað yfir 100 málþingum um sönnunargildi blóðbletta og einnig hefur hann starfað sem matsmaður í mörgum dómsmálum, sem dæmi má nefna morðið á Robert Kennedy, morðið á Martin Luther King og í hinu fræga O.J. Simpson-máli, sem mörgum er enn í fersku minni. Macdonnell er einnig eigandi íjögurra einkaleyfa á tækjum til greiningar efnislegra sönnunargagna og hefúr hlotið Dondero-verðlaunin ,/yrir hið sér- staka framlagsitt á sviði vísindalegr- ar sérgreiningar,“ segir í fréttatil- kynningu frá Ríkislögreglustjóra- embættinu. Að sögn Bjama J. Bogasonar að- stoðaryfirlögregluþjóns, var víða komið við í fyrirlestrinum. Dæmi vora tekin af málum þar sem efnis- leg sönnunargögn virtust ekki fyrir Finnsson. Það vakti athygli að við- staddir sýndu meginfullyrðingum greinarinnar lítinn áhuga. Fundur- inn var gagnlegur og vonar íslenska sendinefndin að fulltrúar þeirra um- hverfisverndarsamtaka sem vora á fundinum hafi öðlast betri skilning á sérstöðu Islands. Vert er að geta þess að það eru nokkrar missagnir í frétt Morgun- blaðsins. I fyrsta lagi er frá því greint að „Islendingar hafi sam- kvæmt Kyoto bókuninni fengið mestan mengunarkvóta allra iðn- ríkja“. Þetta er ekki rétt. Bókunin ánafnar Islandi hæsta prósentuhlut- falli hvað varðar takmörkun á hlut- fallslegri aukningu á losun gróður- húsalofttegunda miðað við losun á Islandi árið 1990. Það merkir ekki að bókunin heimili Islandi að menga meira en önnur iðnríki. Sú aukning á losun gróðurhúsalofttegunda sem bókunin heimilar Islandi er langt frá því að gera losun íslands jafn mikla og meðallosun frá iðnríkjun- um, miðað við íbúafjölda. Svo dæmi sé tekið er einu iðnríki í raun heim- ilað að auka losun á hvem íbúa meira en ísland, þrátt fyrir að Kyoto-bókunin setji hlutfallslega meiri skorður við aukningu þess á losun gróðurhúsalofttegunda. Þetta skýrist af því að í viðkomandi landi var losun gróðurhúsalofttegunda miðað við íbúatölu mun meiri en á íslandi árið 1990. hendi við fyrstu sýn, en réðu svo miklu um lausn málsins. Sem dæmi má nefna mál þar sem spumingin var hvort ökumaður hefði haft kveikt á aðalljósunum þegar hann ók á tæki og beið bana. Bfllinn var á brota- jámshaug í heilt ár en samt mátti sanna að sprangin pera hefði valdið ijósleysi bifreiðarinnar. Lögreglunni á íslandi ekki framandi Að sögn Bjarna er þetta ekki eitt- hvað sem er lögreglunni á íslandi al- gjörlega framandi. „Við höfum gert ýmsar samanburðarrannsóknir og notað efnisleg sönnunargögn mikið á síðustu árum,“ sagði Bjami en neit- aði því ekki að alltaf væri gott að fá fyrirlestra frá erlendum sérfræðing- um til að auka þekkingu starfs- manna og fá víðari sýn yfir það nýjasta sem er að gerast í þessum málum í dag. Bjami segir að fyrirlesturinn hafi verið vel sóttur og almennt hafi fundarmenn gert góðan róm að er- indi Macdonells. Tæknin í meðferð efnislegra sönnunargagna sé mikil og nauðsynlegt að fylgjast með öll- um framföram í greininni. í öðra lagi liggur ekkert verð á losunarkvótum fyrir, enda hafa við- skipti með slíka kvóta ekki hafist þar sem aðildarríki samningsins hafa ekki samþykkt leikreglur fyrir slík viðskipti. I þriðja lagi er ísland ekki eina iðnríldð sem hefur ekki undirritað bókunina. Vert er í þessu samhengi að geta þess að þau iðnríki sem hafa undirritað bókunina hafa ekki upplýst hvort og hvenær þau munu gangast undir ákvæði bókun- arinnar með því að fullgilda hana. Loks er í fréttinni fullyrt að tillögu Islands hafi verið vísað til fundar vísinda- og tækninefndar á næsta ári. Þetta er heldur ekki rétt því til- lagan verður á dagskrá 5. aðildar- ríkjaþings Rammasamnings Sa- meinuðu þjóðanna um loftslags- breytingar n.k. haust. Stefnt er að því að tillagan verði afgreidd á 6. að- ildarríkjaþinginu haustið 2000, sam- hliða öðrum ákvörðunum sem þá verða teknar um framkvæmd Ky- oto-bókunarinnar. Loks er rétt að taka það fram að íslenska tillagan er ekki á dagskrá fundarins í Bonn. Meginviðfangsefni hans eru hin svokölluðu sveigjan- leikaákvæði-Kyoto bókunarinnar." Aths. ritslj.: Missagnir þær, sem höfundur gerir athugasemdir við era að sjálfsögðu ekki Morgunblaðsins heldur er þar vísað til ummæla fréttablaðsins ECO. Flotkvíin í Hafnarfirði í notkun um miðjan ág'úst ÁTTA þúsund lesta flotkví í eigu Vélsmiðju Orms og Víglundar verð- ur tekin í notkun í Hafnarfjarðar- höfn 15. ágúst nk. og mun skapa um 50-60 ný störf, að sögn Guðmundar Víglundssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Verið er að vinna að viðgerðum á kvínni sem skemmdist mikið í flutningum frá Skotlandi fyr- ir rúmu ári. Guðmundur segir að kvínni sé einkum ætlað að þjóna stóram ísfisk- toguram sem era á veiðum í kringum landið og mikið af fyrirspumum hafi þegar borist erlendis frá Um hana. „Það er auðvitað aldrei hægt að segja til um hluti sem era ekki komnir í rekstur en þetta lofar mjög góðu.“ Guðmundur segir að verkefna- staða fyrirtækisins sé mjög góð og það hafi hjálpað því að komast í gegnum langan biðtíma eftir nýju kvínni. Hann segir að líklega þurfi að ráða eitthvað af útlendingum til starfa tímabundið við hana þegar hún verður tekin í notkun. Vélsmiðj; an keypti kvína af breska hernum. I lok mars í fyrra lagði dráttarbátur af stað með hana í eftirdragi frá Skotlandi. Nokkram dögum síðar losnaði hún frá bátnum og rak stjómlaust um hafið dögum saman. Að lokum komu tvö varðskip Land- helgisgæslunnar á vettvang og drógu hana að landi. Töiuverðar skemmdir urðu á kvínni en ekki hef- ur verið gefið upp hversu mikið við- gerðin kostar. Guðmundur segir að tryggingafélög hafi bætt hluta skemmdanna. -------------- Afhenti trúnaðarbréf KÖRNELÍUS Sigmundsson sendi- herra afhenti Lennart Meri, forseta Eistlands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Islands í Eistlandi 8. júní sl. að því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá utanríkisráðuneytinu. Kornelíus verður með aðsetur í Helsinki. FÉLAGSSTOFNUN stúdenta á Akureyri, FÉSTA, og SJS verktakar ehf. hafa undirritað rammasam- komulag um kaup, leigu og for- kaupsrétt FÉSTA á 29 íbúðum sem SJS verktakar byggja á Drekagili 21 og eiga að vera fullbúnar ásamt lóð 1. ágúst á næsta ári. FÉSTA skuld- bindur sig til að kaupa 10 íbúðir á þessu ári og er heildarverð þeirra rúmar 68 milljónir króna. Þá skuldbindur FÉSTA sig til að taka á leigu 19 íbúðir en á um leið forkaupsrétt á þeim í allt að þrjú ár. FÉSTA hefur fengið rúmlega 60 milljóna króna lánsloforð á þessu ári frá Ibúðalánasjóði vegna kaupanna á íbúðunum 10. Félagið stefnir að því að eignast allar íbúðirnar í húsinu og hefur sótt um lán til Ibúðalánasjóðs vegna þeirra 19 íbúða sem eftir eru. Dan Brynjarsson formaður FÉSTA sagði að þetta samkomulag myndi gjörbreyta stöðunni. „I dag eram við með 56 íbúðir og herbergi, þannig að hér er um verulega aukn- ingu að ræða. Þörfin er líka mikil, en í fyrra fengu 45 manns ekki húsnæði, MOKVEIÐI er hjá Grímseying- um á línu þessa dagana og þokkaleg veiði á önnur veiðar- færi. Veiði í net var góð í maí en er nu fremur dræm og em menn að undirbúa róður á færi. Óli H. Ólason og Óli Bjami Ólason, útgerðarmenn á bátnum Óla Bjarnasyni EA, fengu rúm- lega sex tonn á línu sl. miðviku- dag. Þeir lönduðu þremur og hálfu tonni um hádegið, eða um 600 kg á bala og komu með ann- að eins að landi í seinni ferð dagsins. „Ég er búinn að róa í auk þess sem margir sækja ekki einu sinni um, þar sem þeir vita að þeir eiga ekki möguleika. Staðan í þessum húsnæðismálum hefur einmitt háð háskólanum." Er líka byggðaverkefni Dan sagði að þetta samkomulag við SJS verktaka hefði mikla kosti, þetta væri jafnframt stærri eining og um leið hagkvæmari í rekstri, auk þess sem verið væri að byggja á hag- kvæmu verði. Hann sagði stefnt að því að sækja um lán til kaupa á 10 íbúðum til viðbótar á næsta ári og til kaupa á 9 íbúðum árið 2001. „Við vonumst eftir jákvæðum viðbrögðum og skilningi frá fbúðalánasjóði, því þetta er auðvitað byggðaverkefni líka.“ Dan sagði að staðsetning hússins 1 Drekagili væri mjög góð, í göngu- færi frá háskólasvæðinu og byði jafnframt upp á örbylgjusamband milli skólans og fjölbýlishússins. Það bjóði upp á að nemendur geti haft vinnuaðstöðu heima og sé stefnt að þvi í þessu tilviki. rúm 60 ár og hef aldrei fengið svona gott,“ sagði Óli H. Ólason þegar þeir feðgar voru að landa í annað sinn á miðvikudag. Það þýkir gott að ná 150 kg á bala og eru menn því að sjálfsögðu ánægðir með nýtinguna. Óli Bjarnason EA var á veiðum um eina mflu austan við eyjuna. Af kvóta bátsins eru eftir um 100 tonn af 400 tonnum og áætla þeir feðgar að halda veiðum áfram þar til kvótinn er búinn. Á myndinni eru þeir feðgar að landa afla sínum sl. miðvikudag. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins HERBERT Leon MacDonelI útskýrir atriði í fyrirlestri sínum. Fyrirlestur á vegum Ríkislögreglusljóra Fjallað um gildi efnis- legra sönnunargagna Línubátar í mokveiði við Grímsey Morgunblaðið/Margit Elva Einarsdóttir „Aldrei fengið svona gott í 60 ár“ Grímsey. Morgunblaðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.