Morgunblaðið - 21.10.1999, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rjúpur á
Hafnar-
barnum
Þórshöfn. Morgunblaðið.
SJÖ feitar rjúpur sátu á tröppun-
um fyrir utan veitingastofuna
Hafnarbarinn og ætla trúlega að
fá sér hressingu áður en þær láta
sig hverfa fyrst veiðimenn eru
komnir á stjá.
Karen Rut Konráðsdóttir, sem
var á leið í vinnuna á Hafnar-
barnum, staldraði við þegar hún
sá hópinn á tröppunum en hún er
ágæt rjúpnaskytta og var af-
kastamikil á síðasta veiðitímabili
svo segja má að hún sé rjúpna-
drottning Þórshafnar. Þegar hún
gerði sig Iíklega til að ganga upp
tröppurnar til að opna veitinga-
staðinn flugu ijúpurnar upp með
semingi en fóru ekki lengra en
upp á þakið á Hafnarbarnum og
á næsta húsi.
Óvenju mikið virðist vera af
rjúpu inni í þorpinu þetta haust
og þær eru mjög spakar. Rjúpna-
skyttur vonast til að rjúpurnar
verði jafnrólegar þegar líður á
haustið en það kemur í ljós.
Rflrið viðurkennir að hafa beitt heilsugæslulækni rangindum
Fékk 2,7 milljónir króna
í bætur vegna uppsagnar
ÍSLENSKA ríkið hefur viðurkennt að uppsögn
Guðmundar Karls Snæbjörnsssonar, læknis við
Heilsugæslustöðina í Ólafsvík, var ólögmæt sem
og áminning sem honum var veitt fyrir brot í
starfí árið 1993.
Guðmundur Karl stefndi ríkinu í vor fyrir
gerninginn og krafðist þess að bæði áminningin
og uppsögnin yrðu dæmdar ólögmætar og
krafðist ennfremur greiðslu miska- og skaða-
bóta.
Ríkislögmaður tók undir með stefnanda um
að áminning og uppsögn hans hefðu verið ólög-
mætar á sínum tíma og varðist kröfum stefn-
anda þar að lútandi því ekki fyrir dómi.
Þá náðist samkomulag milli málsaðila um 2,7
milljóna króna bótagreiðslu og var málið fellt
niður fyrir dómi.
Með málalyktunum hefur íslenska ríkið viður-
kennt ólögmæti uppsagnarinnar og áminningar-
innar, sem Guðmundur Karl taldi frá upphafi að
hefðu verið sprottnar af ásökunum á hendur sér
af hálfu stjómar Heilsugæslustöðvarinnar í
Ólafsvík.
Áminning og uppsögn
sprottnar af ásökunum
„Forsendur þess að ég var var áminntur í
starfi og rekinn úr stöðu heilsugæslulæknis
voru þær, að stjórn Heilsugæslustöðvarinnar í
Ólafsvík bar fram ásakanir á hendur mér eftir
að ég reyndi að koma veikum samstarfslækni
mínum, sem jafnframt sat í stjórn heilsu-
gæslustöðvarinnar, í meðferð vegna mikils
áfengis- og vímuefnavanda," sagði Guðmundur
Karl.
Þáverandi heilbrigðismálaráðherra, Sighvat-
ur Björgvinsson, veitti Guðmundi Karli um-
rædda áminningu í starfi vorið 1993 og
nokkrum mánuðum síðar var honum vikið úr
starfi af Guðmundi Áma Stefánssyni, þáverandi
heilbrigðismálaráðherra. Hafði Guðmundur
Karl þá verið starfandi erlendis með leyfi ráð-
herra frá áramótum 1993.
„Þessar málalyktir vitna um það að upp-
sögnin og áminningin hafi verið svo augljóslega
ólögmætar þar sem ríkið brást ekki til hinna
minnstu varna þegar ég stefndi því fyrir þess-
ar ákvarðanatökur. Eg tel það með ólíkindum
að það skuli geta gerst að stjórn heilsugæslu-
stöðvarinnar og síðar æðstu ráðamenn heil-
brigðismála skyldu láta leiða sig með slíkum
hætti á asnaeymnum út frá staðlausum ásök-
unum stjórnar heilsugæslunnar, en þar í
broddi fylkingar var fyrrverandi samstarfs-
læknir minn auk fyrrverandi félagsmálaráð-
herra, sem jafnframt var formaður stjórnar
heilsugæslustöðvarinnar, Alexander Stefáns-
son. Þetta mál vitnar því ekki síst um alvarlega
brotalöm í ákvarðanatökuferli æðstu embættis-
manna þjóðarinnar."
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Yflrskattanefnd hefur lokið umfjöllun
um mál Hrannars B. Arnarssonar
Sektaður um
450 þúsund kr.
YFIRSKATTANEFND hefur
lokið umfjöllun sinni um mál
Hrannars B. Arnarssonar borgar-
fulltrúa og mun hann taka sæti
sitt í borgarstjórn á næstunni.
Niðurstaða nefndarinnar er sú að
Hrannar er sektaður um 450 þús-
und krónur sem renna í ríkissjóð
vegna þriggja atriða af átta sem
umfjöllun yfirskattanefndar tók
til, en ekki þótti ástæða til að að-
hafast vegna fimm atriða, sam-
kvæmt upplýsingum Hrannars.
Hann segir að hann muni ekki
birta úrskurðinn, enda sé hann
trúnaðarmál, en þessi þrjú atriði
lúti öll að skattskilum áranna 1992
og 1993 og því að réttum skýrslum
hafi ekki verið skilað á réttum
tíma, en hann hafi að fullu bætt úr
því og staðið skil á öllum sköttum
og skyldum vegna þessa tímabils.
„Það má segja að þetta sé enda-
punkturinn á þeim fjárhagslegu
Metsala á
ALLT stefnir í metsölu á vélsleð-
um á þessu hausti.
í fyrravetur seldust vélsleðar
mjög vel og útlit er fyrir að salan
verði enn meiri nú í vetur. Tómas
Eyþórsson forstjóri Polaris ehf.
segir að áhugi á vélsleðum hafi far-
ið mjög vaxandi og að fólk sé í sí-
auknu mæli að átta sig á því hversu
skemmtileg íþrótt það sé að þjóta
um á sleðum um hálendið. „Búið er
erfiðleikum sem ég komst í upp úr
1991. Ég er auðvitað mjög ánægð-
ur og glaður með að þessum langa
ferli sé loksins lokið með þessum
hætti,“ sagði Hrannar í samtali við
Morgunblaðið.
Tekur sæti í borgarstjórn
Hann sagði aðspurður að ekkert
væri því lengur til fyrirstöðu að
hann tæki að sér þau trúnaðarstörf
sem hann var kjörinn til í borgar-
stjómarkosningunum fyrir einu og
hálfu ári. Hann hefði lýst þvi yfir
þegar hann hefði ákveðið að setjast
ekki í borgarstjóm að hann myndi
ekki taka að sér nein trúnaðarstörf
fyrr en málið hefði fengið farsælan
endi. Það væri núna í höfn og hann
myndi fara yfir það með borgar-
stjóra í dag hvernig að því yrði
best staðið að hann kæmi til starfa.
■ Tekur sæti/14
vélsleðum
að panta meira hjá okkur nú en
nokkra sinni áður á þessum tíma
og era margar tegundir hjá okkur
uppseldar."
Tómas segir aukninguna stafa
meðal annars af því að í fyrravetur
hafi verið meiri snjór en hafi verið í
nokkur ár. Fólk virðist gera ráð
fýrir því að í ár verði líka meiri
snjór og að áhuginn sé þegar far-
inn að segja til sín.
Stóra
fíkniefnamálið
Karlmað-
ur hand-
tekinn
LÖGREGLAN í Reykjavík
handtók í gærmorgun karl-
mann á fertugsaldri í tengslum
við rannsókn á stóra fíkniefna-
málinu.
Maðurinn var handtekinn í
Reykjavík og verður sam-
kvæmt heimildum Morgun-
blaðsins leiddur fyrir héraðs-
dóm í dag, fimmtudag, þar sem
lögð verður fram krafa um
gæsluvarðhald yfir honum.
Níu karlmenn sitja nú í
gæsluvarðhaldi vegna málsins
eftir að einum gæsluvarðhalds-
fanga, sem efnahagsbrotadeild
ríkislögreglustjóra fékk úr-
skurðaðan í varðhald, var
sleppt úr haldi á þriðjudag.
Að sögn lögreglu miðar
rannsókn stóra fíkniefnamáls-
ins vel og játar hún því hvorki
né neitar, spurð að því hvort
fleiri handtökur séu í undir-
búningi.
---------------
Hleypt úr
dufttæki í
stigagangi
SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt að
fjölbýlishúsi við Hjarðarhaga í
gær vegna reyks á stigagangi,
en í ljós kom að einungis hafði
verið hleypt úr dufttæki. Að
sögn lögreglunnar vora ungir
grallai-ar þarna á ferð og yrði
foreldram þeirra gerð grein
fyrir framferði þeirra.
12SBUR
Viðskiptablað
Morgunblaðsins
Eyjólfur Sverrisson lék vel
gegn AC Milan í Berlín / C1
ÍR-stúlkur skelltu bikarmeist
urum Fram í Seljaskóla / B3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
Sérblað um viðskipti/'atvinnulíf
www.mbl.is