Morgunblaðið - 05.09.1999, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 05.09.1999, Blaðsíða 64
Tölvueftirlitskerfi sem skilar árangrí <Ö> NÝHERJI S: 569 7700 fNfógtuMjifeife MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMl 6691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Féll sex metra MAÐUR innan við tvítugt var fluttur á slysadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur eftir vinnu- slys við byggingu á Skúlagötu 40 í gærmorgun. Maðurinn var við málningarvinnu utan á húsinu í svokallaðri turnlyftu og steig út á lausa framleng- ingu á lyftunni, sem gaf sig með þeim afleiðingum að hann féll niður um 6 metra. Að sögn læknis á slysadeild er maðurinn ekki í lífshættu en var lagður inn á sjúkrahúsið til öryggis. Fulltrúi frá Vinnu- eftirliti ríkisins kom á vett- vang og mat aðstæður á slys- staðnum. Metupp- skera á korni Vaðbrekku, Jökuldal. Morgunblaðið. GUNNAR Jónsson, bóndi á Egils- stöðum, hefur verið að slá kornakra sína og þreskja af þeim kornið. Góðviðriskafli er notaður til verksins þótt komið mætti vera ^rðið þurrara en það kemur ekki að sök þar sem það er mestallt súrsað. „Eg var að slá komið á gamla flugvellinum, en það var orðið gul- ara og þurrara vegna þess að jarð- vegurinn er þar þurrari. Minnugur þess að brugðið getur til beggja vona með veðráttuna nota ég þurr- viðrið núna til að klára komskurð- inn. Komið er vel þroskað og upp- skera með mesta móti síðan ég fór að fást við komrækt á síðari tím- um,“ sagði Gunnar. Hefur stundað kornrækt í ijögur ár Gunnar hefur stundað kornrækt síðustu fjögur árin, byrjaði með korn í fjórum til fimm hekturum en er nú með um tuttugu hektara. Vöxturinn hefur verið mjög góður í sumar og þakkar Gunnar það hve Piótt hann gat sáð í vor, eða í byrj- un maí, ágúst var hlýr og sólríkur Fastur í bilnum í á fjórða tíma Var með meðvitund allan tímann Uði við Dettifoss FJÖLMARGIR ferðamenn hafa líklegast skoðað Dettifoss í sum- ar enda hefur veðurbh'ðan á norðausturhorni landsins verið einstök síðustu mánuðina. fslend- ingar verða sífellt duglegri að ferðast um landið og sama má reyndar segja um erlenda ferða- menn, en aldrei hafa fleiri er- lendir ferðamenn heimsótt landið á fyrstu sjö mánuðum árs en í ár. Alls heimsóttu 157.000 erlendir gestir ísland þessa fyrstu sjö mánuði og er það 12% aukning frá því í fyrra, samkvæmt upp- Iýsingum frá Ferðamálaráði ís- lands. Fjölgunin er um 17.000 manns og er aukningin mest meðal Bandaríkjamanna. VÖRUBIFREIÐ valt á fjallvegin- um um Hálfdán milli Bíldudals og Tálknafjarðar á ellefta tímanum í gærmorgun. Bifreiðarstjórinn, sem var einn í bifreiðinni, var klemmd- ur í stýrishúsi bifreiðarinnar í á fjórðu klukkustund. Tókst að losa hann um klukkan 14 með sérhæfðum búnaði sem fluttur var með þyrlu Landhelgis- gæslunnar frá Reykjavík ásamt lækni og tækjamönnum frá Slökkviliði Reykjavíkur. Lögreglunni á Patreksfirði barst tilkynning um slysið klukkan 10.30 og fóru björgunarsveitarmenn og slökkviliðsmenn frá Patreksfirði á vettvang en búnaður þeirra dugði ekki til og þurfti því að kalla eftir meiri aðstoð. Komu þrír tækja- menn með TF-LÍF, þyrlu Land- helgisgæslunnar, að sunnan og höfðu meðferðis glennur, klippur, tjakka og loftpúða. Þyrlan lenti við slysstaðinn klukkan 12.30. Læknir frá Patreksfirði og þyrlulæknir sinntu hinum slasaða á vettvangi. Tók það björgunarmenn hátt í fjóra tíma að losa manninn undan vörubifreiðinni en hann var með meðvitund meðan á björgun- araðgerðunum stóð. Hann var fluttur með þyrlunni til Reykjavík- ur á sjúkrahús og lagði hún af stað um tvöleytið. Hún var væntanleg síðdegis en meiðsl hans voru minni en búast hefði mátt við miðað við aðstæður. Vörubifreiðin, sem er af stærstu gerð, er mikið skemmd ef ekki ónýt eftir veltuna. Hún var með tengivagn og var í fylgd nokkurra annarra bifreiða sem voru á leið út að Látrum með margs konar tækjabúnað íyrir mulningsflokk sem þar átti að taka til starfa eftir helgina. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Þreskivélin er stór og mikil völundarsmíð. Hér öslar hún eftir akrin- um og sker kornið og skilur það frá hálminum. Hvalur á land við Sauðanesvita og ekki hafa komið nein stórviðri í haust. Islenska afbrigðið af bygg- inu kemur langbest út hjá Gunnari og sýnir verulega yfirburði í þroska og er það vel þroskað að Gunnar ætlar að þurrka uppskeruna af því og nota í útsæði næsta vor. Gunnar valsar kornið saman við fiskimjöl og notar í fóður handa nautgripum, mjólkurkúm og geld- neyti auk þess sem það er verulega lystugt fyrir ungkálfa. Hálminn sem fellur til notar Gunnar fínsaxaðan til að bera und- ir kýr og kálfa en hann langar til að lúta hann eins og gert er í ná- grannalöndunum. Þá er hálminum mokað í hiúgu og breitt yfir og bætt út í hann ammoníaki til að bijóta niður í honum trénið. Þá verður hann eins og taða sem nýta má til fóðurs. HVAL rak á land við Sauðanesvita við Siglufjörð á föstudagsmorgun, en um er að ræða 12 til 14 metra langan búrhval, að sögn Jóns Traustasonar vitavai’ðar. „Þegar ég leit niður í fjöruna úr fjarska fannst mér vera einhver klettur þar sem ég kannaðist ekki við, en þegar betur vai’ að gáð kom í ijós að þetta var hvalur," sagði Jón. „Það er ekki algengt að hval reki hér á fjörur en líklega gerðist það síðast einhvern tíma eftir 1970.“ Maður frá Hafrannsóknastofnun kom á staðinn til að mæla hvalinn og taka úr honum sýni, til að geta ald- ursgreint hann og fundið út hvers vegna hann hefur drepist. Að sögn Jóns heíúr ekki tekist að ná sýni, þar sem erfitt hefur verið að komast að hvalnum vegna öldugangs. „Eg veit ekki hvað verður síðan gert við hvalinn, en ég hafði samband við Hvalaminjasafnið á Húsavík og þar sýndu menn áhuga á að fá neðri kjálkann, þá vantar hann í einhverja grind og þeir geta fengið hann ef þéir vilja. Ég veit ekki hvað verður gert við skepnuna sem slíka en ég reikna með að náttúran sjái um það.“ Morgunblaðið/RAX Hækkun- arþörf leigubfla allt að 10% LEIGUBÍLSTJÓRAFÉLAGIÐ Frami hefur lagt inn beiðni um hækkun á töxtum vegna framkom- inna bensínverðshækkana. Beiðni um 5,44% hækkun var lögð inn í júlí síðastliðnum en síðan hefur verð á bensíni hækkað þrisvar. Ástgeir Þorsteinsson, formaður Frama, segir hækkunarþörfina 5,44%-10%. „Við fáum taxtahækkanir í sam- ræmi við bensínverðshækkanir, en við erum neytendur um leið og vissulega eru bensínhækkanir af þessari stærðargráðu slæmar. Það sem snýr að leigubílstjórastéttinni er hækkunarbeiðni sem lögð var inn í júlí. Ég hef grun um að hún verði afgreidd fljótlega því það hafa orðið þrjár bensínhækkanir frá því við lögðum beiðnina inn,“ segir Astgeir. Stjómarfundur var í Frama í lið- inni viku. Ástgeir segir að bílstjór- ar ætli ekki í neinar sérstakar að- gerðir vegna bensínverðshækkun- arinnar en jafnvel standi til að allir atvinnubílstjórar á höfuðborgar- svæðinu, þ.e. leigubílstjórar, vöru- flutninga- og sendibílstjórar, vinnuvélaeigendur, hagsmunafé- lög, svo sem Félag íslenskra bif- reiðaeigenda og Neytendasamtök- in, sendi frá sér sameiginlega yfir- lýsingu. Morgunblaðið/Sigríður Ingvarsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.