Morgunblaðið - 24.08.1999, Page 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Grettir
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Þakkir
Frá Erlu Gunnarsdóttur
Vilji ég minnast vors og æsku
vitja ég heim í fjörðinn minn.
(Pétur Jónsson frá Nautabúi, 1938.)
SKAGAFJÖRÐURINN tjaldaði
sínu fegursta laugardaginn 7. ágúst
sl. þegar ég fagnaði frændum og
vinum í Varmahlíð í tilefni þess að
ég varð sjötug á þessu ágæta ári.
Fjallahringurinn skartaði sínu
besta. Blönduhlíðarfjöllin ljómuðu í
kvöldsólinni. Tindastóll stóð sinn
vörð og Drangey reis úr djúpi hafs-
ins í norðri. Mælifellshnjúkur
gnæfði yfir til suðurs og Glóðafeyk-
ir stóð í tign sinni í austri hjúpaður
roða kvöldsins. Húseyjarkvísl og
Héraðsvötn runnu hljóðlega til sjáv-
ar um fætur fagurgrænna túna og
engja.
Yfír öllu gnæfði bláhiminn Skaga-
fjarðar.
Innilegustu þakkir og bestu
kveðjur til ykkar allra sem senduð
mér skeyti, kveðjur og góðar gjafír
og heiðruðuð mig með heimsókn
þennan dýrðardag.
Sérstakar þakkir vil ég færa Sig-
ríði Ólafsdóttur frá Álftagerði, fyrr-
verandi húsfreyju að Ytra-Vallholti,
dætrum hennar, Guðrúnu og Val-
gerði Jóhannesdætrum og fjöl-
skyldum þeirra í Hveragerði, fyrir
framúrskarandi fagran blómvönd
með sjötíu rósum, sem skrýddu
hlaðborðið okkar í Varmahlíð.
Einnig vil ég færa sérstakar þakkii'
Steinunni Guðmundsdóttur og
Fróða Jóhannssyni, garðyrkju-
bændum að Dalsgarði í Mosfellsbæ,
fyrir fangið fullt af rósum.
Eg þakka þeim frændsystkinum
mínum, Emmu Hansen, Reykjavík,
og Erlendi Eysteinssyni, bónda,
Stóru-Giljá í Húnaþingi, fyrir fögur
ljóð, sem fylgja hér með, og ykkur
öllum vinum og frændum að koma
og vera með okkur Syðra-Vallholts
systkinunum _ þessa gleðistund í
Varmahlíð. Ég þakka Markúsi á
Reykjarhóli, hátt á tíræðisaldri, fyr-
ir að heiðra mig með komu sinni,
skólasystkinum mínum frá bama-
skólanum í Húsey, Varmahlíðar-
skólanum 1945-46, frændum og vin-
um úr Reykjavík, Húnaþingi,
Skagafírði og víðar. Sérstakai-
þakkir til Stefáns R. Gíslasonar fyr-
ir harmoníkuleikinn og ykkur öllum
fyrir sönginn og dansinn.
Herdísi Þorvaldsdóttur og Ingi-
björgu, systur minni, þakka ég
ljóðaflutning. Herdís fór með ljóð
eftir sr. Sigurð Einarsson frá Holti:
Geturðu sofið um sumamætur, og
Ingibjörg fór með tvö skagfirsk
ljóð: Vilji ég minnast vors og æsku,
eftir Pétur Jónsson frá Nautabúi,
tileinkað Héraðsskóla Skagfírðinga
í Varmahlíð árið 1938 og: Nú er vor
yfír jörð, eftir sr. Tryggva H. Kvar-
an frá Mælifelli, tileinkað Félaginu
Varmahlíð á vorhátíð árið 1940.
Einnig þakka ég þeim Sóleyju og
Lilju veislumatinn, Rósu og Regínu
fyrir aðstoðina og Helgu Pálsdóttur
fyrir alla hjálpina varðandi skóla-
húsið sem var okkar ágæti veislu-
og dvalarstaður.
Svona eru sumarblómin
sífellt græn og ilma vel
Erla þú ert ættarsóminn
einstök perla að ég tel.
(Erlendur Eysteinsson. Stóru-Giljá.)
Heillakveðjur til ykkar allra.
ERLA G. GUNNARSDÓTTIR,
frá Syðra-Vallholti,
búsett í Bandaríkjunum.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.
Ferdinand
Smáfólk
S0MMER CAMP?
YES, I 60T Y0UR
BROCHORE..YES,
THANK YOO..
NO, I WASN'T
PLANNINS 0N
60IN6T0
CAMPTHI5
YEAK..
WELL,IF I CHAN6E
MY MINP, C0ULD
I BRIN6MY
BROTHER'S WOLF
WITH ME ?
Sumarbúðir? Já, ég Nei, ég hafði
fékk bæklinginn frá ekki áætlað að
ykkur.. já, þakka fara í sumar-
þér fyrir búðir í ár...
Nú, ef ég skipti um
skoðun, gæti ég þá
komið með úlfinn hans
bróður míns með mér?
Voffí
sumarbúðimar sem ég þarf
ekki að fara í...
ÚTSALAN
Qíflnstu dagar
Aðeins
kr. 1.995
Fiordi
una
Vandaðir ítalskir
leðurskór
Mikið til í stærðum 36-37 og 41-42
Einnig strigaskór í úrvali kr. 395
Komið og gerið góð kaup.
T
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212