Morgunblaðið - 21.10.1999, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Japanskur aðstoðarráðherra neyddur til að segja af sér eftir umdeild ummæli
Tókýó. Reuters.
Vill kjarnorku-
vopnavæðingu
AÐSTOÐARRAÐHERRA í ríkis-
stjórn Japans var gert að segja af
sér í gær fyrir að lýsa yfir, að Japan-
ir ættu ef til vill að hverfa frá bann-
inu við kjarnorkuvopnum. Rökstuddi
hann einnig þessa skoðun sína með
lfkingum, sem þóttu vægast sagt
heldur ósmekklegar.
Þetta mál kemur sér illa fyrir
Keizo Obuchi forsætisráðherra en
hann brást strax við með því að
krefjast þess, að Shingo Nishimura,
sem var aðstoðarráðherra í varnar-
málaráðuneytinu, segði af sér sem
hann og gerði.
Undarlegar líkingar
Nishimura sagði í viðtali við jap-
anska tímaritið Playboy, sem á þó
ekkert skylt við bandarískan nafna
sinn, að það væri hans skoðun, að
kjarnorkuvopnaeign drægi úr líkum
á kjarnavopnaárás.
„Ef það væri engin refsing við
nauðgun, værum við allir nauðgarar.
Við enim það ekki vegna þess, að
refsingin fælir frá,“ sagði Nishi-
mura. „Við getum líkt „gagnkvæmu
öryggi" við mann, sem hjálpar konu,
sem verið er að nauðga. Með sama
hætti felst „innrás“ í því að útrýma
karlmönnum í tilteknu landi og
nauðga konunum,“ sagði Nishimura.
Japanskir fréttaskýrendui- telja
ólíklegt, að ummæli Nishimura hafi
alvarlegar afleiðingar fyrir ríkis-
stjórnina en þau geta dregið veru-
lega úr vinsældum Obuchis. Þá hafa
þau nú þegar vakið nokkur viðbrögð
í Kína og Suður-Kóreu.
Þar að auki koma þau fram aðeins
viku eftir að Obuchi skrifaði Bill
Clinton Bandaríkjaforseta bréf þar
sem hann harmaði, að öldungadeild
Bandaríkjaþings skyldi hafa fellt
samninginn um bann við tilraunum
með kjarnorkuvopn.
Konur reiðar
Fyrir utan ummælin um kjarn-
orkuvopnin hafa þau orð, sem Nishi-
mura hafði um konur og nauðganir
vakið mikla reiði og hneykslan í Jap-
an. Stjórnarandstöðuþingmaðurinn
Kiyomi Tsujimoto sagði í gær, að
hún og aðrar konur á þingi myndu
nú leggjast á eitt um að fella rikis-
stjórnina.
Fréttaskýrendur í Japan segja, að
ummæli Nishimura endurspegli
skoðanir þeirra, sem eru lengst til
hægri í japönskum stjórnmálum, en
benda líka á, að þjóðemissinnum
hafi verið að vaxa ásmegin í landinu
að undanförnu, m.a. vegna eldflauga-
tilrauna N-Kóreumanna í fyrra.
Reuters
Flugræningi
sagður
geðsjúkur
ÞYSKA lögreglan sagði í gær, að
maðurinn, sem rændi egypskri
farþegaflugvél í Istanbúl og gaf
sig síðan á vald þýsku lögregl-
unni í Hamborg, væri hugsan-
lega sjúkur á geði. Eftir að far-
þegaþotan frá EgyptAir lenti á
alþjóðaflugvellinum í Hamborg
tókst lögreglunni að tala um fyr-
ir manninum og sést hann hér
leiddur á brott.
Sakaði því engan farþeganna
48 eða áhafnarmeðlima, sem
voru sex. Talar maðurinn arab-
ísku en í gær var ekki annað um
hann vitað. Þó er helst hallast að
því, að hann sé íraskur. Sagði
talsmaður lögreglunnar, að hann
virtist ekki vera í andlegu jafn-
vægi en hann fór fram á landvist
í Þýskalandi vegna þess, að hann
kynni svo vel við land og þjóð og
tennisdrottninguna Steffi Graf.
-------------------
Papon kýs
útlegð
París. Reuters.
MAURICE Papon, franski ráðherr-
ann fyrrverandi sem í fyrra var
dæmdur í 10 ára fangelsi fyrir að
hafa sem emb-
ættismaður
Viehy-stjórnar-
innar á stríðsár-
unum aðstoðað
við að senda
franska gyðinga í
dauðabúðir naz-
ista, sagðist í gær
munu frekar
fiýja land en að
eyða síðustu ævi-
áranum bak við lás og slá.
Jean-Marc Varaut, lögmaður Pa-
pons, neitaði að gefa upp hvar skjól-
stæðingur sinn dveldi og aðrir lög-
fróðir menn sögðu engan lagabók-
staf meina honum að flýja land, þótt
honum hafi verið gert að vera við-
staddur er dómstóll kveður í dag,
fimmtudag, upp úrskurð um áfrýjun
Papons á dómnum yfir sér.
Papon, sem nú er 89 ára að aldri,
hvarf frá heimili sínu í síðustu viku
og gaf frá sér yfirlýsingu sem lög-
menn hans gerðu opinbera í gær-
morgun. Þar segist hann ekki munu
snúa aftur til heimalands síns fyrr en
margvísleg réttarbrot, sem hann hafi
þurft að þola, hafi verið leiðrétt.
„Það er einungis eitt heiðvirt svar
við þessu - útlegð, hversu sársauka-
fullt svo sem það er fyrir nærri ní-
ræðan mann,“ segir í yfirlýsingunni,
sem lögmenn stefnenda Papons
brugðust ókvæða við.
„Eg skora á mannréttindadómstól
Evrópu í Strassborg að endurreisa
réttvísina og ég mun snúa aftur til
heimalands míns eftir úrskurð
hans,“ segir hann.
Handtökuskipun boðuð
Eirt af auglýsingum Morgunblaösins frá öldinni sem er að líða.
Vilt þú ná árangri á nýrri öld?
AUGLÝSINGADEILD MORGUNBLAÐSINS | sími 569 1111, augl@mbl.is, bréfasími 569 1110
Papon, sem á framaferli sínum eft-
ir stríð gegndi embætti lögreglu-
stjóra Parísar og var um hríð fjár-
lagaráðherra, hafði frest fram á mið-
vikudagskvöld til að gefa sig fram við
lögregluyfirvöld og dvelja í fanga-
klefa nóttina fyrir dómsuppkvaðn-
ingu áfrýjunarréttar í máli hans.
Dómsmálaráðherrann Elisabeth
Gigou sagði handtökuskipun, bæði
innlenda og alþjóðlega, verða gefna
út skyldi Papon ekki gefa sig fram.