Morgunblaðið - 05.09.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.09.1999, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Járnblendifélagið gefur út ársskýrslu umhverfísmála Slysum fækkaði úr sautján í tíu Málefni Skagstrendings Afstaða VÞÍ óhlutdræg VERÐBRÉFAÞING íslands fjall- aði á óhlutdrægan hátt um málefni Skagstrendings, að sögn Tryggva Pálssonar, stjórnarformanns VÞI, en Þorsteinn Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri Samherja, gagn- rýndi þátt VÞI í málinu í Morgun- blaðinu í gær. „Þegar stjóm Verðbréfaþings Is- lands hf. tók þetta mál til umfjöllun- ar 12. ágúst síðastliðinn var ákveðið að skoða samþykktir fleiri skráðra fyrirtækja eða félaga og leita álits virts prófessors við lagadeild Há- skóla íslands," sagði Tryggvi. „Hann skilaði niðurstöðu með vand- aðri greinargerð 31. ágúst og þegar stjórnin tók afstöðu á fundi sínum 2. september hafði hún álitið til hlið- sjónar, féllst í einu og öllu á niður- stöðu þess og var einhuga í afstöðu sinni. Þorkell Sigurlaugsson (fram- kvæmdastjóri hjá Eimskipafélag- inu) tók ekki þátt í umræðu og af; greiðslu málsins. Stjórnarseta á VÞÍ er trúnaðarstarf og mikilvægt að stjómarmenn séu ekki hlutdrægir." SLYSUM sem leiddu til fjarveru starfsmanna í Jámblendiverksmiðj- unni á Grundartanga fækkaði á síð- asta ári í 10 en þau höfðu verið 17 árið áður. Em það færri slys en áð- ur hafa orðið á einu ári hjá fyrirtæk- inu. Reyklosun um skorsteina verk- smiðjunnar í reglulegum rekstri var lítil og náðist einn besti árangur verksmiðjunnar frá upphafi. Islenska jámblendifélagið hf. hef- ur gefið út ársskýrslu umhverfis- mála í annað sinn og koma ofan- greindar upplýsingar þar fram. Einnig kemur fram að fjöldi slysa á hverja milljón vinnustunda nam lið- lega 30 á síðasta ári á móti hátt í 50 á árinu á undan. Fjöldi vinnuslysa á hverja milljón vinnustunda fór upp í tæplega 80 á árinu 1990. Bjarni Bjarnason framkvæmda- stjóri segir að skipulega hafi verið unnið að fækkun vinnuslysa. Hann segir ekki hægt að útiloka alveg að slys verði en alvarleg slys séu það versta sem stjómendur standi frammi fyrir í störfum sínum. Það sé hins vegar í höndum þeirra og starfsmannanna að draga sem mest úr líkunum á að slysin verði. Segir Bjami að mikið hafi verið unnið að því að breyta viðhorfi manna til ör- yggismála, með því að setja þau í forgang. Lítil reyklosun Reyklosun er mæld sem hund- raðshluti af rekstrartíma ofnanna. „Rekstur reykhreinsibúnaðar árið 1998 var mjög góður og nam reyklosun innan við 0,05% af rekstr- artíma ofnanna. Að auki þurfti að skerða rekstur á reykhreinsivirki fyrir ofn 2 þegar hann var tekinn úr rekstri í október,“ segir meðal ann- ars í ársskýrslunni. Bjarni segii- að eftir bilanir og viðhald á árinu 1996 sem leiddi til þess að reyklosun margfaldaðist, hafi stjórnendur fyr- irtækisins ákveðið á árinu 1997 að koma í veg fyrir losun reyks út í umhverfið. Kveðst hann ánægður með þann árangur sem náðst hafi. Fram kemur í skýrslunni að los- un koltvísýrings er mun minni en undanfarin ár, en heldur meiri en á árinu 1992. Losun brennisteinství- sýrings var hins vegar mun minni en verið hefur nokkurt ár á þessum áratug. Morgunblaðið/Kristinn ú«-‘iivj«'•* ' ’ ■* • jferf' 1É i|ÉÉg wl ■ 1 Táknræn mótmæli gegn Fljóts- dalsvirkjun UM klukkustundarlangur gjörning- ur fór fram við Eyjabakka í gær við fyrirhugað stíflustæði Fljótsdals- virkjunar. Um eitt hundrað um- hverfis- og náttúruverndarsinnar komu frá Reykjavík, Akureyri, af Austurlandi og víðar, til þess að taka þátt í gjömingnum. „Gjömingurinn er táknræn mót- mæli og stærsta og kannski um leiðósýnilegasta umhverfislistaverk á landinu, eða um þrír kílómetrar," sagði Andri Snær Magnason, einn þátttakandi í gjömingnum. Þátttak- endur röðuðu steinum og mynduðu með þeim 68 orðin í fyrsta versi þjóðsöngs íslendinga. Var þeim raðað í fyrirhugað stíflustæði milli Snæfells og Jökulsár. Utiguðsþj ónusta í Gufunesi Ferðamálasetur Islands stofnsett Frjór jarðvegur fyr- ÚTIGUÐSÞJÓNUSTA var haldin við altari gömlu kirkjunnar í Gufunesi í gær, en það var séra Vigfús Þór Árnason sóknarprest- ur sem prédikaði og þjónaði fyrir altari. Guðsþjónustan var haldin í tengslum við Grafarvogsdaginn sem haldinn var í annað skiptið með Qölbreyttri dagskrá í hverf- inu. Hópur íbúa gekk frá Grafar- vogskirkju að gamla kirkjustæð- inu í Gufunesi, þar sem messað MEÐ Morgunblaðinu í dag er dreift blaði frá Hreyfingu, „Frábær hreyf- ing“. Blaðinu er dreift í Reykjavík, Kópavogi og Garðabæ. var, en gengið var í fylgd leið- sögumanns. Veður var ekki eins og best verður á kosið en mæt- ingin þokkaleg þrátt fyrir það. Gufunes á sér ríka sögu og kemur jörðin meðal annars við sögu í Sturlungu. Kirkjan í Gufu- nesi var aflögð árið 1886, en beinin úr kirkjugarðinum voru tekin upp árið 1978 og flutt í nýj- an grafreit, sunnar í túninu, vegna byggingarframkvæmda áburðarverksmiðjunnar. Úrslita- þjónusta mbl.is Á FRÉTTAVEF Morgunblaðs- ins, mbl.is, hefur verið sett upp úrslitaþjónusta í samvinnu mbl.is og íslenskra getrauna. Sé smellt á sérstakan hnapp á forsíðu Fréttavefjarins, www.mbl.is, kemur upp gluggi með helstu boltaleikjum sem eru í gangi eða framundan þann daginn og stöðu í þeim eftir því sem verkast vill. Hægt er að fá frekari upplýsingar um atburði leikja með því að smella á heiti liðanna, en glugginn uppfærist á mínútu fresti. ir ferðamálafræði PÁLL Skúlason, rektor Háskóla ís- lands, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, und- irrituðu í gær, í upphafi málþings um skipulag ferðamannastaða, sam- starfssamning háskólanna um Ferðamálasetur Islands sem verður á Akureyri. Fram kom í máli Páls Skúlasonar að markmiðið væri að efla rann- sóknir og menntun á sviði ferða- mála, styrkja tengsl háskólastarfs og atvinnulífs og auka þekkingu í greinum tengdum ferðamálum. Ferðamálasetur íslands verður rekið með ofangreind markmið að leiðarljósi og verður setrið miðstöð rannsókna, fræðslu og samstarfs í ferðamálafræðum. Helstu verkefni munu lúta að rannsóknum í faginu, samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila, útgáfu fræðirita og kynningarbæklinga, upplýsinga- miðlun og ráðgjöf, og fyrirlestrum, námskeiða- og ráðstefnuhaldi í ferðamálafræðum. Mesti vaxtarbroddur í íslensku atvinnulífí Þorsteinn Gunnarson benti á að ferðaþjónusta væri mesti vaxtar- broddur í íslensku atvinnulífi en hefði lítið verið sinnt fram til þessa. Nú væri brotið blað í þeim efnum og Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og Páll Skúlason, rektor Háskóla ís- lands, undirrita samstarfssamn- ing um Ferðamálasetur Islands. Ferðamálasetrið og samvinna há- skólanna gætu myndað frjóan jarð- veg fyrir ferðamálafræði. Rektorar háskólanna tilnefna hvor um sig tvo menn í stjórn en óska auk þess eftir því að Ferða- málaráð, Samtök ferðaþjónustunn- ar og Hólaskóli tilnefni hver sinn fulltrúa í stjórnina. Ódýrt en krefst sjálfsaga ► Fjarnám er í mikilli sókn hér heima og erlendis og ailmargir ís- lendingar stunda nú slíkt nám. /10 Heiðagæsin - umtalað- asti fugl landsins ► Heiðagæsin virðist jafnan koma við sögu þegar mikil virkjunar- áform á hálendinu eru annars vegar. /24 Mikilvægi litlu orðanna ► Rætt við Gunnar Skirbekk, annan höfunda Heimspeki- sögunnar. /26 Kuldaboli kominn á kreik í Þorlákshöfn ►Viðskiptaviðtalið er við Hafstein Ásgeirsson, Gest Ámundason og Pétur Björnsson hjá ísfélagi Þorlákshafnar. /30 ► 1-32 Líf f skugga Kötlu ► Hjörleifshöfði á sér merka sögu sem er samtvinnuð sögu mesta örlagavalds svæðisins, Kötlu gömlu. /1&15-17 Stórmeistarinn ► Lokamynd kvikmyndahátíðar- innar er síðasta mynd Kubricks, „Eyes Wide Shut“, og af því tilefni er skoðað hvað það er sem gerir hann einstakan í sinni röð. /2 Áströlsk sveitasæla ►Á liðnu ári starfaði Ketill Sigur- jónsson lögfræðingur í Ástralíu við framíylgd á löggjöf um gróð- ur- og jarðvegsvernd og ferðaðist um afskekktar sveitir þessa fjarlæga lands. /6 FERÐALÖG ► l-4 Merktar gönguleiðir á Austurlandi ►Tugir leiða fyrir vana og nýliða. /2 Kampavín og „koníak“ með kornflögunum ► Uppáhalds hótel Ernu A. Hansen er Costa Canaria á Kanaríeyjum. /3 Ds/lar ► l-4 Með Ford og Þjóðverj- um á fjallvegum ► Af Islandsferð Fords í Þýska- landi á Explorer. /2 Reynsluakstur ►Vel búinn og þægilegur Land Cruiser VX. /4 Eatvinna/ RAÐ/SMÁ ► l-24 Snæfellsnes og Hvalfjarðargöngin ►Aukinn ferðamannastraumur vestur. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir WWbak Brids 50 Leiðari 32 Stjörnuspá 50 Helgispjall 32 Skák 50 Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54 Skodun 34 Útv/sjónv. 52,62 Minningar 38 Dagbók/veður 63 Myndasögur 48 Mannl.str. 24b Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 30b ídag 50 INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.