Morgunblaðið - 24.08.1999, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999
I DAG
BRIDS
1)msj<ín GuOmundur
l'áll Ariiarson
STUNDUM þarf að taka
nokkra áhættu til að ýta
andstæðingunum þrepinu
hærra í bútabaráttu. Hér
er gott dæmi frá HM ung-
menna úr leik Dana og
ítala:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ K109
V 10983
♦ K102
♦ Á75
Vestur Austur
* DG632 ♦ Á8
V 65 V K72
* Á75 ♦ D964
* G43 + 10982
Suður
+ 754
VÁDG4
♦ G83
+ KD6
Vestur Norður Austur Suður
- - - 1 lauf
1 spaði Dobl* Pass 2 hjörtu
Pass Pass 2spaðar Pass
Pass Dobl Pass 3 hiörtu
Pass Pass Pass
Danirnir Morten Lund
Madsen og Kasper Konow
voru með spil AV. Eftir St-
andard-laufopnun og inná-
komu Konows á spaða,
doblar norður neikvætt til
að sýna hjartalit. En þegar
sagnir virðast ætla að
deyja út í tveimur hjörtum,
ákveður Madsen í austur
að berjast í tvo spaða með
tvílitinn. Norður stingur
upp á að spila þann samn-
ing doblaðan, en suður á lé-
leg varnarspil og ákveður
að spila frekar þrjú hjörtu.
Sem reyndist vera röng
ákvörðun, því tveir spaðar
fara tvo niður.
Konow kom út með
spaðadrottningu gegn
þremur hjörtum. Sagnhafí
lét réttilega lítið úr borði,
enda lá nokkuð ljóst fyrir
hvernig spaðinn var skipt-
ur. En Danirnir voru ekki í
vandræðum með að taka
stunguna. Konow spilaði
næst spaðagosa til að
benda á tígulinn, og þegar
Madsen hafði fengið á
spaðaásinn, spilaði hann
óhræddur tígli upp á ás
makkers. Spaðastungan
kom næst og síðan fékk
austur fímmta slag varnar-
innar á tíguldrottningu.
Einn niður, svo ekki var
barist til einskis.
SKAK
llmsjón Margeir
l'étursson
Hvítur leikur og vinnur.
STAÐAN kom upp á
breska meistaramótinu í
sumar en það var haldið í
Scarborough. Kidandi
Sundararajan (2330),
Indlandi, hafði hvítt og átti
leik gegn Stuart Williams
(2420), Englandi, var með
svart.
22. Bxg7! - Kxg7 23. Hgl +
- Kf6 24. Hg3 - Dd7 25.
Dxh7 - Bc5 26. Dh4+ -
Rg5 27. Dxg5+ og svartur
gafst upp.
Árnað heilla
Q/\ÁRA afmæli. í dag,
í7 Vrþriðjudaginn 24.
ágúst, verður níræð Anna
Olöf Helgadóttir frá ísa-
firði. Anna dvelur á Hrafn-
istu í Hafnarfirði.
/\ÁRA afmæli. í dag,
O U þriðjudaginn 24.
ágúst, verður fimmtugur
Gunnar Levý Gissurarson,
forstjóri Gluggasmiðjunnar,
Birkihlíð 16, Reykjavík. í til-
efni dagsins taka hann og
eiginkona hans, Hulda Krist-
insdóttir, á móti gestum í
Naustinu.kl. 18 í dag.
fT /\ÁRA afmæli. í dag, þriðjudaginn 24. ágúst, verður
ÍJV/fimmtugur Brendt Petersen. Eiginkona hans, Kol-
brún Guðjónsdóttir, varð fimmtug 29. júlí. í tilefni þessa
taka þau á móti gestum laugardaginn 28. ágúst á heimili sínu
Fellsási 7, Mosfellsbæ, milli kl. 16 og 20.
Ljósm.stofa Sigríðar Bachmann.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 26. júní í Fríkirkjunni
í Reykjavík af sr. Hirti
Magna Kristín Vilhjálms-
dóttir og Jón Bjarki Bents-
son. Heimili þeirra er í
Bogahlíð 20, Reykjavík.
Ljósm.stofa Sigríðar Bachmann.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 3. júh' í Seljakirkju af
sr. Valgeiri Ástráðssyni
Auður Guðmundsdóttir og
Siguijón Kristinsson. Heim-
ili þeirra er að Hrafnhólum
8, Reykjavík.
Með morgunkaffinu
Ast er...
.. ad fara saman
í megrun.
Hermann! Það eru að
minnsta kosti tveir tím-
ar síðan báturinn sökk.
Hvar hefurðu verið all-
an þennan tíma?
EINN „AFTAN-Í-OSS
Nú er ég hólpinn, nú hef ég frið,
nú er ég garpur mesti:
Aðalinn dingla ég aftan við
eins og tagl á hesti.
Þó eitthvað falli ekki þekkt
í aðals háu standi,
Sigurður tekégþví með þýðri spekt,
SSEL. Þaðertaglsinsvandi.
skáld
(1759/1827)
STJORIVUSPA
eftir Frances Drake
MEYJA
Aímælisbarn dagsins:
Heiðarleikinn er þér í blóð
borinnog þú átt auðvelt
með að vinna fólk á þitt
band þvíþú ert sjálfum
þér samkvæmur.
Hrútur _
(21. mars -19. apríl)
Þú munt hitta fólk sem deilir
sömu áhugamálum og munt
njóta þess til fulls að ræða
málin og freista þess að kom-
ast að einhverri niðurstöðu.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Láttu ekki hugfallast þótt allt
virðist á móti þér þessa dag-
ana. Ef þú ert bjartsýnn og
gefst ekki upp mun þér takast
ætlunarverk þitt þótt síðar
verði.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) UA
Einhver verður á vegi þínum
sem á eftir að hafa mikil áhrif
á líf þitt. Vertu þvi opinn og
óhræddur við að takast á vio
nýja og spennandi hluti.
Krabbi
(21. júní - 22. júlf)
Einhver misskilningur er í
gangi milli þín og félaga þíns
svo nauðsynlegt er að þið gef-
ið ykkur tima til að ræða mál-
in og leiðrétta þau.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vertu viðbúinn því að þurfa að
gefa eftir í ákveðnu máli til að
forðast illindi. Þú munt fljótt
sjá að það er þér ti! fram-
dráttar frekar en hitt.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) ©».
Eitthvað verður til þess að
trufla þitt daglegamynstur og
áður en þú gerir veður yfir því
skaltu hugleiða hvort það geti
ekki líka verið þér til góðs.
Vog m
(23. sept. - 22. október) 4»
Þótt þú sért sáttur við lífíð og
tilveruna skaltu líka vera vak-
andi fyrir nýjum tækifærum
því þau gefa þér tækifæri til
að bæta við reynslu þína.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Sértu eitthvað ósáttur við
þann félagsskap sem þú ert í
skaltu muna að það varst þú
sem valdir hann í upphafi.
Gerðu svo upp við þig hvort
þú vilt út.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) (HO
Gefðu þér tíma til að vera einn
með sjálfum þér og rækta
andiegu hliðina. Þá ertu líka
betur undir þau verkefni bú-
inn sem bíða þín.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4BÉP
Það er ákveðinn léttir þegar
búið er að taka ákvörðun um
hvert halda skal. Vertu sáttur
við sjálfan þig gakktu glaður
fram áveginn.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Hugdirfska þín leiðir þig á
framandi slóðir og þú munt
upplifa mikil ævintýr. Gefðu
þér tíma til að festa þau á blað
svo aðrir fái notið þeirra með
þér.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú leggur þig allan fram um
að aðstoða þá sem minna
mega sín og er það vel ef þú
bara gætir þess að enginn
notfæri sér góðmennsku þína.
Stjömuspána & að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
EVO-STIK |
ÞETTIEFNI
manuli
•SGjZEjlCS ,
Universal l
Sealant
S55SS1 &1 'S
All PurpoM IhC'MI
Silicono Soalant
€<3
Wood &
Motal Framo S«a
«a
Roof &
Qutter SeaUwt
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
MALNINGAR-
0G PÖKKUNAR-
LÍMBÖND
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Sumarferð eldri borgara
á vegum Dómkirkjunnar
Fimmtudaginn 26. ágúst verður farin ferð
hinna eldri safnaðarmeðlima og vina Dóm-
kirkjusafnaðarins. Farið verður kl. 13 frá
safnaðarheimilinu í Lækjargötu 14a og leið
lögð um uppsveitir Árnessýslu. Helgistund
og veitingar verða í Skálholti.
Innritun í ferðina verður í slma
562 2755 kl. 10-12 á þriðjudag
og miðvikudag.
Gjald er kr. 800.
Sóknarnefnd.
UTSALA
Meiri lækkun
Allar sumarkápur, stuttar og sídar,
kr. 5.900
Leðurlikisjakkar st. 34-44
kr. 2.000
Opið á laugardögum frá kl. ÍO—16
\<#HW5IÐ
Mörkinni 6
Sími 588 5518
s
I Sjúkraþjálfun Styrk
að Stangarhyl 7
Reykjavík er að hef jast
hópþjálfun fyrir fólk
með sértæk vandamál.
síyRKUR íboðiverða:
Gigtarhópar - hjartahópar - bakhópur -
grindargliðnunarhópur - helftarlömunarhóp-
ur - parkinsonshópur - meðgönguleikfimi -
siökunarhópur
Takmarkaður fjöldi verður í tímana og verður vel fylgst með
hverjum og einum. Aðstaðan er góð, vel útbúinn líkamsræktar-
salur og nýr þjálfunarsalur. Leiðbeinendur eru allt
sjúkraþjálfarar sem hafa sérhæft sig á ýmsum sviðum.
Hópastarfið hefst mánudaginn 6. september,
en nánari upplýsingar og skráning er í síma 587 7750.
*