Morgunblaðið - 21.10.1999, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 35
Opinn vinnu- og kynningarfundur
í Norræna húsinu
Saga íslenskrar
utanlandsversl-
unar 900-2002
í UNDIRBÚNINGI er tveggja
binda ritverk um sögu íslenskr-
ar utanlandsverslunar 900-
2002 og verður haldinn opinn
vinnu- og kynningarfundur um
málið í Norræna húsinu nk.
laugardag. Sex manna vinnu-
hópur á vegum Sagnfræðistofn-
unar hefur starfað að verkefn-
inu að undanförnu og notið til
þess forverkefnisstyrks frá
Rannís.
Fundurinn hefst kl. 13.30 og
stendur til kl. 17.30. Helgi Þor-
láksson prófessor, forstöðu-
maður Sagnfræðistofnunar,
flytur inngangsorð og fundar-
stjórinn dr. Vilhjálmur Egils-
son, formaður efnahags- og við-
skiptanefndar og
framkvæmdastjóri Verslunar-
ráðs íslands, hefur stutta
kynningu á fundarefni. Þá talar
Halldór Bjarnason cand.mag.
um verslun, hagvöxt og hagþró-
un, kenningar í hagsögu með
hliðsjón af íslenskri verslunar-
sögu, og á eftir fylgir umsögn
Þórólfs G. Matthíassonar dós-
ents. „Var einokun til góðs?“ er
yfirskrift erindis Gísla Gunn-
arssonar prófessors og umsögn
um það hefur Sigurður Gylfi
Magnússon, Ph.D., formaður
Sagnfræðingafélags Islands.
Anna Agnarsdóttir dósent
flytur erindið „Lúxus og laun-
verslun" og umsögn um það
hefur Þorlákur Axel Jónsson,
sagnfræðingur og mennta-
skólakennari á Akureyri. Síð-
asta erindið, „Island gegn
Evrópusamruna. Viðskiptast-
efna íslendinga eftir síðari
heimsstyrjöld", flytur Guð-
mundur Jónsson lektor og á
eftir fylgir umsögn Gunnars
Helga Kristinssonar prófes-
sors. Þá taka við almennar fyr-
irspurnir og athugasemdir.
Að lokum verður áætlun
verkefnisins kynnt, af fundar-
stjóra seinni hálfleiks, Atla
Frey Guðmundssyni, skrifstof-
ustjóra viðskiptaráðuneytis, og
Helga Þorlákssyni. Þráinn
Eggertsson prófessor hefur
umsögn um erindi þeirra og
lýkur fundinum á almennum
umræðum.
Umræðu-
fundur um
stofnun
bókaútgáfu
OPINN umræðufundur um aust-
firskar bókmenntir og stofnun
bókaútgáfu á Austurlandi verður
haldinn á Hótel Bláfelli á Breið-
dalsvík í dag, fimmtudag, kl. 17.
Síðastliðið vor var myndaður óf-
ormlegur undirbúningsfundur um
þessi efni á fundi sem haldinn var
að undirlagi Guðjóns Sveinssonar
rithöfundar. Hugmyndir undirbún-
ingshópsins verða reifaðar á fund-
inum auk þess sem Oðinn Gunnar
Óðinsson ráðgjafi á Þróunarstofu
Austurlands flytur erindi.
on*veb
Laugovegi 40,
sími 561 0075.
DSRO
Með númerabirti
HÚSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
Sími með höfuðheyrnartóli
Kr. 16.890
• Borðhleðslutæki
• Dregur 300 metra.
• Taltími 6 klst.
• Tengi fyrir
höfuðheymartól
12.900,,
Þráðlaus
sími
Fasteignir á Netinu ^mbl.is
ALLTAF= GITTHXSAÐ A/ÝT7
, G/ETUM ORYGGIS
A RJUPNAVEIÐUM
J - Örvaaisbúnaður í miklu úrvali
Neyðarblikkljós með
birturofa í bílinn.
Einnig SOS-ljós með
stöðugu blikkljósi.
Viðurkennd neyðarbyssa
í vasann með 8 rauðum skotum.
Vegur aðeins 335 gr.
Hraðfleygu, rakaþoinu rjúpnaskotin; frá 595- pakkinn (25 stk.
Bílaskóflur og dráttartóg. Splæsum tóg á staðnum.
Vasaljós og handluktir í úrvali. Einnig hulstur í belti.
Mikið úrval af hreinsisettum
og öðrum skotveiðibúnaði.
Byssupokar
Byssuólar
Skotbelti
INNKAUPALISTINN:
I I Vind- og vatnsheldur
hlífðarfatnaður
I I Stillongs-ullarnærfötin
I I Vettlingar/húfur
□ Legghlífar
I I Gönguskór
I I Ál-varmapokar
□ Bívax á skóna
I I Rjúpnavesti
□ Sokkar
□ Sjónaukar
□ Bakpokar
□ Áttavitar
□ Neyðarblys
□ Neyðarblikkljós-SOS
I I Óbrjótandi hitabrúsar
I I Skóflur/bílaverkfæri
Grandagarði 2, Rvík, sími 580-8500 og 800-6288. 0PIÐ VIRKA DAGA 8-18 0G LAUGARDAGA 10-14. SENDUM EINNIG I P0STKR0FU