Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.06.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1999 29 Brottflutningur hersveita Serbar verða að Ijúka brottflutningi hersveita sinna frá Kosovo til Serbíu innan ellefu daga. NATO hefur ákveðið að fjórar leiðir verði notaðar við liðsflutningana og munu nota njósnavélar og gervihnattamyndir til að sannreyna brottflutninginn. 20 km UTGONGULEIÐ JUGOSLAVIA UTGONGULEIÐ Serbía ÚTGÖNGULEIÐ UTGONGULEIÐ Tímaáætlun brottflutningsins Gert er ráð fyrir að brottflutningur hersveita hefjist innan tveggja sólarhringa eftir undirritun samkomulagsins. Dagur 1 Dagur 6 Dagur 9 Dagur11 Svæði 3 Serbneskar her- sveitir hefja brott- flutning og sýna fram á friðarvilja sinn í verki Svæði 1 Svædi 2 Svædi 3 I kjölfar brottflutn- ings Serba mun friðargæsluliðið halda inn í Kosovo og tryggja endur- komu flóttamanna. Næsta stig ein- kennist af brott- flutningi Serba frá suður- og norður- hluta Kosovo Allar vopnaðar sveitir Serba verðí að hafa farið frá Kosovo. Al Reuters JÓHANNES Páll páfi hugleiðir við upphaf útimessu í pólska bænum Siedlce í gær. upp verði staðið. Hafa embættis- menn NATO hins vegar lýst yfir efasemdum um að rússneskar her- sveitir verði með í fyrstu aðgerðum fríðargæsluliðsins. Líklegra sé að þær myndu taka þátt er hersveitir Serba hafi yfirgefið Kosovo. Bróðui-partur friðargæslusveit- arinnar mun fara inn í Kosovo yfír landamæri Makedóníu innan nokkurra stunda eftir að sannað hefur verið að Serbar hafi hafið brottflutning hersveita. Er mark- miðið að koma í veg fyrir að liðs- menn UCK, sem heitið hafa því að ráðast ekki á Serba á heimleið, nýti sér tómarúmið sem kann að myndast og nái völdum á hernað- arlega mikilvægum svæðum. Ja- mie Shea, talsmaður NATO, sagði Tirana, Kukes. The Daily Telegraph, AFP. ÓTTAST er að Frelsisher Kosovo (UCK) búi sig nú undir að senda þúsundir liðsmanna sinna frá Al- baníu inn í Kosovo um leið og serbnesku öryggissveitirnar fara þaðan þótt yfirmenn uppreisnar- hersins neiti því að hann hafi slíkt í hyggju. Vestrænir stjórnarerindrekar óttast að hörð átök blossi upp í vesturhluta Kosovo milli liðs- manna UCK og vopnaðra hópa serbneskra þjóðernissinna, sem eru andvígir samkomulagi Jú- góslavíuhers og NATO. Pólitískur leiðtogi UCK, Hasim Thaci, sem var tilnefndur forsætis- ráðherra bráðabirgðastjómar Kosovo fyrr á árinu, neitaði því í gær að hreyfingin hygðist hefja skæmhernað í héraðinu til að sölsa undir sig svæði sem serbnesku ör- yggissveitirnar fara af. • Nokkrir foringjar í UCK sögð- ust hins vegar vera að skipuleggja liðsflutninga til borga í vesturhluta héraðsins. Bislim Zyrapi, „aðstoðarvarnar- málaráðherra" UCK, sagði í gær að liðsmenn UCK væru um 60.000 en vestrænir heimildannenn telja það miklar ýkjur. Bandaríska í vikunni að ekkert tómarúm yrði í Kosovo, „sveitir NATO koma fast á hæla sveitum Serba.“ Þá munu sérbúnar jarðsprengju- leitarsveitir NATO fá upplýsingar um hættumestu svæðin í Kosovo og ryðja brautina. Talið er að hættumesti hluti leiðar friðar- gæsluliðsins frá Makedóníu verði í Kacanik-fjallaskarðinu sem liggur milli bæjarins Blace í Makedómu og Kosovo. Skarðið sem er um 12 km langt, með tveimur jarðgöng- um og 14 brúm, er talið vera fullt af jarðsprengjum og munu sér- sveitir NATO verða undir miklum þrýstingi að hreinsa svæðið innan nokkurra klst. A eftir sprengjuleit- armönnum munu koma um 1.000 brynvarðir stórskotaliðssveita- varnarmálaráðuneytið telur að þeir séu um 15-17.000. Hernaðarsérfræðingar segja að margir ungir flóttamenn frá Kosovo og Albanar, sem búið hafa erlendis, hafi gengið í UCK. Þeir hafi fengið litla þjálfun og skæru- hernaður hreyfingarinnar hafi ver- ið illa skipulagður. Hernaðarmáttur UCK skertur Frelsisher Kosovo undirritaði ekki samning Júgóslavíuhers og NATO og ekki er minnst á hann í texta samningsins. Zyrapi og Thaci sögðu þó að UCK hefði sam- þykkt að draga úr hernaðarmætti sínum. Leiðtogar UCK segjast ætla að hlíta anda samningsins og hafa lof- að að ekki verði ráðist á serbnesku öryggissveitirnar þegar þær fara frá Kosovo. UCK er hins vegar samsafn margra laustengdra hópa skæruliða og ekki er víst að leið- togar hans hafi hemil á þeim liðs- mönnum hennar sem eru andvígir markmiðum NATO þar sem bandalagið ljær ekki máls á því að Kosovo verði sjálfstætt ríki. I friðarviðræðunum í Frakk- landi fyrr á árinu var lagt til að vagnar og skriðdrekar auk Apache-þyrlna í lofti. Þá er talið að flugsveitir fallhlífarhermanna munu hafa loftleiðina rakleiðis til Pristina. Er þessum áfanga hefur verið náð munu hergagnasveitir K- FOR íylgja í kjölfarið. Ekki annað Austur-Þýskaland Svæðaskipting Kosovo hefur verið eitt helsta bitbein Rússa og NATO. Þegar hefur verið ákveðið að Bandaríkin, Bretland, Frakk- land, Þýskaland og Ítalía, hernað- arlega máttugustu ríki NATO, muni stjóma sínu svæði í Kosovo hvert. Hefur sú skipting verið sótt til fyrirkomulags S-FOR, friðar- gæslusveitarinnar í Bosníu og Her- segóvínu. Samkvæmt þessu munu Bretar sem hafa fyrir mestum fjölda hermanna að ráða, stjórna friðargæsluliðinu frá höfuðstöðvum þess við flugvöllinn í Pristina. Ekki er aðeins óljóst með fjölda rússneskra hermanna í friðargæslu- liðinu, enn á eftir að semja um hlut- verk þeÚTa í fyrirkomulagi friðar- gæslusveitanna, þ.e.a.s. hvemig stjórn þeirra verði háttað. Rússar hafa algerlega hafnað því að her- sveitir þeirra lúti yfirstjóm NATO og var reynt að komast að niður- stöðu í því máli á löngum fundi hátt- settra rússneskra og bandarískra embættismanna í Moskvu í gær. Rússar era sagðir vilja vera við stjómvölinn á einu hinna þriggja svæða í Kosovo og að þar verði ein- göngu rússneskir hermenn sem sinni friðargæslu. Bandaríkjastjóm er alfarið á móti slíkum ráðahag þai- eð slíkt myndi í raun þýða að Kosovo-héraði væri formlega skipt upp. Þar með væri Milosevic enn nær upphaflegum mai-kmiðum sín- um um „þjóðemishreinsanir". Ekki væri óhugsandi að kröfur vöknuðu um „eðlilegt" framhald slíks ráða- hags, þ.e. að sameina yfirráðasvæði NATO - þar sem íbúar yrðu flestir Kosovo-Albanar - við Aibaníu og yf- irráðasvæði Rússa, hugsanlega í Norðaustur-Kosovo, við Serbíu. Þar með væra markmið NATO með hemaðaraðgerðunum á Balkanskaga að engu orðin. Nýverið sagði Robin Cook, utan- ríkisráðherra Bretlands, að Kosovo- hérað, undir stjóm NATO, yrði ekki annað Austur-Þýskaland. Skipting ríkisins væri óhugsandi. Markmið NATO era ljós. Hitt er þó einnig víst að lítið má bregða út af í þeirri flóknu framkvæmd sem fram- kvæmd friðargæslunnar í Kosovo verður, svo neisti komi ekki að púð- urtunnunni á Balkanskaga á ný. hreyfingin yrði „afvopnuð" en embættismenn NATO tala nú að- eins um að skerða eigi hemaðar- mátt hennar. Leiðtogar UCK og NATO vonast til að ná samkomu- lagi á næstu vikum um fjölda og tegundir þeirra þungavopna sem bandalagið vill að hreyfingin láti af hendi, en vélbyssum og rifflum fær hún að halda. Embættismenn NATO vona að kjarna UCK verði breytt í 3.000 manna lögreglusveit en Thaci sagði í gær að hann vonaðist til þess að ná samkomulagi við NATO um að UCK yrði að „atvinnuher". „Ég tel ekki að albönsk lögreglu- sveit dugi í Kosovo,“ sagði hann. Margir bandarískir embættis- menn óttast að UCK reyni að hefna sín á serbneskum íbúum Kosovo, snúi sér að glæpastarf- semi og valdi mikilli pólitískri tog- streitu í Kosovo eftir að serbnesku öryggissveitirnar fara þaðan. „UCK mun halda öllum mögu- leikum sínum opnum,“ sagði Ivo Daalder, sérfræðingur í málefnum Balkanskaga og fyrrverandi félagi í Þjóðaröryggisráði Bandaríkj- anna. „Það verður helsta vanda- málið.“ Pólverjar hvattir til að halda trúnni Siedlce. Reuters. JÓHANNES Páll páfi ávarpaði í gær 350.000 manns við útimessu í pólska bænum Siedlce og skor- aði á Pólverja að halda trú sinni á Krist þótt þeir þyrftu ekki lengur á kaþólsku kirkjunni að halda til að veijast kommúnisma. Áætlað er að 2,5 milljónir manna hafi sótt útimessur páfa í Póllandi frá því hann hóf þrettán daga ferð um ættjörð sína á laug- ardaginn var. Kaþólska kirkjan gegndi veigamiklu hlutverki í baráttunni gegn alræðisstjórninni í Póllandi eftir síðari heimsstytjöldina en dregið hefur úr áhrifum hennar meðal Pólverja á þeim áratug sem liðin er frá hruni kommún- ismans. Páfi hefur gefið til kynna að hann hafi áhyggjur af þeirri þróun og brýndi fyrir Pólverjum að hafa alltaf trúna á Krist að leiðarljósi í ávarpi sínu í gær. „Á tímabilinu eftir stríð var háð sérlega hörð barátta gegn kirkjunni af hálfu alræðisstjórn- ar,“ sagði páfi og minnti Pól- verja, einkum unga fólkið, á hvernig kommúnisiastjórnin bannaði trúarfræðslu í skólum og torveldaði kirkjunni að reisa ný guðshús. Páfi, sem er 79 ára að aldri, virtist vel á sig kominn eftir að hafa hvílt sig í einn dag í klaustri í norðausturhluta landsins. Iranar handtaka 13 gyðinga Teheran. Rcuters. ÍRANSKA leyniþjónustan segist hafa komið upp um starfsemi njósnahrings „síon- ista“, eða Israela, í suðurhluta írans og hneppt í varðhald 13 menn, sem grunaðir eru um njósnir, að því er háttsettur embættismaður í leyniþjónust- unni tjáði ríkisfréttastofunni IRNA. „Þrettán njósnarar sí- onista hafa verið handteknir," sagði embættismaðurinn í gær. Þetta var fyrsta opinbera yf- irlýsing Irana um handtöku meintra njósnara. Á þriðjudag kröfðust Bandaríkin og Israel þess að látnir yrðu lausir 13 íranskir gyðingar sem hefðu verið fangelsaðir í íran, og gef- ið að sök að hafa njósnað fyrir Bandaríkin og Israel. Bæði þau ríki neita þeim ásökunum. Bandaríska utanríkisráðu- neytið sagði handtökurnar „al- varlegt merki“. Ráðuneytið hefði vitað af þeim í apríl, en ísraelar segja að fyrstu hand- tökurnar hafi átt sér stað í jan- úar. IRNA hafði eftir fulltrúa leyniþjónustunnar að rannsókn stæði yfir og greint yi'ði opin- berlega frá niðurstöðum henn- ar „á næstunni". Iran hefur ekki viðurkennt tilvist ísraels. Eiturlyfjatekjur í ríkisbókhaldið STJÓRNVÖLD í Kólumbíu, sem nú glíma við versta efnahagssamdrátt í landinu í meira en fimmtíu ár, hafa ákveðið að telja tekjur af hinum ólög- lega en umfangsmikla eiturlyfjaiðnaði í Kólumbíu með í útreikningum hins opinbera á vergri landsframleiðslu. Vilja stjórnvöld með þessu reyna að tryggja hagstæðari niðurstöðu í út- reikningum á ríkisfjármálunum. Juan Camilo Restrepo fjármála- ráðhen-a segir stjómvöld með þessu ekki vera að „veita eiturlyfjaiðnaðin- um blessun sína,“ en að ákvörðunin ylli því líklega að verg landsfram- leiðsla ykist „ofurlítið". Yfirmaður hagstofunnai', Jafro Ur- daneta, sagði aftur á móti að breyt- ingin gæti orðið til þess að hagvöxtur yxi um heilt prósent. Hvergi í heimin- um er framleitt eins mikið kókaín og í Kólumbíu. Ottast sókn UCK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.