Morgunblaðið - 21.10.1999, Síða 46
? 46 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Tölvuþjálfun
Windows • Word
Internet • Excel
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeið þar sem þátttakendur
kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu
og fá hagnýta þjálfun.
Vönduð kennslubók innifalin í verði.
Innritun stendur yfir.
Fjárfestu í framtíðinni!
H Tölvuskóli íslands
BÍLDSHÖFÐI 18, SÍMI 5671466
II i d
OP,nar
a morgun
föstudag
Lattu eKKi bösta
bera
Föt á aiia fjöiskyiduna
á frábaeru versi
Fatamarkaðurinn Laugavegi 103
Sími: 562 3311
C3jaldþrot<
[56
Gjaldþrota fyri 2 árum - 1.5 m. á mánuði í dag!
-1-
5
Flj ótsdalsvirkjun
og byggðaþróun
MJÖG mikið hefur
verið ritað undanfarið
um virkjunaráform á
Fljótsdal og hvaða
áhrif slík framkvæmd
komi til með að hafa,
annars vegar fyrir
íbúaþróun á Austfjörð-
um og hins vegar fyrir
náttúrufar við Eyja-
bakka. Menn virðast
skiptast algerlega í tvo
hópa, með eða á móti
virkjun, og stimpla
hvorir aðra sem öfga-
sinnaða umhverfis-
verndarmenn eða
skammsýna landníð-
inga. Slík umræða er
ekki til þess fallin að sátt skapist
um málið. Menn eiga frekar að
reyna að ræða málið með rökum,
stofna til málþings og gefa lands-
mönnum kost á að fylgjast með.
I mínum huga snýst málið aðal-
lega um það hvort fyrirhuguð virkj-
un og álver muni breyta byggða-
þróuninni á Austfjörðum til langs
tíma litið. Eg leyfi mér að efast um
það og þess vegna er ég andsnúinn
því að virkja á Fljótsdal og reisa
þetta álver. Eg tel þetta vera of
dýra tilraun, of miklu til fórnað, til
að reyna að hafa áhrif á byggðaþró-
unina á Austfjörðum. Það er auðvit-
að ljóst að fyrst í stað mun álverið
hleypa nýju blóði í atvinnulífið
þarna í næsta nágrenni. Um það ef-
ast enginn. Slíkt hefur áður átt sér
stað víða um land þegar næstum
hvert sjávarpláss eignaðist skut-
togara og frystihús í upphafi átt-
unda áratugarins. En hvernig verð-
ur astandið eftir nokkur ár?
I nútímaþjóðfélagi leitar fólk
þangað þar sem það fær mesta og
besta þjónustu á bestu kjörum. Slík
þjónusta er aðeins fyrir hendi þar
sem markaðurinn er nægilega stór.
Alver á Reyðarfirði getur auðvitað
alið af sér einhverja þjónustu í ljósi
margfeldisáhrifa en hún verður
aldrei mjög mikil. Til þess er of fátt
fólk á svæðinu. A öllu Austurlandi
var fjöldi íbúa 1. desember 1998
12.291. Þetta er rétt rúmlega helm-
Handklæðaofnar
Vandaðir handklæðaofnar.
Fáanlegir í ýmsum stærðum.
Lagerstærðir:
700 x 550 mm
1152x600 mm
1764x600 mm
ingur af íbúum Kópa-
vogs. Munurinn á því
landrými sem þessir
12.291 íbúar Austur-
lands dreifast um og
svo því landrými sem
hinir rúmlega 20.000
íbúar Kópavogs
dreifast um segir í
raun allt um vanda
Austfirðinga. Þetta er í
raun ekki aðeins vandi
Austfirðinga heldm-
allrar landsbyggðar-
innar, þ.e. alltof marg-
ir litlir staðir og dreifð-
ir og þess vegna ein-
hæft atvinnulíf. Fjöl-
breytt atvinnulíf þrífst
aðeins þar sem nægilega stór
markaður er fyrir hendi.
Eitt af stefnumálum stjórnvalda í
byggðamálum hefur verið að tengja
saman byggðir með nýjum og betri
vegum og reyna að mynda samfellt
þjónustu- og atvinnusvæði þar sem
möguleikar eru fyrir hendi, þannig
að stór byggðakjarni geti orðið til.
Mjög víða eru samt staðirnir það
fámennir og það langt á milli þeirra
að bættar samgöngur hafa ekki
orðið til þess að stór byggðakjarni
myndist. Betri vegasamgöngur
virðast helst stækka áhrifasvæði
Reykjavíkur og nágrennis. Sumt
fólk getur jafnvel ekki hugsað sér
að sækja vinnu til næsta bæjar þótt
stutt sé á milli og samgöngukerfi
gott eins og fram kom í sjónvarps-
viðtali við starfsfólk hjá Sæunni
Axels á Ólafsfirði. En getur þá stór
byggðakjarni með tilheyrandi stór-
um markaði ekki orðið til á Aust-
fjörðum? Það er hugsanlegt, ef
Austfirðingar geta komið sér sam-
an um það hvar byggja eigi upp
slíkan stóran stað. Ætti hann að
vera Egilsstaðir og nágrenni eða
Höfn í Hornafirði, en báðir þessir
staðir eru vaxandi, eða einhver
annar staður? Þetta skiptir máli
þegar velja ætti ýmissi opinberri
þjónustu fyrir svæðið stað. Til
glöggvunar má benda á, að á síð-
ustu 10 árum (1988-1998) hefur
íbúum Austurlands fækkað um 876
eða 6,7%. A sama tíma hefur íbúa-
fjöldi á Egilsstöðum aukist um
14%, úr 1.380 í 1.573, og á Höfn um
13%, úr 1,590 í 1.796. Það er þvi
GÓLFEFNABÚÐIN
Mikið urval
fallegra flísa
Borgartún 33 • RVK
Laufásgata 9 • AK
Atvinnulíf
Fjölbreytt atvinnulíf
þrífst aðeins þar,
segir Ragnar
Thorarensen, sem
nægilega stór markað-
ur er fyrir hendi.
ekki víst að Austfirðingar eigi við
einhvern byggðavanda að etja held-
ur byggðaþróun sem er þeim ekki
öllum að skapi, þ.e.a.s. fækkun hjá
sumum stöðum og fjölgun hjá öðr-
um, þótt í heildina fækki á öllu
svæðinu. Enginn vill missa neitt hjá
sér.
A málþingi um byggðaþróun í
landinu sem haldið var á vegum
Háskóla Islands síðastliðið vor kom
m.a. fram í máli Trausta Valssonar
skipulagsfræðings að við búum við
byggðamynstur sem varð til á síð-
ustu öld. Vonlaust væri að reyna að
halda í slíkt byggðamynstur þar
sem forsendumar fyrir því væru
löngu brostnar. Byggðamynstur
væri hreyfanlegt rétt eins og íbú-
arnir. Byggð rís og þenst út ef
ákveðnar forsendur eru fyrir hendi
og hún dregst saman og jafnvel fer
í eyði að sama skapi ef aðstæður
breytast. Mikil fólksfækkun í sjáv-
arplássum og sveitum landsins er
því eðlileg þróun miðað við breytta
atvinnuhætti. Bæir sem byggja að
einhverju eða verulegu leyti á þjón-
ustu við sveitir í kring hafa síðustu
áratugi stækkað og dafnað. Má í
þessu samhengi benda á Selfoss,
Sauðárkrók, Egilsstaði og Höfn í
Hornafirði svo einhverjir séu
nefndir. Sumir þessara bæja hafa
einnig verið útgerðarbæir en styrkt
stöðu sína vegna þess að þeir hafa
átt sér bakland í sveitunum í kring
sem þeir hafa þjónustað. Þar hefur
því verið fjölbreyttara atvinnulíf og
meiri þjónusta en í þeim bæjum
sem byggt hafa afkomu sína nær
einvörðungu á sjávarútvegi.
Ég vil ekki taka undir með þeim
sem vilja virkjunina og álverið og
segja að án þess geti Austurland
orðið Strandir 21. aldarinnar. Aust-
urland á auðvitað bjartari framtíð
fyrir sér en það. í mínum huga er
sú framtíð fólgin í meiri menntun
og frumkvæði unga fólksins. Það
eru ýmsir möguleikar fyrir hendi
og ferðaþjónustan er einn af mörg-
um. Virkjun og álver leysa ekki
vanda Austfirðinga ef fólkið sjálft
glatar trúnni á eigin getu til þess að
aðlagast breyttum tímum og upp-
hugsa nýja möguleika. Það er
kannski búið að finna upp hjólið en
það er margt annað sem á eftir að
finna upp.
Höfundur er landfræðingur.
DÖMU-, BARNA- OG HERRAFATNAÐUR
ÁRMÚLA 23
GERIÐ FRÁBÆR KAUP
Á ALLA FJÖLSKYLDUNA
OPIÐ
Ragnar
Thorarensen
T€nGI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Símí: 564 1088 • Fax: 564 1089
FIM21.0KT. KL. 12-18
FÖS 22. OKT. KL.12-18
LAU 23. OKT. KL. 10-17
SUN 24. OKT. KL. 12-17
MÁN 25. OKT. KL. 12-18
ÞRI 26. OKT. KL. 12-18
MIO 27. OKT. KL. 12-18
FIM 28. OKT. KL. 12-18
FÖS 29. OKT. KL. 12-18
l_AU 30. OKT. KL. IO-17
SUN31.0KT. KL. 12-17
MÁN 1. NÓV. KL. 12-18
VÖNDUÐ VARA
- GÓÐ VÖRUMERKI
Fást í byggingavöruverslunum um land allt