Morgunblaðið - 24.08.1999, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 24.08.1999, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Ástkæra yndislega dóttir okkar, systir, barna- barn og frænka, KRISTÍN ÞÓRA ERLENDSDÓTTIR, Hlíðarhjalia 69, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 26. ágúst kl. 15.00. Elfa Björk Vigfúsdóttir, Erlendur Atli Guðmundsson, Egill Örn og Ólöf Ósk. Vigfús Ingvarsson, Guðrún Sigríður Ingimarsdóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, fóstri og afi, ÓLAFUR SIGURÐSSON fyrrverandi yfirlæknir, Ásabyggð 12, Akureyri, sem lést föstudaginn 13. ágúst, verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 25. ágúst kl. 13.30. Anna Björnsdóttir, Halldóra Ólafsdóttir, Kjartan Mogensen, Sigurður Ólafsson, Klara S. Sigurðardóttir, Ragnheiður Ólafsdóttir, Paul M. Smith, Anna Ingeborg Pétursdóttir og barnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐLAUG RAGNARSDÓTTIR, Safamýri 77, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 25. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir, Lárus S. Marinusson, Steinunn Ásgeirsdóttir, Tommy Hákansson, Ragnhildur Ásgeirsdóttir, Andrés Jónsson, Reynir H. Jónsson og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS FRIÐRIKS VALBY GUNNARSSONAR, Lyngbergi 21, Þorlákshöfn. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunar- og dvarlarheimilinu Kumbaravogi. Guð blessi ykkur öll. Þyri Sóley Jónsdóttir, Gunnar Jónsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRHÖLLU BJÖRNSDÓTTUR, hjúkrunardeildinni Víðihlíð, Grindavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Víðihlíðar og kórsystranna, sem aðstoðuðu í erfidrykkjunni. Guð blessi ykkur öll. Ester Karlsdóttir, Björg Steingrímsdóttir, Karl Steingrímsson, Soffía Jónasdóttir, Árni Björn Steingrímsson, Laufey Steingrímsdóttir, Anna Dóra Steingrímsdóttir, Magnús Ingvarsson, Sigurður Steingrímsson, Rósa Steingrímsdóttir, Kjartan Steingrímsson, barnabörn og barnabarnabörn. HAUKUR JÓHANNESSON + Haukur Jóhann- esson fæddist á Kvennabrekku í Dölum 15. febrúar 1915. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 13. ágúst síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Kópavogskirkju 23. ágúst. Um himin lífsins líða daganna ský og loka stundum útsýn um vogogfjörð. En alltaf þau veita úrugan svala á ný og athafnaskap, að glíma við stein og svörð. Og jafnan af plógi starfsins er hönd mín hlý, og hjarta mitt styrkir ilmur þinn, móðir jörð. Hjá þér finn ég alltaf mitt traust er ég til þín sný, og tii þín ósjálfrátt beinist mín þakkargjörð. En stundum birtir í lofti við ljóðrænan klið, og Ijómandi heiðríkjan blasir þá sjónum við. Þá finn ég að tilveran áður var ósönn og hálf. Pá finn ég að stritið var ekki ákvörðun mín, að andi minn leitar sífellt að firðarsýn, að á hann kallar hin eilífa fegurð sjálf. (Yngvi Jóhannesson) Með þessum ljóðlínum eftir Yngva, bróður þinn, vil ég kveðja þig, kæri tengdafaðir, og þakka þér góða samfylgd í rúm 30 ár. Hyggja þín og elska fyrir fjölskyldu þinni mun fylgja okkur um ókomin ár og verða okkur öllum gott veganesti og dýrmæt minning um góðan og traustan mann. Tengdamóðir mín, sem nú saknar eigin- manns og góðs félaga í rúma hálfa öld, guð styrki þig og styðji í þinni miklu sorg. Jórunn. Um víðáttu hafsins heiðríkjustormur fer, og hraðfara síðustu skýjavæhginaber nú fyrir í vestri við birtunnar blikandi hlið. Anda þú svalur i hjarta mér heiðríkjublær, og huga minn teygðu, ljóssins ómælissær að beini hann djarfur flug á hin fjarlægu mið. (Yngvi Jóhannesson) Það var erfitt símtal sem við systurnar áttum síðustu helgi úr símaklefa í Stykkishólmi. Við viss- um jú að afi væri mjög veikur en það var sama hversu oft hann fór á spítalann, alltaf náði hann sér aftur og fór heim til ömmu í Sunnuhlíð- ina. En núna var hans tími kominn til að kveðja og við vitum að núna líður honum vel efth- þessi erfiðu veikindi. Hann afi okkar var góður maður og þegar maður hugsar til baka sér maður hann fyrir sér þar sem hann sat í stólnum sínum í Bankaselinu með blaðið í hönd og kveikt á út- varpsfréttunum við hliðina á sér, hann fylgdist alltaf svo vel með öllu sem var að gerast. Oft fengum við að gista hjá afa og ömmu í Kópó þegar foreldrar okkur fóru utan. Þá var alltaf farið í sund á morgnana og leikið sér svo í stóra garðinum þeh’ra með öllum steinunum og háu stráunum. Ekki má gleyma að alltaf á jóladag þegar öll fjölskyldan hittist hjá afa og ömmu, fórum við frænkurnar alltaf í leynilögregluleik inni á kontór og notuðum fjarskiptatækin hans afa til að gera þetta nú allt raunveru- legra. Ein skemmtilegasta minningin okkar er þó án efa þegar við fórum í útilegu með ömmu og afa og keyrðum Fjallabaksleið nyrðri og fórum í Landmannalaugar þar sem amma og afi sváfu í Lödunni sinni! Það var í þeirri ferð sem við og pabbi byrjuðum með „gúmmíbjarn- ar-hoppið“ og svo þegar við grilluð- um um kvöldið sömdum við öll sam- an lagið: „Það er svo gaman að borða saman ...“, það hefur oft verið sungið síðan. Hann afi okkar virtist alltaf svo hress þrátt fyrir veikindin og vitum við að margir taka undir það sem hittu hann í fimmtugsafmælinu hans Hauks nú í júní. Þótt afi væri fámáll tók hann vel eftir og skaut inn athugasemdum þar sem við átti. Ekki veigraði hann sér heldur við að. fá sér bara hákarl og smá- brennivín! Það er alltaf sárt að kveðja þótt maður viti að núna líði afa miklu betur, manni finnst bara eins og afi sé enn á spítala og komi aftur heim. Elsku afi, við kveðjum þig nú með söknuði en við vitum að núna hefur þú það gott hjá guði þar sem þú ert án efa búinn að hitta foreldra þína og systkini. Vertu sæll, afi okkar, og blessuð sé minning þín. „Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ (Kahlil Gibran). Arna Maria og Sigrún Erna Geirsdætur. Éf fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll bömin þín, svo blundi rótt. (Matth. Joch.) Elsku drengurinn okkar. Elsku litli drengurinn minn hefur kvatt okkur í Ásbúð. Drengurinn sem ég dáði og hafði alltaf hugann hjá dag og nótt. Hann geislaði af miklum krafti bæði til sjós og lands, og veitti okkur margar ánægju- stundir sem hefðu mátt vera fleiri. Hann var alltaf tObúinn að hjálpa þegar á þurfti að halda. Systkini Ragnars eru ekki sátt við Guð sinn núna fyrir að taka hann frá okkur. Guð ætti frekar að koma niður held- ur en við öll að fara upp til hans. Þau minnast allra skemmtilegu ferðanna og stundanna sem Ragnar átti með þeim. Við söknum hans öll sárt. Það var vorið 1995 sem við hittum þig fyrst. Við og Árni bróð- ir þinn sóttum þig á Raufarhafnarflugvöll og þama steigst þú út úr flugvélinni, 15 ára myndarlegur drengur, og ætlaðir að dvelja í Vogi yfir sumarið. Ekki leið á löngu þar til þú varst búinn að vinna hug og hjörtu alls heimilis- fólksins og allra sem kynntust þér og varst orðinn einn af fjölskyld- unni. Þú varst ekki lengi að afla þér vinsælda á meðal unga fólksins á Raufarhöfn, dáður og dýrkaður. Þú vai’st duglegur í vinnu og ábyggi- legur og alveg sérlega greiðvikinn. Það var sama hvað þú varst beðinn að gera, þú varst alltaf jákvæður og til í alla hluti. Það var líka svo gam- an að fylgjast með þér þegar þú varst búinn að taka þig til og varst að fara út að skemmta þér. Þú hiakkaðir alltaf svo mikið til og við samglöddumst þér, en þegar þú varst farinn út höfðum við stundum áhyggjur af þér eins og foreldrar af syni sínum. Eftir að þú fluttir frá okkur fylgdumst við alltaf með þér, en þú varst duglegur að hringja og segja okkur fréttir af þér. Síðastlið- ið vor þegar þú dvaldir í Vogi til- kynntir þú okkur að núna værir þú búinn að fá gott pláss á skipi, varst svo ánægður og við samglöddumst þér. Enn varstu farinn, þú varst alltaf að koma og fara. Við munum alltaf eftir síðasta faðmlaginu er við gáfum þér, en ekki vissum við að þau yrðu ekki fleiri. Eins og þú sagðir oft; „svona er lífið“. Elsku Ragnar Már, við söknum þín sárt, þú varst okkur sem bróðir, sonur og félagi en umfram allt góð- ur vinur. Far þú í friði. friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Samúðarkveðjur til allra sem eiga um sárt að binda. Hólmgrímur, Inga, María og Jóhann Þór. Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargi’ein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist gi’ein efth’ að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlý- hug við andlát og útför hjartkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐNÝJAR GUÐNADÓTTUR, Breiðabliki 3, Neskaupstað. Börn hinnar látnu, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. RAGNAR MAR ÓLAFSSON T Ragnar Már Ólafsson fædd- ist í Reykjavík 19. nóvember 1979. Hann lést af slysför- um 14. ágúst síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Mar- fukirkju í Breiðholti 23. ágúst. í voða, vanda og þraut vel ég þig fórunaut, yfir mér virztu vaka og vara á mér taka. Jesús mér fylgi í friði með fógru englaliði. (Hallgr. Pét.) Pabbi, Óli og Día.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.