Morgunblaðið - 24.08.1999, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.08.1999, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Miklar þreifíngar á bak við tjöldin í rússneskum stjórnmálum Lúzhkov sakaður um að beita bellibröarðum Moskvu. Reuters, AP, AFP. STJÓRNENDUR eins af stærstu dagblöðunum í Rússlandi sökuðu í gær Júrí Lúzhkov, borgarstjóra í Moskvu, um að hafa staðið á bak við þá ákvörðun eldvamareftirlits borg- arinnar að loka skrifstofum blaðsins. Sögusagnir um að lokun hins víð- lesna dagblaðs Kommersant tengd- ist valdabaráttu fyrir væntanlegar þingkosningar í Rússlandi fóru þeg- ar á kreik en undanfama daga hefur loft verið lævi blandið í rússneskum stjómmálum og mikiar þreifingar era í gangi vegna kosninganna, sem fram eiga að fara í desember. Skipunin um að skrifstofum Kommersant skyldi lokað var gefin á föstudag en blaðið er sagt hafa látið hjá líða að uppfylla skilyrði um eld- vamir. Auðkýfingurinn Borís Ber- ezovský, sem stendur nærri Borís Jeltsín Rússlandsforseta, keypti ný- lega Kommersant en Lúzhkov gagn- rýndi stjómarhætti Jeltsíns einmitt harkalega um helgina. Þykir Ijóst að mikil togstreita eigi sér nú stað á bak við tjöldin í rússneskum stjóm- málum og kom því ekki á óvart að lokun Kommersant skyldi tengd stj ómmálabaráttunni. Leoníd Miloslavský, fram- kvæmdastjóri Kommersant, sagð- ist að vísu ekki hafa neinar sannan- ir í höndunum en hann kvaðst þó sannfærður um að borgaryfirvöld í Moskvu stæðu á bak við lokunina. „í huga Lúzhkovs era þau dag- blöð og tímarit, sem ekki styðja hann opinberlega, óvinir hans. Við eram þó ekki óvinir hans, við skrif- um um Lúzhkov rétt eins og við skrifum um Berezovský og marga aðra,“ sagði Miloslavský. Lúzhkov styður Prímakov fari hann í forsetaframboð Lúzhkov stofnaði nýlega kosn- ingabandalag með rússneskum hér- aðsstjóram, sem þykir sigurstrang- legt í kosningunum í desember, ekld síst af því að Jevgení Príma- kov, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur samþykkt að veita því for- ystu. Lúzhkov var harðorður í garð stjómvalda í Kreml í sjónvarpsvið- tali, sem sýnt var á sunnudag, og þóttu ummæli hans til marks um hvemig hann hyggst haga baráttu sinni fyrir því að vinna sigur í kosn- ingunum í desember. Hann lýsti áhyggjum sínum af lýðræðisþróun í Rússlandi og sakaði Jeltsín um að misbeita valdi sínu. Bæði Lúzhkov og Prímakov hafa þótt líklegir til að vilja bjóða sig fram í forsetakosningum, sem fram fara á næsta ári, en Lúzhkov lýsti yfir því á sunnudag að hann myndi styðja Prímakov ákvæði hann að fara fram. „Ég hef ekki uppi nein áform um að verða forseti, en ég fylgist þó grannt með þróun mála,“ sagði Lúzhkov. Sagðist hann telja Prímakov afar vænlegan frambjóð- anda í embættið. Stalínistar boða framboð Aðrir stjómmálaleiðtogar keppast nú einnig við að styrkja stöðu sína en um helgina varð ljóst að ekkert yrði af samstarfi þriggja íyrrverandi for- sætisráðherra, Sergejs Stepashíns, Sergejs Kíríjenkós og Viktors Tsjemómyrdíns, í kosningunum en Jeltsín hafði vonast tii að slíkt kosn- ingabandalag miðhægrimanna gæti spomað við framsókn flokks Lúzhkovs og Prímakovs. Stepashín tilkynnti að hann myndi berjast fyrir þingsæti í heimaborg sinni, Pétursborg, og ekki verður heldur af samstarfi þeirra Kíríjenkós og Tsjemómyrd- íns því hinn fyrmefndi sagðist held- ur vilja ganga til samstarfs við Anatólí Tsjúbajs, hinn umdeilda og heldur óvinsæla fyrrverandi aðstoð- arforsætisráðherra. Þriðja stóra stjómmálaaflið, sem mun berjast um sigur í kosningun- um í desember, er Kommúnista- flokkurinn, sem iýtur stjórn Genna- dís Sjúganovs. Á sunnudag var enn- fremur tilkynnt um stofnun Sta- línistaflokks, sem hyggst taka þátt í þingkosningunum. Þriðja sætið á lista flokksins mun Jevgení Djúgas- hvili skipa, en hann er bamabam Jósefs Stalíns, fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna, og hefur flokkurinn það einmitt á stefnuskrá sinni að Sovétríkin verði endurreist. Fellibylur- inn Bret máttlítill Corpus Christi. Reuters. MIKIÐ dró úr krafti fellibylsins Brets í gær en hann stefndi á Texas-ríki og var talinn geta valdið miklum usla. Miklar rign- ingar fylgdu þó Bret og var úr- hellisrigning í suðurhluta Texas um hádegisbil í gær. Embættis- menn sögðust ekki hafa heyrt neinar fregnir um alvarleg meiðsl eða mannslát af völdum Brets. Á mánudagsmorgun var miðja Brets um 100 km suðvestur af borginni Corpus Christi og hafði storminn lægt niður í 129 km/klst. Þar með var Bret orð- inn að fellibyl með fyrsta stigs styrk á fimm stiga kvarða sem Bandaríkjamenn nota til að mæla hversu hættulegir fellibyljir séu. „Helsta ógnin nú er úrhellið," sagði Markl Lenz sem starfar hjá Veðurstofú Bandaríkjanna í Corpus Christi. Höfðu íbúar Texas verið varaðir við flóðum en síðdegis í gær höfðu engar fregnir borist af tjóni. Höfðu veðurfræðingar haft áhyggjur af því að Bret gæti orð- ið í líkingu við fellibylinn Andrew sem olli dauða 40 manna og gífurlegu tjóni í Miami árið 1992. Ognarástand ríkir í Kólumbíu Dauða- sveitir myrða 29 LIÐSMENN öfgafullra samtaka hægrimanna í Kólumbíu myrtu 29 manns um helgina í baráttu sinni gegn marxískum skæraliðum að því er fram kemur í frétt BBC. Morðingjarnir, sem tilheyra ólög- legum samtökum er kallast Sjálfs- vamarsveitir Kólumbíu, hafa leitað uppi fólk er þeir gruna um að styðja skæraliðahópa marxista, FARC og ELN, í Norte de Sant- ander-héraði í Norður-Kólumbíu, við landamæri Venesúela og er talið að um 4000 manns hafi flúið til nágrannaríkisins vegna ofsókn- anna. Dauðasveitirnar starfa eftir afar einfaldri og skilvirkri aðferðafræði; þeir halda til þorpa og bæja, loka öllum leiðum út og vopnaðir sjálf- virkum vopnum og nafnalistum, draga þeir alla sem grunaðir era um að styðja málstað skæraliða- hópa út á götur og taka þá af lífi. Skilaboð dauðasveitanna eru skýr - þeir sem styðja skæraliða verða myrtir án nokkurra spurn- inga. Áhrifanna gætir í Venesúela Síðasta sókn dauðasveitanna hef- ur haft áhrif á nágrannaríkið Venesúela og forseta þess Hugo Chavez sem hefur lýst því yfir að hann muni hefja samningaviðræður við skæraliðasveitir marxista hvort sem hann fær til þess leyfi frá kól- umbískum stjómvöldum eða ekki. Með frumkvæði sínu vill Chavez leitast við að koma í veg fyrir óstöð- ugleikann sem skapast hefur í Venesúela vegna borgaraátakanna í Kólumbíu. Landamæri Kólumbíu og Venesúela hafa löngum verið at- hvarf fyrir skæruliðasveitir. Telja fréttaskýrendur að kól- umbísk stjómvöld geti lítið gert í því að stöðva Chavez í viðleitni sinni þar eð nærri helmingur Kólumbíu sé nú undir stjórn einhverra þeirra vopnuðu sveita sem í landinu era. •^áÉtiUílÉéi-S' Reuters íbúar Corpus Christi í suðurhluta Texas-ríkis í Bandaríkjunum yfirgáfu borgina á sunnudag eftir að veðurfræðingar höfðu varað við miklum hamförum vegna komu fellibylsins Brets. Sú spá rættist ekki en mikið úrhelli olli nokkrum vandræðum í Texas í gær. Kosovo-Albanar í Orahovac setja strik í reikning friðargæslu KFOR Moskvu, Orahovac. Reuters, AP, AFP. YFIRMAÐUR rússneskrar friðar- gæslusveitar í Kosovo-héraði sem var meinaður aðgangur að bænum Orahovac af íbúum í gær sagði að sveit sín myndi reyna að halda til bæjarins í dag. Kosovo-Albanar er í bænum búa vildu ekki að Rúss- arnir tækju við störfum hollenskr- ar sveitar sem hefur verið í bænum frá því að friðargæslusveitir Atl- antshafsbandalagsins (NATO) og samstarfsríkja þess, KFOR, héldu inn í Kosovo snemma í sumar. Hafa íbúarnir sakað Rússa um að draga taum Serba í Kosovo og að rússneskir málaliðar hafi barist við hlið vopnaðra sveita Serba í hérað- inu þar til fyrir skömmu. „Það eru engin vandamál hér. Við komumst ekki í gegn í dag - við munum fara á morgun. Fyrir okkur vakir að sinna friðargæslu- störfum í Orahovae, og því verður hrundið í framkvæmd,“ sagði Ge- orgy Shpak, foringi sveitarinnar, í frétt /nfer/ax-fréttastofunnar í gær. Meina Rúss- um aðgang Orahovac er í suðvesturhluta Kosovo og er innan þýska yfirráða- svæðis héraðsins. Þar hafa hol- lenskir friðargæsluliðar farið með stjórn undanfarnar vikur en þeim var fyrirskipað að víkja fyrir rúss- nesku sveitinni er taka átti við stjóm öryggismála í bænum. Kosovo-Albanar sem í bænum búa era andvígir þátttöku Rússa í frið- argæslustörfum og hafa sakað þá um að styðja vopnaða hópa Serba sem fóru um héraðið sem eldur í sinu á meðan á loftárásum NATO stóð, myrtu óbreytta borgara og neyddu íbúa þess til að hverfa á brott. „Þeir Rússar sem tóku þátt í skelfilegustu fjöldamorðunum og glæpunum sem framdir vora eru ekki velkomnir til Orahovac," sagði Agim Hasku, leiðtogi Frelsishers Kosovo (UCK) í bænum, við sam- komu um 1.500 manna er söfnuðust saman í miðbæ Orahovac í gær. Á skiltum fundarmanna mátti lesa „NATO já, Rússar nei“ og „Rússar myrtu bömin okkar“. Hafa íbúar lýst yfir áhyggjum sínum af að rússneska hersveitin kunni að hylma yfir með þeim Serbum sem í bænum búa og grunaðir eru um stríðsglæpi. Þeir Serbar sem enn halda til í Orahovac hafast við á hæð fyrir of- an bæinn og hafa margir þeirra verið sakaðir um stríðsglæpi. Hasku lýsti því yfir að mótmælin myndu halda áfram og að íbúar hefðu lokað þremur aðalleiðum inn í bæinn. Þá hvatti hann íbúa til þess að aka ökutækjum sínum til útjaðars bæjarins og tryggja þannig að Rússamir kæmust ekki inn. Áherslur ósamræmanlegar Deilan um stjórn mála í Ora- hovac kemur í kjölfar yfirlýsinga stjómvalda í Kreml þess efnis að áherslur þeirra og vesturveldanna séu nær ósamræmanlegar. Hafa Kremlverjar sagt að KFOR-sveitir hafi ekki sinnt skyldum sínum þar sem þær hafi hvorki komið í veg fyrir flótta Serba úr Kosovo né hindrað hefndarverk liðsmanna UCK á fólki af serbneskum upp- runa. Þá hafa Rússar lýst yfir áhyggjum sínum af árásum liðs- manna UCK á friðargæsluliða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.