Morgunblaðið - 21.10.1999, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Múslimaleiðtoginn Abdurrahman Wahid kjörinn fjórði forseti Indónesíu
Mikils metinn en á við
heilsufar að
Djakarta. AP, Reuters.
stríða
ABDURRAHMAN Wahid, nýkjör-
inn forseti Indónesíu, er nærri
blindur og á við bágt heilsufar að
stríða. Hann er mikils metinn leið-
togi stærstu samtaka múslima í
Indónesíu og þykir hófsamur í skoð-
unum.
Eftir flókin pólitísk hrossakaup
hlaut Wahid tilskilinn meirihluta-
stuðning á indónesíska þinginu, sem
700 fulltrúar eiga sæti á. Þykir kjör
hans marka tímamót og boða nýja
tíma lýðræðis og aukinna trúará-
hrifa á stjómmál landsins, eftir ára-
tuga harðstjóm byggða á valdi
hersins.
Nýi forsetinn, sem almennt er
þekktur undir gælunafninu Gus
Dur, fer íyrir samtökunum Na-
hdlatul Ulama, sem í eru yfir 30
milljónir indónesískra múslima.
íslam er mikið þjóðfélagsafl í
Indónesíu. Um 90 af hundraði hinna
u.þ.b. 210 milljóna íbúa landsins era
múslimar, en þar með er Indónesía
fjölmennasta múslimaríki heims.
Wahid, sem er 59 ára, hefur nýtt
þau áhrif sem hann hefur sem hugs-
uður og trúarleiðtogi til að stuðla að
trúarlegu og félagslegu umburðar-
lyndi í hinu víðfeðma ríki.
Sagður óútreiknanlegur
„Hann stendur fyrir hina ljúfu
hlið íslams," sagði Salim Said,
stjómmálaskýrandi í Djakarta. Wa-
hid er stofnandi Þjóðemisvakning-
arflokksins, sem varð sá þriðji
stærsti í þingkosningunum á síðasta
ári. Sem slíkur, þ.e. leiðtogi þriðja
stærsta þingflokksins, sóttust aðrir
frambjóðendur í forsetakosninga-
slagnum mjög eftir stuðningi hans.
Stuðningsmenn Wahids segja hann
leikinn í að finna málamiðlanir og
sætta deilendur, en gagnrýnendur
saka hann um tækifærisstefnu.
„Hann er mjög óútreiknanlegur,“
segir stjómmálaskýrandinn Said.
A stjórnaráram Suhartos, sem
sagði af sér í fyrra, beitti Wahid sér
fyrir því að afla ýmsum framsækn-
um hugmyndum brautargengi, þar
á meðal um uppbyggilegt samstarf
ólíkra trúarhreyfinga, og ávann sér
með því viðurkenningu á alþjóða-
vettvangi.
Megawati missti Wahid úr
stuðningsmannahópi sínum
Wahid hefur haldið uppi dyggi-
legum vömum fyrir kínverska
minnihlutann í Indónesíu, sem að
mestu er kristinnar trúar, gegn
árásum róttækra múslima sem á
óróatímum hafa gjaman skeytt
skapi sínu á velmegandi landsmönn-
um sínum af kínverskum uppruna
og eignum þeirra.
Frá því Suharto hvarf frá völdum
hefur Wahid átt mikinn þátt í efl-
ingu lýðræðishreyfingarinnar í
landinu. I upphafi lýsti hann stuðn-
ingi við Megawati Sukarnoputri,
sem lengi hafði verið helzta rödd
stjómarandstöðunnar. En heldur
kastaðist í kekki á milli þeiira fyrir
nokkrum vikum, að því er virðist
vegna þess að hún lýsti sig ekki
reiðubúna að koma nægilega langt
til móts við hagsmuni múslima-
hreyfingar hans, kæmist hún í for-
setastólinn.
A meðan á öllu þessu stóð hélt
Wahid stöðugu sambandi við B.J.
Habibie forseta og forystu hersins,
sem enn er mikið pólitískt afl í land-
inu. Hann tilkynnti þá um framboð
sitt og safnaði fljótt tO sín fylgi.
Þegar Habibie dró framboð sitt
til baka í fyrrinótt, eftir að þingið
hafði samþykkt vantraust á hendur
Megawati Sukamoputri bar sig
vel eftir ósigurinn. Flokkur
Wahids hefiir boðið henni vara-
forsetaembættið.
honum, tókst Wahid að merja sam-
an bandalag ólíkra flokka á þinginu
að baki sér, og bar sigurorð af
Megawati.
Tvö heilablóðföll
Andstæðingar hans hafa lýst efa-
semdum um að hann sé rétti maður-
inn í forsetastólinn. Sumir halda því
fram að hann ætti að halda sig utan
við virka stjórnmálaþátttöku og
3d Civic 1.4 Si
90 hestöfl, 16 ventla, samlæsingar, rafdrifnar rúöur og spoglar.
Lengd: 4,19 m. H/ólhaf: 2,62 m.
Útrúlegur kraftur, eðallínur, formfegurð og
glaesilegar innréttingar, allt gerír þetta Civic
að lúxusbíl sem veitir ðkumanni og farþegum
Ijúfa ánægjustund í hvert einasta sinn sem
upp í hann ersest. Komdu og skoðaðu á
vefnum www.honda.is eða littu inn og fáðu
að prófa.
3d Civic 1.4 Si
90 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir loftpuöar, samlæsingar, rafdrifner
rúður og speglar. Lengd: 4,19 m. Hjólhaf: 2,62 m.
3d Civic I.SLSi-VTEC
115 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir loftpúöar, fjarstýrðar samlæsingar, raf-
drifnar rúður og speglar, hiti i speglum. Lengd: 4,19 m. Hjólhaf: 2,62 m.
3d Civic 1.6 VT, - VTEC
160 hestafl, 16 ventla, ABS, tveir loftpúðar, 15’ álfelgur, rafdrifin sófiúge,
leðurstýri, sportinnrétting, fjarstýröar samlæsingar, rafdrifnar rúður og
spegiar, hiti í speglum, 6 hatalarar, samlitaöur. Lengd: 4,19 m. Hjólhaf:
Vatnagörðum 24 ■ Slmi 520 1100 ■ www.honda.is
Akraties: Bllversf.. slml 431 1985. Almreyrl: Hðldur hf, sfrnl 4613000. Egllsstaðlr: BHa- og búvélasalan hf.. sfmi 4712011.
Keflavlk Bllasalan Bllavík, síml 4217600. Vestmannaeyjan Bílaverkstæðlð Bragginn, simi 481 1535.
Staðhæft í nýrri bók að George W.
Bush hafi verið handtekinn árið 1972
Asökunum vísað
á bug sem
„lúalegri lygi“
Washington. The Daily Telegraph, AFP.
GEORGE W. Bush,
ríkisstjóri Texas, sem
sækist eftir tilnefningu
Repúblikanaflokksins
sem forsetaefni í næstu
forsetakosningum, hef-
ur alfarið vísað á bug
fullyrðingum þess efnis
að hann hafi verið
handtekinn árið 1972
íýrir að hafa kókaín
undir höndum.
Fullyrðingar þessar
era settar fram í bók
um Bush, sem rituð er
af J.H. Hatfield, blaða-
manni og rithöfundi frá
Texas. Segir Hatfield
að Bush hafi verið
handtekinn í Houston en að atvikið
hafi verið máð út af sakaskrá vegna
pólitískra tengsla föður hans. Geor-
ge Bush, íyrrverandi Bandaríkjafor-
seti, var þá sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum, en
hafði áður verið þingmaður fyrir
Texas.
Er staðhæft að ákveðið hafi verið
að láta handtökuna ekki koma fram
á sakaskrá gegn því að Bush yngri
myndi starfa sem ráðgjafi með vand-
ræðaunglingum. Sú ákvörðun hafi
verið tekin af dómara í Texas, sem
var stuðningsmaður repúblikana, að
höfðu samráði við George Bush
eldri. Bush hefur viðurkennt að hafa
starfað sem unglingaráðgjafi árið
1972 en segir það ekki koma kóka-
ínneyslu neitt við.
Bók Hatfields kom út í gær en á
bókastefnunni í Frankfurt nýlega
höfðu útgefendur hennar, St. Mart-
ins Press í New York, gefið í skyn að
í henni yrði að finna upplýsingar er
myndu hafa áhrif á bandarísku for-
setakosningarnar.
Fáránlegar
staðhæfingar
Á blaðamannafundi í Arizona
sagði George W. Bush að ásakanir
Hatfields væru með öllu ósannar.
„Þetta era fáránlegar staðhæfingar
og ósannar. Ég vona að virtir blaða-
menn muni ekki gera sér mat úr vís-
indaskáldskap,“ sagði Bush og vísaði
þar til þess að Hatfield
hafði áður ritað ævi- ;
sögu Star Trek-leikar
ans Patricks Stewart.
George Bush eldri
hefur einnig vísað þessu
á bug og sagt fullyrðing-
ar Hatfields „lúalega
lygi“. í tilkynningu sem
forsetixm fyrrverandi
gaf út segir m.a. „stað-
lausar og kvikindislegar
árásir af þessu tagi eru
ástæða þess að margt |
gott fólk veigrar sér við
þátttöku í stjórnmálum".
Þetta er í annað f
skipti sem sögusagnir
um kókaínneyslu Geor-
ge W. Bush koma til umræðu í kosn-
ingabaráttunni en í ágúst var hart
gengið á Bush af fjölmiðlum og hann
krafinn um að upplýsa það hvort
hann hefði einhvern tímann neytt
kókaíns. Bush hefur hvorki játað því
neitað en sagt að ekkert misjafnt
hafi gerst í lífi hans síðastliðin 25 ár. |
Hatfield segist hafa séð upplýsing- 1
ar um það í ágúst í nettímaritinu Sai- (
on að Bush hafi starfað sem ung-
lingaráðgjafi í Houston. Það hafi að
hans mati ekki komið heim og saman
við persónuleika Bush og hann hafi
því ákveðið að kafa dýpra. Salon
birti aðra grein um málið sl. mánu-
dag en þar er haft eftir þremur nafn-
lausum heimildarmönnum „nátengd-
um Bush-fjölskyldunni“ að handtak-
an hafi átt sér stað.
Saksóknari kannast
ekki við málið
Carol Vance, sem var saksóknari
árið 1972 í því umdæmi sem hand-
takan er sögð hafa átt sér stað, segir
þetta hins vegar koma sér spánskt
fyrir sjónir. Enginn dómari í Hous-
ton, sem sá um sakamál á þessum
tíma, hafi verið repúblikani. Að auki
hafi ekki verið lagalega framkvæm-
anlegt að afmá hluti úr sakaskrá fyrr
en með lagabreytingu árið 1977. „Ég 1
hefði vitað af máli af þessu tagi hefði f ;
það komið upp,“ segir Vance, sem
var æðsti saksóknari Houston á ár-
unum 1966-1979.
George W.
Bush