Morgunblaðið - 05.09.1999, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
GEYSIR OG
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGINN 8. júlí sl. gat
að líta fremur óvenjulegan leiðara í
Morgunblaðinu, en fyrri hluti hans
fjallaði um og hvatti fremur til þess
að óbætanleg náttúruspjöll yrðu
framin á frægasta náttúruundri
landsins, Geysi. Það er full ástæða
til að huga nánar að þeim andstæð-
um sem birtust lesendum þama á
miðopnunni, en stór hluti hennar
var um hin óspilltu og fögm víðerni
Eyjabakka.
Rannsóknir við Geysi
Það er því miður ekki allskostar
rétt sem segir í leiðara Morgun-
blaðsins að „fá, ef nokkur, náttúra-
fyrirbrigði í landinu hafa verið
rannsökuð jafn oft og jafn lengi og
Geysir í Haukadal“. Margir hafa
vissulega komið á svæðið, en flestir
hafa verið ferðamenn og fáeinir
hafa lýst Geysisgosum í ferðabók-
um sínum, oft með nokkram ævin-
týraljóma. Ég hef sjálfur verið við-
riðinn rannsóknir á svæðinu frá ár-
inu 1984 og ekki orðið var við aðrar
rannsóknir þar á þeim tíma, enda
erfltt að fá fé til þeirra. A þessari
öld hafa fáir stundað rannsóknir á
svæðinu, líklega innan við 10 manns
og ekki mikið fleiri fram að því frá
upphafi. Ef borið er saman við
rannsóknir á t.d. Heklu, Kröflu og
heiðagæsinni geta menn séð það í
hendi sér að víða hefur verið rann-
sakað meira en á Geysi. Goshverinn
Geysir hefur hinsvegar lengi verið
víðfrægasta náttúrafyrirbrigði
landsins og mest skoðað, enda eitt
það merkilegasta.
Lygn pollur
Leiðarahöfundi finnst fátt um
Geysi, hann sé „ekki goshver heldur
lygn pollur". Ef Geysir
er ekki goshver vegna
þess að hann gýs ekki
þessa dagana, hvað er
þá Hekla? Geysir er í
dag sjóðandi vatnshver
og úr honum renna
tæpir 2 lítrar á sekúndu
af um 100°C heitu vatni,
orka sem nægir til að
hita upp 20-25 stór ein-
býlishús. Það er
ástæðulaust að tala nið-
ur til Geysis gamla á
þennan hátt, hann er
eina náttúrufyrirbrigði
landsins sem er heims-
frægt, og orðið „geyser“
sem af honum er dregið
er eina alþjóðaorðið
sem kemur úr íslensku. Geysir á
vafalaust eftir að gjósa á ný í fyll-
ingu tímans - verði Islendingar ekki
búnir að eyðileggja hann áður.
Saga Geysis er þekkt frá 1294 er
hverir komu upp í jarðskjálftum í
Haukadal. Allar götur síðan hefur
Geysir gægst inn á blöð sögunnar
við og við, yfirleitt vegna þess að
hann lifnaði við í jarðskjálftum, síð-
ast í Suðurlandsskjálftunum 1896.
Eftir jarðskjálfta gaus Geysir í
fyrstu oft á dag en gosum fækkaði
síðan smátt og smátt og voru nánast
hætt eftir um 20-30 ár. Eftir skjálft-
ana 1896 gaus Geysir um 60 m há-
um gosum, en mun hafa verið að
mestu sofnaður um 1915. Árið 1935
var grafin rauf í norðurbrún
skálarinnar við Geysi og tók hann
þá við sér aftur í nokkur ár, en hef-
ur aðallega gosið ef sett er í hann
sápa (um 50 kg). Fyrr á tímum var
algengt að fylla hverina af mold og
grjóti, við það hafa þeir hitnað upp
að og síðan yfir suðu-
mark og gosið.
Rannsóknir 1997-8
Rannsóknir sem
gerðar vora að tilhlutan
Náttúraverndar ríkis-
ins veturinn 1997-8
beindust að því hvernig
unnt væri á einfaldan
hátt að lækka vatns-
borð Geysis og sjá
hvort sú aðgerð ein
hjálpaði hvernum í gos.
Skilyrðin vora þau að
engu yrði spillt - og er
þá átt við að eftir að-
gerðimar sæist ekki að
neinu hefði verið rask-
að og gosrásinni að
sjálfsögðu ekki spillt.
Köldu vatni var dælt úr Beiná
upp að Geysi og vatni dælt um svo-
nefndan ,jektor“ (e.k. lensidælu) og
þannig var vatnsborð hversins
lækkað um 2 m án þess að syði í
leiðslunni, en ekki er hægt að dæla
sjóðandi vatni með venjulegri sog-
dælu. Við lækkun vatnsborðs um 2
m fór hverinn að skvetta úr sér gos-
um upp í 8-10 m hæð á um klukku-
stundar fresti.
Það er nauðsynlegt að klára þessa
tilraun með því að halda dælingum
áfram í fáeina daga og sjá hvort al-
mennilegt Geysisgos kemur, vatns-
og gufugos. Verkið var unnið á tíma
þegar minnst var um ferðamenn til
að fá frið við verkið, auk þess sem
hættulegt er að vera nálægt hvem-
um sem getur gosið fyrirvaralítið
þegar lækkað er í honum. Aðstæður
og birta vora erfið á þeim tíma sem
verkið var unnið, en líldega er best
að framkvæma næsta áfanga í apríl
eða maí, ef fé fæst til þess.
Ef vatnsborð Geysis er lækkað
um meira en 1 m er unnt að ganga
niður í skálina, fram á brún gospíp-
unnar og þar neðan við kraumar 98-
100°C heitt vatn - stórkostleg slysa-
gildra.
Tillögnr um að bora í Geysi
Isleifur Jónsson verkfræðingur
hefur nokkram sinnum skrifað
greinar í Morgunblaðið þar sem
hann lýsir hvernig bora megi í
Geysi. Leiðarahöfundur blaðsins
gengur raunar svo langt að fullyrða
að unnt sé að „endurvekja Geysi án
nokkurra spjalla á honum eða um-
hverfi hans“. Skoðum það nánar.
Geysir er einn örfárra náttúralegra
goshvera á jörðinni. A Islandi hafa
margir goshverir dáið úr elli, þ.e.
aðrennslisrásir hafa skemmst í jarð-
skjálftum, stíflast af útfellingum úr
heita vatninu eða þeir verið eyði-
lagðir með nýtingu jarðhitans (t.d.
Reykholtshver í Biskupstungum,
hverir á Hveravöllum í Aðaldal, þeir
Strokkur og Uxahver, og svo
Dilbert á Netinu
mbl.is
__ALL.-TA/= e/TTH\SA£} /MÝTT
ráð
fyrlrnámogstörf
Námskeið fyrir konur þar sem áhersla verður lögð á;
• að kynnast sjdlfri sér betur • að byggja upp sjáfstraust og hugrekki
• að losa um hömlur • að vinna í hóp (IMmnterllOmanmhópijm)
Námskeiðið hefst miðvikudaginn 15.september,
er einu sinni í viku og stendur til 27. október,
samtals 21 klst. Kennt er frá kl. 19-22.
Kynningarverðkr. 26.000.
Leiðbeinandi er Magnea B. Jónsdóttirsdlfræðingur.
Upplýsingar og skráning f síma 561 2428.
Viltu f l |
marqralda
lestrarhraSa þinn?
Á síðasta ári fjórfölduöu nemendur hjá hraðlestrarskóla Fjölmenntar
lestrarhraöa sinn og héldu sama lestrarskilnlngi.
Margir náðu enn betri árangri.
Námið hentar mjög vel fyrlr:
1. Starfsmenn fyrirtœkja sem þurfa að lesa mikið, en hafa
takmarkaðan tíma.
2. Námsmenn sem stefna aö betri námsárangri
(námsmannaafsláttur)
3. Áhugamenn um lestur bókmennta, sem vilja komast yfir meira
lestrarefni.
Námskeiðið tekur 5 vikur, og er kennt í 2 kennslustundir í senn.
í lok námskeiðsins er boðið upp á tveggja tíma yfirferð yfir námstœkni.
Við höldum námskeið á vinnustöðum, í skólum og hjá félagasamtökum ef
óskað er.
Fyrsta námskeið vetrarins byrjar 6. september og síðan reglulega í allan vetur.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Fjölmennt í s. 5 100 900 og 5 100 901.
7
FJÖLMENNT ehf
Skeifunni 7,2.h., 108 Roykjavik, sfml 5100 900, fax 5100 901, töivupóstur: brefa8k@ismennt.is
Helgi
Torfason
Skrifla og Dynkur í Reykholti, en
e.t.v. mætti vekja Skriflu upp aftur).
Það sem veldur vii'kni goshvera er
suða sem verður á nokkru dýpi í
gosrás þeirra. Það er því gosrás
slíkra hvera og innstreymið sem
gerir þá einstök fyrirbrigði, en ekki
hvemig þeir líta út á yfirborði. Ef
gosrásin er eyðiiögð með boran er
hverinn ekki lengur náttúrulegt fyr-
irbrigði heldur mannvirki. Verndun
Geysis lýtur því fyrst og fremst að
því að vernda gosrásina og síðan að
vernda hrúðurskálina því hún er
hinn sýnilegi hluti hversins.
Þeirri skoðun er stundum haldið
fram að það eigi að vernda Geysi
sem goshver og því eigi að gera á
honum þær aðgerðir sem gera hon-
um mögulegt að gjósa. Margar hug-
myndir hafa verið settar fram til
þess og eru sumar ansi fjarstæðu-
kenndar og yrðu ekki til þess að
auka hróður náttúruvemdar á Is-
landi - helstu leiðir era eftirfarandi:
Bora í gospípu Geysis til að auka
innrennsli
Nota jarðýtu til að hreinsa allt
hrúður af skálinni tO að minnka
kælingu
Saga efsta hluta hrúðursins af
svo skálin verði lárétt og lægri en
nú er
Dýpka rásina sem er í barm
hversins og hafa hana alltaf opna
Setja upp rafkyndingu í eða við
hverinn
Bora á ská inn í skálina og hleypa
úr honum
Setja dýnamít í hverinn og
sprengja hann út
Setja tappa í gosrásina og dæla
niður köldu vatni undir þi-ýstingi og
víkka æðar (pakka)
Setja hlemm yfir gosrásina til að
varna niðurrennsli kalds vatns
Dæla úr hvernum til að lækka
vatnsborð og minnka kælingu
Setja sápu í hverinn - 50 kg er
það magn sem nú þarf fyrir hvert
gos
Dæla úr hvemum og reyna að
minnka sápuskammtinn sem þarf
Bora holu á ská innundir skálina
og dæla þangað yfirhituðu vatni
Sumar af þessum aðferðum má
nota saman. Umhverfisvænsta leið-
Fyrst ekki er veitt fé til
að fylgjast með ástandi
eins vinsælasta
ferðamannastaðar
landsins og einstaks
náttúruundurs, segir
Helgi Torfason, hvers
vegna ætti þá að veita
fé til að bora í frægasta
goshver heims og eiga
á hættu að
eyðileggja hann?
in er þó sú að lækka vatnsborð
hversins með dælingum. Ef sú leið
gengur ekki, mætti athuga að setja í
hann smávegis af sápu við lægri
vatnsstöðu. Raunar er það nauðsyn-
legt öðra hvora til að láta hverinn
hreinsa úr sér grjót og drasl sem ís-
lenskir gestir henda í hverinn - er-
lendir ferðamenn sýna náttúra
landsins yfirleitt meiri virðingu.
Áhætta borunar
Ef svo færi að borað yrði í Geysi
gæti hann vissulega byrjað að gjósa
á ný. Miðað við það innrennsli sem
nú er í hverinn tekur það um 12
klst. fyrir hverinn að fylla sig eftir
gos, þangað til von er á því næsta.
Ef innrennslið er aukið með boran-
um styttist tíminn sem hverinn er
að fyllast „en þá er líka næsta víst
að nálægir hverir hverfi og líklega
fyrst Strokkur sem er á sömu
sprangu og Geysir. Vilja menn taka
þá áhættu að fórna Strokki sem gýs
mjög fallegum gosum á 10-15 mín.
fresti, og gosum í Geysi á allt að 12
klst. fresti?“ Einnig er líklegt að
aðrir hverir í nágrenninu gætu
skemmst eða horfið, t.d. Konungs-
hver, Fata og Blesi, en engin leið er
að sjá slíkt fyrir. Isleifur hefur
réttilega bent á að þá væri unnt að
steypa í Geysi - en þá er líka búið að
sjá endanlega fyrir honum, gosrásin
væri skemmd og hverinn í mesta
lagi stillanlegur með krana, sbr.
„hverinn" í Öskjuhlíð. Einnig gæti
Geysir hlaupið í sama farið og
Strokkur og gosið snotrum 15-20 m
gosum á 10-15 mín. fresti, „hvað
myndi vinnast við það?“
Ef Geysir verður látinn gjósa 1-2
sinnum á dag verður mikil slysa-
hætta á svæðinu því Geysir gýs
hærra en Strokkur og vatnssúlan
dreifist víðar. Því verður að hafa
stöðuga vakt á svæðinu, sem hefur
aukinn kostnað í för með sér, og
sennilega loka því í hvassri norðan-
átt ef hætta er á gosi.
Við vitum að gosrás Geysis er um
20 m djúp, því hún hefur verið
mæld, en þar með þrýtur þekking-
una og enginn veit hvernig æða-
kerfið og sprangur liggja á meira
dýpi. Það er því alrangt að unnt sé
að bora í Geysi án nokkurra spjalla
á hvemum eða umhverfi hans - það
er ekki hægt.
Fjármögnun aðgerða
og rannsóknir
Boran í Geysi kostar mikið fé.
Hver borgar það og tekur fjárhags-
lega ábyrgð á því að skemma ekki
Geysi, hveraskálina og hverina í
kring? Líklega myndu fáir ábyrgj-
ast slíkt verk því áhættan er of mik-
il. Boran í Geysi myndi sennilega
kosta nokkrar milljónir króna og
vandséð hver myndi fjármagna
slíka aðgerð. Fjái-veitingai'valdið
hefur nánast ekki veitt neinu fé til
rannsókna á svæðinu undanfarin ár,
nema í sambandi við þingsályktun
Guðmundar Hallvarðssonai' 1995
(129. þing, 179. mál). Fyrst ekki er
veitt fé til að fylgjast með ástandi
eins vinsælasta ferðamannastaðar
landsins og einstaks náttúruundurs,
hvers vegna ætti þá að veita fé til að
bora í frægasta goshver heims og
eiga á hættu að eyðileggja hann?
Rannsóknir sem gerðai' voru á
Geysi veturinn 1997-8 voru kostaðar
af Landsbankanum, með dyggri að-
stoð Sverris Hermannssonar, bor-
fyrirtækinu Alvarr, sem gaf alla
vinnu, Orkustofnun og Hótel Geysi,
sem kostaði uppihald á staðnum.
Rannsóknirnar vora gerðar að til-
hlutan Náttúruvemdar ríkisins og
undir umsjón Orkustofnunar. Fjár-
magn vantar til að ljúka þessum
rannsóknum.
Ferðamenn og Geysir
Flestir ferðamenn sem koma til
landsins fara að skoða Geysi - raun-
ar Strokk - og eru hæstánægðir
með það. Það er því erfitt að sjá að
þeim fjölgi við það eitt að láta Geysi
gjósa daglega (þ.e. á 12 tíma fresti).
Hinsvegar væri æskilegt að þeir
dveldu lengur á svæðinu og fengju
tækifæri til að kynnast því betur í
heild. Það er því ánægjulegt að
einmitt nú hefur risið nýtt hús á
staðnum þar sem opnuð verður
Geysisstofa á næsta ári þar sem
saga svæðisins og náttúra verða
kynntar, en það er framtak hjón-
anna Más Sigurðssonar og Sigríðar
Vilhjálmsdóttur. Með kynningu á
Geysissvæðinu öllu, fjölbreytni þess
og nágrennisins fá gestir tækifæri
til að átta sig á því og skoða í heild
sinni, en ekki einblína aðeins á
hvort Geysir gýs eða ekki - Strokk-
ur er fullfær um að sjá um gosin.
Gos í Geysi hefur engin áhrif á
þjóðarhag íslendinga eða ferða-
þjónustuna - það hefur Strokkur og
er mjög varasamt að hnekkja veldi
hans. Það er rétt sem segii' í Morg-
unblaðinu að hér „eru miklir hags-
munir þjóðarbúsins" í veði og því
ekki rétt að „höggva á hnútinn og
leyfa Geysi að gjósa á ný“ með því
að bora í hann og eyðileggja. Ef
menn aðeins hafa áhuga á að sjá
Geysisgos og vatnsborðslækkun ein
kemur því ekki í gang, þá er ódýr-
ara, og einfaldara að setja í hann
sápu en bora - og mun náttúra-
vænna.
Höfundur er jarðfræðingur við
auðlindadeild Orkustofnunar og
formaður Jarðfræðafélags fslands.