Morgunblaðið - 24.08.1999, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
Ert þú að
undirbúa
framtíðina?
FLESTIR sem hafa búið í sama
þjóðfélagi og unnið á sama starfs-
vettvangi í einhver ár vita að mikl-
ar breytingar hafa átt sér stað á
undanfömum árum. Aukin þekking
á lögmálum heimsins, tæknifram-
farir, auknar kröfur um betri nýt-
ingu auðlinda, aukin þjóðfélags-
meðvitund - allt þetta og meira til
hefur gert það að verkum að þjóð-
félagið þróast og
breytist hratt. Þessi
breyting gerir síðan
auknar kröfur til ein-
staklingsins um að
viðhalda þekkingu
sinni og hæfni til að
standast þær starfs-
og þjóðfélagskröfur
sem eru gerðar hverju
sinni.
Þjóðfélagið
Ofantalin atriði hafa
mikið að segja um
daglega lífið hjá okk-
ur. Fáir hugsa sig um
í dag hvort þeir eigi að
taka bflprófið, það er
sjálfsagður hlutur
núna þó ekki hafi verið svo fyi-ir
nokkrum áratugum síðan. Á sama
hátt er að verða nauðsynlegt að
kunna á tölvur og geta notað hrað-
og heimabanka. Ferðalög og jafnvel
flutningur á milli landa er tiltölu-
lega auðveldur, aðgangur að upp-
lýsingum hefur aukist og öll sam-
skipti eru öruggari og fljótari.
Möguleikamir aukast stöðugt og
erfiðast er að fylgjast með og gera
upp á milli þeirra tækifæra sem eru
til staðar. Gæðakapphlaupið hefur
aukist með auknum tækifærum,
ásamt þrýstingi á að standa sig í
starfi og leik.
Atvinnulífíð
Vinnuumhverfi atvinnulífsins í
dag er langt frá því að vera það
sama og það var fyrir áratug síðan.
Viðskiptavinurinn gerir auknar
kröfur varðandi þá þjónustu sem
hann fær, varðandi gæði, hraða og
verð. Hann hefur líka meira í huga
afleiðingar framleiðsluferlis og
notkunar vöm, t.d. tengt umhverf-
ismálum og nýtingu mannauðsins.
Fyrirtækið þarf að mæta þessum
kröfum því ef ekki þá er tiltölulega
auðvelt fyrir neytandann að finna
samkeppnisaðila sem uppfyllir bet-
ur kröfur hans. Samkeppni fyrir-
tækisins er ekki heldur lengur
svæðisbundin, heldur alþjóðleg og á
neytandinn orðið greiðan aðgang að
upplýsingum og söluaðilum á þessu
alþjóðlega svæði.
Til þess að vera samkeppnishæft
þarf fyrirtækið því á hæfu starfs-
fólki að halda. Sífellt auknar kröfur
eru því gerðar um reynslu, eftir-
menntun og viðhald þekkingar.
Einstaklingurinn
Með tilliti til þeirra auknu krafa
sem gerðar era til einstaklingsins
þarf stöðug þekkingaraukning að
vera hluti af hans daglega lífi, til að
tryggja að hann sé ávallt verðmæt-
ur starfskraftur og geti staðið und-
ir kröfum atvinnurekandans, og til
að tryggja að hann geti nýtt sér hin
almennu tækifæri sem boðið er upp
á. Flestir vilja jú bæta lífsskilyrði
sín í gegnum lífið en slíkt byggir
gjarnan á að auka reynslu sína og
verðmætagildi á vinnumarkaðinum
og í þjóðfélaginu.
Tímarnir hafa virkilega breyst,
flestir skipta um starf á nokkurra
ára fresti og margir skipta jafnvel
oft um starfssvið á ævinni. Atvinnu-
öryggi er ekki alltaf sem best, mikil
fækkun getur átt sér stað eða heilu
starfstéttirnar jafnvel orðið úreltar
á skömmum tíma. Ennfremur verð-
ur einstaklingurinn að spyrja sjálf-
an sig hvort hann sé jafn verðmæt-
ur starfskraftur þegar hann hætti í
núverandi starfi eins og þegar hann
byrjaði. Hin hliðin er sú að mikil
tækifæri era til staðar fyrir þá sem
vilja nýta sér þau, atvinnurekendur
era famir að líta á þekkingu, kunn-
áttu og reynslu til móts við próf-
skírteinið og kostur á námsleiðum
og endurmenntunar-
námi er sífellt að aukast
og verða fjölbreyttari.
Æviferli
Það er því af sem áð-
ur var þegar fólk út-
skrifaðist úr skóla með
þekkingu og hæfni sem
átti að tryggja atvinnu-
öryggi og viðunandi
lífsskilyrði ævilangt.
Orðið símenntun hlýtur
æ meira mikilvægi sem
lýsing á menntunarferli
nútímans og framtíðar-
innar, ferli sem af nauð-
syn varir allt lífið.
Með því að gera
menntun að æviferli í
lífinu viðhöldum við þekkingu okk-
ar og kunnáttu. Það má næstum
segja að það skipti ekki máli hvað
Mennt
Kostur á námsleiðum
og endurmenntunar-
námi, segír Hrönn
Pétursdóttir, er sífellt
að aukast og verða
fjölbreyttari.
við lærum, bara að við læram
stöðugt eitthvað nýtt - eitthvað
sem fær okkur til að sjá lífið á fjöl-
breyttari hátt, sem gerir okkur
kleift að takast á við ný verkefni í
vinnunni, eða einfaldara og-
skemmtilegi’a að lifa í fjölbreyti-
leika nútíma þjóðfélags. Það sem
skiptir máli er að við uppfæram
þekkinguna og hæfileikana til að
gera okkur auðveldara að viðhalda
lífsskilyrðunum og njóta þess sem
lífið býður upp á.
Menntunin sjálf getur síðan verið
í margvíslegum búningi, ný reynsla
á vinnustað, þátttaka í eftirmennt-
unarnámskeiði, sjálfsnám með að-
stoð bóka og sjálfsnámsefnis, þátt-
taka í tómstundanámi, með því að
horfa á vin eða samstarfsfélaga, eða
bara með því að prófa sig áfram á
markvissan hátt. í öllu falli er um
virkan lærdóm að ræða, þar sem
„nemandinn" ber sjálfur ábyrgð á
virkni sinni og framför. Það er hans
ábyrgð að viðhalda færni sinni og
þekkingu til að tryggja áframhald-
andi stöðu sína á vinnumarkaðinum
og hæfni til að lifa í þjóðfélaginu.
Símenntun skiptir þjóðfélagið og
atvinnulífið jafnmiklu máli og ein-
staklinginn, því samkeppnishæfni
byggir meðal annars á hæfu starfs-
fólki. Á sama hátt og einstaklingur-
inn þarf að nálgast menntun sína á
nýjan hátt, þarf því skóla- og
fræðslukerfið að takast á við nýjar
aðstæður og væntingar með auknu
úrvali námsefnis og námsleiða.
Framtíðin
Að lokum, hefur þú hugleitt
hvernig þú vilt að þitt líf sé eftir 10
ár? Ert þú farinn að undirbúa þá
framtíð?
Höfundur cr framkvæmdastjóri
MENNTAR - samstarfsvettvangs
atvinnulffa ogskóla.
Hrönn
Pétursdóttir
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 43.
UMRÆÐAN
Bakvísandi barnabilstóll
- öruggasti kosturinn '
ENGUM blandast
hugur um nauðsyn
þess að böm noti við-
urkenndan öryggis-
búnað í bflum - enda
hafa fjölmörg dæmi
sannað að slíkur bún-
aður bjargar mannslíf-
um. Hér á landi hefur
mikill meirihluti for-
eldra, og annarra for-
ráðamanna barna,
reynt að tryggja ör-
yggi barna sinna eins
vel og nokkur kostur
er með því að nota við-
urkenndan öryggis-
búnað fyrir böm í bfl-
um. Um það vitnar ný-
leg könnun Umferðarráðs og SVFÍ
þar sem kannaður var öryggisbún-
aður bama í bflum framan við leik-
skóla í 31 sveitarfélagi á landinu í
aprfl s.l. í 88% tilfella var einhvers
konar öryggisbúnaður notaður en í
12% tilfella enginn. 19% bama not-
uðu hins vegar eingöngu öryggis-
belti bflsins sem hentar litlum
börnum alls ekki og veitir þeim
litla vörn. í einstaka sveitarfélög-
um fór hlutfall þeirra, sem ekki
notuðu neinn öryggisbúnað fyrir
börn, niður fyrir 50%, sem er með
öllu óviðunandi. Við, sem vinnum
að umferðarslysaforvörnum, leggj-
um alla áherslu á að ná til þeirra
sem engan öryggisbúnað nota fyrir
böm sín svo koma megi í veg fyrir
slys. Það geram við best með hlut-
lausum og faglegum upplýsingum
sem byggðar era á rannsóknum og
reynslu - bæði hér á landi sem er-
lendis. Rangar og órökstuddar full-
yrðingar um öryggisbúnað bama
eru að sama skapi beinlínis hættu-
legar og síst til þess fallnar að auka
enn frekar öryggi bama í bílum.
Því hefur meðal annars verið hald-
ið fram að það sé beinlínis hættu-
legt að staðsetja barnabflstól í
framsæti bfls - án tillits til hvort
öryggispúði er í mælaborði eða
ekki. Þama gætir mikils misskiln-
ings sem skrifast á þekkingarleysi
þeirra sem um fjalla. Bakvísandi
barnabflstólar (stólar sem snúa öf-
ugt miðað við akstursstefnu) era
öruggustu barnabflstólar sem völ
er á í heiminum í dag. Þeir era
flestir með svokallaðri T-merkingu
sem stendur fyrir sænskar prófun-
arreglur og þýðir að þeir era sér-
staklega styrktir gegn höggum
sem koma frá hlið. I bakvísandi
stólum þrýstist barnið inn í stólinn
við högg framan á bflinn eða á hlið
hans en í framvísandi stólum kast-
ast höfuð bamsins
fram en við það mynd-
ast mikið álag á efstu
hryggjarliði og háls og
höfuð bamsins. Þess
má geta að höfuð 9
mánaða barns er 25%
af líkamsþyngd þess á
meðan höfuð fullorð-
inna er 6% af líkams-
þyngd. Margra ára
vísindalegar rannsókn-
ir færustu sérfræðinga
á sviði umferðarörygg-
ismála víðsvegar í
heiminum hafa sýnt
fram á að framsætið er
alveg jafn öraggt fyrir
bakvísandi stóla og
önnur sæti í bflnum svo fremi að
öryggispúði sé ekki í mælaborði
fyrir framan. Um það vitnar
reynsla Svía (sem era fremstir
þjóða í umferðaröryggismálum). í
Svíþjóð hafa flest börn setið í bak-
vísandi stólum í framsætum bfla
síðustu tuttugu árin með afar góð-
um árangri sem sýnir sig í því að á
hverja 100 þúsund íbúa í Svíþjóð
deyr eitt barn sem farþegi í bfl á
meðan sú tala er 2,5 börn á Islandi.
Allir þeir sem vinna faglega og
öfgalaust að umferðaröiyggismál-
um hér á landi eru sammála um að
þegar um er að ræða hina svoköll-
uðu „beltastóla", þ.e. stóla sem bfl-
belti bflsins heldur bæði bami og
stól, sé best að staðsetja hann í aft-
ursætum. Vátryggingafélag ís-
lands leigir út eina öruggustu
barnabflstóla sem völ er á í heimin-
um í dag fyrir böm á öllum aldri,
m.a. tvær tegundir sem snúa baki í
akstursstefnu og era hannaðir til
að vera hvar sem er í bflnum -
bæði í framsæti og aftursætum.
Einn þeirra þriggja stóla sem VÍS
leigir út er svokallaður „beltisstóll"
og ætlaður elstu börnunum. Stól-
amir fyrir yngri bömin (0-6 mán-
aða og 6 mánaða til 3 ára) snúa
baki í akstursstefnu og era mjög
gjarnan notaðir í framsæti bfla -
enda mjög hentug staðsetning þar
sem oft er annað foreldrið eitt á
ferð með bami sínu og getur þá
fylgst með barninu. Frá upphafi
hafa tæplega tíu þúsund böm not-
að barnabflstóla VÍS - þar af ná-
lægt helmingur þeirra bakvísandi
stóla sem gjarnan era staðsettir í
framsæti. Það er skemmst frá því
að segja að ekkert bam, sem setið
hefur í bakvísandi stól frá VÍS í
umferðaróhappi, hefur slasast og
reyndar er okkur ekki kunnugt um
að neitt bama hafi yfir höfuð
Öryggisbúnaður
Bakvísandi barnabíl-
stólar, segir Ragnheið-
ur Daviðsdóttir, eru
öruggustu barnabílstól-
ar sem völ er á í heim- u.
inum í dag.
slasast (utan smá skráma) í barna-
bflstól frá VÍS í árekstri. Sú
reynsla kemur heim og saman við
reynslu Svía, þar sem slfldr stólar
eru mjög algengir, en þar hafa örfá
böm slasast alvarlega í bakvísandi
stól sem staðsettur hefur verið í
framsæti og þá í svo alvarlegum
slysum að ekkert gat bjargað. Mis-
skilningurinn, sem felst í þeirri
óæskilegu umræðu sem átt hefur
sér stað um þessi mál, er e.t.v. fólg- \r -
inn í því að þar vora til umræðu
rannsóknir á framvísandi stólum
fyrir eldri böm, svokölluðum
„beltastólum“. Aldrei hefur farið á
milli mála að slíkir stólar era betur
staðsettir og öraggastir í aftursæt-
um bfla - ekki framsætum. Um það
blandast engum hugur. í þeim
rannsóknum sem vitnað er til voru
bakvísandi stólar EKKI prófaðir
og þess vegna afar ófaglegt og vill-
andi að alhæfa að framsætið sé
hættulegt fyrir staðsetningu^íf
bamabflstóla. Bakvísandi bamabíl-
stólar era öruggasti kosturinn sem
völ er á fyrir börn að þriggja ára
aldri (að 18 kg) og þá gildir einu
hvort stóllinn er staðsettur í fram-
eða aftursæti, en auðvitað með því
skilyrði að öryggispúði sé ekki í
mælaborðinu fyrir framan. Það er
skoðun okkar, sem vinnum að ör-
yggismálum barna í bflum, að
nauðsynlegt sé að fjalla um þau
mál af fagþekkingu, hlutleysi og án
allra öfga. Markmið okkar hlýtur
að vera að reyna að hafa þau áhrif
á foreldra og forráðamenn barna
að ÖLL börn sitji í viðurkenndum
öryggisbúnaði í bflum sem hæfir
aldri þeirra og þyngd. Ónákvæm &
og villandi umræða vekur aðeins
ótta og öryggisleysi og er síst til
þess fallin að bæta öryggi yngstu
farþeganna.
Höfundur er forvarna- og öryggis-
málafulltrúi Vátryggingafélags ís-
lands.
Ragnheiður
Davíðsdóttir
nntvui
dagur símenntunar 28.ágúst www.mennt.is/simenntun
FLUGLEIÐA