Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 2?
Reuters
Abdurrahman Wahid, almennt kallaður Gus Dur, er studdur úr ræðustóli eftir að hann sór embættiseið sem
forseti Indónesíu í gær. Forveri hans, B.J. Habibie, styður við hægri hönd Wahids.
gæti gert þjóðinni meira gagn sem tvisvar orðið fyrir heilablóðfalli, og skurð í Bandaríkjunum fyrr á árinu.
siðferðilegur ráðgjafi. Aðrir benda á er nærri því blindur þrátt fyrir að Wahid er menntaður í Indónesíu,
að hann hefur á síðustu árum hafa gengizt undir mikinn augnupp- Egyptalandi, írak og Kanada.
HORPU
TILBOÐ
Gæða innimáining
10
Indónesíuþing hefur samþykkt sjálfstæði Austur-Tímors
„Höfum beðið lengi
eftir þessari stund“
Dili. Reuter.
XANANA Gusmao, leiðtogi Austur-
Tímora, fagnaði í gær þeirri ákvörð-
un indónesíska þingsins að sam-
þykkja niðurstöðu þjóðaratkvæða-
greiðslunnar í ágúst og leggja þar
með blessun sína yfir sjálfstæði
landsins. Hermenn úr liði alþjóðlega
friðargæsluliðsins í landinu hafa
fundið fjöldagröf með jarðneskum
Ieifum 20 manna í bæ skammt vestur
af höfuðborginni, Dili.
„Þetta er fagnaðardagur fyrir
þjóðina. Eftir þessari stund höfum
við lengi _beðið,“ sagði Gusmao í
Darwin í Ástralíu í gær en búist er
við, að hann muni veita fyrstu ríkis-
stjórn A-Tímors forstöðu. Er hann
væntanlegur þangað undir vikulokin.
Jackson-aðdáendur
á Suður-Englandi
Segja goðið
hafa skemmt
í bænum
ÍBÚAR í bænum Barnstaple í
Norður-Devon halda því fram að
Michael Jackson hafi sungið og
dansað í bænum síðastliðið sunnu-
dagskvöld. Vitni segja að Jackson
hafi komið til bæjarins á hvítri
glæsibifreið í fylgd lífvarða og
dansara. Auglýsingum hafði verið
dreift í bænum þar sem fram kom
að fólki yrði bannað að vera með
myndavélar á tónleikunum og að
gestir yrðu að sitja meðan á flutn-
ingi tónlistarmannsins stæði.
Utgáfufyrirtæki Michaels
Jacksons, Sony Music, sagði á
mánudag að Jackson hefði alls
ekki verið í Devon-héraði á
sunnudag. „Michael hefur verið í
Los Angeles síðan í síðustu viku
en sendir ástarkveðju til allra að-
dáenda sinna í Bretlandi,“ sagði í
yfirlýsingu fyrirtækisins.
Eigandi hússins þar sem tón-
leikarnir fóru fram segist hins
vegar vera alveg viss í sinni sök.
„Eftir tónleikana gekk hann
mjög nálægt mér, ég er viss um
að þetta var hann.“
Friðargæsluliðar
fundu fjöldagröf
í bænum Liquica
Hermenn í friðargæsluliðinu
fundu í fyrradag lík 20 manna í bæn-
um Liquica en ekki hefur verið upp-
lýst hvernig fólkið lét lífið eða hverj-
ir báru ábyrgð á dauða þess. Grun-
urinn beinist þó að sveitum hliðholl-
um Indónesíustjórn en bærinn var
ein helsta bækistöð þeirra.
Enn er ekki vitað um afdrif hund-
ruð þúsunda manna í A-Tímor en
talið er að margir flóttamenn hafist
við í fjöllunum umhverfis höfuðborg-
ina. Innan við 200 lík hafa fundist
hingað til, að sögn iriðargæsluliðsins.
Flóttamenn óttast um líf sitt eftir að
meirihluti íbúa Austur-Tímor greiddi
atkvæði með sjálfstæði í ágúst og
kallaði yfir sig reiði annarra íbúa eyj-
unnar sem eru fylgjandi áframhald-
andi yfirráðum Indónesíu þar.
SÞ tekur hugsanlega við
Utanríkisráðherra Astralíu, Alex-
ander Downer, sagði í fyrradag, að
ástandið á Austur-Tímor væri að
verða stöðugt og hugsanlega gætu
áströlsku hersveitimar á eyjunni
snúið þaðan fyrir árslok og sveitir á
vegum Sameinuðu þjóðanna komið í
þeirra stað.
Nýjar sendingar frá
[ardeur?
*
Dömubuxur
vjenjuleg lengd
og styttri
Peysur og bolír
Stakir jakkar
Gæðavara — tískuvara
Opið daglega
ki. 10—18,
iaugardaga
kl. 10—14.
tískuverslun,
v/Nesveg,
Seltjarnarnesi
Sími 561 1680
Vönduð íslensk
innimálning á
einstöku tilboðsverði.
Verö á lítra frá *
kr.
* Miðað við 10 lítra dósir og ljósa liti
í verslununum HÖRPU veita reyndir
sérfræðingar þér góða þjónustu og
faglega ráðgjöf við val á hágæða
málningarvörum.
HARPA IWÁLNINGARVERSLUN,
BÆJARLIND 6, KÓPAVOGI.
Sími 544 4411.
HARPA MÁLNINGARVERSLUN,
SKEIFUNNI 4, REYKJAVÍK.
Sími 568 7878.
HARPA IMÁLNINGARVERSLUN,
STÓRHÖFÐA 44, REYKJAVÍK.
Sími 567 4400.
MÁLNIHQARUERSLAKIR