Morgunblaðið - 24.08.1999, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýjar rannsóknir staðfesta dvöl íslenskra landkönnuða á Nýfundnalandi
NÝJAR rannsóknar á eld-tinnu, eða
jaspis, frá víkingaöld sem fannst
fyrir mörgum árum við fom-
leifagröft við L’Anse aux Meadows á
norðurodda Nýfundnalands, benda
eindregið til þess að íslenskir menn
hafi komið þar við sögu. Ennfremur
eru líkur taldar á því að téður staður
sé Straumsfjörður sem getið er um í
Grænlendingasögu og þar sem
Snorri Þorfinnsson (Karlsefnis)
fæddist fyrstur evrópskra manna í
nýja heiminum.
Stjómandi rannsóknarinnar, dr.
Kevin H. Smith, aðstoðarforstöðu-
maður á mannfræðideild Vísinda-
safnsins í Buffalo í Bandaríkjunum,
kynnti niðurstöðumar ásamt Bimi
Bjamasyni menntamálaráðherra á
kynningarfundi í menntamálaráðu-
neytinu í gærmorgun. Menntamála-
ráðherra benti á, í formála að kynn-
ingu Smiths, að upp væri runnin
„söguleg stund“ þar sem í fyrsta
skipti hefði fengist staðfesting á
veru íslenskra manna á Nýfundna-
landi.
„Fingraför“ benda til Isiands
Rannsóknarverkefnið var stutt af
menntamálaráðuneyti Islands, þjóð-
görðum Kanada og Vísindasafninu í
Buffalo. Smith var fenginn til rann-
sóknarinnar árið 1997 af þjóðgörð-
um Kanada og beindist athygli hans
einkum að nokkrum jaspisáhöldum
frá L’Anse aux Meadows, ellefu
brotum alls. Jaspis er rauður steinn
sem líkist tinnu og var m.a. notaður
til að tendra eld.
Fram kom í máli Smiths að til
þess að komast að því hvaðan jaspis-
brotin væru upprunnin safnaði hann
sýnishomum frá 59 stöðum í Nor-
egi, á Islandi, Grænlandi, í Kanada
og Bandaríkjunum, til samanburðar.
Með samanburði á efnafræðilegum
„fingraforum“, sem fundin voru með
geislun í kjarnakljúf Toronto-há-
skóla, var hægt að rekja fimm brot-
anna ellefu til Islands, einkum
ákveðinna staða á landinu vestan-
verðu, m.a. Hestháls í Borgarfirði
og Reykholtsdals. Fjögur þeirra
voru ættuð frá Grænlandi en eitt frá
Mið-Nýfundnalandi, 250 km suður
af L’Anse aux Meadows.
Þessi niðurstaða kom að sögn
Smiths verulega á óvart en með
henni er fundin fyrsta vísindalega
tengingin milli Nýfundnalands og
íslands. Hann sagði að eld-tinna,
sem fyndist víða, kvamaðist fljótt og
hefði verið nánast eins og eldspýtna-
stokkur fyrir landkönnuði á víkinga-
„Söguleg stund“
að mati mennta-
málaráðherra
öld. „Þetta var því ekki hlutur sem
líklegt er að hafí gengið milli manna
í vömskiptum heldur er sennilegra
að sá sem bar íslenska steininn hafi
komið frá Islandi,“ sagði Smith.
Fyrsti bústaður Evrópumanna
í nýja heiminum?
Smith áréttaði mikilvægi þess að
fundist hefði jaspis bæði frá Græn-
landi og íslandi. í sögulegum heim-
ildum væri aðeins getið um eina
könnunarferð með þátttöku manna
frá báðum löndum og þar sem brot
frá löndunum hefðu fundist, sum af
sama steininum, í öllum bústöðunum
sem grafnir hefðu verið upp í L’An-
se aux Meadows, bentu líkur til að
staðurinn væri Straumsfjörður sem
getið væri um í Grænlendingasögu.
Þar að auki ættu staðarlýsingar í
sögunni mjög vel við.
Þessi nýja vitneskja mun að mati
Smiths hafa í för með sér breytt við-
horf tO landafunda Norður-Amer-
íku, einkum utan íslands. „íslend-
ingar hafa lengi vitað að þeir áttu
hlut að máli og hafa ekki efast um
frásagnir Islendingasagna. í Banda-
ríkjunum er krökkum að vísu kennt
það núorðið að víkingarnir hafi skot-
ið Kólumbusi ref fyrir rass en þá er
fyrst og fremst talað um Norðmenn
og Grænlendinga. Nú tel ég að við
getum sýnt fram á það að hafi ekki
verið alfarið um íslenska landkönn-
uði að ræða, hafi íslendingar í það
minnsta stigið á land við L’Anse aux
Meadows og tekið sinn þátt í könn-
un Norður-Ameríku fyi-ir þúsund
árum.“
Niðurstöðurnar kynntar á
Smithsonian á næsta ári
Aðspurður kvaðst Smith viss um
að hlutur Islendinga mundi upp frá
þessu hljóta viðurkenningu en
treysti sér ekki til að giska á hvenær
þessi nýja vitneskja yrði færð í
Morgunblaðið/Jim Smart
Dr. Kevin H. Smith, aðstoðarforstöðumaður við Visindasafnið í
Buffalo, útskýrir mikilvægi jaspis-brota sem fundust í víkingabyggð
við L’Anse aux Meadows á Nýfundnalandi. Steinninn var m.a. notaður
til að tendra eld og var nánast „eldspýtnastokkur" í vasa víkinga.
Björn Bjarnason menntamálaráðherra og dr. Kevin H. Smith á kynn-
ingarfundi í menntamálaráðuneytinu í gærmorgun.
kennslubækur. „Það tók nærri 40 ár
að koma víkingunum að! En það
hefst. Þetta eru fyrstu nýjungamar
í rannsóknum á þætti víkinga í
landafundum Norður-Ameríku í
meira en áratug og tímasetningin
hefði ekki getað verið betri þar sem
hátíðahöld árþúsundsins standa fyr-
ir dyrum.“
Niðurstöður rannsóknanna verða
m.a. kynntar á Smithsonian-stofn-
uninni næsta sumar, auk þess sem
þær verða birtar í fagtímaritum á
næstunni.
Smith taldi niðurstöðurnar að
auld hafa visst vægi fyrir rannsóknir
á Islendingasögunum. „Ef hægt er
að marka frásagnir þeirra af atburð-
um sem áttu sér stað í fjarlægum
löndum, eins og á Nýfundnalandi, þá
spyr maður sig hvort ekki megi taka
töluvert mark á þeim varðandi at-
burði sem áttu sér stað hér á landi,“
sagði Smith.
Þjóðminjasafn íslands var ein
þeirra stofnana sem veittu Smith að-
stoð. Þór Magnússon þjóðminja-
vörður var ekki í vafa um að niður-
stöður Smiths hefðu mikla þýðingu.
„Það má náttúrlega segja að við Is-
lendingar höfum nú lengi ekki efast
um það að norrænir menn hafi verið
þarna á ferðinni. En það er nú svo
að ritaða málið þarf líka stuðning
annars staðar frá, til dæmis frá
fomleifafræðinni. Ég tel mjög
merkilegt að það skuli vera hægt að
sýna fram á hvaðan þessir jaspis-
steinar em upprannh’ með rann-
sóknum sem virðast vera mjög
áreiðanlegar," sagði Þór.
Um framhald á rannsóknum sagði
Smith ýmislegt á döfinni. „Það er
auðvitað takmarkað af minjum en
við eram að saftia fleiri sýnishomum
af jaspis hér á Islandi í þeim tilgangi
að þrengja hringinn og staðsetja
með meiri nákvæmni hvaðan brotin
komu. Það er líka athyglisvert fyrir
okkur að kanna hvemig eld-tinna
var notuð á bæjum hér á landnáms-
öld. I þessum tilgangi stendur til að
kanna rauðan jaspis sem fundist hef-
ur á Eiríksstöðum við Breiðafjörð.
I haust ætla ég að snúa mér aftur
að minjasafninu frá L’Anse aux
Meadows og skoða fleiri eldfæri úr
öðram steintegundum. Vonandi
kemur í Ijós að þau era ekki bara úr
næsta nágrenni heldur frá stöðum
lengra inni í landi. Ef svo er getum
við kannski leitt getum að því
hversu langt norrænu landkönnuð-
imir fóra. Að slíkri vitneskju yrði
mikill fengur,“ segir Smith.
Borgarstjóri Brima fer í siglingar til að fá hlé frá stjórnmáliim
Morgunblaðið/Sverrir
Henning Scherf, borgarstjóri Brima, klifrar upp á bryggju þar sem
skútan, sem hann siglir nú á yfir Atlantshafið, lá í Reykjavíkurhöfh
um helgina.
Hús Islenskra
sjávarafurða selt
Með skútu
yfir Atl-
antshafið
HENNING Scherf, borgarstjóri
Brima, hélt á sunnudag í siglingu
austur um haf í stórri seglskútu
eftir fimm daga dvöl á íslandi.
Borgarstjórinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann fengi ekki
oft tækifæri til að taka sér hlé frá
stjómmálum, en á tveggja til
Þr'g'KÍa ára fresti færi hann í allt
að tveggja vikna siglingu í skútu,
sem tilheyrði siglingaklúbbi, þar
sem hann væri félagi.
Scherf hefur aldrei áður komið
til íslands, en þekkir þó vel til ís-
lands, ekki síst vegna þeirra við-
skipta með físk, sem íslendingar
eiga við þýska borgríkið Bremen.
Hann sagði að hið nána samband
fslands og Brima næði aftur um
þúsund ár eða allt til kristnitöku á
Islandi og benti á að fyrsti íslenski
biskupinn, Isleifur Gissurarson,
hefði tekið vígslu í Brimum. Nú
tengdi fiskurinn Island og Brima,
en hin trúarlegu tengsl væru þó
enn við lýði. Vert væri að halda
upp á þessi samskipti íslands við
meginland Evrópu í gegnum
Brima á næsta ári um leið og því
væri fagnað að Leifúr heppni
hefði fundið Ameríku.
Borgarstjórinn sagði að á næsta
ári væri ráðgert að halda á Islandi
sýningu, þar sem lögð væri
áhersla á þessi tengsl, og gefa út
sérstakt hátíðarrit af sama tilefni.
Skútan, sem borgarsljórinn sigl-
ir með, er 16,5 metra löng og öll
úr viði. Henni var siglt hingað til
lands frá Halifax. Hér var skipt
um áhöfn áður en siglingunni var
haldið áfram og er Scherf hluti af
nýju áhöfninni. Sagði hann að sigl-
ingin myndi sennilega taka 10
daga og yrði höfð viðkoma í Orkn-
eyjum.
GENGIÐ var frá samningum um
sölu húss íslenskra sjávarafurða í
Sigtúni nú um helgina. Kaupendur
era Kringlan ehf. fjárfestingafélag,
fyrir hönd nokkurra fjárfesta, sem á
ekkert skylt við Kringluna 4-6.
Reynir Karlsson hrl. hjá Almennu
málflutningsstofunni, sem sá um
kaupin, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hvorki yrði greint frá
kaupverði hússins né heldur þeim
sem standa að baki kaupunum að
svo stöddu.
Húsið var auglýst til sölu í sunnu-
MIKILL viðbúnaður var við Reykja-
víkurflugvöll á sunnudagskvöld þeg-
ar ATR-skrúfuþota frá Islandsflugi,
með 47 manns innanborðs, kom til
lendingar með annan hreyfilinn bil-
aðan. Slökkvilið Reykjavíkur, lög-
reglan og skjúkraflutningamenn
vora í viðbragðsstöðu. Götum borg-
arinnar var lokað þegar vélin kom
inn til lendingar úr norðri, yfir mið-
borgina og lenti til suðurs, en lend-
ingin tókst giftusamlega.
Að sögn Ellerts Eggertssonar,
dagsblaði Morgunblaðsins fyrir
rúmri viku og var uppsett verð 400
milljónir. Finnbogi Jónsson, for-
stjóri IS, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hann gerði ráð fyrir að ÍS
gæti keypt hús sem nægði starfsem-
inni fyi'ir þriðjung þeirrar upphæð-
ar sem fékkst fyrir eignina í Sigtúni.
Finnbogi sagði söluna þýða tals-
verða lækkun á skuldum IS, en sala
hússins er liður í hagræðingu hjá IS
eins og fram hefur komið í Morgun-
blaðinu. Að sögn Finnboga verður
húsið afhent kaupendum 1. mars.
tæknistjóra hjá íslandsflugi, bilaði
háþrýstidæla í hægri hreyfli flugvél-
arinnar, en dælan stjórnar olíuflæði
og skurði skrúfunnar. Þetta leiddi til
þess að flugmennirnir höfðu ekki
fulla stjórn á hreyflinum og ákváðu
þeir því að slökkva á honum. Ellert
sagði að flugmennimir hefðu gert
rétt og að í raun hefði ekki verið nein
stórhætta á ferðinni. Hann sagði að
flugvélin yrði líklega komin í notkun
á ný í dag en senda þurfti eftir vara-
hlut til Hollands.
Lenti í Reykjavík
með bilaðan hreyfíl