Morgunblaðið - 05.09.1999, Page 14
14 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
sókn
Rán
Baráttan um Italíumeistaratitilinn hófst um
síðustu helgi. Sumarið hefur verið heitt
syðra og verð á leikmönnum rokið upp úr
öllu valdi. Einar Logi Vignisson hefur fylgst
með gangi mála - þar sem stærstu liðin hafa
sankað að sér sóknarmönnum og mörg
þeirra ætla sér að leika Sóknarkerfíð 3-4-3
sem ekki hefur verið mikið í tísku hingað til.
Eru miklar vonir bundnar við að tímabilið
verði hið skemmtilegasta í mörg ár.
boHi
Segja má að AC Milan hafi
„stolið" titlinum af Lazio á síð-
ustu leiktíð og fór það nokkuð fyrir
brjóstið á öllum öðrum en stuðn-
ingsmönnum Mflanóliðsins enda
hafði Lazio leikið liða skemmtileg-
astan bolta. Eins vildu margir að
eitthvert annað lið en Milan eða Ju-
ventus hampaði meistaratigninni
enda hafa þau lið skipst á að vinna
titilinn allan þennan áratug ef frá er
talinn sigur Sampdoria 1991.
Milan og Lazio eru talin sigur-
stranglegust í ár ásamt hinu
Mflanóliðinu, Internazionale, sem
hefur farið mikinn á leikmanna-
markaðinum svo vægt sé að orði
kveðið. Einnig má eiga von á Ju-
ventus í toppslaginn eftir fremur
dapurt gengi á síðasta ári. Fiorent-
ina, Parma og Roma stefna á titflinn
en menn hafa ekki alveg sömu trú á
þeim og fyrmefndu liðunum.
Bologna og Udinese verða eflaust í
baráttunni um Evrópusæti en hinn
helmingurinn af liðunum í deildinni
verður í botnbaráttu eða besta falli
miðjuhnoði og hafa sumir áhyggjur
af því að deildin sé kannski ójafnari
en áður, þ.e. að mikill munur verði
milli liðanna í neðri helming deild-
arinnar og toppliðanna.
Hinir stóru verða stærri
Rétt eins og annars staðar í Evr-
ópu hefur leikmannaverð á Ítalíu
hækkað mjög og stóru liðin hafa æ
stærri leikmannahóp á meðan minni
liðin eru í stöðugri baráttu að halda
sínum mannskap. Það lið sem mest
hefur lagt í sölumar er Intem-
azionale sem hefur keypt hvorki
fleiri né færri en 20 leikmenn!
Þeirra dýrastur var Christian Vieri
en fyrir hann greiddi liðið 3,7 milij-
arða króna. Hóf hann leiktíðina með
miklum látum, setti 3 mörk í sínum
fyrsta leik og hyggst standa undir
nafni sem dýrasti leikmaður heims.
Aðrar stórstjömur sem komið hafa
til liðsins eru markvörðurinn Ang-
elo Peruzzi, Christian Panucci, Vla-
dimirJugovic og Laurent Blanc.
Á dögunum keypti liðið svo
Grikkjann smávaxna Gregoris Ge-
orgatos og hefur hann vakið mikla
athygli og þykir kaup sumarsins.
Inter hefur mistekist herfilega und-
anfarin ár þrátt fyrir mikinn fjár-
austur í leikmenn og hefur
verið hálfhlegið að liðinu. Nú
kann að verða breyting á því
og kann þar að valda mestu
að þjálfarinn er einn sá
fremsti í heiminum í dag;
Marcello Lippi, sem stjórnað
hefur Juventus undanfarin
ár. Ólíklegt er að hann láti
dynti stórstjamanna slá sig
út af laginu og kann að vera
einn af örfáum sem er nógu
stór karl til að kljást við hinn
óútreiknanlega forseta félags-
ins, Massimo Moratti. Sóknar-
línan með Vieri og Ronaldo
ætti að skelfa flesta andstæð-
inga en vömin er spumingarmerki.
Ef liðið byrjar vel gæti meistaratit-
fllinn lent hjá félaginu í fyrsta skipti
í 10 ár en hætt er við því að áralang-
ur órói í kringum félagið taki sig
upp aftur ef illa gengur.
Lazio missti naumlega af titlinum
í vor og hið rándýra lið félagsins
hefur eflst enn frekar ef frá er talið
brotthvarf Christian Vieri. Sem
hluti af greiðslu fyrir hann kom Di-
ego Simeone til félagsins og kann
hann að koma með nauðsynlega
baráttu á miðjuna þar sem snilling-
urinn argentínski Juan Sebastian
Veron verður kóngurinn. Landi
þeirra Nestor Sensini er góð viðbót
í annars mjög trausta vöm og ekki
er úrvalið af sóknarmönnum ama-
legt: Kennet Anderson, Alen
Boksic, Simone Inzaghi (litli bróðir
Filippo hjá Juve), Roberto Mancini
og Marcelo Salas. Er eins gott að
Svíinn Sven Göran Erikson er
þekktur fyrir að vera mikill
diplómat og kann lagið á að halda
þeim góðum sem þurfa að verma
bekkinn. Lazio verður erfitt viður-
eignar og márgir, þ.ám. Alex
Ferguson, framkvæmdastjóri
Manchester United, spá þeim titlin-
um.
Meistararnir enn sterkari
Sígandi lukkan er best segir mál-
tækið og það átti sannarlega við um
AC Milan á síðustu leiktíð. Liðið
náði ótrúlega oft að landa sigri er
jafntefli hefði verið rökréttasta nið-
urstaðan og eftir því sem leið á vor-
ið brosti sólin æ breiðar við liðinu
Ukraínski miðherjinn Andriy Shevchenko er kominn til AC Milan, sem vann kapphlaupið um hann, en nær
öll stórlið Evrópu voru á höttunum eftir honum. Shevchenko, sem er hér að kljást við Eyjólf Sverrisson í
Kiev í Evrópukeppninni, verður í sviðsljósinu á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn - dýrasti knattspyrnu-
maðurinn sem hefur komið f dalinn.
Lazio í næstsíðustu umferð. í sum-
ar bættist úkraínski framherjinn
Andriy Shevchenko í hópinn en nær
öll stórlið Evrópu voru á höttunum
eftir honum. Brasilíski bakvörður-
inn Serginho hefur leyst Christian
Ziege af hólmi og tveir ungir og
efnilegir ítalskir miðvallarleikmenn
gætu átt eftir að sjást á vellinum í
vetur, þeir De Ascentis og Gattuso.
Það sem vinnur fyrst og fremst með
Milan er að í liðinu eru sigurvegar-
ar, menn sem hafa unnið til fjölda
titla, í bland við yngri leikmenn sem
vilja sanna sig. Að mati margra er
Milan með heilsteyptasta leik-
mannahópinn og þjálfarinn
Zaccheroni þykir hafa náð upp leik-
gleðinni meðal liðsmanna eftir
nokkuð magra tíð undanfarin ár.
Juventus átti afleitt tímabil í
fyrra eftir að hafa borið ægishjálm
yfir önnur lið í deildinni (og í Evr-
ópu ef út í það er farið) frá því um
miðbik þessa áratugar. Liðið er
ekki mikið breytt frá því í fyrra en
þó hafa nokkrir mjög sterkir leik-
menn verið keyptir. Sunday Oliseh
leysir Didier Deschamps af á miðj-
unni, Gianluca Zambrotta kemur í
stað Di Livio á vængnum og Edwin
Van der Sar í stað Peruzzi í mark-
inu. Aðrir nýir leikmenn mega eiga
von á því að þurfa að byrja á bekkn-
um, frægar landsliðskempur á borð
við Italann Jonathan Bachini og Jú-
góslavann Darko Kovacevic sem
keyptur var fyrir 1,5 milljarða frá
Real Sociedad. Þrátt fyrir óhemju
sterkan mannskap eru menn ekki
sannfærðir um að Juve nái að kom-
ast á toppinn í vetur. Miklu skiptir
að Alex Del Piero lendi ekki í
meiðslum á ný og að Zinedine Zida-
ne og Edgar Davids nái að endur-
heimta fyrra form eftir að hafa
dvalið í hálfgerðu hýði um skeið.
Þjálfarinn Carlo Ancelotti kom til
liðsins um mitt tímabil í fyrra og
hefur ekki náð afgerandi árangri á
ferlinum, en er hins vegar nokkuð
„Juventus-legur“ eins og sagt er,
þ.e. hann þykir passa vel inn í hug-
myndir þeirra sem öllu ráða hjá Ju-
ve, þeirra Luciano Moggi og Ro-
berto Bettega.
Næstum því
- einu sinni enn!
Fiorentina gerði í buxumar í
fyrra eftir glæsta byrjun - eins og
venjulega var þar um að kenna
meiðslum fyrirliðans Gabriel
Batistuta en án hans er liðið eins og
höfuðlaus her. Sigursælasti þjálfar-
inn í sögu ítalskrar knattspyrnu,
Giovanni Trapattoni, náði ekki að
stöðva hnignun liðsins. Trapattoni
hafði það í gegn að fá fleiri góða
framherja til að leika við hlið
Batigol og eru engin smámenni
komin til Flórens: Pedrag Mijatovic
frá Real Madrid og þeir Enrico
Chiesa og Abel Balbo frá Parma.
Fyrir eru Morfeo og Oliveira svo
ljóst er að Trap hefur úr nógu að
velja. Aftar á vellinum versnar í því
en kannski ná járnkarlamir Di Li-
vio og Alessandro Pierini að smita
aðra af frægu baráttuþreki sínu.
Þrátt fyrir frábæran þjálfara og
skemmtflegt sóknarlið er líklegt að
Fiorentina hafi ekki burði til að ná
alla leið en von er á að liðið leiki
mjög skemmtilegan fótbolta.
Parma er annað lið sem verður
sennilega enn einu sinni að sæta því
að ná „næstum því alla leið“. Liðið
hefur undanfarin ár státað af sterk-
ustu vöm deildarinnar með Lilian
Thuram í broddi fylkingar og nú
fær hann sér við hlið „litla
Thuram“, skaphundinn Saliou Lass-
issi. Ariel Ortega leysir landa sinn
Veron af hólmi sem leikstjórnandi
liðsins en þessar skiptingar sem og
fleiri hafa veikt liðið fremur en hitt.
Roma lék afar skemmtilegan
bolta í fyrra undir stjórn Zdenek
Zeman. Nú er kominn að stjómvel-
inum sjálfur Fabio Capello og er
von á heldur grimmara liði til leiks.
Vörnin hefur verið endurskipulögð
og frammi verður skemmtilegt að
sjá hvemig Vincenzo Montella nær
saman við fyrirliðann og aðalstjömu
liðsins, Francesco Totti. Mannskap-
urinn hjá Roma er ekki alveg eins
sterkur og hjá ofangreindum liðum
en engu að síður gæti liðið blandað
sér í toppbaráttuna.
Bologna er með marga netta spil-
ara og gæti gert toppliðunum skrá-
veifu. Einnig Udinese sem hefur
nartað í hælana á stóru liðunum
undanfarin ár. Udinese þarf þó
alltaf að sjá á bak einhverjum
stjömum á hverju ári og líklegt er
að blóðtakan hafí verið of mikil í ár.
Af öðmm liðum verður síðan gaman
að sjá hvernig nýliðum Torino vegn-
ar eftir mikið og langt niðurlæging-
artímabil í Serie B. Ekki síst mun
verða fróðlegt að sjá hvort töffarinn
Gianluigi Lentini nær að slá í gegn
áný.