Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 33

Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 33 Menningarnótt haldin í fjórða sinn Borgin vakir Sögur af brennivínsberserkjum í Skugga- hverfí, umræður um tilgang lífsins á Kjarvalsstöðum, píanótónleikar í Operunni og hreingjörningur í Austur- stræti var meðal þess sem Margrét Sveinbjörnsdóttir heyrði og sá á menning- arnóttinni í miðborginni. LITRÍKAR regnhlífar og regnfatnaður voru áber- andi í götumyndinni í Reykjavík á Menning- arnótt, sem haldin vai’ hátíðleg um helgina. Eiginlega mætti allt eins tala um menningarsíðdegi og menningarkvöld, því dagskráin hófst síðdegis á laugardag og hélt áfram fram eftir kvöldi en flestum skipulögðum viðburðum lauk um miðnæturbil. Þá hélt fólk hins veg- ar áfram gleðinni á kaffihúsum, knæpum og öðrum skemmtistöðum borgarinnar, þeir allra hörðustu langt fram á morgun. Dagskrá Menningarnæturinnar hófst í rigningarúða í Lýðveldis- garðinum við Hverfisgötu um fjög- urleytið. í setningarávarpi sínu lét Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri í ljósi ánægju sína með að Menningarnóttin væri þegar búin að skapa sér sess í borgarlífinu, nú þegar hún væri haldin í fjórða sinn. Ánægjulegt væri að sjá hvernig all- ir legðust á eitt um að gera daginn sem eftii-minnilegastan; einstak- lingar, fyrirtæki, stofnanir og síð- ast en ekki síst listamenn. Allir góðir hlutir verða til á nóttunni Hallgrímur Helgason var fulltrúi listamanna við setninguna og sagði m.a. frá því í ávarpi sínu hvað hon- um leiddist óstjórnlega mikið þegar hann var barn í Reykjavík. En nú væri öldin sem betur fer orðin önn- ur. „í dag er gaman að búa í Reykjavík. Við getum verið stolt og glöð af borginni okkar. Borgin sem alltaf sefur hefur breyst í borgina sem vakir, af list. Hin snjalla hug- mynd, Menningarnótt, er nú fram- kvæmd í fjórða sinn. Skemmtileg- asta kvöld sumarsins gengur í garð og nóttin fyllist af fólki fullu af áhuga á því sem listamenn borgar- innar þeirra hafa legið andvaka yfir síðustu sextíu nætur. Því eins og þið vitið, þá verða allir góðir hlutir til á nóttunni, eins og til dæmis við sjálf,“ sagði Hallgrímur um leið og hann bauð „góða nótt“. Dagskránni í Lýðveldisgarðinum lauk með líflegu dans- og tónlistar- atriði ungs fólks frá Marokkó, Tún- is, Finnlandi og íslandi og átti hóp- urinn sá eftir að skjóta upp kollin- um víðar um bæinn þegar á leið kvöldið. Drjúgur hluti þeirra sem voru viðstaddir setninguna í Lýðveldis- garðinum lögðu að henni lokinni upp í sögulega gönguferð um Skuggahverfið í fylgd Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings. Enn ýrði úr lofti og ágerðist heldur úr- koman eftir því sem á leið en ekki virtist fólk láta það á sig fá. Að minnsta kosti fylgdist fjöldi fólks með af athygli þegar Guðjón hóf upp raust sína og sagði frá kotinu Skugga, sem hverfið dregur nafn sitt af, og var fyrsta húsið í Skugga- hverfi. Hann sagði frá gosdrykkja- verksmiðjunni Sanitas, brjóstsyk- ursgerðinni Nóa og smjörlíkisgerð- inni Smára, sem allar hófu starf- semi sína í hverfinu, sem var á sín- um tíma helsta iðnaðarhverfi bæj- arins. Sögur af fátækum tómthús- mönnum, alræmdum brennivíns- berserkjum og gömlum steinbæj- um runnu upp úr Guðjóni og meðal göngumanna voru gamlir Skugg- hverfingar sem gátu bætt við sög- urnar og svarað spurningum sem upp komu. Hreingjörningur, tilgangur lífsins, óskir og vonir Úr Skuggahverfinu lá leið ski-if- ara niður í Kvosina. Var þá komin rigning og nokkur vindur og menn sem voru að setja upp sýningar- tjald utan á íslandsbanka í Lækjar- götu fyrir útibíóið seinna um kvöld- ið virtust eiga fullt í fangi með að hemja tjaldið. En upp komst það á endanum, svo bíóþyrstir menning- arnæturhrafnar gátu séð kvikmynd Þráins Bertelssonar, Nýtt líf, á gafli bankans. Gott var að flýja í skjól inn í Iðnó, þar sem fjöldi barna á öllum aldri hafði komið sér notalega fyrir til þess að hlusta á Vilborgu Dagbjartsdóttur rithöf- und segja sögur úr Biblíunni. Það- an lá leiðin í Ráðhúsið, þai- sem ís- firðingar réðu ríkjum, en ísafjörður var gestabær Menningarnætur ‘99. Þar var leikhópurinn Morrinn með trúðasýningu allfjöruga og síðar um kvöldið sýndi hópurinn leikþátt- inn „Umhverfis ísafjörð“ og fléttaði inn í hann tónlist ísfirska tónskálds; ins Jónasar Tómassonar eldri. í Tjarnarsal gaf einnig að líta sýn- ingu á málverkum Agnesar Aspelund myndlistarmanns og skai-tgripum Dýrfinnu Torfadóttur gullsmiðs og á veggjum Ráðhús- kaffis mátti sjá sýningu Ane Henden Motzfeldt, „Spegill, spegill, herm þú mér“, þar sem listamaður- inn velti vöngum yfir lýtaaðgerð- um. Næst var haldið í Landsbankann í Austurstræti, þar sem Pétur Pét- ursson þulur sagði sögur af þekkt- um viðskiptavinum bankans og kom víða við. Það var sem hvítur stormsveipur færi um Austur- strætið þegar kona kom askvað- andi út úr bókaverslun Penn- ans/Eymundssonar og hóf þrif af miklum móð undir lifandi tónlistar- flutningi. Hér reyndist vera á ferð- inni spunadansarinn og húsmóðirin Anna Richardsdóttir með svokall- aðan hreingjörning. Nú var stefnan tekin á Kjarvals- staði, þar sem frést hafði af frekari gjörningum. Skrifari rétt missti af því þegar stúlkurnar gulklæddu í Gjörningaklúbbnum veittu fólki eina ósk og sendu það heim með nýja von og stjörnuljós en kom hins vegar rétt tímanlega til að hlýða á djúpar umræður Þórodds Bjarna- sonar myndlistarmanns, Gunnars Hersveins heimspekings og ann- arra viðstaddra um ekki ómerkara mál en tilgang lífsins á „Þingi fljót- andi umræðu“. Aftur var haldið niður í bæ, nú á Morgunblaðið/Sverrir Utibíó í Lækjargötu. Á tröppum Þjóðleikhússins upplýsti Guðjón Friðriksson meðal annars að Hverfisgatan væri kennd við Skuggahverfið. Vilborg Dagbjartsdóttir settist í hægindastólinn á sviðinu í Iðnó og sagði börnum sögur við góðar undirtektir. Laugaveg 48b, þar sem Hallgrímur Helgason hafði fyrr um kvöldið opnað myndlistarsýningu í Galleríi one o one. Gestir veltust þar um af hlátri yfir teikningum listamanns- ins af Grim og ultu svo út aftur, sumir beint í flasið á Gjörninga- klúbbnum gulklædda, sem þar var mættur á vettvang með fleiri góðar óskir og vonir. Þegar hér var kom- ið sögu var að hefjast frumflutn- ingur á trommuverki Gunnlaugs Briem fyrir sjö trommur, sem ekið var á tengivagni frá Sóleyjargötu um Lækjargötu að hafnarbakkan- um, þar sem við tók litskrúðug flugeldasýning. Ekki nóg með það, heldur uppljómaðist miðborgin með ljósaveislu Orkuveitu Reykja- víkur á Arnarhóli um ellefuleytið en þá var ski-ifarinn kominn í þægi- legt sæti í íslensku óperunni, þar sem eina lýsingin var á sviðinu, nánar tiltekið á Eddu Erlendsdótt- ur sem lék á píanó fimm smástykki eftir Edvard Grieg. Hvert sæti var skipað í Óperunni og gott betur og fregnir herma að þannig hafi það verið allt kvöldið á þeim bænum, þar sem fjöldi listamanna kom fram í boði BM-Vallár. Stemmningin í miðbænum þetta kvöld og þessa nótt var svolítið eins og á Þorláksmessu. Að minnsta kosti höfðu margir orð á því að þeir hefðu hitt þar fólk sem þeir hefðu ekki séð í mörg ár, rétt eins og oft gerist á Þorláksmessukvöld þegar allir sem vettlingi geta valdið drífa sig í bæinn til að líta þar á lífið. Það vantaði bara plastpokana og pakk- ana, svo ekki sé talað um stressið sem fylgir því gjarnan að vera ekki ennþá búinn að finna síðustu jóla- gjöfina. En skrifarinn saknaði þess ekki vitundarögn og gaf sig óhikað á vald næturinnar - sem ennþá var ung.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.