Morgunblaðið - 21.10.1999, Qupperneq 18
18 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
vantar í Giljahverfi
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn.
Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsing-
ar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega
54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 i Reykjavík þar sem eru yfir
300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2.
nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Akureyrarbær
Fræðslu- og frístundasvið
íþróttahöllin Akureyri
Starfsmaður óskast til starfa við íþróttahöllina, m.a. í
bað- og klefavörslu (karlmaður). Um er að ræða vakta-
vinnu. Laun skv. kjarasamningi STAK og Launanefndar
sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið gefur Aðalsteinn Sigurgeirsson í
síma 462 5077. Upplýsingar um kaup og kjör eru veittar f
starfsmannadeild í síma 460 1060. Umsóknum skal skila í
Upplýsingaanddyri, Geislagötu 9, á eyðublöðum sem þar
fást. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember.
íþróttahöllin er reyklaus vinnustaður!
Fleiri
manna-
bein fund-
ust við
Hraukbæ
Frestur vegna kauptilboðs í fasteignir Skinnaiðnaðar framlengdur
Skinnaiðnaður
fer í Folduhúsið
FJÁRFESTAR, sem hyggjast
koma upp nýrri verslunarmiðstöð
á Dalsbraut 1 á Akureyri og
Kaupfélag Eyfirðinga og Rúm-
fatalagerinn eru í forsvari fyrir,
hafa gert kauptilboð í hluta af
fasteignum Skinnaiðnaðar hf. á
Gleráreyrum, þar meðal á aðal-
verksmiðjuhúsi félagsins eins og
fram hefur komið.
Kauptilboðið hafði verið sam-
þykkt en þó með nokkrum fyrir-
vörum af hálfu beggja aðila og átti
að ganga frá þeim fyrirvörum fyrir
20. október, eða í gær. Það gekk
hins vegar ekki eftir og að sögn
Þórarins E. Sveinssonar, aðstoðar-
kaupfélagstjóra KEA, hefur frest-
urinn verið framlengdur til næstu
mánaðamóta. Hann sagði málið
enn í fullri vinnslu en að verið væri
að hnýta ýmsa lausa enda. „Við
eigum eftir að fá endanleg svör frá
bænum m.a. varðandi umferðar-
tengingar, skipulagsmál og eigna-
skipti. Einnig erum við að bíða eft-
ir tilboðum frá bönkunum um fjár-
mögnun."
Meðal fyrirvara af hálfu Skinna-
iðnaðar hf. var að fyrirtækið fengi
annað húsnæði, svo hægt verði að
flyta starfsemina á fyrstu mánuð-
um næsta árs. Þar höfðu stjórn-
endur Skinnaiðnaðar í huga svo-
nefnt Folduhús, sem einnig er á
Gleráreyrum. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins er Skinnaiðn-
aður að ganga frá kaupleigusamn-
ingi við eignarhaldsfélag Lands-
bankans, sem á Folduhúsið.
Bæjarráð hefur samþykkt að
verða við ósk frá Skinnaiðnaði
varðandi kaup Framkvæmdasjóðs
Akureyrarbæjar á 40 milljóna
króna skuldabréfi með breytirétti í
hlutafé í fyrirtækinu. Óskin er
fram komin vegna fyrirhugaðs
flutnings Skinnaiðnaðar í annað
húsnæði og hagræðingar í tengsl-
um við það.
STARFSFÓLK Minjasafnsins á
Akureyri fann í vikunni manna-
bein í gröf ofan við bæinn Hrauk-
bæ í Glæsibæjarhreppi norðan
Akureyrar. Gröfin er við hlið graf-
ar þar sem mannabein fundust
seinni partinn í ágúst sl. Beina-
grindin sem fannst í ágúst var
mjög heiileg og vel varðveitt en
það var gröfumaður sem var að
vinna fyrir Rarik sem fann hana
og kom beinagrindin nánast öll
upp í einu lagi í skóflu gröfunnar.
Á þessu svæði hafa fundist mörg
kuml áður, síðast fyrir þremur ár-
um fyrir neðan bæinn.
Starfsfólk Minjasafnsins hafði
aðeins grafið niður á fætur manns-
ins í gær og svo virðist sem beina-
grindin liggi í austur vestur eins
og beinagrindin sem fannst í sum-
ar. Guðrún Kristinsdóttir minja-
safnsstjóri sagði að miðað við það
sem sæist af beinagrindinni virtist
sem hún hafi einnig varðveist vel í
timans rás.
Guðrún sagði að við fram-
kvæmdir Rarik í ágúst hafi grafan
tekið burtu vesturenda grafarinn-
ar, bæði hleðslu og bein en austur-
endi hennar er enn sýnilegur. „Þar
sést að maðurinn hafði Iegið flöt-
Högg-
myndir á
veitinga-
stað
HÖGGMYNDIR eftir Sólveigu
Baldursdóttur myndhöggvara
hafa verið settar upp á veitinga-
staðnum Karólína Restaurant í
Gilinu á Akureyri. Jafnframt hef-
up verið farið af stað þar með
villibráðamatseðil og verður höf-
uðáhersla lögð á villibráð næstu
vikurnar.
Höggmyndir Sólveigar verða til
sýnis á veitingastaðnum næstu
sex mánuði en verk hennar eru öll
nýleg. Á neðri hæð eru högg-
myndir unnar í marmara en stein-
ristur í blágrýti á efri hæð. Sól-
veig sagðist einmitt hafa verið
með veitingastaðinn í huga er hún
vann verk sín. Hún sagði að inn-
setningin félli vel inn í árstiðina
framundan og að það væri viss
dulúð yfir verkunum.
Karólína Restaurant er eins árs
um þessar mundir og er sýning
Sólveigar sú þriðja í röðinni. Aður
hafa verið sýnd þar verk eftir
Erró og Birgi Snæbjörn Birgis-
son. Vignir Þormóðsson veitinga-
maður sagði að listamenn hafi
verið mjög jákvæðir fyrir því að
sýna verk sín á staðnum og eins á
kaffihúsi sínu, Kaffi Karólínu, í
sama húsnæði en þar hefur fjöldi
listamanna sýnt verk sín undan-
farin sex ár.
um beinum til vesturs en hins
vegar er erfitt að segja til um
hvemig búkurinn hefur verið lagð-
ur til þar sem hann kom upp í
skófiu gröfunnar. Grjóti var raðað
umhverfis manninn og gröfin gæti
því verið frá heiðnum sið eða
frumkristni. Það hafa þó ekki
fundist neinir munir eða jarðlög
sem geta gefið nánari tímasetn-
ingu.“
Starfsfólk Minjasafnsins hafði
Morgunblaðið/Kristján
Starfsfólk Minjasafnsins, Guðrún Kristinsdóttir, Hanna Rósa
Sveinsdóttir og Hörður Geirsson, voru í gær að hreinsa frá
hleðslunni kringum gröfina sem fannst í ágúst. Á minni myndinni
sést í fótabeinin sem fundust í annarri gröf við hliðina í vikunni.
unnið þarna við rannsóknir í rúma
viku þegar mannabeinin fundust á
þriðjudag. Guðrún sagðist hafa al-
veg eins átt von á því að finna
fleiri grafir. Grafirnar tvær sem
þarna hafa fundist em í hól sem
gæti verið af manna völdum og því
gætu þær verið fleiri. „Það væri
því spennandi að skoða svæðið bet-
ur og tímasctja það. Beinagrind-
urnar em vel varðveittar sem er
mjög sérstakt," sagði Guðrún.
Ekki verður hreinsað frekar of-
an af beinagrindinni sem fannst í
vikunni og sagði Guðrún að þess í
stað yrði farið í að ganga frá svæð-
inu fyrir veturinn. Það myndi svo
skýrast í framhaldinu hvort farið
yrði í að opna stærra svæði á
næsta ári. Beinagrindin sem fannst
í ágúst er í vörslu Þjóðminjasafns-
ins en Guðrún sagði talið að mað-
urinn hafi verið meðalmaður á
hæð og 35-40 ára er hann dó.
Blaðbera
Morgunblaðið/Kristján
Sólveig Baldursdóttir myndhöggvari og Vignir Þormóðsson veitinga-
maður við eitt verka Sólveigar á Karólína Restaurant.
Utgáfu-
tónleikar
Guðmund-
ar Vals í
Deiglunni
VALUR er nafn á nýútkomn-
um geisladiski með 12 lögum
Guðmundar Vals Stefánsson-
ar. í tilefni af því hefur Guð-
mundur Valur haldið útgáfu-
tónleika á nokkrum stöðum á
landinu og er komið að Akur-
eyri, en hann leikur lög af
diskinum í Deiglunni, Kaup-
vangsstræti, í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 21. október.
Gunnar Hrafnsson bassaleik-
ari leikur með Guðmundi á
tónleikunum.
Fjölbreyttar útsetningar
Guðmundur Valur syngur
öll lögin utan eitt sem Ari
Jónsson syngur. Þá gerði
hann sjö af textunum, en aðrir
textar eru eftir Armann Ólaf
Helgason, Stefán Valgeirsson,
Guðmund G. Hagalín og Önnu
Karólínu Stefánsdóttur. Út-
sending og upptökur annaðist
Vilhjálmur Guðjónsson og
ýmsir þekktir hljóðfæraleik-
arar koma við sögu. Útsetning
laganna er fjölbreytileg, allt
frá vísnastíl yfir í rokk og
textarnir endurspegla sigra
og sorgir, margir með heim-
spekilegum hugrenningum en
aðrir rómantískir eða með
skopívafi.
Guðmundur Valur fæddist í
Keflavík árið 1955 en ólst að
mestu upp í Auðbrekku í
Hörgárdal. Hann hefur
stundað störf til sjós og lands
en hélt svo í langskólanám í
útlöndum. Áhugamál hans
hefur lengi verið að leika á
gítar og hefur hann samið
töluvert af lögum og spilað í
hljómsveitum.