Morgunblaðið - 05.09.1999, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ
t
«4.
56 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 1999
KVIKMYNDASKÓLI ÍSLANDS
HAUSTONN
27. september - 20. desember 1999
Kvikmyndaskóli fslands • Ármúla 38 • 108 Reykjavík* Sími 588 2720 • kvikmyndaskoli@islandia.
Nám í kvikmyndagerð undir leiðsögn fagfólks.
Bóklegt nám í handritagerð, leíkmyndagerð,
kvikmyndatöku, lýsingu, klippingu,
hljóövinnslu, leikstjórn o.fl.
Nemendur fá verklega þjálfun við gerð
fjögurra stuttmynda.
Boðið er upp á kvöldskóia og dagskóla.
Nemendur hljóta viðurkenníngu í námstok sem
nýtist þeim hvort heldur vegna starfsumsókna
eða umsókna í framhaldsnám.
Utskrifaðir nemendur Kvikmyndaskóla islands
starfa víðsvegar í kvikmyndaiðnaði, til dæmis
hjá sjónvarpsstöðvum, auglýsingafyrirtækjum
og kvikmyndaframleiðendum.
Skráning er hafin í síma 588 2720
Takmarkaður fjöldi nemenda!
FÓLK í FRÉTTUM
SÖFNUNIN SUND l' ÞÁGU BARNA
Morgunblaðið/Þorkell
Hildur Margrétardóttir, Una dóttir hennar og Jan við eitt verka Hildar.
ALLIR GETA LAGT
HÖND Á PLÓGINN
HILDUR Margrétardóttir mynd-
listarkona útskrifaðist úr málara-
deild Myndlista- og handíðaskólans
vorið 1999 og heldur nú sölusýningu
á nokkrum mynda sinna í Galleríi
Geysi. Ágóði af einni myndanna
sem allar eru af bömum mun renna
til söfnunarinnar Sund í þágu bama
sem Jan Murtomaa hóf með því að
synda þvert yfír Hvalfjörðinn, alls
fimm og hálfan kílómetra. Sundið
var þreytt til styrktar bömum sem
hafa orðið fyrir kynferðislegu of-
beldi eða áreiti og rennur allt söfn-
unarfé til Bamahússins. Söfnunin
verður í gangi til 18. september.
Að leggja sitt
af mörkum
„Eg heyrði í Jan í fréttunum og
sá líka þegar hann synti og fannst
hann vera búinn að leggja mjög
mikið á sig, svo ég ákvað að gera
það líka og gefa vinnu mína,“ segir
Hildur. „Þetta er í fyrsta skipti sem
ég mála böm,“ segir hún og brosir.
„Eg tek mikið af ljósmyndum, aðal-
lega af bömum og dýmm. Ætli það
sé ekki sakleysi þeirra sem heillar
mig. Síðan mála ég eftir ljósmynd-
unum.“
Jan segir sundið hafa gengið vel
en söfnunina því miður ekki eins og
hann hafði vonast til. „Ég hitti vin
minn sem hafði tekið upp á því að
synda eins og brjálaður maður,“
segir Jan sem er Finni en hefur
verið búsettur á Islandi um árabil
og talar lýtalausa íslensku. „Hann
leit svo vel út að ég ákvað að fara að
dæmi hans. Þegar ég var farinn að
synda þrjá kílómetra á dag fannst
mér hundleiðinlegt að snúa mér
sextíu sinnum við í sundlauginni.
Mig langaði að synda frá einum stað
til annars og datt þá Hvalfjörðurinn
í hug. Þá fannst mér tilvalið að nota
tækifærið og styrkja þetta góða
málefni. Ég sá einu sinni heimiidar-
þáttaröð í sjónvarpinu í Svíþjóð um
kynferðislegt ofbeldi á bömum og
það hafði mjög mikil áhrif á mig.“
í síðustu viku höfðu safnast rúm-
lega 220 þúsund krónur, sem eru
mikil vonbrigði að sögn Jans og
Hildar. „Inn í þeirri upphæð eru
100 þúsund krónur sem Búnaðar-
bankinn gaf, sem var mjög rausnar-
legt.“
„Við óbreyttir Islendingar getum
ekki hjálpað þessum bömum fag-
lega séð en við getum lagt hönd á
plóginn og styrkt Bamahúsið fjár-
hagslega," segir Hildur. „Því miður
er fjöldi bama sem þarf á því að
halda og því fyrr sem gripið er inn í
ferlið þeim mun meiri líkur eru á að
þessi böm komi til með að þroskast
eðlilega og fá bót meina sinna."
Fleiri mál en reiknað
var með
Bamahúsið tók til starfa fyrir
tæpu ári og er Vigdís Erlendsdóttir
forstöðumaður þess. Markmið húss-
ins er að bæta aðstoð og þjónustu
við böm sem sætt hafa kynferðis-
legu ofbeldi eða áreiti. „Málin hafa
orðið mun fleiri en við höfðum
reiknað með,“ segir Vigdís. „Við
höfum rætt við yfir hundrað böm
vegna gruns um að þau hafi sætt
kynferðislegu ofbeldi og það eru
miklu fleiri en við áttum von á.“
Hlutverk hússins er m.a. að sam-
hæfa vinnu þeirra sem koma að
rannsóknum á kynferðisafbrotum
sem framin eru gagnvart börnum á
Islandi. Húsið er ríkisrekið og er til-
raunaverkefni til tveggja ára á veg-
um Barnavemdarstofu. vVið teljum
að þetta hafi tekist vel. Áður þurftu
böm stundum að fara í viðtal til
fleiri en eins aðila en núna fer allt
fram á einum stað. Þessi mál þola
enga bið. Það er mikilvægt að þau
séu tekin föstum tökum frá upphafi
og samhæfð vinnubrögð em lykill
að því.“
Vigdís segist ekki efast um að
þeir fjármunir sem safnist komi til
með að nýtast Bamahúsinu og yrði
mjög vel varið við gerð á kynningar-
efni fyrir lærða og leika. „Fólk þarf
upplýsingar um hvemig staðið er að
því þegar svona mál koma upp. En
þegar grunur vaknar um kynferðis-
brot ber þeim sem vitneskjuna hef-
ur að tilkynna það til Barnavemd-
amefndar. Það er skylda allra sam-
kvæmt bamavemdarlögum.“
Þeir sem vilja styrkja málefnið og
Bamahúsið, bæði einstaklingar og
fyrirtæki, geta gert það með því að
leggja inn á reikning nr. 0313-13-
250025 í Háaleitisútibúi Búnaðar-
bankans.
Eiffelturn-
inn í Vegas
►LJÓSADÝRD lýsti upp himin-
inn yfír Las Vegas á miðvikudag
og bætti enn við neonljósadýrð
bæjarins þar sem fínna má
spilaglaða ferðamenn í hrönnum.
Tilefnið var opnun nýja staðarins
Paris Las Vegas þar sem frönsk
kennileiti eru höfð í hávegi. Á
nýja staðnum verður risastórt
spilavíti, ráðstefnusalir og margt
margt fleira. Eins og sjá má á
myndinni er hluti staðarins f líki
Eiffelturnsins franska.
Gód skemmtun framundan - IÐNÖ 1999-2000
Kýldu á IÐNÓ-kortið
og þú drifur þig f leikhús
Aðeins 7500 kr. ef greitt
er með VISA kreditkorti
Hringdu í 5303030
FRÍÐINDA
KLÚBBURINN