Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.10.1999, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 29 ERLENT Ekki þykir vafí leika á því að almenningur í Pakistan styður valdarán hersins í landinu Sharif sakaður um víðtæka spillingu Islamabad. Reuters, AP. LÖGREGLUYFIRVÖLD í Pakist- an hafa sakað Nawaz Sharif, sem herinn rak úr forsætisráðherrastóli, um víðtæka spillingu og segja, að hann hafi svikið undan með ýmsum hætti um átta milljarða ísl. kr. t>á hafa bankar í landinu skorað á þá, sem ekki hafa greitt af skuldum sín- um, einkum yfírstéttina í landinu, að gera upp við þá eða sæta lögsókn ella. Hafa þeir einig stöðvað allar gjaldeyrisyfirfærslur en talið er, að um 110 milljarðar kr. hafí verið fluttir úr landi strax eftir valdarán hersins. Pakistanska dagblaðið The Nation, sem gefið er út á ensku, sagði í gær, að sakargiftirnar gegn Sharif væru peningaþvætti, sem tæki til um þriggja milljarða kr., skattsvik upp á 4,8 milljarða, falsan- ir, sem væru hátt í milljarð, og að auki að hafa notað opinbera sjóði í eigin þágu. Sharif hefur verið í gæslu síðan honum var steypt í síð- ustu viku en herstjómin hefur enn ekki skipað neina stjóm í landinu. Bresk og tyrknesk blöð hafa það þó eftir Pervez Musharraf, yfirmanni hersins, að gengið verði frá stjóm- armyndun á næstu dögum. Sagt er, að Sharif hafi engan skatt greitt af nokkrum glæsihúsum í London; ekki hirt um að greiða af miklum bankalánum, sem fjöl- skyldufyrirtæki hans, Ittefaq, hafi tekið en það hafi hagnast mikið á sykursölu til sjálfra fjandmann- anna, Indverja. Margir aðrir í ríkis- stjórn Sharifs eru sakaðir um spill- ingu, þar á meðal Saifur Rehman, sem hafði það höfuðverkefni að berjast gegn spillingu. Em fyrir- tæki hans sögð hafa komist hjá inn- flutningsgjöldum og fengið mikla og feita samninga hjá ríkinu. Erlendir sendimenn í Pakistan segja engan vafa leika á því, að valdaránið njóti mikils stuðnings meðal almennings og margir gera sér vonir um, að dómskerfið fari nú að vinna eins og því er ætlað en hingað til hefur það alls ekki virkað gegn yfirstéttinni í landinu. Allar ríkisstjómir í Pakistan frá 1985 hafa lagt upp með fyrirheit um að vinna gegn spillingu og láta þá ríku greiða skatta en af 135 milljónum íbúa landsins greiða aðeins innan við 2% einhvern tekjuskatt. Jang, stærsta dagblaðið í Pakistan, sagði í gær, að þjóðin krefðist þess, að spillingaröflin yrðu látin svara til saka. Talið er, að yfirstéttin í Pakistan hafi flutt um 110 milljarða ísl. kr. úr landi strax eftir valdarán hersins og inn á bankareikninga í ýmsum lönd- um, meðal annars Tælandi, Japan, Þýskalandi, Kanada og Bandaríkj- unum. Nú hafa gjaldeyrisyfirfærslur ver- ið stöðvaðar. I ræðu Musharrafs fyrir nokkrum dögum sagði hann, að þeir, sem skulduðu bönkunum stórfé og hefðu ekki hirt um að greiða af lánunum, hefðu fjórar vik- ur til að gera upp sín mál. Að því búnu yrðu nöfn þeirra birt opinber- lega og mál höfðað gegn þeim. Hirða ekki um að borga af lánum Pakistanskir bankar birtu auglýs- ingai' í gær í öllum helstu fjölmiðlum landsins þar sem skorað er á van- skilamennina að gera upp við bank- ana fyrir 16. nóvember en yfirstétt- in, atvinnurekendur, kaupsýslumenn og stjómmálamenn, hefur ekki stað- ið í skilum með um 365 milljarða kr. Það er ekkert nýtt, að Shaiif og rík- isstjóm hans séu sökuð um spillingu en hann hefur vísað slíkum ásökun- um á bug. Barátta hans gegn spill- ingu hefur falist í því að rannsaka fjárreiður Benazir Bhuttos, fyirver- andi forsætisráðherra, og eigin- manns hennar, Asif Zardaris, en Bhutto býr nú í London til að kom- ast hjá handtöku. Er hún meðal ann- ars sökuð um að hafa þegið mútur af svissnesku fyrirtæki, sem hún réð sérstaklega til að berjast gegn skattsvikum í Pakistan. Alþjóðlegri ráðstefnu um glæpi lokið í Moskvu Pútín lofar lögum um peningaþvætti Moskvu. Reuters. ALÞJÓÐLEGRI ráðstefnu um glæpi og vamir við þeim lauk í Moskvu í gær. Þótti það einna mestum tíðindum sæta er Vladímír Pútín, forsætisráð- herra Rússlands, lýsti yfir, að rúss- neska stjórnin ætl- aði að gera það, sem hún gæti, til að koma í veg fyrir peningaþvætti. Ráðstefnuna sóttu frammámenn í dómskerfi iðnríkj- anna átta, þar á meðal Janet Reno, dómsmála- ráðherra Bandaríkjanna, og ýmsir háttsettir embættismenn í Rússlandi, Bretlandi, Kanada, Frakklandi, Italíu, Þýskalandi og Japan. Reno sagði á frétta- mannafundi í gær, að glæpir væru alþjóðlegt vandamál. Engin landamæri „Er maður situr við eldhús- borðið heima hjá sér og stelur fé í öðru landi með aðstoð tölvu er ljóst, að landamæri skipta ekki lengur neinu máli,“ sagði hún. Rússar stóðu vel að ráðstefn- unni og hún þykir hafa rétt hlut þeirra nokkuð í þeirri umræðu, sem nú fer fram um rannsókn á peningaþvætti og annarri spill- ingu og tengist jafnvel rússnesk- um embættismönnum. Rúss- neska dagblaðið Sevodnía sagði í gær, að á einu sviði, í baráttunni við alþjóðlega hryðj uverkastarf- semi og glæpi, gætu Rússar kinnroða- laust skipað sér í hóp fremstu ríkja í heimi. Það vakti veru- lega ánægju á ráð- stefnunni er Pútín, forsætisráðherra Rússlands, lýsti yfir, að sett urðu lög til að koma í veg fyrir peningaþvætti en Borís Jeltsín, forseti Rússlands, vildi ekki undirrita slíka löggjöf, sem komm- únistar stóðu að, fyrr á árinu. Ráðstefnan hafði verið ákveðin áður en núverandi rannsókn á hugsanlegu peningaþvætti rúss- nesku mafiunnar og jafnvel rúss- neskra embættismanna hófst en nú hafa þrír rússneskir innflytj- endur í Bandaríkjunum verið ákærðir í því máli. Janet Reno vildi þó lítið tjá sig um málið og sagði aðeins, að hún hefði átt „ánægjulega" umræðu um það við Rússa. Rússar reyndu nokkuð að fá ráðstefnuna til að styðja aðgerð- ir rússneska hersins gegn „hryðjuverkamönnum“ í Tsjet- sjníu en i lokaályktun hennar er lýst yfir samstöðu í baráttunni gegn hryðjuverkum og samúð með því fólki, sem varð fyrir bai'ðinu á hryðjuverkum í rúss- neskum borgum í sumar. Ekkert var þó minnst á Tsjetsjníu. Janet Reno O $ PlatínJazz íkvöld! KLAUSTWÐ ANNO MCMXCIX _j Veitinga- og skemmtistaðurinn Klaustrið Kuipparstíg 26 • Simi 552 6022 Evrópusambandið auglýsir eftir umsóknum í áætlun um lífsgæði og nýtingu náttúruauðlinda Auglýst er eftir umsóknum í eftirtaldar lykilaðgerðir: • Heilsa, fæöi og umhverfi • Baráttu gegn smitsjúkdómum • Líftækni • Sjálfbærar fiskveiöar, landbúnaður og landnýting • Grunnrannsóknir Umsóknarfrestir eru til 15. nóvember n.k. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vefsíðu CORDIS: http://www.cordis.lu/ist/ Kynningarfundur um áætlun Lífsgæða og nýtingu náttúruauðlinda Föstudaginn 22. október, kl. 08:30-10:00 Borgartúni 6 DAGSKRÁ 08:30-09:00 Yfirlit yfir áætlunina Lífsgæði og nýtingu náttúruauðlinda IngileifJónsdóttir, ónæmisfræðingur og stjómamefndarfulltrúi 09:00-09:20 Fiskveiðar, fiskeldi, landbúnaður og landnýting Erlendur Jónsson, forstöðurmaður Tæknisjóðs og stjómamefndarfulltrúi 09:20-09:35 Umsóknargerð, öflun upplýsinga og aðstoð Grímur Kjarlansson, verkfræðingur Alþjóðasviðs RANNÍS 09:35-09:45 Styrkir RANNÍS til alþjóðlegra samstarfsverkefna Hjördís Hendriksdóttir, Alþjóðasvið RANNIS 09:45-10:00 Fyrirspumir og umræður Aðgangur er ókeypis og öllum opinn en þátttakendur em beðnir um að skrá sig fyrirfram með tölvupósti: rannis@rannis.is eða í síma: 5621320. & SAMTÖK IÐNAÐARINS Rannsóknaþjónusta Háskólans n löntæknistofnun RAIUMÍS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.