Morgunblaðið - 05.09.1999, Side 49

Morgunblaðið - 05.09.1999, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999 49 klappa fyrir okkur. Eftir hádegi héldum við svo vel sótta tónleika í þessari sömu kirkju. Efnisskráin var sýnishorn af því sem kórinn hef- ur flutt undanfarin misseri, íslensk sem erlend lög, kirkjuleg og verald- leg, svo og lög sem hafa verið sér- staklega samin fyrir kórinn. Viðtök- urnar voru mjög góðar og var kóm- um ekki sleppt fyrr en eftir nokkur aukalög. Næst var ferðinni heitið til New York-borgar. Við héldum tónleika í Washington Square Methodist Church, kirkju sem er rétt hjá stúd- entagörðunum í Greenwich Village þar sem við gistum. Þessi kirkja er líka notuð sem leikhús og hefur greinilega mátt muna sinn fífil feg- urri, rykug og illa við haldið. Leist okkur eiginlega ekkert á þetta og greip hálfgert vonleysi um sig með- al okkar kórkvenna. Skyldi nokkur koma á tónleikana? En þær áhyggj- ur voru algjörlega óþarfar. Smám saman fylltist kirkjan af fólki, bæði Islendingum og Bandaríkjamönn- um, og þegar við byrjuðum að syngja stigmagnaðist móður okkar þegar við sáum hvaða áhrif við höfð- um á áheyrendur, brosandi andlit hvert sem litið var. Sérstaklega var yndislegt að fylgjast með hvíthærð- um eldri manni á fremsta bekk þeg- ar Diddú söng Litfríð og ljóshærð. Svo vitnað sé í dagbók ferðarinnar: „Við vorum flestar búnar að sjá fyr- ir okkur íslensku mömmuna eða ömmuna sem hafði sungið þetta fyr- ir hann þegar hann var lítill. Það var víst tengdamamman og hann ekkert mjög lítill, en tilfinningin var greinUega sönn og djúp.“ Þetta voru magnaðir tónleikar, við sjaldan verið betri, ÞórhUdur í essinu sínu, Diddú frábær og Sigrún ekki síðri. Stemmningin var einstök og viðtök- urnar stórkostlegar. Þetta kvöld er ógleymanlegt! Eftir stutta en ánægjulega dvöl í New York var lagt af stað tU Baltimore. Þar skyldi vera bækistöð okkar það sem eftir var ferðar. Þjóðhátíðardagurinn var einn af þessum dögum sem er eiginlega ekki hægt að gleyma. Þegar við lit- um út var rigningarlegt, - hvað annað? Þennan dag var ferð okkar heitið til Washington D.C. Við vor- um ekki fyrr komnar á tónleikastað, á tröppunum fyrir neðan minnis- varðann um Lincoln forseta, þegar byrjaði að dropa úr lofti. Þrátt fyrir bjartsýnisraddir um að það væri að stytta upp stigmagnaðist rigningin. Þeir voru ekki margir áheyrendurn- ir sem héldu þetta út nema hinir allra hörðustu. Kórinn klæddur plastslám, Diddú í síðkjól og úlpu frá 66°N, að ógleymdri henni Þór- hUdi sem hélt uppi stemmningunni með bravóhrópum sínum, enda hljómborðið óstarfhæft vegna úr- komunnar. Sendiherrahjónin, Jón Baldvin og Bryndís, birtust í ís- lenskum búningum sínum og stóðu þarna tignarleg í grenjandi rigning- unni undir ljósrauðri regnhlíf þann hálfa klukkutíma sem við héldum út að syngja. Snemma kvölds var móttaka í bú- stað sendiherrahjónanna þar sem kórinn ásamt Diddú átti að syngja. Voru margar kórkvenna í íslenskum búning sem setti fallegan svip á hópinn. Þegar gestir voru komnir, bæði íslenskir og erlendir, söng Diddú fyrst nokkur lög við undirleik Þórhildar. Vegna þrengsla innan- húss hafði götunni verið lokað af lögreglu tU að kórsöngurinn gæti farið fram utan dyra. Að þessu sinni var dagskráin rammíslensk og skapaðist sannkölluð þjóðhátíðar- stemmning þegar kórinn byrjaði á þjóðsöngnum. Það voru stoltir Is- lendingar sem stóðu þama í kvöld- kyrrðinni og nutu stundarinnar Þó mikið hafi verið sungið var stundum stund milli stríða og þá ýmislegt aðhafst. Vakti það mikla athygli þegar þessi fríði hópur hljóp af stað á götum Baltimore hinn 19. júní, allur klæddur grænum Kvennahlaupsbolum. Var það vel við hæfí að enda stórkostlega kvennakórsferð með þátttöku hóps- ins í Kvennahlaupinu á kvennadag- inn. MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR, Vesturvallagötu 5, Reykjavík. ÍA/g/ hafið stör á harsnyrtistofunni Flóka, Staðarbergi 2-4, Hafnarfirði, síma 565 0670. EVA ÆGISDOTTIR Lokaumferðin Allir á völlinn! 14. UMFERÐ 5. september ÍA - Stjaman 17:00 5. september Fjölnir - Grindavík 17:00 5. september KR - Válur 17:00 5. september Breiðablik - ÍBV 17:00 Söngfólk Skagfirska söngsveitin í Reykjavík getur bætt við sig nokkrum góðum röddum. Upplýsingar gefur söngstjóri kórsins, Björgvin Þ. Valdimarsson, í síma 553 6561 eftir kl. 19. Viltu rétta HJÁLPARHÖND? Sjálfboðaliðar Rauða krossins starfa við átaksverkefni eða föst verkefni 10-12 tíma í mánuði hjá: - Vinalínu - Ungmennadeild - Kvennadeild - Sjálfboðamiðlun - Rauðakrosshúsi Starfið er fjölbreytt og uppbyggjandi, en ekki síst - skemmtilegt! KYNNINGARFUNDUR KL. 20.00 MÁNUDAGINN 6. SEPTEMBER í SJÁLFBOÐAMIÐSTÖÐ REYKJAVÍKURDEILDAR RAUÐA KROSS ÍSLANDS, HVERFISGÖTU 105. Upplýsingar í síma 551 8800. Sölubúðir á sjúkrahúsum, alþjóðahópur, símsvörun, verkstæði, skyndihjálp, sjúkravinir, unglingastarf. KVeNNAKÓR R6YKJAVÍKUR Skógarhlíð 20 • 101 Reykjavík Kórskóli Kvennakórs Reykjavíkur Námskeið verður haldið á haustönn fyrir konur með litla eða enga reynslu af kórsöng. Kennsla hefst miðvikud. 15. sept. kl. 18:00. Kennt er einu sinni í viku. Stjórnandi er Sigrún Þorgeirsdóttir, kórstjóri Kvennakórs Reykjavíkur. HAUSTSTARF Skráning og frekari upplýsingar eru veittar í síma 562 6460, mánud. 6. september til miðvikud. 8. september frá kl.13:00-17:00. Kvennakór Reykjavíkur Kórfélagar mæti miðvikud. 15.sept. kl. 20:30. Kórinn getur bætt við sig vönum söngröddum. Stjórnandi er Sigrún Þorgeirsdóttir. Vox feminae Æfingar hefjast sunnud. 5. sept. kl. 10:00. Stjórnandi er Margrét J.Pálmadóttir. Gospelsystur Kvennakórs Reykjavíkur Æfingar Gospelsystra hefjast mánud. 13. sept. kl. 17:00. Kórinn getur bætt við sig nokkrum konum með söngreynslu. Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir. Senjoritur Félagar mæti mánud. 13. sept. kl. 15:45. Stjórnandi er Rut Magnússon. Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur Félagar í Léttsveitinni mæti þriðjud. 14. sept. kl. 20:30. Kórinn getur bætt við sig nokkrum konum með söngreynslu. Stjórnandi er Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Stúlknakór Reykjavíkur Kórinn er ætlaður 9 til 13 ára stúlkum. Æfingar hefjast miðvikud. 15. sept. kl 16:30. Skráning hjá kórstjóra í síma 551 5263 kl. 9:00 - 1 1:00 fyrir hádegi. Stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.