Morgunblaðið - 21.10.1999, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Frá lokadcgi aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum
Vilja fá hluta
bifreiðagjalda
Hjúkrunarheimili
Fáskrúðsfjarðar vígt
Morgunblaðið/Albert Kemp
Ingibjörg Pálmadóttir með tveimur íbúum dvalarheimilisins.
Keflavík - Aðalfundur Sambands
sveitarfélaga á Suðumesjum var
haldinn í Reykjanesbæ um helgina
og á fundinum voru fjármál og skóla-
mál efst á baugi. Ellert Eiríksson,
bæjarstóri í Reykjanesbæ, sagði í
samtali við Morgunblaðið að sam-
kvæmt svokallaðri „rauðri skýrslu"
hefðu tekjustofnar sveitarfélaga
skerst um tvo milljarða á ári undan-
farin sjö ár vegna aðgerða ríkisins.
Áhugi væri á að ná hluta af þessu til
baka og þá án aukinnar skattheimtu.
Hugmyndir hefðu komið fram um
að fá hluta af bifreiðagjöldum og eða
af bensíngjaldi sem rynni til ríkis.
Hann sagði að félagsmálaráðherra
hefði nú skipað nefnd sem ætti að
fara í saumana á þessu máli og
benda á leiðir til úrbóta.
Á fundinum voru samþykktar sex
ályktanir um ýmis mál. Um aukna
löggæslu, um tvöföldun Reykjanes-
brautar og gerð Suðurstrandarveg-
ar, um flutning innanlands-, kennslu-
og ferjuflugs til Keflavíkurflugvallar
og um tekjustofna sveitarfélaga þess
efnis að Alþingi sjái til þess að sveit-
arfélög fái bætur fyrir tekutap og
aukin útgöld. Þá voru gerðar álykt-
anir um heilbrigðismál þar sem
gerður verði þjónustusamningur við
stofnanir þannig að fjárveitingar séu
í samræmi við verkefni og um fjár-
veitingu til aukinna forvarna í fíkni-
efnamálum.
Skólamál voru mikið í brennidepli
og þar töluðu fjórir frummælendur:
Margrét Marðardóttir, deildarsjóri í
menntamálaráðuneytinu, um hlut-
verk ráðuneytisins til að tryggja
gæði skólans, Amalía Björnsson
lektor, um stöðu skóla á Suðurnesj-
um, Eiríkur Hermannsson skóla-
málastjóri, um: af hverju skólastefnu
og Jónína Bjartmarz, formaður
Landssamtakanna heimili og skóli,
um samstarf foreldra og skóla. Páll
Pétursson félagsmálaráðherra flutti
ávarp og Ingimundur Sigurpálsson,
bæjarstjóri í Garðabæ, talaði um
tekjustofna sveitarfélaga. Eftirtaldir
alþingismenn Reykjaneskjördæmis
sátu fundinn: Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra, Sigríður
Ánna Þórðardóttir, Rannveig Guð-
mundsdóttir, Þorgerður K. Gunnars-
dóttir, Guðmundur Árni Stefánsson,
Siv Friðleirfsdóttir umhverfisráð-
herra, Kristján Pálsson, Sigríður Jó-
hannesdóttir, Hjálmar Árnason og
Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Fáskrúðsfirði - Hjúkrunarheimili
Fáskrúðsfjarðar vai- vígt á dögun-
um. I upphafi vígslu bauð oddviti
Búðahrepps gesti velkomna og því
næst fór sveitarstjóri, Steinþór Pét-
ursson, yfir byggingarferil hússins
og þá miklu baráttu sem háð var til
framgangs byggingarinnar eftir að
búið var að skera framkvæmdina af.
Þörfin ótvíræð
Sagði hann það ekki að ástæðu-
lausu að menn hafi lagst á eitt um
að fá þetta hjúkrunarheimili á Fá-
skrúðsfjörð þótt margir hafi haft
efasemdir um þörfina og hafði hann
jafnframt haft veður af því að bygg-
ing þessa húss hafi verið notuð sem
dæmi um fáránlega framkvæmd
sem engin þörf væri fyrir og sagði
það nú afsannað.
Steinþór sagði að átta hjúkrunar-
sjúklingar væru nú á hjúkrunar-
heimilinu og að tveir væru væntan-
legir auk þess sem einn einstakling-
ur væri í hvíldarinnlögn. Hann
sagði einungis tvö hjúkrunarrými
laus og að biðlistar lægju fyrir á
dvalarheimilinu. Strax þegar heim-
ilið var tilbúið fóru að berast óskir
frá fólki sem vistað var annars stað-
ar um að fá að koma heim í átthag-
ana auk þess sem ættingjar óskuðu
eftir flutningi á ættingjum sínum til
þess að eiga hægara um vik við
heimsóknir.
I ræðu sinni minntist sveitar-
stjóri á að farið væri af stað með
lágmarksbúnaði en væri það von
manna að úr rættist strax eftir ára-
mót. Hann kom því á framfæri við
heilbrigðisráðherra að sem fyrst
yrði gerður þjónustusamningur við
rekstraraðila heimilisins. Að lokum
þakkaði hann þeim fjölmörgu sem
lögðu því lið að bygging þessi yrði
að veruleika og starfsfólki heil-
brigðisráðuneytis og framkvæmda-
sýslu fyrir samstarfið. I lokin óskaði
hann byggingaverktökum til ham-
ingju með gott verk og starfsfólki
og íbúum sveitarfélagsins óskaði
hann alls hins besta í framtíðinni.
Vildi sjá fyrir endann
á framkvæmdinni
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra flutti ávarp og lýsti hún
ánægju sinni með góða niðurstöðu
við framkvæmd verksins og sagðist
hafa eignast marga góðkunningja
sem sífellt hefðu þrýst á að bygg-
ingarframkvæmdir hæfust. Það
kom fram í máli hennar að hún
hefði viljað sjá fyrir endann á fram-
kvæmdinni en ekki aðeins upphafið.
Auk framangreindra tóku til máls
Ambjörg Sveinsdóttir alþingismað-
ur og Jón Kristjánsson alþingis-
maður og kveðjur bárust frá öðrum
þingmönnum kjördæmisins. Björg-
vin V. Guðmundsson, oddviti Stöðv-
arhrepps, flutti ávarp og færði
heimilinu málverk að gjöf en marg-
ar gjafir bárust til heimilisins frá
ýmsum aðilum s.s Lionsklúbbi Fá-
skrúðsfjarðar, Kvenfélaginu Keðj-
unni, Slysavarnadeildinni Hafdísi,
Fáskrúðsfjarðardeild Rauða kross-
ins, Rakarastofunni Alberti frænda
og Minningakortasjóði Slysavarna-
deildarinnar. Auk þess var aldraður
íbúi á dvalarheimilinu, Albert Stef-
ánsson, sem nú er látinn, búinn að
gefa eina milljón krónur.
Sóknarpresturinn, sr. Carlos A.
Ferrer, blessaði heimilið og kapellu
sem í húsinu er, Björg Þórorms-
dóttir, ein af íbúum Uppsala, flutti
bæn og kirkjukór Fáskrúðsfjarðar
söng.
Arkitekt hússins er Helgi Hjálm-
arsson, Teiknistofunni Óðinstorgi.
14,2 stöðugildi eru nú við dvalar-
og hjúkrunarheimilið en þeim sinna
21 kona í heils- og hálfsdagsstörf-
um.
Flugvallarframkvæmdir á Þingeyri.
Morgunblaðið/Egill Egilsson
Lagfæringar á flug-
vellinum á Þingeyri
Flateyri - Að undanförnu hafa stað-
ið yfir miklar framkvæmdir við end-
urnýjun á burðarlagi á flugvellinum
á Þingeyri. Flugvöllurinn hefur verið
notaðui- sem varaflugvöllur ef ófærð
spillir lendingarskilyrðum á ísafirði,
en flugvöllurinn hefur nýst best í
suðaustanátt.
Verktakafyrirtækið Norðurtak frá
Sauðárkróki sér um framkvæmdina.
I verkáætlun er gert ráð fyrir að
skipta um burðarlag og slitlag síðan
sett ofan á burðarlagið. I burðarlag-
inu er frostþétt efni sem mun
tryggja að enginn klaki setjist í völl-
inn á veturna. Flugvallarlengd verð-
ur óbreytt.
Með þessum endurbótum er loks
hafið það starf sem til hefur staðið í
tvö ár en á fjárlögum hafa þingeyr-
arflugvelli verið áætlaðar 15 millj-
ónir frá því 1998, ár hvert. Þar að
auki samþykkti ríkisstjórnin í vor 9
milljónir í aukafjárveitingar vegna
atvinnuaukningar fyrir Þingeyr-
inga. Það skýtur þó skökku við að
allir starfsmenn verktakans eru frá
heimabyggð hans. Þó mun standa
til að leggja nýja vatnslögn í flug-
stöðina, en vatnið á uppsprettu sína
úr rauðamýri skammt frá og hefur
hingað til verið ódrekkandi og hef-
ur varla mátt sjá mun á vatninu og
kaffinu. Notast hefur verið við
sömu vatnslögn frá því að flugstöð-
in var tekin í notkun fyrir 15 árum.
Þessi tregða til að leggja nýja
vatnslögn mun tilkomin hjá yfir-
mönnum flugmála, sem vildu sjá
hvernig kostnaður yrði við verkið
og í framhaldi af því yrði síðan tek-
in ákvörðun um lagningu vatns-
lagnarinnar. Líklegt mun þykja að
heimamenn komi að þeirri fram-
kvæmd.
Þó svo að þessar framkvæmdir
standi yfir mun hlutverk flugvallar-
ins lítið breytast, hann mun þjóna
áfram því hlutverki að vera varaflug-
völlur. Eftir að íslandsflug hætti að
fljúga reglulega vestur hefur notk-
unargildi flugvallarins farið þverr-
andi og er ekki fyrirsjáanlegt að
breyting verði þar á.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Frá afhendingu styrkjanna. Gísli Pálsson, prófessor og forstöðumaður
Mannfræðistofnunar Háskóla íslands, veitti styrknum viðtöku fyrir
hönd Mannfræðistofnunar H.í. og Nanna Þóra Askelsdóttir, forstöðu-
maður Safnhússins í Vestmannaeyjum fyrir hönd Byggðasafns Vest-
mannaeyja. Með þeim á myndinni er Þorsteinn Sigfússon, prófessor.
Sparisjóður
Vestmannaeyja
úthlutar styrkjum
Vestmannaeyjum - Árleg úthlutun
úr Styrktar- og menningarsjóði
Sparisjóðs Vestmannaeyja, sem
stofnaður var til minningar um
Þorstein Þ. Víglundsson, fyrrver-
andi sparisjóðsstjóra, fór fram í
fundarsal sjóðsins 15. október sl.
Þetta er í 12. sinn sem úthlutun
fer fram úr sjóðnum en 19. októ-
ber sl. voru liðin 100 ár frá fæð-
ingu Þorsteins og þótti því við
hæfi að tengja úthlutunina þessu
tilefni. Þorsteinn Þ. Víglundsson
hafði forgöngu um stofnun Spari-
sjóðs Vestmannaeyja á árinu 1942
og gegndi starfi sparisjóðsstjóra
frá stofnun allt til ársins 1974, þó
Iengst af í hlutastarfi. Þá var
hann skólastjóri gagnfræðaskól-
ans í Vestmannaeyjum frá árinu
1928 til 1963 og hafði forgöngu
að stofnun Byggðasafns Vest-
mannaeyja árið 1932. Hann var
forstöðumaður safnsins um langt
árabil eða allt til 1978.
Að þessu sinni hlutu tveir aðilar
styrki úr sjóðnum. Mannfræði-
stofnun Háskóla fslands vegna
vinnu við undirbúning að gerð
sérstaks Eyjaveijar sem mun
tengjast Vestmannaeyjum og þá
aðallega Byggðasafninu og Rann-
sóknasetri Háskólans í Eyjum
ineð margvíslegum hætti og
Byggðasafn Vestmannaeyja
vegna útgáfu kynningarefnis,
m.a. við gerð upplýsingabæklings
fyrir Byggðasafn Vestmannaeyja
sem ráðgert er að komi út á
næsta ári.