Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Eignir þrotabús Aldins hf. á Húsavík seldar
„Heilmikið átak fram-
undan í verksmiðjunni“
EIGNIR þrotabús viðarvinnslufyr-
irtaskisins Aldins hf. á Húsavík hafa
verið seldar. Fulltrúi nýrra eigenda
undirritaði kaupsamning í gær, en
þeir eru Parket og gólf ehf. í
Reykjavík, sænska fyrirtækið
WMB - sem tvö sænsk fyrirtæki
með mikla reynslu af timburvinnslu
hafa stofnað vegna þessa verkefnis
- og Hömlur hf., sem er í eigu
Landsbanka íslands hf. Kaupverð
fékkst ekki uppgefið og heldur ekki
hvernig eignarhlutamir skiptast.
Ómar Friðþjófsson aðaleigandi
Parkets og gólfs ehf. sagði við
Morgunblaðið í gær að allir sjö
starfsmenn Aldins hf. yrðu áfram
hjá fyrirtækinu. Hann sagði hins
vegar gefa augaleið að breytingar á
rekstrinum yrðu miklar. „I fyrsta
lagi þarf að gera reksturinn skilvirk-
ari, það þarf að hagræða á ýmsum
stöðum og bæta aðeins við af tækj-
um. Fyrsta tækið sem við þurfum að
kaupa er svokallaður afbarkari; tæki
sem flettir berkinum af trjábolunum
og við það eitt náum við betri nýt-
ingu og meiri vinnsluhraða.“
Ómar sagði að of lítið hefði farið í
gegnum verksmiðjuna, að mati
hinna nýju eigenda. „Okkur sýnist
líka að menn hafí verið óheppnir
með hráefni í upphafí og síðan hefur
vantað heilmikið upp á sölumálin,"
sagði hann.
Sænsku fyrirtækin tvö stofna
nýtt fyrirtæki vegna hlutar þeirra í
Aldini, sem fyrr segir. Annað
sænska fyrirtækið er framleiðandi
og seljandi parkets og „vinnur
einnig úr, líkt og við hjá Parketi og
gólfi; leggur, slípar og lakkar gólf.
Hitt fyrirtækið er stór byggingar-
aðili; byggir og endurgerir eignir
sem það selur,“ sagði Ómar.
„Við höfum verslað við Aldin frá
því í nóvember í fyrra, fyrirtækið
hefur verið með mjög góða fram-
leiðslu sem við sáum að við vorum
að tapa, og þess vegna fengum við
Svíana til að leggjast á árina með
okkur.“
Aldin hf. flutti inn trjáboli til
vinnslu frá Bandaríkjunum en
sænsku fyrirtækin hafa, að sögn
Ómars, keypt trjáboli bæði frá
Úkraínu og Hvíta-Rússlandi og efni
kemur örugglega að einhverju leyti
þaðan til Húsavíkur. „Við leitum
bara að bestu vörunni og besta
verðinu. Með því að fá Svíana inn
fáum við þekkingu á framleiðslunni,
þekkingu á innkaupum og sölu.“
Sænskur verkfræðingur sem unnið
hefur í því að byggja upp verk-
smiðjur eins og þá á Húsavík var
væntanlegur hingað til lands í gær-
kvöldi og á að fara til Húsavíkur í
bítið í dag og hefst strax handa við
þær breytingar sem þörf er á, að
sögn Ómars.
„Pað er heilmikið átak framund-
an í verksmiðjunni. Við viljum fá
tækifæri til að vinna að þessu og
verðum svo bara að spyrja að
leikslokum; hvað hafí farið úrskeiðis
hjá okkur, ef svo fer. En við erum
með eldmóð og erum bjartsýn á að
við getum gert góða hluti,“ sagði
Ómar. Hann sagði að heilmikill auð-
ur væri í starfsfólki Aldins; „þama
eru menn sem eru búnir að vinna
við að saga og þurrka timbur og
reka sig á. Þeir hafa lært, því það er
ekki hægt neita því að við vorum
líka að sækjast eftir því að hafa
þessa þekkingu í landinu."
Ómar sagði að yfirstjóm fyrir-
tækisins yrði í höndum Parkets og
gólfs í Reykjavík. „Þannig getum
við samnýtt skrifstofuhald sem á að
koma báðum fyrirtækjunum til
góða.“
Slippstöðin hf. á Akureyri getur sinnt stærstu fískiskipum
Morgunblaðið/Kristján
BJÖRGVIN EA rennur inn í flotkvína á Akureyri.
HÉR afhendir Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar,
þeim Valdimar Bragasyni útgerðarstjóra og Arnari Amasyni skip-
stjóra blóm og kampavín.
B
MENNTASKÓLINN Á AKUREYRI
MA-hátíð
í íþróttahöllinni 16. júní 1999
frá kl. 19.00-3.00
Fordrykkur frá 18.00-18.45
Miðaverð kr. 4.500
Stuðmenn leika fyrir dansi
Forsala miða verður í íþróttahöllinni
15. júní kl. 16.00-19.00
16. júní kl. 14.00-17.00
Aðgöngumiðar á dansleikinn verða seldir við innganginn
Hátíðarnefnd
Hundrað-
asta skipið
í flotkvína
STARFSMENN Slippstöðvarinnar
hf. tóku í gær hundraðasta skipið í
flotkvína á Akureyri. Það var
Björgvin EA, fiystitogari Snæfells
hf. í Dalvíkurbyggð, sem renndi sér
í kvína í gærmorgun. Slippstöðin
leigir flotkvína af Hafnasamlagi
Norðurlands en hún var var tekin í
notkun í september 1995. Fyrsta
skipið sem fór í kvína var nótaskip-
ið Guðmundur Ólafur ÓF frá Ólafs-
firði.
Ingi Bjömsson framkvæmda-
stjóri Slippstöðvarinnar sagði að
flotkvíin skipti miklu máli fyrir
stöðina og hafi alla tíð reynst mjög
vel. Hann sagði að vinnuaðstaðan
væri mjög góð og mun betri en í
dráttarbrautinni. Þar skipta tveir
ölfugir kranar miklu máli og einnig
að gólfið er slétt. Þá hafi nýting
flotkvíarinnar verið 70-80% á ári,
sem sé mjög gott.
Blóm og kampavín
Ingi sagði að stærstu fiskiskip ís-
lenska flotans hafi verið tekin í
kvína og nefndi frystitogarana
Baldvin Þorsteinsson EA, Guð-
björgu ÍS og Arnar HU í því sam-
bandi. Lengsta skipið sem farið
hefur í kvína er flutningaskipið
Hofsjökull, sem er 118 metra langt.
Hámarksþungi skipa í kvína er
5.000 þungatonn og hámarkslengd
120 metrar.
í tilefni þessara tímamóta færði
Ingi Björnsson Valdimari Braga-
syni útgerðarstjóra Snæfells og
Arnari Arnasyni skipstjóra Björg-
vins EA, blóm og kampavínsflösku,
auk þess sem boðið var upp á
rjómatertu og kaffi í kvínni.
--------------
Fermingarguðs-
þjónusta
LAUFÁSPRESTAKALL: Ferm-
ingarguðsþjónusta verður í Laufás-
kirkju sunnudaginn 13. júní kl.
11.00. Fermdar verða Heiða Björk
Pétursdóttir, Laufási og Hildur
Björk Benediktsdóttir, Artúni.
Sóknarprestur.
27 þúsund gestir heimsóttu byggða-
safnið á Skógum
Morgunblaðið/Halldór
ÞÓRÐUR Tómasson, safnstjóri á Skógum, við olíumálverk af sr.
Magnúsi Bjarnasyni prófasti.
Niðjar Magnúsar
Bjarnasonar
gáfu málverk
Skógum - Afkomendur sr. Magnús-
ar Bjamasonar, prófasts á Prest-
bakka á Síðu, færðu byggðasafninu
í Skógum olíumálverk að gjöf 15.
maí sl. Málverkið er eftir Jón Stef-
ánsson listmálara af sr. Magnúsi á
hestbaki, sem söfnuðir hans gáfu
honum er hann lét af störfum á
Prestbakka 1931. Þórður Tómas-
son, safnstjóri byggðasafnsins,
sagði að safninu væri sæmd af þess-
ari veglegu gjöf. Sr. Magnús pró-
fastur í Vestur-Skaftafellsprófasts-
dæmi hefði verið kirkju- og sveitar-
höfðingi, sem hefði sett mikinn svip
á samfélag sitt á sínum tíma og
hann hefði með konu sinni, frú Ingi-
björgu Brynjólfsdóttur, rekið
rausnargarð um langt árabil á
Prestbakka.
Þá hefði Vegagerð ríkisins gefið
eitt brúarhaf uppgert af brúnni yfir
Jökulsá á Sólheimasandi, sem
byggð var 1921 og markaði þá
þáttaskil í samgöngum héraðsins.
Brúarhafið minnti á liðna baráttu-
sögu og myndi væntanlega fá nýjan
tilgang við byggðasafnið í tengslum
við nýtt samgöngu- og tæknisafn
sem áformað er að reisa við safnið.
Þá er fyrirhugað að endurreisa
bamaskólann, sem var byggður við
Litla-Hvamm árið 1901 og er með
elstu bamaskólum í sveit, þar sem
Stefán Hannesson, bamafræðari og
hugsjónamaður, starfaði um langt
árabil. Búið er að staðsetja húsið
ekki langt frá kirkjunni og steypa
gmnninn. Það er mikill fengur fyrir
safnið að fá þetta hús, sagði Þórður
og búa það kennslugögnum síns
tíma.
Byggðasafninu í Skógum berast
árlega veglegar gjafir víðsvegar að
og árlega er unnið að áframhald-
andi uppbyggingu við safnið, sem
nýtur sífellt aukinnar aðsóknar. A
síðasta ári heimsóttu safnið rúm-
lega 27.000 gestir og bjóst Þórður
við áframhaldandi aukinni aðsókn
miðað við aðsóknina nú í vor og
sumarbyrjun.
Morgunblaðið/Hallfrfður
JÓN Tryggvi Jónsson, þjónn á Fosshóteli, Bjarni Ágúst Sveinsson hót-
elstjóri og Sveinn Jónsson matreiðslumeistari.
Fosshótel opnað á
Reyðarfirði
Reyðarfirði - Nýlega opnaði
Brunnur ehf. Fosshótel á Reyð-
arfirði. Gisting er fyrir rúmlega
40 manns í 20 herbergjum.
Sérstök aðstaða er fyrir fatl-
aða í herbergjum á neðri hæð.
Sími, sjónvarp og önnur þæg-
indi eru í hverju herbergi. I ráð-
stefnusal er tölvutengi og sér
simalína svo hægt verður að
vera í sambandi við aðra staði. í
matsal er rými fyrir rúmlega 60
manns. Matseðill er íjölbreyttur,
m.a. hreindýrakjöt og svartfugl
og sérstök áhersla verður lögð á
fiskrétti. Sérstakur hádegis-
verðarmatseðill verður daglega
svo flestir ættu að fá eitthvað
við sitt hæfi, að ógleymdum
kökunum með kaffinu. Góð bók-
un er í gistingu í sumar og er
það von starfsmanna hótelsins
að Fjarðamenn sem ferðamenn
nýti sér þá góðu aðstöðu sem
þarna er.
Arkitekt hússins er Björn
Kristleifsson á Egilsstöðum og
málaði hann einnig landslags-
mynd sem prýðir gestamóttök-
una. Eigandi hótelsins er Brunn-
ur ehf. og tók bygging þess sex
mánuði.