Morgunblaðið - 21.10.1999, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yfirskattanefnd hefur lokið umfjöllun um mál Hrannars
B. Arnarssonar með 450 þúsunda króna sektargreiðslu
Tekur sæti í borg-
arstjórn á næstunni
YFIRSKATTANEFND hefur
lokið umfjöllun sinni um mál
Hrannars B. Arnarssonar borgar-
fulltrúa og mun hann taka sæti
sitt í borgarstjórn á næstunni.
Niðurstaða nefndarinnar er sú að
Hrannar er sektaður um 450 þús-
und krónur sem renna í ríkissjóð
vegna þriggja atriða af átta sem
umfjöllun yfírskattanefndai' tók
til, en ekki þótti ástæða til að að-
hafast vegna fímm atriða, sam-
kvæmt upplýsingum Hrannars.
Hann segir að hann muni ekki
birta úrskurðinn, enda sé hann
trúnaðarmál, en þessi þrjú atriði
lúti öll að skattskilum áranna
1992 og 1993 og því að réttum
skýrslum hafi ekki verið skilað á
réttum tíma, en hann hefði að
fullu bætt úr því og staðið skil á
öllum sköttum og skyldum vegna
þessa tímabils.
Hrannar sagði að það væri
ekki seinna vænna að niðurstaða
lægi fyrir í málinu, því nú væru
rétt fimm ár frá því skattayfir-
völd hefðu hafið umfjöllun þess.
Þegar skattrannsóknarstjóri
hefði ákveðið 5. maí í vor að ekki
væri tilefni til opinberrar rann-
sóknar eða ákæru hefði í raun og
veru verið komin fram staðfest-
ing á því sem hann hefði alltaf
haldið fram, en vegna þess að
fyrir því væru fordæmi að yfir-
skattnefnd hefði ekki treyst sér
til að ljúka málum, þótt skatt-
rannsóknarstjóri hefði ekki vísað
þeim til ákæru, hefði hann viljað
bíða eftir endanlegri niðurstöðu
nefndarinnar. Sú niðurstaða lægi
nú fyrir og það væri endanlega
ljóst að ekki væri tilefni til opin-
berrar rannsóknar eða ákæru.
Það sem meira væri að af átta at-
riðum sem deilt hefði verið um í
þessari skattarannsókn teldi yf-
irskattanefnd ekki tilefni til að-
gerða vegna fimm atriða, en
þremur atriðum væri lokið með
sektargreiðslu í ríkissjóð sem
næmi samanlagt 450 þúsund
krónum.
„Þar með er í rauninni málinu
endanlega lokið. Það má segja að
þetta sé endapunkturinn á þeim
fjárhagslegu erfiðleikum sem ég
komst í upp úr 1991. Ég er auðvit-
að mjög ánægður og glaður með
að þessum langa ferli sé loksins
lokið með þessum hætti,“ sagði
Hrannar.
Aðspurður hvers eðlis þau þrjú
atriði væru sem sektað væri fyr-
ir, sagðist hann ekki myndu
leggja úrskurðinn
fram eða fara í efnis-
lega umfjöllun um
hann. Hann væri
trúnaðarmál og í
ljósi þess hve mörg-
um atriðum væri
hafnað af þeim sem
skattrannsóknar-
stjóri hefði talið at-
hugaverð, þjónaði
það ekki neinum til-
gangi að gera hann
opinberan. Hins veg-
ar fælu þessi þrjú at-
riði öll í sér að rétt-
um skýrslum hefði
ekki verið skilað á
réttum tíma og hann
hefði að fullu bætt úr
því og staðið skil á öllum sköttum
og skyldum vegna þessa tímabils.
I sjálfu sér kæmi honum ekki á
óvart þótt hann fengi athuga-
semdir vegna einhverra slíkra at-
riða, enda hefði hann margoft
sagt að fjármál hans hefðu verið í
talsverðum ólestri á þessum
tíma. „Ég var auðvitað að berjast
við að forða fyrirtækinu frá
gjaldþroti og viðskiptavinum
þess frá miklu fjárhagslegu tjóni
og það má segja, að það, að hafa
ekki á sama tíma ákveðið að eyða
verulegum fjármunum í að færa
bókhald, skila skattskýrslum og
standa rétt að þeim atriðum öll-
um, sé að koma í hausinn á mér
núna og ég get að sjálfsögðu ekki
gert neinar athugasemdir við
það. Það var bara þannig að
þetta sat á hakanum hjá mér og
ég auðvitað tek á mig fulla sök í
því,“ sagði Hrannar.
Ræðir við
borgarstjóra í dag
Hann sagði aðspurður að ekk-
ert væri því lengur til fyrirstöðu
að hann tæki að sér þau trúnað-
arstörf sem hann var kjörinn til í
borgarstjórnarkosningunum fyr-
ir einu og hálfu ári. Hann hefði
lýst því yfir þegar hann hefði
ákveðið að setjast ekki í borgar-
stjórn að hann myndi ekki taka
að sér nein trúnaðarstörf fyrr en
málið hefði fengið farsælan endi.
Það væri núna í höfn og hann
myndi fara yfir það með borgar-
stjóra í dag hvernig að því yrði
best staðið að hann kæmi til
starfa. „Ég tel að þessi niður-
staða staðfesti það sem ég hef
áður sagt um eðli málsins. Ég
held að íslenska þjóðin sé nú bet-
ur upplýst um mín
fjármál heldur en
kannski flestra ann-
arra Islendinga og
ég vona að niður-
staða borgarbúa sé
sú að mér sé
treystandi. Við
drógum alltaf línuna
mjög skýrt um að ef
það kæmi til kæru
myndi ég ekki taka
sæti mitt, alla vega á
meðan á því ferli
stæði. Það er alveg
ljóst að í þann far-
veg fer málið ekki.
Ég sagði það oft í
kosningabaráttunni
og get sagt það einu
sinni enn, að jafnvel þótt menn
lendi í fjárhagslegum erfiðleikum
eða öðrum erfiðleikum í lífinu, þá
eigi það ekki að dæma þá úr leik í
stjórnmálum eða annarri eðli-
legri þátttöku í þjóðlífinu."
Hann sagði aðspurður að hann
væri sannfærður um að það hefði
verið rétt ákvöi'ðun að taka ekki
sæti sitt í borgarstjórn á sínum
tíma. Ovissan sem málið skapaði
hefði gert starfsaðstöðu hans
óþolandi eftir það sem á undan
var gengið í kosningabaráttunni.
„Ég er ekki viss um, ef kosninga-
baráttan hefði þróast öðruvísi, að
það hefði verið tilefni til þessa,
enda hef ég alltaf verið sann-
færður í hjarta mér um að ég
þyrfti ekki að skammast mín fyr-
ir gerðir mínar, en eftir það sem
á undan var gengið hefði mér
verið ólíft í borgarstjórn trúi ég
meðan þetta lá ekki fyrir,“ sagði
Hrannai'.
Hann bætti því við að eftir
kosningabaráttuna hefði honum
einnig verið persónuleg nauðsyn
að komast út úr þessu umhverfi
og ná andlegu jafnvægi. „Kosn-
ingabaráttan vai’ gífurlega erfið
fyrir mig og mína nánustu og ég
þurfti bara minn tíma til þess að
jafna mig á því.“
Hann sagðist gjarnan hafa vilj-
að vera án þessarar lífsreynslu.
„En ég er þess fullviss að eftir að
þessi niðurstaða er fengin og
menn geta séð þessi mál í heild þá
muni ég geta nýtt mér hana til
góðs og vonandi getur hún einnig
orðið öðrum til góðs í gegnum mín
störf, hvort sem þau eru á vett-
vangi stjómmála eða einhvers
staðar annars staðar í lífinu,“
sagði Hrannar ennfremur.
Hrannar B.
Arnarsson
Morgunblaðið/Ásdís
Samningar um eflingu rannsókna og framhaldsnáms í næringar-
fræði voru undirritaðir í aðalbyggingu Háskóla íslands í gær. Frá
vinstri: Guðni Agústsson landbúnaðarráðlierra, Páll Skúlason, rekt-
or HI, og Inga Þórsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarstofu í næring-
arfræði. Auk þeirra undirrituðu þeir Oskar H. Gunnarsson, formað-
ur Markaðsnefndar mjólkuriðnaðarins og Þórólfur Sveinsson, for-
maður Landssambands kúabænda, samningana.
Rannsóknir
í næringar-
fræði efldar
SAMSTARFSSAMNINGAR um
eflingu rannsókna og framhalds-
náms í næringarfræði mannsins
við Háskóla Islands og Rannsókn-
arstofu í næringarfræði var undir-
ritaður í aðalbyggingu Háskólans í
gær. Samningamir ná yfir þrjú
skólaár og nemur heOdarstuðn-
ingsupphæðin 7,5 milljónum króna.
Annars vegar er um að ræða
samning Háskóla íslands og Rann-
sóknarstofu í næringarfræði við
Háskólann og Landspítalann og
hins vegar við landbúnaðarráðu-
neytið, Landssamband kúabænda
og Markaðsnefnd mjólkuriðnaðar-
ins.
Ráðist verður í ýmis verkefni í
tengslum við samningana, m.a.
verður mataræði sex ára barna í
leikskóla rannsakað. Rannsaka á
neyslu einstakra hráefna og reikna
á út orku og næringarefni í fæði
barnanna. í verkefninu felst söfn-
un grannupplýsinga og úrvinnsla,
ásamt fræðilegu mati á niðurstöð-
um. Einnig verður ráðist í minni
verkefni sem tengjast hollustugildi
íslenskra mjólkurvara.
Næringarfræðin
í miklum vexti
Inga Þórsdóttir, prófessor í nær-
ingarfræði og forstöðumaður
Rannsóknarstofu í næringarfræði,
sagði að næringarfræði væri í
miklum vexti sem fræðigrein.
„Iðnaðurinn og margir fleiri aðil-
ar kalla á meiri þekkingu á þessu
sviði,“ sagði Inga. „Hins vegar era
háskólarnir ekkert að fá aukið fjár-
magn í takt við það og því er nauð-
synlegt fyrir nýjar greinar að fá
fjármagn annars staðar frá, sér-
staklega þegar kemur að rann-
sóknum og framhaldsnáminu."
Inga bendir á að séríslensk fyr-
irbæri, sem tengist m.a. hinum
gamla kúastofni og mikilli neyslu
fisks, hafi þýðingu fyrir alþjóðlegar
rannsóknir í næringarfræði.
Rannsóknarstofa í næringar-
fræði heyrir undir matvæla-
fræðiskor raunvísindadeildar Há-
skóla íslands og Landspítalann.
Boðið hefur verið upp á tveggja ára
MS nám í næringarfræði í nokkur
ár og að sögn Ingu Þórsdóttur hef-
ur aðsóknin verið nokkuð mikil.
Námið er skipulagt á einstaklings-
grunni og era verkefnamöguleik-
arnir fjölbreyttir og byggjast á
áhugasviði hvers og eins. Þrír hafa
lokið MS náminu, einn árið 1998 og
tveir á þessu ári, að sögn Ingu.
I haust byrjaði raunvísindadeild
að bjóða upp á doktorsnám í fjölda
greina og á meðal þeirra eru mat-
vælafræði og næringarfræði. Inga
sagði að einn nemandi hefði hafið
doktorsnám í haust og að annar
hygðist hefja nám á næsta misseri.
Kirkjuþingi var slitið í Háteigskirkju í gær en alls voru 36 mál á dagskrá þingsins
Fjallað um stefnu-
mörkun í þjónustu
kirkjunnar
KIRKJUÞINGI lauk í gær, en alls
vora 36 mál á dagskrá þingsins,
sem fór fram í safnaðarheimili Há-
teigskirkju. Að sögn Karls Sigur-
björnssonar biskups vora mörg
málanna býsna umfangsmikil og
var m.a. rætt um nýja lagasetningu
um trúfélög og fjallað um stefnu-
mörkun varðandi þjónustu kirkj-
unnar.
„Athugað verður hvemig þjóð-
kirkjan getur uppfyllt skyldur sín-
ar gagnvart þessari þjóð á þeim
miklu umbrotatímum sem við lifum
á núna,“ sagði biskup. „Við verðum
að skoða vel þá valkosti sem era í
boði. Hvernig við getum nýtt best
það verkfæri og þann mannafla
sem við höfum til að vera biðjandi,
boðandi og þjónandi þjóðkirkja á
nýrri öld.“
Þingið samþykkti tillögu um að
láta kanna hver þörfin væri á Jyón-
ustu kirkjunnar og faldi biskupa-
fundi að hrinda verkefninu í fram-
kvæmd.
Að sögn biskups samþykkti
kirkjuþing að stefna að því að
halda landsfund kirkjunnar á
næsta ári. A fundinum munu eiga
sæti fulltrúar kirkjunnar, m.a. full-
trúar allra sókna, sem og aðrir að-
ilar í þjóðfélaginu sem vinna að
hagsmunum almennings. Hann
sagði að landsfundurinn væri hugs-
aður sem stefnumarkandi fyrir
framtíðina og að á honum yrði mik-
il áhersla lögð á ungu kynslóðina.
Karl Sigurbjörnsson biskup
sagði að fjölmargar starfsreglur
hefðu verið settar á þinginu og að
talsvert hefði verið um lagfæringar
á reglum. Hann sagði að m.a. hefðu
verið settar starfsreglur um org-
anista, þar sem skyldur þeirra og
réttindi hefðu verið skilgreind. Er
þetta í íyrsta sinn sem þingið setur
reglur um aðra starfsmenn kb'kj-
unnar en hina vígðu þjóna.
Að sögn biskups tókst fram-
kvæmd þessa 31. kirkjuþings mjög
vel, en áætlaður kostnaður vegna
þinghaldsins nemur rúmum 8 millj-
ónum króna.
„Stjórnin var í ákaflega öraggum
höndum fyrrverandi forseta Alþing-
is, Jóns Helgasonar, og vora vinnu-
bröjgð og verklag með besta móti.“
A þinginu eiga sæti 21 kjörinn
þingfulltrúi, auk biskups, vígslu-
biskupa, fulltrúa guðfræðideildar
og kirkjumálaráðherra. A sama
tíma og kirkjan samþykkir sér-
staka jafnréttisáætlun var aðeins
ein kona á meðal hinna kjörnu full-
trúa kirkjuþings. Biskup sagði
þetta mjög sérkennilegt, sérstak-
lega í ljósi þess að konur væru í
meirihluta í sóknarnefndum, sem
kysu þingfulltrúana.