Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 13

Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 13 Sigurður Kári Kristjánsson kosinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna Telur kjör endur- spegla kynslóðaskipti SIGURÐUR Kári Kristjánsson varð hlutskarpastur í kosningu um formann Sambands ungra sjálf- stæðismanna á 35. þingi þess í Vest- mannaeyjum um seinustu helgi. Tveir voru í framboði og fékk Sig- urður Kári 211 atkvæði en andstæð- ingur hans, Jónas Þór Guðmunds- son, 143 atkvæði. Alls kusu 356, en auðir og ógildir miðar voru tveir. Rétt til setu á þinginu höfðu rúm- lega 450 manns. Sigurður Kári kveðst ánægður með úrslitin. Honum komi þau ekki mjög á óvart miðað við það sem bú- ið var að reikna út fyrir kosningar og búist var við fyrirfram, en mun- urinn á frambjóðendum hafi þó ver- ið heldur meiri en hann átti von á. „Mitt fólk skilaði sér betur til Vestmannaeyja en fólk Jónasar. Við unnum einnig mikið og markvisst starf á þinginu og þar sem Ijóst var að ekki voru allir þingfulltrúar ákveðnir þegar þeir komu á staðinn, tókst okkur að vinna marga á okkar band þar,“ segir Sigurður Kári. Baráttan frekar til skaða Hann kveðst þeirrar skoðunar að málefnaágreiningur milli frambjóð- andanna tveggja hafi verið lítill sem enginn og hafi valið fyrst og fremst snúist um menn. „Við Jónas höfum staðið saman að mörgum málum hjá SUS og ég hugsa að málefnastaða okkar sé svipuð. Eg hugsa hins veg- Jónas Þór segir veður hafa valdið afföllum ar að þessi úrslit þýði að ákveðin kynslóðaskipti hafi orðið hjá SUS. Seinustu formenn hafa verið fæddir á árunum 1967 til 1968, en ég er töluvert yngri, eða tuttugu og sex ára gamall. Sömuleiðis hefur orðið mikil endumýjun í stjóm SUS og þangað kom inn yngra fólk sem sat ekki þar áður. Hins vegar em ein- hverjir þar einnig sem eiga sér langa sögu í starfi fyrir SUS og því um ágætis blöndu að ræða. Það er mjög gott að mínu viti að í þessu starfi sé fólk á öllum aldri og að stjómin endurspegli sjónarmið allra aldurshópa," segir Sigurður Kári. Hann kveðst þeirrar skoðunar að kosningabaráttan hefði mátt fara fram með öðram hætti og til greina komi að hans mati að endurskoða hvemig að kosningum verði staðið í framtíðinni. „Eg er viss um að þessi barátta sem átti sér stað hjálpar okkur ekki. Hún var frekar til þess að skaða hreyfinguna og flokkinn held- ur en hitt og ég held að það hafi ver- ið óheppilegt hvernig hún þróaðist. Ég velti því fyrir mér hvort ekki þurfi að kanna hvort ekki sé rétt að breyta kosningafyrirkomulaginu með einhverjum hætti. Það væri t.d. mögulegt að leyfa öllum flokks- bundnum sjálfstæðismönnum á aldrinum 15 til 35 ára að kjósa sér formann. En þrátt fyrir þessi átök sem sýndu greinilega að margir létu sér ekki standa á sama hver tæki við þessum samtökum, sem sýnir að innan hreyfingarinnar er líf, lít ég svo á að menn geti unnið saman sáttir,“ segir Sigurður Kári. Jónas Þór kveðst hafa gert sér grein fyrir að munurinn gæti orðið sá sem raun ber vitni þegar kom að kosningum á sunnudag, þar sem nokkur affóll hafi orðið í stuðnings- mannaliði hans. Fyrst og fremst hafi veður sett strik í reikninginn, en lengi vel var ekki flugfært til Vestmannaeyja vegna þoku. Leggur SUS áfram lið „Ég er ekki að halda því fram að ég hefði borið sigur úr býtum þó svo að staðan hefði snúist við og stuðn- ingsmenn Sigurðar hefðu ekki kom- ist til Vestmannaeyja, en munurinn hefði að minnsta kosti getað verið minni. Það var hins vegar lengi vel erfitt með flug á sunnudagsmorgun og gat bragðið til beggja vona fyrir báða aðila. Þarna vora tveir í fram- boði og menn völdu þann sem þeir töldu hæfari til að leiða hreyfing- una. Ég er þeirrar skoðunar að kosningar sem þessar styrki hreyf- inguna til lengri tíma, mikill kraftur Samtök ritstjóra á Norðurlöndum funda í Reykjavík Baráttan fyrir prentfrelsi grundvallarmarkmið IPI Morgunblaðið/Jim Smart Norrænir ritstjórar funduðu á Hótel Sögu í gær. Þar var meðal annars rætt um harða samkeppni dönsku dagblaðanna Jyllandsposten og Berlingske Tidende, deilur um siðferðileg álitaefni í sænskri fjölmiðl- un og kaup stærstu fjölmiðlakeðju Finnlands á hlut í norsku fyrirtæki af sama toga. ÁBYRGÐ blaðamanna og þörf fyrir sterka ritstýringu vora meðal um- ræðuefna á fundi Norðurlandadeild- ar IPI - International Press Institute, alþjóðasamtaka ritstjóra og annarra stjórnenda fjölmiðla, sem haldinn var í Reykjavík í gær. Jafnframt fundaði sérstök stýrinefnd samtakanna, sem meðal annars er skipuð formanni og fram- kvæmdastjóra og ætlað er að móta ný stefnumið í tilefni aldamótanna og fimmtíu ára afmælis alþjóðasam- takanna árið 2000. Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins og formaður Is- landsdeildar IPI, setti fund Norður- landadeildarinnar í gærmorgun. Næstur talaði Geir Haarde fjár- málaráðherra og fjallaði um efna- hagsuppganginn á Islandi á síðustu áram. Aðalræðu fundarins flutti Matthías Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, og fjallaði hann um ábyrgð blaðamanna og þörfina fyrir sterka ritstýringu. Johann P. Fritz, framkvæmda- stjóri IPI, og formaður samtakanna Moegsien Williams ritstjóri, frá Suður-Afríku, kynntu starf og stefnumál samtakanna fyrir fundar- mönnum. Baráttan fyrir prentfrelsi meginverkefnið IPI-samtökin vora stofnuð í Bandaríkjunum árið 1950 af hópi ritstjóra frá fimmtán löndum. Nú era meðlimimir um 1200 og frá yfir hundrað löndum. Aðalverkefni sam- takanna er baráttan fyrir prent- frelsi um allan heim. Formaður IPI, Moegsien Williams, ritstjóri frá Suður-Afríku, segir að þau hafi meðal annars beitt sér í þessum efnum nýlega í Indónesiu, Eþíópíu, Kamerún og Suður-Ameríku. Þau hafa einnig lagt áherslu á þjálfun blaðamanna í Austur-Evrópu og löndum Sovétríkjanna sálugu. Williams segir samtökin sjaldan eða aldrei hafa verið sterkari, ekki síst vegna öflugs starfs fram- kvæmdastjóra þeirra, Johanns P. Fritz, síðastliðin sex ár. Þróunin geri það þó að verkum að huga þurfi að breytingum á stefnumiðum þeirra. „Flestir einstaklingar fara að hugsa sinn gang þegar þeir verða fimmtíu ára og sama gildir um okkur. Þetta era góð tímamót til að huga að því hvert eigi að halda næst.“ Williams segir að ákveðinn þrýst- ingur sé á samtökin að breyta um stefnu vegna þess að önnur samtök af svipuðum toga keppi við þau með því að leggja áherslu á að hjálpa fé- lagsmönnum sínum í markaðsmál- um og starfsaðferðum þeim tengd- um. Hann segir að grandvallar- markmið IPI, baráttan fyrir prent- frelsi, verði þó óbreytt. Aukin áhersla verði hins vegar lögð á að fá unga ritstjóra og útgefendur til að starfa í samtökunum og jafnframt verði reynt að fjölga konum í áhrifa- stöðum innan þeirra, enda fjölgi sí- fellt þeim konum sem gegna stjóm- arstöðum hjá fjölmiðlum. Einnig verði reynt að höfða til stjómenda netfjölmiðla af öllu tagi. Williams er formaður stýrinefnd- arinnar, sem á að móta tillögur í þessa átt, en þær eru unnar í sam- ráði við fulltrúa aðildarlanda sam- takanna. Endanlegar tillögur verða lagðar fram á fundi í maí á næsta ári. Hann verður haldinn í Boston í Bandaríkjunum þar sem samtökin vora stofnuð á sínum tíma. Morgunblaðið/Pétur Biöndal Sigurður Kári og Jónas Þór féllust í faðma eftir að úrslit kosninga um embætti formanns SUS lágu ljós fyrir. Sigurður Kári steig í pontu eft- ir að úrslitin lágu fyrir og þakkaði þingfulltrúum stuðning til embættisins. leysist úr læðingi enda á í hlut stærsta stjómmálahreyfmg ungs fólks á Islandi. Það breytir því þó ekki að ég hefði gjaman viljað að kosningabaráttan og aðdragandi kosninganna hefði þróast á talsvert annan veg,“ segir Jónas Þór. Hann kveðst ekki þeirrar skoðun- ar að sú harðvítuga kosningabar- átta sem fram fór og ásakanir sem gengu á milli stuðningsmanna fram- bjóðendanna hafi varpað rýrð á SUS. Hann telji að menn geri sér grein fyrir að ákveðin átök verði í kringum kosningar af þessu tagi, en það sé léttvægt í samanburði við framhaldið. „Þama fóra fram lýðræðislegar kosningar og niðurstaðan gat ekki orðið önnur en að annar frambjóð- andinn ynni. Sigurður hafði betur og það sem skiptir mestu máli núna er að menn sameinist á ný að slagn- um loknum, horfi björtum augum til framtíðar og vinni að baráttumálum ungra sjálfstæðismanna. Ég mun að sjálfsögðu leggja ungum sjálfstæð- ismönnum lið héreftir sem hingað til, eftir því sem ég best get.“ í aðalstjóm SUS vora kosnir 25 manns. Fyrir Reykjavík vora kosnir eftirtaldir: Andrés Andrésson, Arna Hauksdóttir, Einar Öm Ólafsson, Friðjón R. Friðjónsson, Guðrún Inga Ingólfsdóttir, Ingibjörg Lind Karlsdóttir, Ingvi Hrafn Oskarsson, Soffía Kristín Þórðardóttir og Svan- hildur Hólm Valsdóttir. Fyrir Reykjanes: Hafsteinn Þór Hauks- son, Haukur Þór Hauksson, Ingvar Eyfjörð, Jónas Hvannberg, Skarp- héðinn Orri Björnsson, Pétur Árni Jónsson og Ríkharður Ibsen. Fyrir Vesturland: Bergþór Ólafsson. Fyrir Vestfirði: Kristján Jónsson. Fyrir Norðurland vestra: Gunn- laugur Auðunn Ragnarsson. Fyrir Norðurland eystra: Arnljótur Bjarki Bergsson og Gunnþór Ey- fjörð Eyþórsson. Fyrir Austur- land: Jens Garðar Helgason. Fyrir Suðurland: Einar Sigurðsson, Guð- rún Erla Gísladóttir og Helgi Val- berg Jensson. Yfirskrift þingsins var Öldin okkar og var starfað í 20 málefnanefndum. Aðildarfélög SUS eru tæplega fjöratíu talsins. Fráfarandi formaður SUS, Ásdís Halla Bragadóttir, gaf ekki kost á sér áfram. Landsstjórn og þingflokkur Framsóknar funda Ráðherrar sitja fyrir svörum ARLEGUR haustfundur lands- stjómar og þingflokks Framsóknar- flokksins er haldinn í dag. Fundur- inn er haldinn í tengslum við árlega síðsumarferð flokksins sem að þessu sinni er um Reykjanes. Þingmenn og landsstjóm flokks- ins sitja fundinn auk helstu trúnað- armanna hans í kjördæminu. Að sögn Hjálmars Ámasonar, starf- andi formanns þingflokks fram- sóknarmanna, verður lagt af stað í skoðunarferð um Reykjanes árdeg- is. Ymis fyrirtæki verða skoðuð auk þess sem náttúru- og menning- arminjar á borð við Krísuvík, Bláa lónið og Selatangar verða skoðaðar. Fundarhöld hefjast síðdegis og á fyrsta hluta fundarins fer formaður flokksinsyfir stjómmálaástandið al- mennt. Á síðari hluta fundarins, sem er opinn fjölmiðlum og flokks- bundnum félögum úr kjördæminu, sitja ráðherrar Framsóknarflokks- ins fyrir svöram, og er gert ráð fyr- ir að sá hluti fundarins hefjist upp úr klukkan 16, að sögn Hjálmars. Fundurinn fer fram í Svartsengi. Hlíðar — 3ja herb. risíbúð Fasteignasalan Eignahöllin, Hverfisgötu 76, sími 552 4111. í einkasölu mjög falleg 3ja herb. risíbúð í þessu fallega húsi, sem er á góðum stað við Úthlíð. Suðvestursvalir og frábært útsýni. Góð lán.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.