Morgunblaðið - 05.09.1999, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 11
Fjarnám Iná
gnunnskóla
upp í háskóla
FJARNÁM af ýmsu tagi á sér
áratugalanga sögu hér á
landi, minna má á bréfaskól-
ana en Netið, tölvupóstur-
inn og fjarfundabúnaður
hafa gætt hugtakið nýju
inntaki. Einnig var hægt að
blanda saman hefðbundnu
námi og fjarnámi við Kennaraskól-
ann, nú Kennaraháskóla Islands,
en heimildarmenn eru sammála um
að Verkmenntaskólinn Akureyri
hafi verið frumkvöðull að nýtingu
tölvusamskipta við fjarnám hér á
landi.
Verkmenntaskólinn er fram-
haldsskóli þar sem áherslan er á
iðnmenntun en hægt að leggja
stund á fjölmargar námsgreinar og
hægt að ljúka sumum brautum
með stúdentsprófi. Afangar í fjar-
kennslunni eru á annað hundrað.
Fjarkennslan hófst 1994 og nem-
endur hennar skipta nú hundruð-
um, eru á öllum aldri og sumir
hverjir búsettir í fjarlægum heims-
áifum.
I fyrra gerðu Háskóli Islands,
Kennaraháskólinn og Háskólinn á
Akureyri með sér samning um
samstarf á sviði fjarnáms. Við-
fangsefnið er meðal annars þróun
tæknibúnaðar og kennslugagna,
kennaramenntun og kynningar-
starf. Um 400 af alls 1.200 nemend-
um Kennaraháskólans eru nú í
fjarnámi en einnig hafa hundruð
manna tekið þar þátt í endur-
menntun sem fram fer að að öllu
leyti eða hluta á Netinu.
Hjúkrunarfræði á fsafirði
Háskólinn á Akureyri hefur
einnig tekið upp margs konar fjar-
kennslu. í fyrrahaust var m.a. byrj-
að jiar að kenna hjúkrun í fjarnámi
á Isafirði. Þar stunda nú 10 nem-
endur nám, námsárangur þeirra er
alveg sambærilegur við heimanema
á Akureyri, að sögn Sólveigar
Hrafnsdóttur námsráðgjafa.
Byggðaþróun hefur verið Vest-
firðingum óhagstæð undanfarna
áratugi. Bent hefur verið á að ef
umræddir nemendur hefðu þurft að
fara ásamt fjölskyldum sínum af
staðnum til Reykjavíkur eða Akur-
eyrar hefði það getað orðið mikil
blóðtaka fyrir ísafjörð og alls ekki
víst að allir hefðu snúið aftur í
heimabyggð. í þessu námi er um að
ræða samstarf við Framhaldsskóla
Vestfjarða, Fjórðungssamband
Vestfirðinga, Fjórðungssjúkrahús-
ið á ísafirði og ísafjarðarbæ. í
haust bætast við tveir nemendur á
Egilsstöðum.
I fyrrahaust hófst fjarkennsla í
rekstrarfræði á Austurlandi, hér er
um að ræða þriðja árs námskeið til
B.S.-gráðu. Notuð er gagnvirk
sjónvarpstækni og stunda sex nem-
endur námið á Egilsstöðum. Verk-
efnið er framkvæmt í samvinnu við
Fræðslunet Austurlands.
Fjarnám í leikskólafræðum er
tilraunaverkefni sem hófst við há-
skólann í haust. Þetta nám er hugs-
að þannig að ófaglært starfsfólk á
leikskólum eigi þess kost að stunda
leikskólakennaranám meðfram
starfi og geti lokið því á fjórum ár-
um. Þetta nám stunda tuttugu
nemendur þar af fimm í Skagafirði.
Háskóli íslands bauð í fyrra-
haust upp á tilraunanám á Netinu í
ferðamálafræðum í samstarfi við
Fræðslunet Austurlands, Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum og
Framhaldsskóla Vestfjarða. Einnig
á skólinn samstarf við Rannsóknar-
setrið í Vestmannaeyjum og Sí-
menntunarmiðstöð Vesturlands og
hefur Rögnvaldur Ólafsson dósent
haft umsjón með undirbúningi fjar-
námsins. Reglulegt fjarnám hefst
við Háskólann á tveim námsbraut-
um, ferðamálafræði og hagnýtri ís-
lensku, í haust og er um að ræða 45
eininga nám sem lýkur með svo-
nefndu diplómaprófi. Alls eru um
110 nemendur ski'áðir í brautirnar
tvær, þar af gert ráð fyrir að 30-50
muni verða í fjarnámi.
Fjarnám á gömlum merg
„I reynd má segja að stunduð hafi
verið fjarkennsla við Háskóla ís-
lands í tvo áratugi," segir Þórður
Kristinsson, kennslustjóri Háskól-
ans. „Upp úr 1980 var fjarkennsla í
réttindanámi framhaldsskólakenn-
ara á vegum félagsvísindadeildar
og stóð tO 1997. Haldin voru sumar-
námskeið og síðan fengu nemendur
verkefni send með pósti yfir vetur-
inn, verkefni sem nú eru send yfir
Netið.
Þegar notaður er gagnvirkur
búnaður með sjónvarpsskjám eins
og í Byggðabrúnni, sem er rekin af
Landssímanum, verða nemendur
úti á landi að hafa aðgang að honum
hjá fræðslumiðstöðvunum. Kennar-
inn er þá á skjánum og nemandi
getur spurt hann beint og hann
nemendur. Svo er einnig notast við
tölvupóstinn einan, þá geta nem-
endur unnið verkefnin heima hjá
sér og sent kennaranum úrlausnina
beint um tölvupóstinn.
Seinni aðferðin er reyndar notuð
talsvert í hefðbundnu námi hér í
Háskólanum, kennari setur þá
verkefnið beint upp á Netið og nem-
andinn sækir gögn þangað. Við höf-
um einnig gert tilraunir með að
prófa nemendur beint á vefnum. Þá
liggur niðurstaðan fyrir mun fyrr
en ella.“
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, hefrn’ gagn-
rýnt Landssímann fyrir að standa
ekki nógu vel að tæknilegri hlið
þessara mála. Bent er á að vegna
þess hve ftutningskerfið er seinvirkt
sé erfitt að nota það tO að senda
myndir, Byggðabrúin sé of mjó.
Einnig mun hafa verið misbrestur á
því að gagnvirki búnaðurinn úti á
landi hafi fengið nógu örugga þjón-
ustu. Hefur meðal annars komið
fyrir að hópur nemenda hafi verið
kominn á staðinn en enginn tækni-
maður þar fyrir tO að kveikja á
tækjunum. Þórður segir það rétt að
hún hafi kannski ekki alltaf verið í
nógu góðu lagi en telur að úr þessu
verði bætt í vetur.
Hann segist telja að það sé af
hinu góða að í fjarnáminu stundi
fólk námið bæði út af fyrir sig en
einnig í hópunum sem hittist á
fræðslumiðstöðvunum. „Fjarnám
kemur aldrei alveg í staðinn fyrir
hefðbundið háskólanám vegna þess
að hluti námsins er bara mannleg
samskipti. Það er mikilvægt að
skiptast beint á skoðunum við aðra í
hópnum án þess að tækin séu milli-
liður. En fjamámið gefur auðvitað
fólki kost á að stunda námið úr sinni
heimabyggð að mestu leyti. Hins
vegar er þetta nokkuð dýrt íyrir
Háskólann, bæði stofnkostnaður í
búnaði og reksturinn. Gerð kennslu-
efnis er vinnufrekari og kennarinn
getur þurft að sinna einstökum
nemendum meira en í venjulegu
námi, utan kennslustundanna. Það
koma upp slík mál sem við reynum
að sinna eftir bestu getu.“
Metnaðarfúll áform
og aðkeypt þekking
Viðskiptaháskólinn í Reykjavík
tók tO starfa í fyrra í nýju og glæsi-
legu húsnæði. Guðfinna Bjarnadótt-
ir rektor segir að þegar hafi vaknað
áhugi á að gefa kost á fjamámi og
þá einkum í tölvunarfræðinni en yf-
ir henni er Ágúst Valgeirsson.
„Við emm með stóra drauma
núna og markmiðið er að hægt
verði að stunda helst allt námið við
skólann í fjamámi," segir Guðfinna
en leggur áherslu á að fjarnámið
geti ekki komið að öllu leyti í stað
hefðbundins nám. Það sé hins vegar
mjög góður valkostur með.
„I vor fengum við Bandaríkja-
mann, Stephen Anspacker, sem er
með fremstu sérfræðingum heims á
þessu sviði, tO að kynna okkur hug-
myndafræðina sem hann er búinn
að þróa á undanfömum ámm. Hann
er með fjarkennsluskóla í New
York og 3.000 nemendur úti um all-
an heim, þeir koma að sjálfsögðu
aldrei í skólann en stunda námið al-
gerlega með tölvu. Við settumst á
skólabekk hjá þessum manni,
keyptum hjá honum þekkingu og
reynslu sem hann hefur öðlast með
því að brenna sig.
Kennsla er fyrst og fremst mann-
leg samskipti, tölvan er þekkingar-
vél og Anspacker gaf góð ráð jafnt í
tæknimálunum sem mannlega
þættinum, hvernig hægt er að búa
tO nálægð líka með tölvunni. Það
kostar mikið fé að kaupa slíka þekk-
ingu en þannig getum við eiginlega
þjófstartað og í vetur verður hægt
að læra alla tölvunarfræðina, sem
er veigamesti hluti námsins hér, í
fjamámi."
Af um 500 nemendum skólans
eru um 350 í tölvunarfræði en hinir í
viðskiptadeöd. Um 50 af 200 nem-
endum sem hefja nám í haust eru í
fjarnámi eða um 25% og eru 11
þeirra frá stöðum utan höfuðborg-
arsvæðisins.
Síðastliðin vetur var gerð tOraun
með fjarkennslu í tölvunarfræðinni
sem 14 nemendur tóku þátt í, jafnt
úti á landi sem á höfuðborgarsvæð-
inu en ljóst er að margir vilja nýta
sér frjálsræðið sem fjamámið veit-
ir. Nemendm’nir vom á ýmsum
aldri, frá 25 upp í 45 ára og í hópn-
um vom kennarar og menntafólk í
stjómunarstöðum, margt af fólkinu
er frá Austurlandi. Margir heltust
úr lestinni eða frestuðu prófum en
átta luku náminu og mun þau öll
halda áfram í vetur.
„Við gerðum ýmsar tdraunir og
prófuðum ýmiss konar tækni sem
stóð tO boða, meðal annars fjar-
fundabúnaðinn, Byggðabrúna, sem
Byggðastofnun hefur mælt með,“
segir Sigfinnur Valur Viggósson,
sem hefur einkum haft fjamámið á
sinni könnu og byggir starfið á hug-
myndum Anspackers. Niðurstaðan
vai' sú að Byggðabrúin hentaði ekki
skólanum. Þau segja að tækndega
hafi búnaðurinn ekki reynst nógu
vel en ekki síst hafi mönnum þótt
óhagræði að því að nemendur og
kennarar væru með fjarfundabún-
aðinum of bundnir af því að vera
samtímis á ákveðnum stað en öðm-
vísi nýtist búnaðurinn ekki.
Nemendur úti á landi hafi margir
þurft að ferðast mdli staða, sækja
þjónustu í fræðslumiðstöðvarnar
þar sem Byggðabrúin er með út-
stöðvar og því má segja að brúin
merki frekar að verið sé að búa td
mörg útibú skólans en sveigjanleiki
tölvu- og fjarskiptatækninnar ekki
nýttur.
Sigfinnur segir að fjöldi þeirra
sem geti nýtt myndabúnaðinn sam-
tímis sé auk þess takmarkaður og
samskiptin séu of stirðbusaleg,
minni á talstöðvafjarskipti. „Egds-
staðir, hafið þið einhverjar spum-
ingar? Skipti.“
Sigfinnur segir að tímaleysið sé
helsti kosturinn við fjarkennsluna,
með því að setja kennslugögnin inn
á Netið og nota tölvupóstinn td
samskipta geti nemandinn ákveðið
sjálfur hvemig hann hagar námi
sínu, hvort hann læri á nóttunni eða
á daginn, á virkum dögum eða um
helgar. „Hann getur stundað námið
á eigin forsendum."
Tilraun í Grundarfirði
í Grannskóla Eyrarsveitar í
Gmndarfirði verður gerð tdraun í
vetur, þar munu sjö nemendur á
aldrinum 16-20 ára stunda fjarnám
við Verkmenntaskólann á Akureyri
með hjálp fjarfundabúnaðar. Einn
af starfsmönnum skólans verður í
hálfu starfi sem umsjónarmaður og
tækndegur ráðgjafi fyrir nemend-
uma og námið geta þau stundað að
öllu leyti þar, fá aðgang að tölvum,
bókum og öðra.
„Nemendumir fá því ákveðið að-
hald hér í skólanum," segir Anna
Bergsdóttir skólastjóri. „Nemar á
grunnskólaaldri hafa varla nægdeg-
an sjálfsaga td að geta lært alveg
upp á eigin spýtur og þess vegna
mun starfsmaðurinn vera með þeim
tvær stundir á dag. Hann mun
fylgjast með því að þau skili verk-
efnum á réttum tíma í tölvupósti og
geri það á réttum tíma. Prófin taka
þau hér hjá okkur.
Þau eru skráð í Verkmenntaskól-
ann en kennarar verða á fleiri stöð-
um á landinu, m.a. í Fjölbrautaskól-
anum á Akranesi."
Anna segist aðspurð telja að tak-
ist tilraunin vel þurfi ekkert að vera
því td fyrirstöðu að nemendurnir
geti lokið stúdentsprófi á þeim
brautum Verkmenntaskólans sem
gefa kost á því.
Hún segir að krakkamir muni þó
setja fyrir sig að geta ekki myndað
félagsleg tengsl í framhaldsskólan-
um sjálfum. Reynt verði að koma
eitthvað td móts við þá þörf með því
að nemendumir í fjarnáminu fari ef
til vid einu sinni í mánuði í dagsferð
í Fjölbraut á Akranesi, geti þá setið
þar í tímum og tekið þátt í félagslífi.
Hún segir ljóst að kostnaður for-
eldra við að senda ungling í fram-
haldsskóla annars staðar á landinu
sé að sjálfsögðu mjög misjafn en
spamaðurinn og hagræðið af því að
nemandinn geti verið áfram á
heimaslóðum, fyrstu árin eða jafn-
vel öd námsárin, sé mikdl. Auk þess
geti óhörðnuðum unglingi þótt erfitt
að fara að heiman um 16 ára aldur.
Hátt í þúsund manns búa í
Gmndarfirði og Ijóst að kostnaður
sveitarfélagsins við tilraunina getur
að sögn Bjargar Ágústsdóttur sveit-
arstjóra hlaupið á midjónum. Lík-
legt er að Rannsóknarráð íslands
veiti einhvern styrk td að kanna
ýmislegt í tengslum við tilraunina,
t.d. félagsleg áhrif, kennslufræði-
legar niðurstöður, hugsanleg áhrif á
byggðaþróun og fleira en ekki er
búið að semja um þá hluti enn.
Anna segir að margir voni að tak-
ist fjamámið vel geti það orðið til
þess að treysta byggðina á staðn-
um. Mikill áhugi hafi vaknað á
staðnum á ijamámi og nú séu auk
unglinganna sjö um tuttugu full-
orðnir nemendur búnir að skrá sig í
margs konar fjamám við Verk-
menntaskólann og hyggist þá m.a.
nýta sér fjarfundabúnaðinn sem
keyptin- hefur verið tU sveitarfé-
lagsins. Konur em í meirihluta en
einnig em karlar í hópnum, þar á
meðal sjómenn.
Gmnnskólinn verður opinn tvö
kvöld í viku og þar getur fólk fengið
aðgang að tölvum skólans, hist og
spjallað saman. „Þetta getur skapað
skemmtdega stemmningu, fólk fær
stuðning hvert af öðm. Einnig em
dæmi um að fólk úr sömu fjöl-
skyldu, foreldri og barn, séu sam-
tímis í fjamáminu. Ég man eftir
móður sem sagði mér að hún og
sonur hennar yrðu að einhverju
leyti í sömu áfongum og þau gætu
því átt samstarf um nárnið!" sagði
Anna Bergsdóttir.