Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 41
f
MORGUNBLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 11. JUNI1999
UMRÆÐAN
Er hreyfing
heilsubót?
í ÞESSARI grein er sagt frá nið-
urstöðum rannsókna sem benda til
þess að regluleg hreyfíng í stuttan
tíma í senn bæti heilsu og þol. Með
því að gera hreyfingu hluta af dag-
legu lífí okkar getum við aukið
heilsu, þrek og vellíðan án þess að
hafa mikið fyrir því.
Hreyfing
Þung rök hníga að því
að reglubundin hreyf-
ing sé veruleg lífsbót
Sigurður
Guðmundsson
Stöðug hreyfing eða í hrinum Og hÚn bæði lengír
Anna Björg
Aradóttir
Því var lengi vel haldið fram að til
þess að hreyfing og líkamsþjálfun
væri heilsubót þyrfti hún að vera
stöðug þann tíma sem hún væri
stunduð. Nú hafa nokkrar rann-
sóknir leitt í ljós að uppsafnaður
tími skiptir máli þó svo að hreyfi-
tímanum sé skipt í nokkur stutt
tímabil. I bandarískri rannsókn sem
gerð var fyrir u.þ.b. 10 árum var
fólki gert að stunda líkamsþjálfun,
sem átti að vera í meðallagi eða
mikil, annaðhvort í 30 mínútur í eitt
skipti eða í þremur 10 mínútna
hrinum. í japanskri rannsókn var
hlaupi (sömu heildarvegalengd)
skipt upp í eina, tvær eða þrjár
hrinur. Þol (mælt var með hámarks
súrefnisupptöku) var hið sama í öll-
um hópunum í báðum rannsóknun-
um.
Fylgivandamál
líkamsræktar
Vissulega er sá galli á gjöf Njarð-
ar að líkamsþjálfun geta fylgt tiltek-
in vandamál. Til dæmis fá 35-65%
hlaupara einhvers konar stoðkerfis-
einkenni, verld eða önnur óþægindi
á hveiju ári. í flestum tilvikum eru
þau smávægileg. Öllu alvarlegra er
vandamál sem hefur skotið upp hjá
ungum konum, sem stunda mjög
mikla líkamsþjálfun af hvaða tagi
sem er, en það er tíðastopp með
beinþynningu og átröskunum. Þetta
er þó fátíður vandi og kemur ekki
fyrir hjá konum er leggja stund á
hæfilega hreyfingu. Margir hafa
haft áhyggjur af tilvikum þar sem
hjartadrep verður í kjölfar mikillar
áreynslu. Tíðni skyndidauða eftir
áreynslu er sem betur fer mjög lítil
eða frá engu upp í tvö tílvik fyrir
hverjar 100 þúsund klukkustundir
við áreynslu. Einkum gerist þetta
hjá kyrrsetufólki sem reynir um of
á sig og verður einkum á fyrstu
klukkustundinni eftir áreynsluna.
Undirstrikar þetta einungis nauð-
syn hægvaxandi þjálfunar og þess
að kyrrsetumenn fari ekki of geyst í
sakimar þegar þeir hefja líkams-
þjálfun.
Nýjar leiðbeiningar
um líkamsþjálfun
Lengi vel var talið að til að lík-
amsþjálfun væri gagnleg heilsufari
þyrfti fólk að hreyfa sig að minnsta
kosti 20-30 mínútur þrisvar í viku
og reyna veralega á sig. Talið var að
við áreynsluna þyrfti hjartsláttar-
hraði að vera 60-90% af hámarks-
hjartslætti. Rannsóknir bentu enda
til að árangur af hreyfingu væri
og bætir lífið, segja
Sigurður Guðmunds-
son og Anna Björg
Aradóttir, í síðari
grein sinni.
háður skammtinum, þ.e.a.s. því
meira sem menn hreyfðu sig þeim
mun meira væri gagnið.
Fyrir um það bil þremur árum
voru lagðar fram nýjar leiðbeining-
ar af hálfu landlæknis Bandaríkj-
anna í þessum efnum. Voru þær
unnar af forvamarstofnun Banda-
ríkjanna og samtökum íþrótta-
lækna. Leiðbeiningamar kveða á
um það, eins og kemur fram í með-
fylgjandi kassa, að fullorðnir eigi að
stunda líkamsrækt í 30 mínútur
flesta eða alla daga vikunnar en
áreynslan þurfi ekki að vera nema í
meðallagi (4-7 kílókaloríur á mín-
útu). Leiðbeiningar þessar leggja
áherslu á gagnsemi meðalhófsins,
ekki er nauðsynlegt að erfiða mikið
til að hafa gagn af. Ennfremur var
lögð áhersla á að hreyfing í hrinum
(8-10 mínútur í hvert skipti) er eins
gagnleg og hreyfing í lengri tíma ef
uppsafnaður tími nær 30 mínútum á
dag. Gert var ráð fyrir að orkunotk-
un þyrfti að samsvara 150-200
kílókaloríum á dag eða um 1.000
kílókaloríum á viku.
Engum ætti að vaxa í augum að
hreyfa sig á þennan hátt og er ljóst
að hreyfingin er oft á tíðum og get-
ur verið hluti af daglegum störfum
eða áhugamálum. Dæmi um al-
genga hreyfingu sem er í meðallagi
erfið er í meðfylgjandi töflu.
Dæmi um meðaláreynslu:
• Sæmilega hröð ganga (5 til 6 kíló-
metrar á klukkustund)
• Hjólreiðar (15 kílómetrar á
klukkustund, t.d. tU vinnu eða til
ánægju)
• Sund (án bægslagangs)
• Golf (kylfur bornar eða dregnar)
• Tennis og badminton
• Skokk (1'/2 hálfur kílómetri)
• Stangaveiði
• Hreingernig (heimavið eða ann-
ars staðar)
• Garðvinna
• Garðslátta (jafnvel með bensín-
sláttuvél)
• Húsamálun
• Bílþvottur og bón
• Ganga með bamavagn
Samstarf
Enginn vafi er á
því að hófleg hreyf-
ing er heilsubót og
aldrei er of seint að
byrja. Miklu máli
sldptir að þessum
upplýsingum verði
komið á framfæri
við fólk og þarf að
koma til samráð og
samvinna allra
þeirra sem vinna að
eflingu hreyfingar í
heilsubótarskyni.
Þama þyrftu marg-
ir að koma til, þar á
meðal heilbrigðis-
starfsfólk, íþrótta-
félög, skólar og vinnuveitendur, for-
eldrar og tryggingafélög, svo ein-
hver dæmi séu nefnd. Víða hefur
verið unnið gott starf í þessu efni,
ekki síst í ýmiss konar hópum, t.d.
hinn þekkti Hana nú-hópur í Kópa-
vogi. Fleiri slíkir þyrftu að koma til.
Ljóst er að hlutverk fjölmiðla, eink-
um sjónvarps, við að koma þessum
upplýsingum á framfæri getur verið
vemlegt. Við viljum því hvetja til
víðtæks samráðs í þessum efnum á
komandi sumri.
Að lokum
Þung rök hníga að þvi að reglu-
bundin hreyfing sé veruleg lífsbót
og hún bæði lengir og bætir lífið.
Hún minnkar líkur á íþyngjandi
sjúkdómum. Miklu máli skiptir að í
þessu efni er meðalhófið nóg. Þörf
er á frekara samráði í þessum efn-
um. Oft hefur verið farið út í hið
klassíska íslenska átak af minna til-
efni en miklu máli skiptir að því
verði haldið áfram og ekki látið líða
undir lok á skömmum tíma, sem því
miður hafa oft orðið örlög ýmissa
góðra verkefni hér á landi.
Sigurður er landlæknir,
Anna Björg er verkefnisstjóri
Heilsueflingar.
ues
Hues eru fallega hönnuð borð frá •BroyMir
þar sem einfaldleikinn faer að njóta sín.
Bífdshöfdi 20 - 112 Reykjavík Sími 5 f 0 8000
Góð:
Samsung VM6000
+ Intel Celeron örgjörvi 300MHz
+ 12,1" skjár
+ 32MB
+ 4GB
+ 4MB SGRAM skjáminni
+ 16 bita hljóðkort |3D SRS),
hljóönemi og hátalarar.
+ Innbyggð disklingadrif og
geisladrif
+ DVD eða Zip drif fáanleg
sem aukabúnaður
Betrí:
Samsung GS6000
+ Intel Pentium II örgjörvi 333MHz
+ 13,3"TFTskjár
+ 64MB
+ 6,4GB
+ 8MB SGRAM skjáfninni
+ 56KB mótald
+ 16 bita hljóökort (3D SRS)
hljóönemi og hátalarar
* Útskiptanlegt disklingadrif
og 24x geisladrif.
+ DVD eða Zip drif fáanleg
sem aukabúnaður.
Best:
Samsung GT6000
+
+
+
+
+
+
+
v
Intel Pentíum Itörgjörvi 366MHz
14.1"TFTskjár
64MB vinnsluminni
6,4GB diskur
8MB SGRAM slgáminni
56KB mótald
16 bita hljóðkort (3D SRS),
hljóðnemi og hátalarar.
Innbyggð disklingadrif
og DVD drif
Fartölva er eins
og tannbursti
- ómíssandí og alltaf með á ferðalögum
Pað er merki um framförir þegar góðir hlutir hætta að vera munaðarvara. Fartölvan
er vissulega ennþá munaður en nú faerðu öffuga.fartðlvu á verði sem þú ræður
auðveldlega við.
Samsung fartölvan verður ómissandi og óaðskiljanlegur hluti af Iffi þfnu.
Hvert sem þú ferð fer hún Ifka. Hún tengir þig við vinnustað og vini, léttir
vinnunna og styttir þér stundir þess á milli. Þú gleymir því fljótt hvernig
lífið var án hennar!
EJS hf. ♦ 563 3000 ♦ www.ejs
Grensásvegi 10
08 Reykjavfk