Morgunblaðið - 21.10.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.10.1999, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Utanríkisráðherrar Norðurlandanna á fundi með utanríkisráðherra Þýskalands Ræddu áhyggjur af einangr- un vegna utanríkisstefnu ESB Berlín. Morgunblaðið. ÁFORM um sameiginlega utanríkisstefnu aðild- arríkja Evrópusambandsins og staða þeirra Norðurlanda, sem standa utan ESB, en eru í Atl- antshafsbandalaginu, var helsta umræðuefnið á hádegisverðarfundi utanríkisráðherra Norður- landanna og Þýskalands í embættisbústað þýska utanríkisráðuneytisins hér í Berlín í gær. Lýstu ísland og Noregur þar yfir verulegum áhyggjum af stöðu mála. „Við tókum þetta mál upp, ég og utanríkisráð- herra Noregs, Knut Vollebæk," sagði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra eftir fundinn í gær. „Ég tel að það sé skilningur á okkar af- stöðu, sem við vonumst til að muni leiða til já- kvæðrar niðurstöðu. En það mál er að mínu mati í verulegu uppnámi." Halldór sagði að þessi um- ræða hefði ekki komið öðrum utanríkisráðherr- um á fundinum á óvart: „Ég er ánægður með við- ræðumar. Gerð var grein fyrir mörgum öðrum málum, en satt best að segja voru þessar umræð- ur umfangsmestar og áhugaverðastar." Strobe Talbott, varautanríkisráðheiTa Banda- ríkjanna, sagði þegar hann kom til Islands fyrir rúmri viku að hann hefði tekið þetta mál upp þegar hann ræddi við embættismenn í Bretlandi og sagt að sameiginleg utanríkisstefna Evrópu mætti ekki verða til þess að þau Evrópuríki, sem væru í NATO, en stæðu utan ESB mættu ekki einangrast. í þýska utanríkisráðuneytinu er litið svo á að ísland sé vegna legu sinnar þvert yfir Atlants- hafshrygginn mikilvægur hlekkur, sem heldur saman keðjunni yfir Atlantshafið, milli Banda- ríkjanna og Evrópu og það samband myndi hald- ast um ófyrirsjáanlega framtíð. Ekkert kemur í staðinn fyrír Atlantshafstengslin Háttsettur heimildarmaður í þýska utanríkis- ráðuneytinu sagði í samtali við Morgunblaðið þegar staða Islands, Noregs og Tyrklands var nefnd í sambandi við sameiginlega utanríkis- stefnu Evrópusambandsins, að það sama mætti segja um þetta mál og Rússland, sem væri landafræðileg staðreynd og þyrfti að taka tillit til hvort sem maður vildi það eða ekki: „Það get- ur ýmislegt breyst, en landafræðin breytist ekki. Þar við bætist að við erum mjög áfram um sam- einaða Evrópu og um leið viljum við að Banda- ríkin hafi stóru hlutverki að gegna í Evrópu og höfum reynt hvað eftir annað hversu mikilvæg Bandaríkin eru fyrir Evrópu - eftir heimsstyrj- aldirnar og í ár. Áherslan á Atlantshafstengslin þarf að lagast að nýjum aðstæðum, en það kem- ur ekkert í staðinn fyrir hana. Evrópa mun gegna stærra hlutverki með sameiginlega stefnu, en það mun ekki útiloka þá, sem standa fyrir utan. Ég held að það sé engin ástæða til að óttast." Joschka Fischer, utanríkisráðherra Þýska- lands, sagði á sameiginlegum blaðamannafundi, sem haldinn var í gær, að viðræðumar hefðu bor- ið ríkulegan ávöxt og verið mjög opnar og lífleg- ar. Tekin hefðu verið fyrir Evrópumál, samskipti yfir Atlantshafið og þróun mála á ýmsum sviðum í Evrópu. „Við ræddum ekki aðeins ESB, stofn- anamál og samrunaþróun, heldur einnig sam- skipti aðildarríkja ESB við ríki utan bandalags- ins,“ sagði hann. Fischer tók til þess að þrír af norrænu utan- ríkisráðherrunum gegndu um þessar mundir forystuhlutverki í evrópskum stofnunum, Hall- dór hjá Evrópuráðinu, Knut Vollebæk, utanrík- isráðherra Noregs, hjá Öryggis- og samvinnu- stofnun Evrópu, og Tarja Halonen, utanríkis- ráðherra Finnlands, hjá ráðherraráði Evrópu- sambandsins og bæri það vitni framlagi Norður- landanna til mikilvægra málaflokka. „Ég vona að sú nána samvinna, sem við áttum í dag vegna opnunar norrænu sendiráðanna, muni nýtast til praktískra hluta í framtíðinni. Ef marka má þann anda, sem ríkti í samræðunum í dag, get ég verið bjartsýnn og þá verður um að ræða líf- legt og gjöfult samstarf Þýskalands við Norður- lönd.“ Halldór Ásgrímsson sagði að það væri hátíð- legur dagur þegar Norðurlöndin opnuðu saman sendiráð í Berlín: „En þetta er ekki aðeins dagur til fagnaðarláta," sagði hann. „Þetta er okkar leið til að sýna hvaða árangri má ná með svæðis- bundnu samstarfi Norðurlandanna og við viljum nota þennan sameiginlega styrkleika til að auka samstarfið við Þýskaland og í Norður-Evrópu. Þýskaland er góður vinur allra Norðurlandanna, góður bandamaður, og við viljum vissulega auka samstarfið.“ Sjónvarpsstöðin Skjár einn hóf útsendingar að nýju í gærkvöldi Megináhersla á innlenda dagskrárgerð Morgunblaðið/Ámi Sæberg Sigursteinn Másson fréttastjóri og starfsmenn Skjás eins fögnuðu vel að loknum fyrsta fréttatíma stöðvarinnar í gærkvöldi. SPENNA og eflirvænting ríkti í höfuðstöðvum Islenska sjón- varpsfélagsins/Skjás eins í gær, þegar starfsmenn stöðvarinnar voru að leggja lokahönd á undir- búning fyrstu útsendingar henn- ar eftir stórvægilegar skipulags- breytingar. Útsendingar stöðv- arinnar lögðust niður um tíma en hófust svo aftur í gærkvöldi undir allt öðrum formerkjum en áður. Nú er lögð megináhersla á innlenda dagskrárgerð, þó að erlent efni verði líka á dagskrá. Þá er stöðin einnig með eigin fréttastofu. „Undirbúningsvinnan hófst fyrir þremur mánuðum," segir Árni Þór Vigfússon, fram- kvæmdasljóri íslenska sjón- varpsfélagsins, í samtali við Morgunblaðið, „en llestallt það fólk sem er á þönum hérna núna hóf störf fyrir um einum og hálf- um mánuði.“ Innlendir þættir munu skipa veigamikinn sess á dagskrá Skjás eins og verða umfjöllunar- efnin fjölbreytt, þar verða skemmtiþættir, þættir um við- skipti, stjórnmál, kvikmyndir og fleira. Árni segir að innlenda dagskrárgerðin vaxi þeim ekki í augum, tækninni hafi fleygt það mikið fram að mun einfaldara og ódýrara sé að vinna sjón- varpsþætti en áður. Eins sé lögð mikil áhersla á góða hugmynda- vinnu og að fá gott fólk til starfa, en minni áhersla á kostn- aðarsama umgjörð. Fréttastjóri Skjás eins er Sig- ursteinn Másson. Auk hans eru fjórir fréttamenn á fréttastof- unni og verða tveir fímmtán mínútna fréttatímar á dag, klukkan 18 og 20. Sigursteinn segir að sérstaða fréttastofunn- ar felist meðal annars í styttri fréttatímum og aðaláherslu á fréttir sem tengist höfuðborgar- svæðinu, en ekki verða sagðar fréttir utan af landi nema um stórviðburði sé að ræða. Meg- ináliersla verður á innlendar fréttir en erlendar fréttir munu eiga sinn sess og verður reynt fínna léttari fleti á tilverunni í útlöndum. „Þetta verður frétta- stofa með alvöruþunga í stórum málum. Fréttirnár mega þó ekki verða leiðinlegar og gott væri ef fólk gæti sagt eftir fréttir; Þetta var skemmtilegur frétta- tími.“ Samningur við íslenska útvarpsfélagið Hægt er að ná útsendingum Slgás eins með Breiðbandinu eða með örbylgjuloftneti en þá verður að hafa myndlykil sem íslenska útvarpsfélagið leigir út. Árni segir að þegar Skjár einn hafí fyrst hafið útsendingar hafí verið gerður samningur við Is- lenska útvarpsfélagið um afnot af dreifíkerfi þess gegn gjaldi og að sá samningur sé enn í gildi. Hreggviður Jónsson, fram- kvæmdastjóri fslenska útvarps- félagsins, segir í samtali við Morgunblaðið að Skjár einn hafí verið inni á þeirra dreifkerfí frá upphafi, um það hafí verið gerð- ur samningur á sínum tíma og að stöðin eigi að greiða fyrír notkun af dreifikerfinu. Áð- spurður segist hann ekkert hafa sérstaklega við þessa stöðu að athuga eins og stendur. Hann segist ekki óttast samkeppnina við Skjá einn og að þetta muni bara virka eins og vítamín- sprauta á þau hjá íslenska út- varpsfélaginu. Af því sem hann hafi séð sýnist honum mikil sköpunargleði og frumkvæði 'ríkja hjá aðstandendum Skjás eins og kveðst hann bjóða stöð- ina velkomna í loftið. textaskilaboð ...í GSM símann þinn! Láttu senda þér upplýsingar um stöðuna Trausíur banki Maísbarna- grautur innkallaður MAÍS-BARNAMATUR frá fyrirtækinu Helios hefur verið innkallaður úr verslunum á N orðurlöndunum. Norska matvælaeftirlitið bannaði á mánudag sölu á vörunni eftir að mikið magn af efninu zearalenon fannst í þessari matartegund. Versl- unin Yggdrasill hefur selt vör- ur frá Helios hér á landi og í gær barst eigendum verslun- arinnar tilkynning frá íyrir- tækinu um að varan væri inn- kölluð. Um er að ræða mat sem unninn er úr lífrænt ræktuð- um maís og seldur undir vöru- merkinu Aurion. Um ástæður framleiðslugallans segir í símbréfi frá Helios að ef kom- ið sé of heitt og rakt þegar það er unnið geti myndast óæskileg efni. Vel látið af matnum Hildur Guðmundsdóttur, annar eigandi verslunarinnar Yggdrasils, segist hanna þennan framleiðslugalla sér- staklega þar sem mjög vel hafi verið látið af barnamatn- um. Hún segist minnst hafa selt af maísgrautnum en mik- ið af öðrum tegundum grauta frá Helios. Hún segir að barnagrautarnir hafi fengið sérstaka viðurkenningu í Danmörku og hjúkranarfræð- ingar hér á landi hafi lofað gæði vörunnar. Hildur segir það mjög sjald- gæft, að eiturefhi finnist í líf- rænt ræktuðum vöram en í símbréfinu hafi komið íram að þetta tengist ekki því hvort varan sé lífrænt ræktuð eður ei. Norska heilbrigðiseftirlitið er um þessar mundir að rann- saka barnamat, einkum maís- grauta, með tilliti til þess hvort of mikið magn af ákveðnum efnum finnist. Þjónustu- sími banka ekki leng- ur ókeypis VIÐSKIPTAVINIR banka og sparisjóðanna eiga þess ekki lengur kost að hringja ókeyp- is í þjónustusímann 800-4444 til að fá upplýsingar um stöðu á reikningum. Þegar hringt er í símanúm- erið svarar símsvari þar sem fólki er bent á að hringja í 515-4444. Þeir sem hringja í nýja númerið þurfa að greiða fyrir símtalið. Landið orðið eitt gjaldsvæði Samkvæmt upplýsingum bankanna var upphaflega hugmjmdin að baki 800-núm- ersins sú að allir landsmenn sætu við sama borð hvað þjón- ustuna varðaði, en eftir að landið var gert að einu gjald- svæði hafí ekki þótt ástæða til að niðurgreiða símakostnað- inn lengur. Bent er á að þjónustan sjálf sé að sjálfsögðu gjaldfrjáls, það sé einungis símtalið sem þurfi að greiða fyrir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.