Morgunblaðið - 24.08.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 35
TÓNLIST
lla I Igrfmskirkja
ORGELTÓNLEIKAR
Lars Andersson frá Svíþjóð flutti verk
eftir Messiaen, J.S. Bach, Alain og
Reger. Sunnudagurinn 22. ágúst 1999.
ORGEL eru hljómmestu hljóð-
færi sögunnar og fyrrum stóð fólki
ógn af miklum hljómi þessa hljóð-
færis, er minnti kirkjugesti oft á
dómsdag, er þrumdi yfir fólki tO
áminningar um lítUmótleik mann-
anna. Þá gat hljómur þess verið
undur blíður, sem alsælan sjálf og
guðdómlegur af fegurð hljóms og
sætra radda. Orgelið hefur óhemju
vítt svið blæbrigða og styrks og
þessar andstæður notaði Lars And-
ersson, á tónleikum sínum í Hall-
grímskirkju sl. sunnudag, í útfærslu
Píanóleikur
í Bláu
kirkjunni
STEINUNN Birna Ragnarsdóttir
píanóleikari er næsti flytjandi í tón-
leikaröðinni „Bláa kirkjan" í Seyðis-
fjarðarkirkju ann-
að kvöld, miðviku-
dagskvöld, kl.
20.30. Steinunn
Bima flytur tónlist
eftir Hándel, Schu-
mann, Sibelius,
Debussy, Granados
og Sinding.
Steinunn Birna
starfar nú við tón-
listarflutning og
einnig við Tónlist-
arskólann í Reykjavík. Hún er
reglulegur gestur á listahátíðum er-
lendis og er stofnandi og listrænn
stjómandi tónlistarhátíðarinnar
Reykholtshátíðar.
-----♦-♦-♦----
Gyða Ölvis-
dóttir sýnir
á Blöndudsi
NÚ STENDUR yfir myndlistarsýn-
ing Gyðu Ölvisdóttur í kaffihúsinu
Við árbakkann á Blönduósi. Á sýn-
ingunni em aðallega verk unnin með
krít á velúrpappír og olíumálverk.
Sýninguna tileinkar hún tengdaföð-
ur sínum, Agnari Br. Guðmunds-
syni, en hann hefði orðið 80 ára á
opnunardaginn 17. ágúst.
Gyða er fædd í Þjórsártúni í
Rangárvallasýslu 1954 en er nú bú-
sett á Blönduósi. Hún er hjúkranar-
fræðingur að mennt en stundaði
bréfanám í myndlist og naut hand-
leiðslu Hjördísar Bergsdóttur
myndlistarkennara (Dóslu) á áran-
um 1992-1994. Þetta er ellefta sýn-
ing Gyðu.
Sýningunni lýkur um miðjan sept-
ember.
--------------
Samsöngur
þriggja kóra
HÉR á landi era stödd 45 ungmenni
úr kanadíska kómum, New Found-
land Symphonie Youth Choir, en
kórinn er meðal bestu æskukóra
Kanada, segir í fréttatilkynningu.
Kórinn er á leið til Finnlands þar
sem hann tekur þátt í alþjóðlegri
kórahátíð ásamt Kór Menntaskólans
við Hamrahlíð. I kvöld, þriðjudags-
kvöld, halda kórarnir sameiginlega
tónleika í Hamrahlíðarskólanum kl.
20.30 ásamt Skólakór Kársness.
P( lím og 1 1 ■■■■■■■ liguefni ■■■«□■■
jÍ Stórhiirða 17. \ ið (iu kil www.llis.is • Nc linhní • S. 567 4N44 j|! Hang llisR' llis.is y
_____LISTIR__
ÞRUMUGNÝR
tónverkanna, svo að nærri lá að
væri aðalatriði tónleikanna.
Tónleikarnir hófust á 6. þættinum
úr Les corps glorieux, eftir Messi-
aen. I útfærslu hans vora aðaltón-
hugmyndimar oft allt of sterkar,
eins og oft tíðkast í kóraforspilum,
þegar sálmurinn er yfirstyrktur,
Auk þess var verkið slitrótt í mótun
og vantaði allt sem heitir franskt í
leik blæbrigða. Annað viðfangsefnið
var sálmforleikurinn yfir sálminn
Schmúcke dich, eftir J.S. Bach og
var það í raun eina verkið á tónleik-
un sem var leikið á eðlilegan máta.
Það verður ekki sagt um Es-dúr
prelúdíuna og fúguna frægu, sem
var í heild leikin með svo þramandi
bólginni raddskipan, að þeir einir
sem þekkja verkið, munu hafa vitað
hvað var að gerast.
Deucieme Fantaisie, eftir Jean
Alain, var leikin með sömu for-
merkjum og verk Messiaens. Það
verk sem Ándersson lék vel, var
Sinfónísk fantasía og fúga eftir
Reger, Infemo fantasian, þar sem
Reger fullreynir hljómafl orgelsins
og tvinnar saman flókið raddferli,
en slíkt ofhlæði var honum ástríða
og einnig fjötur um fót í uppbygg-
ingu tónsmíða, sem oft fylgir mikl-
um hljóðfærasnillingum, sem Reger
vissulega var. Þrátt fyrir að Reger
þrami með sterkum hljómi, á hann
til blíðleika og þá má heyra oft ein-
staklega fagrar tónlínur. í heild var
styrleikaskipanin of mikil í fyrri
hluta verksins, svo að er á leið, reis
verkið ekki til þess mikilleiks, sem
líklega var markmið tónskáldsins.
Það er vandi að byggja upp vaxandi
styrkleika og tengja það framgangi
tónhugmyndanna. Þetta var ofgert
hjá Lars Andersson, sem ræður yfir
nokkuð mikilli tækni, þó ekki væri
leikur hans laus við göslagang, sem
var helst áberandi í Es-dúr prelúdí-
unni og fúgunni eftir J.S. Bach og
einnig í verki Regers, þó þar megi
frekar taka áhættu. Fyrir þetta
verða tónleikamir í heild munaðir
fyrir yfirstyrkta raddskipan í
frönsku verkunum, þramandi
bólgna raddskipan í Bach og óupp-
byggða styrkleika skipan í verki
Regers, sem þó var best leikna
verkið á tónleikunum.
Jón Ásgeirsson
Súre£nisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi
Mikið úrval af
fallejum
rúmfatnaili
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Alvöru Suzuki jeppi
á verði smábíls!
Flottur í bæ, seigur á fjöllum
Suzuki Jimny er sterkbyggður og öflugur sportjeppi,
byggður á sjálfstæðri grind og með hátt og lágt drif. Það
er sama hvort þú ætlar með vinina í fjallaferð eða á
rúntinn niður í bæ, Jimny er rétti bíllinn!
1.399.000,- beinskiptur
1.519.000,- sjálfskiptur
$ SUZUKI
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Egilsstaðin CT Y7\ J|(T T> fT A D TJC
Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, slmi 471 20 11. Hafnarfjörður Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, slmi 555 15 50. (safjörður Bílagarður ehf., Grænagarði,
sími 456 30 95. Keflavik: BG bllakringlan, Grófinni 8, sfmi 421 12 00. Selfoss: Bfiasala Suðurlands, Hrismýri 5, sími 482 37 00.
Hvammstanga: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 26 17.
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is