Morgunblaðið - 24.08.1999, Side 41

Morgunblaðið - 24.08.1999, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 41 MENNTUN Menntun er æviverk Hvað er símenntun? Hverjir bera ábyrgð á henni? Hversu margir leggja stund á hana? Hversu gildur þáttur er hún í lífi fólks? Morgunblaðið/Jim Smart „Menntun er fjárfesting, en ekki útgjöld," segir Guðný Helgadúttir. SÍMENNTUN er ungt hug- tak sem varð áberandi í menntamálaumræðu þegar Evrópusambandið helgaði því árið 1996 og þegar Dagur sí- menntunar var haldinn hér á landi 24. febrúar sama ár. Laugardaginn 28. ágúst verð- ur hann endurtekinn. „Símenntun felur í sér nýtt viðhorf tii menntunar," segir Guðný Helgadóttir, deildar- stjóri hjá menntamálaráðu- neytinu, en menntamálaráð- herra ákvað, á grundvelli til- lögu verkefnisstjórnar um símennt- un, að halda þennan dag. Markmið- ið með deginum er að vekja athygli á gildi símenntunar og þeim fjöl- breyttu möguleikum sem fólki standa til boða, hvetja fólk til að taka þátt í námi/námskeiðum til að efla þekkingu sína og færni í at- vinnulífínu og/eða til að auka per- sónulegan þroska og lífshamingju. „Menntun er æviverk, fólk þarf sí- fellt að bæta við sig ævina á enda.“ Orðið símenntun er notað um það nám einstaklinga sem fram fer eftir að hefðbundinni samfelldii skóla- göngu lýkur innan skólakerfisins. Hver skyns endurmenntun, viðbót- armenntun innans skólakerfisins og tómstundanám eru meginþættir í sí- menntun. Endurmenntun beinist á hinn bóginn að því að efla starfs- hæfni, viðhalda fagmenntun og fylgj- ast með nýjungum í starfsgi'einum. „Símenntun er ferli og endurmennt- un er hluti af því,“ segir Guðný. Ástæðan fyrir því að símenntun er meira knýjandi en áður er að þekk- ing úreldist hratt,“ segir hún, „og störf úreldast einnig hratt m.a. vegna örra tæknibreytinga." Hún segir að ný störf séu oft meira krefj- andi og að starfsmenn þurfi að fylgj- ast sífellt með. Iðnaðurinn um hug- búnað er gott dæmi um það. „Heim- urinn er orðinn einn menntunar- markaður," segir hún og að Netið hafi bætt möguleika manna til að fylgjast með honum og til að mennta sig. Símenntun er gildur þáttur í lífi fólks og er menntakerfið að verða sveigjanlegra og fjölbreyttara. Fjar- nám er orðið öflugt t.a.m. í Kennara- háskóla Islands og Verkmenntaskól- anum á Akureyri. Háskólinn á Akur- eyri, Háskóli Islands og Endur- menntunarstofnun HI hafa stigið þýðingarmiki] skref í fjamámi með fjarfundabúnaði. Menntun eykur hagsæld „Símenntun hefur verið áberandi umræðuefni á alþjóðavettvangi,11 segir Guðný og að Ár símenntunar hjá Evr- ópusambandinu hafi verið mjög áhrifaríkt. „Menn eru sammála um að því meiri og betri sem menntun þjóða er, því meiri verður hagsæld þeirra,“ segir Guðný og að ábyrgðin liggi hjá stjórnvöldum, at- vinnulífinu og ein- staklingunum. Ábyrgðin er allra og kostnaðarhlutdeOdin, í grófum dráttum, í grunnnámi hjá stjórnvöldum, í end- urmenntun hjá at- vinnulífinu og önnur hjá einstaklingum. „Ef einstaklingurinn vill tryggja öryggi sitt þarf hann að ástunda símenntun, bæði tO að bæta sig í starfi og líka ef hann vOl leita á önnur mið.“ Menntun er fjárfesting, en ekki útgjöld. „Hún er fjárfesting í mannauði,“ segir Guðný og að því sé mismunandi hver greiði náms- gjöldin, það eru einstaklingamir sjálfir, endurmenntunarsjóðir laun- þega eða atvinnurekendur. Helmingnr í símenntun Verkefnisstjóm menntamálaráð- herra um símenntun stendur fyrir Degi símenntunar og fimm ára átaki ríkisstjómarinnar til að efla símenntun. „TOgangurinn er að vekja athygli á gildi símenntunar og hvetja fólk til þátttöku,“ segir hún og að stefnan sé sett á að halda þennan dag árlega. Hún segir að sumstaðar erlendis þekkist það að helga símenntun heOa viku. „Dag- urinn er mikOvægur, á árunumú 1997-98 var helmingur fólks á aldr- inum 18-75 ára í námi utan hefð- bundins skólakerfis, 20% af þeim í tómstundanámi, 34% á starfstengd- um námskeiðum. Yms starfsgreinafélög hafa verið öflug í fræðslu á undanfömum ár- um og komið upp góðum endur- menntunarsjóðum. „Vinnuveitendur og launþegar leggja mikið af mörk- um í símenntunina," segir Guðný og reiknar með að menntamál verði veigamildll þáttur í næstu kjara- samningum. Fræðslustjórar í fyrirtækjum „Námsframboðið í landinu er mjög mikið. Símenntunarmiðstöðv- ar, sem em að rísa víða um land, munu gegna mikilvægu hlutverki," segir Guðný, „en þær eru vettvang- ur aðila í heimahéraði tO að vinna saman að símenntun. Þær gefa heimamönnum tö dæmis tækifæri tO að stunda háskólanám án þess að flytja búferlum." Hún nefnir einnig að stærri fyrir- tæki hafi viðurkennt menntun sem eðlilegan þátt í rekstri sínum og að mörg hafi ráðið sér fræðslustjóra. „Þessi fyrirtæki telja menntun góða t , fjárfestingu og að hún geri starfs- menn bæði ánægðari og hæfari.“ Guðný tekur að lokum undir það viðhorf að nám sé æviverk. Það heldur áfram eftir hefðbundna skólagöngu. „Það er ferli sem varir allt lífíð.“ SUMARIÐ 1999 skilaði nefnd um sí- menntun skýrslu til menntamálaráð- herra um stefnumörkun á sviði sí- menntunar. Heiti skýrslunnar er Sí- menntun - afl á nýrri öld. í byrjun árs 1999 skipaði mennta- málaráðherra verkefnisstjórn um sí- menntun fyrir sérstakt fimm ára átak í þágu símenntunar á grundvelli tillagna í skýrslunni. í verkefnis- stjórninni sitja: Þórir Hrafnsson, B.A. fulltrúi menntamálaráðuneytisins, formað- ur. Davíð Stefánsson, stjórnsýslu- fi'æðingur, fulltrúi Vinnuveitenda- sambands Islands. _Elna Katii'n Jónsdóttir, formaðm- HÍK, fulltrúi Hins íslenska kennara- félags. Gissur Pétursson forstjóri, fulltrúi félagsmálaráðuneytisins. Halldór Kristjánsson framkvæmda- stjóri, fúlltrúi fræðsluaðila á almenn- um markaði, án tOnefningar. Kristján Bragason vinnumarkaðs- fræðingui', fulltrúi Alþýðusambands Islands. Valgerður H. Bjarnadóttir for- stöðufreyja, fulltrúi Sambands ís- lenskra sveitafélaga. Tillögur til að bæta símenntun í íslensku samfélagi Úr skýrslu nefndar um símenntun „Símenntun - afl á nýrri öld“: Ný viðhorf til menntunar. Nám er æviverk sem lýkur ekki þegar hefðbundinni skólagöngu lýk- ur, heldur er ferli sem vai'ir allt lífið. Mikilvægt er að leggja áherslu á þetta viðhorf í skólum landsins, auk þess sem aðilar vinnumarkaðarins geta miðlað slíku viðhorfi til vinnu- staða og starfsfólks. Ábyrgðin er allra. Það varðar alla að efla símenntun og þar bera allir ábyrgð - stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingarnir sjálfir. Meginreglan í símenntun skal vera sú að þeir sem hennar njóta greiða fyrir hana. Hagsmunir ólíkra aðila fara þó oftar en ekki saman og skal þá hugað að sameiginlegri ábyrgð. Skýrt hlutverk stjórnvalda. Yfirumsjón símenntunar skal vera hjá menntamálaráðuneyti, þó að önnur ráðuneyti hafi áfram umsjón með þeirri símenntun sem undir þau heyrir. Ábyrgð stjórnvalda í sí- menntun felst að stærstum hluta í að tryggja góða undirstöðumenntun. Annar stuðningur stjórnvalda ætti einkum að miða að því að styðja við þá sem síst sækja símenntun. Ný viðhorf til þekkingar Námi lýkur ekki. Það varir ævina á enda. Fimm ára átak til að efla sí- menntun. Næstu fimm árin leggi stjómvöld sérstaka áherslu á að auka símennt- un með átaki sem miðast að því að auka framboð, eftirspurn og gæði sí- menntunar. Sameiginlegar áherslur aðila vinnumarkaðarins. Mikilvægt er að aðilar vinnumark- aðai-ins móti sameiginlegar áherslur í málefnum símenntunar og semji um réttindi og skyldur starfsfólks til að sækja menntun og þjálfun. Með sameiginlegu átaki þessara aðila má búast við að hæfni og þekking á vinnumarkaði aukist og símenntun nái þar frekari fótfestu. Frumkvæði fyrirtækja og stofn- ana Fjárfesting í menntun mun á kom- andi árum hafa jafn mikil áhrif á af- komu og samkeppnishæfni fyrir- tækja og fjárfesting þeirra í tækjum og nýrri tækni. Breytingar á vinnu- markaði krefjast aukinnar áherslu á símenntun og mikilvægt er að ís- lensk fyi'irtæki taki frumkvæði í þeirri þróun og tryggi þannig að hún nýtist atvinnulífinu sem best. Aukin ábyrgð einstaklinga. Með breytingum á menntakerfi og vinnumarkaði eykst ábyrgð einstak- linga á eigin menntun. Áuking hluta- starfa, tímabundinna eða verkefna- bundinna ráðninga, fleiri einyrkjar og færri störf sem ekki krefjast sér- menntunar, svo og nútímatækni ger- ir það að verkum að vinnuafl er mun hreyfanlegra en áður. Þetta felur í sér ný tækifæri fyrir einstaklinga og lykillinn að því að nýta sér þessa þróun er fólginn í stöðugri menntun og þjálfun. Annað tækifæri til náms. Fullorðnum þarf að standa til boða annað tækifæri til að hefja nám að nýju eða bæta við fyrri menntun. Opin samræmd próf gætu auðveldað þeim sem ekki hafa lokið slíku námi aðgengi að frekari menntun. Öld- ungadeildir framhaldsskóla og há- skólar þurfa að taka frekari mið af kröfum símenntunar og þörfum full- orðinna. Bætt aðgengi að upplýsingum og ráðgjöf. Gott aðgengi að upplýsingum og vönduð ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja eru nauðsynlegar for- sendur þess að símenntun aukist. Upplýsingar um símenntun þurfa að vera til staðar og mikilvægt er að hægt sé að nálgast slíkar upplýsing- ai' á aðgengilegan hátt. Slíkt gerir alla ráðgjöf mai'kvissari og auðveld- ar fyrirtækjum og einstaklingum að gera áætlanir um símenntun. Fjölbreytt námsframboð. Fjölbreytt framboð á símenntun, bæði innan skólakerfisins og á al- mennum markaði, þarf að vera til staðar til að sem flestir geti fundið sér námsfarveg við hæfi. Þetta ei^ mikilvægt bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Ef rétt er á málum haldið getur öflug atvinnugrein, sem byggist á miðlun þekkingar og þjálf- unar, þróast hér á landi. Samstarf atvinnulífs og skóla. Nauðsynlegt er að menntun í skólakerfinu mæti þeim kröfum sem gerðar eru til starfsfólks á vinnu- markaði. Því þarf samráð og sam- starf á milli skóla og atvinnulífs um áherslur í símenntun. Slíkt samstarf er báðum aðilum til hagsbóta, þar sem góð menntun skilar sér í hæfara starfsfólki á vinnumarkaði og betri nýting á þekkingu atvinnulífsins getur stuðlað að markvissari mennt- Frá námskeiðum til sjálfsnáms. Nútíma námskröfur kalla á breyt- ingar á því námsfyrirkomulagi sem ríkjandi héfur verið. Áherslan verð- ur á sérhæfðari leiðir í símenntun, þar sem neytandinn mótar námið í auknum mæli að eigin óskum og þörfum. Sjálfsnám og fjarnám munu bætast við hefðbundin námskeið, sem skapar einstaklingum og fyrir- tækjum ný tækifæri til símenntunar. Betri forsendur til símenntunará- ætlana. Einstaklingar og fyrirtæki munu í auknum mæli gera eigin símenntun- aráætlanir fyrir framtíðina. Slíkai' áætlanir eru í anda símenntunar, þar sem nám er sótt víða og á löng- um tíma. Árangursríkt er að lítil og1 meðalstór fyrirtæki sameinist um fræðslustarf og byggi þannig upp tengslanet sín á milli og innan ákveðinna atvinnugreina. Kröfur um gæði. Mat á gæðum á að vera sjálfsagt í fræðslustarfi. í símenntun þarf að tryggja lágmarks neytendavernd. Þetta er best á almennum markaði og í samstarfi við þá aðila sem helst koma að simenntun, enda gæti opin- bert eftirlit dregið úr frumkvæði og hindrað framfarir og nýjungar. Nýting upplýsingatækni. Með tilkomu upplýsingatækni^ opnast ný tækifæri í símenntun. Að- gengi að upplýsingum batnar, boð- skipti verða auðveldari og leiðir í sjálfsnámi og ijarnámi verða fleiri. Þessa tækni þarf að nýta til fulls til að efla símenntun hér á landi, en til að slíkt sé mögulegt þarf að efla tölvulæsi þeirra sem síst geta nýtt, sér þessa tækni. *

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.