Morgunblaðið - 21.10.1999, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Geislaplötur Sinfóníuhljómsveitar fslands
Fá góða dóma í
erlendum tímaritum
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ís-
lands fær góða dóma í nýjustu heft-
um erlendra fagtímarita fyrir flutn-
ing sinn á verkum Jóns Leifs og
Síbelíusar á geislaplötum sem gefn-
ar eru út af BIS og Naxos.
Plata Sinfóníunnar, Dettifoss,
sem BIS gaf út, fær afar lofsamlega
dóma í Classic CD en þar er að
finna fjögur verk eftir Jón Leifs,
Orgelkonsertinn, Variazioni pa-
storale, Fine og Dettifoss. Eins og
við þekkjum af upptökum Naxos,
er það fátt sem Sinfóníuhljómsveit
Islands ekki getur og Jón Leifs læt-
ur aldeilis reyna á hana í óviðjafn-
anlegum orgelkonsert sínum.
Djúpir klasar í bassanum, tortím-
andi drunur í fjórföldum pákum og
gríðarmikill hljómagangur, sem
birtist í samhliða þríhljómum, eru
erfitt próf fyrir hvaða hljómsveit
sem er. Eitt sinn sló verkið í gegn
Nýjar bækur
• STÁLFLJÓTIÐ og fjögurra
laufa smári er með ljóðum _
Normu E. Samúelsdóttur. I
fréttatilkynningu segir: „Ljóðin
fjalla um manneskju sem horfir
út um gluggann sinn, - þjóðbraut
í byggð - og í stað þess að öskra
„þögn“ skrifar hún um stálfljótið;
bíla, fíla, menn. Dreymir fjög-
urra laufa smára, spyr ... „Er
hægt að óska sér? Maður. Bíll.“
Fyrir nokkru kom út ljóðabók-
in Mömmublús eftir sama höf-
und, en þetta er hennar níunda
bók.
Útgefandi er höfundur. Stál-
fljótið og fjögurra laufa smári er
50 bls., prentuð hjá Stensli.
Nýtt
sönglaga-
hefti
• MIG dreymir - 16 sönglög er
sönglagahefti eftir Guðmund
Stefán Sigurðsson, organista og
múrara á Hvammstanga.
Lögin eru skrifuð fyrir bland-
aðan kór og einsöng með píanó-
undirleik. Lögin eru samin við
texta eftir Valdemar Lárusson,
Stefán frá Hvítadal, Kristján frá
Djúpalæk, Rúnar Kristjánsson,
Jónínu Hallgrímsdóttur og Inga
Steinar Gunnlaugsson. Margir
kunnir hljómlistarmenn hafa
komið að útsetningum laganna:
Magnús Ingimarsson, Elías Dav-
íðsson, Jón Hlöðver Askelsson og
Jakob Magnússon.
I heftinu er lagið Trúföst í
dyggðum við sálm eftir Rúnar
Kristjánssonar, en lagið fékk
verðlaun Tónmenntasjóðs þjóð-
kirkjunnar árið 1999. Var það
frumflutt af sjötíu manna kór á
Kristnitökuhátíð Húnavatnspróf-
astsdæmis á Blönduósi í júlí sl.
Lög Guðmundar eru mörg með
trúarlegu ívafi og hafa nokkur
þegar verið sungin í kirkjum
landsins og við ýmis tækifæri.
A bókarkápu eru þakkir til
Hauks Guðlaugssonar, söngmála-
stjóra þjóðkirkjunnar. Einnig
eru þakkir til Kirkjukórs Víði-
dalstungukirkju, en Guðmundur
hefur starfað með honum sem
kórstjóri og organisti um árabil.
Útgefandi er höfundur og ann-
ast hann dreifingu heftisins, en
það fæst einnig í Kirkjuhúsinu í
Reykjavík og víðar. Fjölföldun
var unnin á skrifstofu söngmála-
stjóra þjóðkirkjunnar.
en hefur eigi að síður aldrei fundið
sér sess; nú er kjörið tækifæri að
bjóða aftur velkomið upphafið, al-
varlegt og oft djúpt verk,“ segir
Simon Trezise í dómi sínum og
bætir við að önnur verk á plötunni
séu einnig áhrifarík, sem jafnframt
megi þakka stórkostlegri upptöku
BIS og ákafri og kraftmikilli stjóm
Kínverjans En Shaos. Platan fær
hæstu einkunn hjá Classic CD,
fimm stjömur, bæði fyrir flutning
og hljómgæði.
Flutningur Sinfóníunnai-, undir
stjóm Petris Sakaris, á Ofviðrinu
og Annarri sinfóníu Síbelíusar, í út-
gáfu Naxos, fær einnig fína dóma í
HI-FI News. Um Ofviðrið segir
gagnrýnandinn, James M. Hughes:
„. . . verkið (fær) framúrskarandi
flutning; skarplega fluttar og lífleg-
ar hendingar - hlýðið bara á hvem-
ig Sakari endurskapar hvininn í
vindinum í upphafi Stormsins."
Og um Aðra sinfóníuna notar
hann eftirfarandi orð: „Ef það era
breiðir pensildrættir eða eðlislæg-
ur æsingur sem sóst er eftir, þá er
Sakari ekki rétti maðurinn. Hann
býður upp á úthugsað og mikilsvert
tónlistarlegt yfirlit og verkið er að
mestu leyti fagurlega leikið og mót-
að á næmlegan máta - það era að-
eins örfáir grófir trompethljómar
sem trafla. Takturinn er víðfeðmur
og sinfónían í eðlilegum farvegi."
Loks fjallar BBC Music Maga-
zine með lofsamlegum hætti um
aðra Síbelíusar-plötu hljómsveitar-
innar, þar sem leikin era Finlandia
og Kareliu- og Lemminkainen-svít-
urnar. Gefur gagniýnandinn,
Robert Layton, plötunni fjórar
stjörnur, bæði fyrir flutning og
hljóm. Þessi plata er einnig gefin út
af Naxos.
Ung söngkona þreytir frumraun
Garsington Opera Company
Spennandi
verkefni o g
gott tækifæri
Hulda Björk
Garðarsdóttir
HULDA Björk
Garðarsdóttir sópr-
ansöngkona hefur
verið ráðin til starfa
hjá Garsington Op-
era Company í Eng-
landi sumarið 2000,
þar sem hún mun
þreyta frumraun sína
á óperasviðinu í hlut-
verki Súsönnu í
Brúðkaupi Fígarós
eftir Mozart. Næsta
vor mun hún einnig
syngja hlutverk
Fiordiligi í Cosi fan
tutte eftir Mozart á
Amersham-tónlistar-
hátíðinni í Lundún-
um.
„Hlutverkið er mjög stórt og
krefjandi, og eitt af burðarhlut-
verkunum í óperam Mozarts,“
segir Hulda Björk um hlutverk
Súsönnu. „Þetta er ofsalega
spennandi verkefni fyrir mig og
mjög gott tækifæri að takast á
við,“ heldur hún áfram. Hljóm-
sveitarstjórinn, Stephen Barlow,
hefur stjómað við Glyndeboume-
óperana og er að sögn Huldu vel
þekktur stjómandi víða um heim.
Óperugestir
ílautarferð
Garsington Opera Company er
sumaróperuhús, á sveitasetrinu
Garsington Manor rétt utan við
Oxford, „eitt af þessum virtu hús-
um í Englandi", segir Hulda.
„Það er uppselt á þessar ópera-
sýningar langt fram í tímann og
það hefur skapast hefð fyrir því á
undanfömum áram að fólk fer á
óperasýningu og lautarferð í leið-
inni,“ segir hún. Sviðið er svo að
segja úti í náttúranni, þó að byggt
sé yfir það og áheyrendapallana,
en það er að sögn Huldu fyrst og
fremst til þess ætlað að veijast
veðri og vindum. Aheyrendur sjá
eftir sem áður náttúrana til hliðar
við sviðið og hún segir hljóminn
skila sér mjög vel.
Amersham-tónlistarhátíðin er í
aprfl og er hún að
sögn Hifldu þegar
búin að vinna sér
fastan sess í bresku
tónlistarlífi. Þar mun
hún eins og áður
sagði fara með hlut-
verk Fiordiligi í Cosi
fan tutte, undir
stjóm Ians Leding-
hams. „Þetta er
spennandi verkefni
með ungu fólki á líku
reki og ég, sem er að
stíga sín fyrstu skref
opinberlega á ópera-
sviðinu. Hingað til
hafa þar fyrst og
fremst verið sýndar
tónleikauppfærslur en næsta vor
verður í fyrsta sinn sett upp full-
burða sviðsuppfærsla með hljóm-
sveit.“
Einsöngstónleikar
í ársbyrjun
Hulda Björk hyggst nota vet-
urinn til þess að undirbúa þessi
verkefni vorsins og sumarsins,
auk þess sem hún er að leggja
drög að einsöngstónleikum hér
heima í vetur ásamt Steinunni
Birnu Ragnarsdóttur píanóleik-
ara.
Hulda Björk lauk námi frá
Royal Academy of Music vorið
1998. Þá segist hún hafa ákveðið
að snúa heim til íslands og láta á
það reyna hvort hún gæti haldið
þeim samböndum sem hún var
rétt farin að koma sér upp þar
ytra. „Það skemmtilega er að það
er greinilega ekki aðalmálið hvar
maður býr - þetta er hægt ef
maður vill það. Mér þykir mjög
ánægjulegt að upplifa það að
maður fer ekki bara heim og
gleymist þarna úti, það sem ég
var búin að byggja upp úti skilar
sér. Ég er líka með góðan um-
boðsmann sem er duglegur að
benda mér á verkefni en ég vil
búa hér heima og taka þátt í tón-
listarlífinu hér og fljúga á milli
meðan þess er kostur,“ segir hún.
Á grunnu
djúpi
MYNDLIST
Listasafn ASÍ,
Ásmundarsal,
Freyjugötu
ÖRVERK,BLÖNDUÐ
TÆKNI
37 MEÐLIMIR FÍM
Til 24. október. Aðgangur kr. 200.
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá
kl. 14-18.
ÖRVERKASÝNING FÍM í
Listasafni ASI, Asmundai’sal, er
önnur sýningin þar sem meðlimum
félagsins er boðið að senda inn smá-
verk - undir 400 fersentímetram,
eða 20 sentímetra á hvom veg - á
nokkurs konar haustsýningu. Hug-
myndin er góð því varla er hægt að
hugsa sér heppilegra form til að
virkja krafta félagsmanna. Engum
ætti að vera það ofviða að vinna
smáverk af umbeðinni stærðar-
gráðu þótt mörkin séu helsti ströng
og ýti ef til vill undir of útflött sjón-
armið. Andstætt stærðunum er
þemað svo víðfeðmt að varla finnast
á því takmörk. Það fjallar því um
allt og ekkert. Það er þó skárra en
sauðkindardæmið á síðustu ör-
verkasýningu FÍM.
Óneitanlega verður maður eilítið
hnugginn við að skoða örverkasýn-
inguna því að það er svo fátt um fin-
an drátt í hugmyndaauðgi, ferskleik
og framleik í útfærslu verkanna. Að
vísu era nokkrar skemmtilegar
undantekningar á borð við Önnu
Gunnlaugsdóttur með tölvuverkað-
ar myndir sínar, næmar og nær-
fæmar; nöfnu hennar Jóa, með litl-
ar og fagurmálaðar, rússneskar
babúskur, dansandi á plötu; Guð-
björgu Lind, þótt ef til vill séu hlut-
ar af verki hennar helsti flóknir og
fótsnyrtir; Guðrúnu Krist-
jánsdóttur, sem kemur skemmti-
lega á óvart með einstaklega hrein-
um og beinum svifverkum úr plexi;
og op-listarparið góða; Margréti Jó-
elsdóttur og Stephen Fairbaim,
sem er æðislegt að fá aftur fram á
sjónarsviðið eftir áratugalanga fjar-
vera og alltof langa þögn.
Þá era Kristín Jónsdóttir frá
Munkaþverá, Sigþrúður „Sissú“
Pálsdóttir og Valgarður Gunnars-
son á prýðilegu róli með verk sem
skera sig úr ládeyðunni með óvænt-
um, bráðsmellnum og eftirtektar-
verðum hætti. En þar með er sagan
sögð, því restin er óþarflega flat-
Frá örverkasýningu FÍM
í Listasafni ASÍ.
neskjuleg. Með „óþarflega" er átt
við það að almennt ástundi meðlimir
FÍM list sína langt undir getu; hálf
hugsunar-, tilþrifa- og tilfinninga-
laust.
Þá eltir þessa tegund sýninga
einhver óskiljanlegur bjánaskapur í
nafngiftum, en stór hluti sýnenda er
ámóta frjór í vali titla á verk sín og
málsháttasmiðirnir á páskaeggja-
markaðnum. Af því að sýningin ber
yfirskriftina „Úr djúpinu“, hamast
sýnendur við að skíi’a verk sín jafn
vel til fundnum heitum og Fagur
fiskur í sjó eða ámóta gáfulegum
dumaranefnum. Það heitir að vera
„hugmyndafræðilegur" í list sinni,
en hugmyndafræði er vist annað
heiti á hugmyndlist samkvæmt
kokkabókum þeirra sem vita hvað
hvoragt hugtakið þýðir.
Þannig vantar mikið á að ör-
verkasýningin geti talist viðunandi
framlag frá jafnrótgi-ónum og hæfi-
leikaríkum félögum. Ef til vill þurfa
íslenskir listamenn að horfa meir í
kringum sig og skoða þær lausnir
sem erlendir kollegar þeiira beita
með góðum árangri. Einfaldleiki er
eina rétta svarið við þvíuppþornaða
handafli, sem félagar FÍM era aUtof
gjarnir á að beita. Því smærri sem
verkin eru þeim mun mikilvægara
er að ofurfágunin og ofhlæðið nái
ekki yfirhöndinni.
Halldór Björn Runólfsson
Njrjar bækur
• STEINAR í vörðu til heiðurs
Þuríði J. Kristjánsdóttur sjötugri
er afmælisrit.
„I fréttatilkynningu segir: „A
sjötugsafmæli
Þuríðar J.
Krist-
jánsdóttur,
fyrrverandi
prófessors við
Kennara-
háskóla ís-
lands, 28. apríl
1997 kviknaði
sú hugmynd í
hópi vina og
samstarfsfólks
að gefa út safn greina henni til
heiðurs. í ritið skrifa ýmsir vinir
og samferðafólk Þuríðar. Greinar
bárust frá 17 höfundum og er bók-
in ríflega þrjú hundruð síður.
Eftir skyldunám Þuríðar í
heimahéraði lauk hún kennara-
prófi frá Kennaraskóla íslands
vorið 1948 og kenndi eftir það
börnum og unglingum um langt
skeið en nýtti jafnframt hvert
tækifæri til frekara náms. Dokt-
orsprófi frá University of Illinois í
Bandaríkjunum lauk hún árið
1971. Lengst starfaði Þuríður
samfellt við Kennaraháskóla ís-
lands. Auk þess að vera fyrsti pró-
fessorinn, sem skipaður var við
skólann árið 1973, var hún aðstoð-
arrektor um tíma og ruddi ótroðn-
ar slóðir við skipulagningu nýrra
námsleiða, réttindanáms og fjar-
náms.“
I Steinum í vörðu er fyrst og
fremst fjallað um skólamál. Þuríð-
ur lítur um öxl og rifjar upp
náms- og starfsferil sinn í viðtali
við Kristínu Indriðadóttur og Ólaf
H. Jóhannsson. Síðan er fjórtán
greinum skipað í fjóra megin-
kafla: Af spjöldum sögunnar,
Próffræði og námsmat, Nám og
nemendur og Um kennslu og
kennara.
Rannsþknarstofnun Kennara-
háskóla Islands gefur bókina út.
Ritnefnd skipuðu Helgi Skúli
Kjartansson, Hrafnhildur Ragn-
arsdóttir, Kristín Indriðadóttir og
Ólafur J. Proppé. Verð í verslun-
um: 4.890 kr.
Þuríður J.
Kristjánsdóttir
I
I
:
P