Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nóg af
berjum - lít-
ið af laxi
„ÞAÐ var eiginlega hátíð í morgun
þegar þeir fengu tvo fyrir neðan
Æðarfossa. Sannast sagna hefur
aldrei verið neitt í gangi þar í sum-
ar, engar göngur, bara svona
kropp og kropp. Þetta er mjög ró-
legt sem fyrr, þetta 2 til 4 laxar á
dag og ekkert svæði að gefa frekar
en annað. Veiðimenn eru að
hringja í mig og spyrja frétta,
menn sem eiga eftir að koma. Eg
segi þeim bara að hér sé nóg af
berjum!“ sagði Þórunn Alfreðs-
dóttir, bústýra í Vökuholti við Laxá
í Aðaldal, í gærdag.
Þá voru komnir 518 laxar af
svæðum Laxárfélagsins og á annað
hundrað laxar af öðrum svæðum,
en þar ber hæst svæði Núpa, Ness
og Árness. „Þeir eru mikið að veiða
og sleppa þar upp frá og það kem-
ur sér vel í laxleysinu að geta veitt
sama laxinn aftur og aftur. En það
er reyndar von á maðkagengi og þá
er litlu sleppt,“ bætti Þórunn við.
Fengu ekki regn
„Við fengum ekki rigninguna,
þvert á móti man ég ekki eftir öðru
eins hlýindasumri þau ár sem ég
hef verið hér við Hauka-
dalsá sagði Júlíana Magn-
úsdóttir, bústýra við
Haukuna, í gærdag. Þá
náði rigning og slagveður
niður í miðja Bröttu-
brekku Dalamegin og
varla var stætt í rokinu
við Miðá á sama tíma og
ekki bærðist hár á höfði
manna við Haukadalsá.
„Veiðin nú er alveg um
500 laxar og síðasti hópur
fékk 18^ laxa á tveimur
dögum. í fyrra komu 930
á land og við náum ekki að
jafna það í sumar, það er
ljóst. Eg held samt að vel
megi una við veiðina í sumar, því
það er talsverður lax í ánni og skil-
yrði til veiða hafa oft verið erfið,“
bætti Júlíana við.
Enn líflegt
í Soginu
Tíu laxar veiddust í Alviðru í
Soginu á sunnudag, m.a. 21 punds
hængur. Rífandi veiði hefur verið á
svæðinu síðustu tvær vikurnar og í
gær voru komnir 133 laxar á land.
Á Ásgarði hefur einnig glæðst
verulega og á sunnudag veiddust
þar t.d. átta laxar. Tuttugu eru
komnir úr Bíldsfelli og fimm úr
Syðri-Brú, eða alls 194 laxar.
Kyrrð og friður við fallega á. Göngumannahylur í Laxá á Refasveit.
ið af mjög fallegri bleikju, 2-3
punda.
„Þetta fór mun seinna í gang í
sumar heldur en í fyrra, áin var
mjög gruggug og köld, en þegar
ástandið batnaði var veiðin strax
mjög góð. Sem dæmi um afla-
brögðin veiddi eitt hollið um 300
fiska, var með fjórar stangir í tvo
daga á svæðum 4 og 5. Vænsta
bleikjan er þar, neðar er meira af
smærri fiski. Flugan er að gefa
langmestu veiðina, sérstaklega
púpur og nymfur með kúluhausa
sem menn veiða upp fyrir sig með
tökuvara," sagði Jón Gunnar.
Hörgá hefur einnig skilað góðri
veiði, en á stundum hefur hún verið
skoluð og erfið af þeim sökum.
„Það hefur verið meira veitt í
Hörgá en áður því ásóknin í Eyja-
fjarðará er orðin svo mikil. Þá fá
menn færri daga þar en þeir vildu
og fara í Hörgá í staðinn. Það er
ekki í kot vísað, því það er fín
bleikja í ánni og menn hafa fengið
góða veiði. Fiskurinn er líka vænn,
sérstaklega ofarlega og ég veit af
stærstum 7 og 7,5 punda," sagði
Jón Gunnar enn fremur. í Eyja-
fjarðará hefur hins vegar stærst
veiðst 8,5 punda bleikja og á efsta
svæðinu veiddist meira að segja
nýverið 17 punda lax.
Morgunblaðið/Þorkell
Tvær af þeim flugum sem duga best í
Eyjafjarðará, Pheasant Tail og gul Stone-
head, púpur með kúluhausum.
Veiði byrjaði illa í ánni og var
grugginu í jökulvötnunum kennt
um. Nú gæti stefnt í góða heildar-
tölu þrátt fyrir allt. Alls hafa um
280 bleikjur veiðst, en það er mun
minna en búist var við.
Mikið um bleikju
í Eyjafjarðará
Ekki liggur fyrir hvað búið er
að veiða af sjóbleikju í Eyjafjarð-
ará þar eð menn skila þar inn
veiðkortum sem eru að tínast inn
langt fram eftir hausti. Hins vegar
sagði Jón Gunnar Benjamínsson í
Veiðihorninu í Húsasmiðjunni að
mjög góð veiði hefði verið og mik-
Aldrei fleiri
farþegar
um Egils-
staði
Egilsstaðir - Farþegamet hefur
verið sett hjá Flugfélagi íslands á
innanlandsleiðinni Egilsstaðir-
Reykjavík. Farþegar í júlí voru um
6.000 talsins og áætlun sýnir far-
þegafjölda fara yfir þá tölu í ágúst-
mánuði.
Að sögn Einars Halldórssonar,
umdæmisstjóra Flugfélags íslands
á Egilsstöðum, eru þetta mestu
farþegarflutningar um Egilsstaði
frá upphafi. Einar segir að fyrstu
fimmtán dagana í ágúst séu far-
þegar um 700 fleiri heldur en á
sama tíma í fyrra. Hann segir
aukninguna íyrst og fremst vera
vegna innlendra gesta en algengt
sé að fólk komi saman í 15-20
manna hópum í þeim tilgangi að
ganga um fjöll og firnindi á Aust-
urlandi.
Áætlunarflug
í samt lag
ÁÆTLUNARFLUG Flugleiða
komst í eðlilegt horf í fyrradag, en
á föstudag og laugardag var mikil
röskun á millilandaflugi félagsins
og seinkaði því að jafnaði um þrjár
til fjórar klukkustundir.
Röskunin er rakin til bilana í
tveimur Boeing 757-flugvélum fé-
lagsins á fímmtudaginn og ollu
tafir af þeim sökum keðjuverkandi
áhrifum, þannig að flug annarra
véla raskaðist einnig. Nú er búið
að gera við vélarnar tvær og flug-
samgöngur því komnar í samt lag,
að sögn Margrétar Hauksdóttur
hjá upplýsingadeild Flugleiða.
Hún sagðist ekki vita hversu
miklu fjárhagslegu tjóni félagið
hefði orðið fyrir en að það væri
þónokkurt.
Ók á ljosa-
staur
BIFREIÐ var ekið á ljósastaur við
gatnamót Kringlumýrarbrautar og
Háaleitisbrautar í fyrrakvöld. Öku-
maðurinn var fluttur með sjúkra-
bifreið á slysadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur, en talið var að hann
hefði hlotið höfuðáverka og jafnvel
einhver innvortis meiðsl.
Ökumaðurinn, sem var einn í
bílnum, er talinn hafa fengið aðsvif
með þeim afleiðingum að hann
missti stjórn á bifreiðinni, fór á
rangan vegarhelming og ók þar á
staur.
Heimur Guðríðar í Kaupmannahöfn
Vegferð
Steinunnar og
Guðríðar
SUNNUDAGINN
12. september verð-
ur sýnt í Kaup-
mannahöfn leikrit Stein-
unnar Jóhannesdóttur;
Heimur Guðríðar, sem
fyrst var frumsýnt á
kirkjulistahátíð í Hall-
grímskirkju í Reykjavík
1995. Leikritið hefur síðan
verið sýnt víða í kirkjum á
íslandi og erlendis. Stein-
unn var spurð hver væri
aðdragandinn að þessari
sýningu í Kaupmanna-
höfn?
Leikferðin hefur lengi
staðið tO. Leikritið verður
sýnt í Hellig kors Kirke
að Kapelvej 38 (við
Assistens^ Kirkegaard) á
vegum íslendingafélags-
ins í Kaupmannahöfn með
styrk frá íslenskum og
dönskum aðilum. Islend-
ingafélagið í Kaupmannahöfn á
stórafmæli um þessar mundir,
það er munu vera 80 ár frá form-
legri stofnun þess, þótt löngum
hafi landar safnast saman í Kaup-
mannahöfn þar sem ótalmargir
þeirra stunduð nám öldum saman,
m.a. Hallgrímur Pétursson.
- Er ástarsaga hans og Guðríð-
ar Símonardóttur rakin rækilega í
leikrinu þínu?
Já, hún hófst einmitt í Kaup-
mannahöfn í haustbyrjun 1636,
þegar Guðríður kom til borgar-
innar úr sumarlangri reisu norður
Evrópu frá Alsír (Barbaríinu).
Kaupmannahöfn er því einn af
sögustöðum leikritsins. En það
var einmitt upphaf að leikferðum
með verkið að sýna það á sögu-
slóðum þeirra hjóna og höfðu
Vestmanneyingar frumkvæðið að
því. Fyrsta sýningin utan Reykja-
víkur var í Landakirkju 1. nóvem-
ber 1995.
- Er auðvelt að ferðast með
svona verk á milli landa?
Það er auðvelt að því leyti til að
búnaður okkar er einfaldur, ég
hef stundum sagt í gamni að ferð-
ist um með legstein og kistu -
kistan geymir leikmuni og bún-
inga en steinninn er eftirgerð af
legsteini Steinunnar dóttur Hall-
gríms og Guðríðar sem varðveitt-
ur er í Hvalsneskirkju. Það er
erfitt á hinn bóginn vegna þess að
það er dýrt að vera með leikrit á
ferðalagi og mikið mál að afla fjár
til hverrar ferðar.
- Hcfur þetta leikrit komið út á
bók?
Já, það kom út í vor hjá Skál-
holtsútgáfunni og þessa dagana er
það að koma út í danskri þýðingu
Bjöms Sigurbjömssonar hjá
sömu útgáfu. Þýðing Bjöms er
ákaflega falleg að mínu áliti, en
hann hefur áður þýtt Passíusálma
Hallgríms Péturssonar á dönsku
og fengið frábæra
dóma fyrir það verk.
- Liðin eru fjögur ár
frá frumsýningu
verksins, eru sömu
leikararnir enn í sömu
hlutverkum?
Það hefur orðið ein breyting frá
framsýningunni þar sem Helga
Bachmann var í hlutverki Guðríð-
ar eldri. Frá 1996 hefur Margrét
Guðmundsdóttir leikið það hlut-
verk. Helga E. Jónsdóttir hefur
aftur á móti leikið hlutverk Guð-
ríðar yngri frá upphafi og sama
gildir um Þröst Leó Gunnarsson í
hlutverki Hallgríms. Tónlist er
eftir Hörð Áskelsson, búningar og
leikmynd eftir Elínu Eddu Árna-
dóttur, ég sjálf er leikstjóri.
►Steinunn Jóhannesdóttir
fæddist á Akranesi 1948. Hún
lauk stúdentsprófí frá Akur-
eyri 1967 og útskrifaðist frá
Leiklistarskóla Þjóðleikhússins
1970. Hún var við framhalds-
nám í leiklist og leikhúsfræðum
til ársins 1972. Hún var leik-
kona hjá Þjóðleikhúsinu frá
þeim tíma til 1986. Jafnframt
skrifaði hún mikið í dagblöð
og tímarit og liefur samið
bækur af ýmsu tagi, m.a. Sögu
Halldóru Briem sem út kom
1994. Fyrsta Ieikrit hennar
var frumsýnt 1981; Dans á
rósum. Hún hefur samið nokk-
ur önnur leikrit, síðast Heim
Guðríðar, sem frumsýnt var á
Kirkjulistarhátíð í júní 1995
og hefur verið sýnt í kirkjum
um allt land með hléum. Stein-
unn starfar sem rithöfundur.
Hún er gift Einari Karli Har-
aldssyni ritstjóra og eiga þau
þrjár dætur.
-Er saga Guðríðar og Hall-
gríms enn mörgum kunn?
Hér á Islandi er hún það, eink-
um meðal eldri kynslóða. Erlendis
þekkja hana auðvitað fáir. Nú
gefst mér tækifæri til að kynna
hana bæði með leikferðinni en
ekki síður á norrænni samkirkju-
legri kvennaráðstefnu sem haldin
verður í Svenborg á Fjóni 26. tO
29. ágúst nk. þar sem ég verð full-
trúi á vegum íslensku þjóðkirkj-
unnar. Þar mun ég segja frá Guð-
ríði og flytja part úr verkinu í
fyrrnefndri danskri þýðingu
Bjöms Sigurbjörnssonar. Þarna
verða saman komnar 90 konur frá
ólíkum kirkjudeildum á Norður-
löndunum og er markmiðið að
draga fram þátt kvenna í kirkju-
sögunni í aldanna rás.
- Hvers vegna fórstu að skrifa
leikrit um Guðríði Símonardóttur?
Eitt af seinustu
stóru hlutverkum
mínum í Þjóðleikhús-
inu á sínum tíma var
hlutverk Guðríðar
Símonardóttur í leik-
riti séra Jakobs Jóns-
sonar; Tyrkja-Gudda. Þar með
var áhugi minn á persónunni vak-
inn. Hallgrímskirkja er mín sókn-
arkirkja og forráðamenn þar fóru
þess á leit við mig að ég skrifaði
nýtt verk um Guðríði, sem sér-
staklega vaeri ætlað til flutnings í
kirkjunni. I upphafi voru aðeins
fyrirhugaðar tvær sýningar þar
en þær eru nú að verða fimmtíu
og sér ekki enn fyrir endann á
vegferð minni með Guðríði Símon-
ardóttur.
Verkið að
koma út í
danskri
þýðingu