Morgunblaðið - 21.10.1999, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 21.10.1999, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 51 að líta alltaf vel út og þó að líkaminn væri þrotinn af kröftum héldust and- legir kraftar hennar óskertir. Afram fylgdist hún grannt með öllum sínum afkomendum og vissi jafnframt mætavel af öllu því sem gerðist í um- heiminum. Síðasta æviárið dvaldi hún amma á dvalarheimilinu Höfða hér á Akranesi þar sem hún naut frábærr- ar umönnunnar. Nú þegar ævi ömmu okkar er á enda er okkur efst í huga þakklæti fyrir allt það góða sem hún kenndi okkur og alla hlýjuna sem hún sýndi okkur barnabömunum og bömum okkar. Lífi ömmu hér á þessari jörð er lokið en minningin um hana mun lifa um ókomin ár. Ragnheiður, Pálína og Ásgeir Ásgeirsbörn. Elsku langamma mín. Það er skrýtið að hugsa til þess að sjá þig aldrei aftur en ég hugsa að þér líði vel núna. Þú varst orðin gömul og áttir erfítt með að tala og ganga en þegar ég kom í heimsókn til þín þá fann ég hvað þú varst glöð. Það var notalegt að koma til þín og ég fékk alltaf diet-kók og konfekt. Eg man hvað þú varst dugleg að prjóna, hekla og sauma út og ég man líka að þú prjónaðir fullt af ullarsokk- um handa mér og hálfgerðum inni- skóm handa afa Geira. Þegar mamma sagði Frey litla bróður mínum að þú værir dáin sagði hann: „Nú er amma Pála í Nangijala qg þar geta allir talað og hlaupið.“ Eg er viss um að það er rétt hjá hon- um og ég veit að afi Gumm bíður þar spariklæddur eftir þér. Eg mun sakna þín mikið. Þín Ásgerður. Það var mildan, Ijúfan júnídag í sumar að við hjónin keyrðum Hval- fjarðargöngin í fyrsta sinn. Það var ótrúlegt að upplifa þetta mikla mann- virki. I göngunum sem virtust enda- laus, birtust mér ótal myndir liðinna ára. Akranes. Já, Akranes hefur alltaf átt stóran sess í hjarta mínu vegna fjölskyldunnar sem bjó í hús- inu Jaðarsbraut númer 9. í mínum huga var fjölskyldan á þeim bæ ekkert venjuleg fjölskylda. Þar bjó Guðmundur föðurbróðir minn og hans góða kona, hún Pálína. Húsið virtist fullt af gleði og galsa sem fylgdi strákunum þeirra fjórum og Gerði einkadóttur þeirra. Það var ævintýri fyrir mig sem var nánast alin upp sem einbimi, að kom- ast í frændsystkinaskarann á Jaðars- brautinni. Hvað mér fannst gaman - hvað frændur mínir gátu verið íyndn- ir og góðir við mig. Ævintýrin voru ekki bara innandyra, heldur lokkaði Langisandur okkur krakkana ógur- lega. Þar fannst mér við vera í fram- andi landi, með þessum makalaust hvíta sandi og endalausa sólskini. Heimilinu stýrði falleg kona - hún Pálína, konan hans Guðmundar frænda, Pálína sem við kveðjum í dag. Eg sé hana fyrir mér - glæsi- lega með sitt fallega ljósa hár og him- inþlá augun, full af kímni og elsku. Þegar ég hugsa til þessara ára bernskunnar finnst mér eins og Pá- lína hafi alltaf verið með stóra, skín- andi hvíta svuntu, eitthvað að rétta fram úr lúgunni milli eldhússins og borðstofunnar á Jaðarsbrautinni. Þessi lúga hafði mikið aðdráttarafl, það var svo spennandi að fylgjast með eldhússtörfunum í gegnum hana og sjá hvaða góðgæti kæmi svo í Ijós. Við endann á stóru borðstofuborði sat húsbóndinn, Guðmundur frændi minn, glaður og geislandi, ánægður með barnahópinn sinn og stóru ást- ina sína, hana Pálínu, rétt innan seil- ingar. Það er fræg saga í fóðurfjöl- skyldunni minni, sagan um Guðmund frænda, þá nýtrúlofaðan ungan bóndason í Miðfirðinum. Það var sólbjartur sumardagur og Guðmundur lá makingalega í brekkunni fyrir neðan Núpsdals- tungu með stóra ljósmynd af unnustu sinni. Hann hélt myndinni hátt, þannig að hún bar við himin og lofaði Guð fyrir þennan „grip“ - konuefnið hans. Myndin var auðvitað af Pálínu Þorsteinsdóttur, eiginkonu hans og lífsfórunaut. Eg trúi því að ástin þeirra hafí vel endurspeglast í samheldninni og ást- úðinni sem ríkti alla tíð í þessari fal- legu, öflugu fjölskyldu á Jaðars- brautinni. Þar var ekkert kynslóðabil - Pá- lína og Guðmundur voru miðja og kjarni bama sinna og bamabarna alla tíð. Þau voru börnunum sínum ekki bara uppalendur, heldur líka þeiira bestu vinir. A Jaðarsbrautinni kysstist fólk og faðmaðist af hjartans lyst. Allir fengu að finna kærleikann og ástina sem þar ríkti. Pálína var ótrúlega falleg sumardaginn í júní þegar ég hitti hana síðast. I borðsalnum í Höfða var auðvelt að koma auga á Pálínu. Ljósa hárið hennar lýsti leiðina að borðinu henn- ar. Þar sat Pálína, glæsileg sem fyrr, þó „Elli kerling“ hafi auðvitað náð að setja sitt mark á hana. Eg kveð Pálínu Þorsteinsdóttur, húsmóðurina á Jaðarsbrautinni, með hjartans þökk fyrir allar góðu, ógleymanlegu stundirnar sem hún gaf mér og mínum. Nú sé ég Pálínu fyrir mér á Langasandi eilífðarlandsins og ég sé Guðmund föðurbróður minn, þar sem hann gengur fagnandi á móti henni í hvítum sandi og sólargeislar umvefja þau bæði tvö. Helga Mattína Bjömsdóttir, Grímsey. Pálína Þorsteinsdóttir er ein af þeim manneskjum sem mér hefur þótt vænst um að kynnast. Hún sam- einaði alla þá kosti sem best mega prýða góða konu. Strax við fyrsta augnatillit sendi hún frá sér hlýja strauma góðvildar og allar götur síð- an fannst mér eins og hún vildi allt fyrir mig gera. Ég gleymi aldrei þessum fallegu augum sem sáu allt og skildu allt. Það var eins og hún gæti með augnaráðinu einu saman lesið manns leyndustu hugsanir. En stundum horfði hún líka dulúðug og dreymandi út yfir flóann og þá eins og hún væri ekki af þessum heimi. Þótt ekki hafi alltaf farið mikið fyr- ir henni í hópi fyrirferðarmikilla barna og bónda síns, sem var höfð- ingi heim að sækja, duldist engum að Pálína var gáfuð og sérlega geðug kona, sem lagði allt í sölurnar fyrir þá sem henni stóðu næstir. Þannig fannst mér eins og hún væri reiðubú- in að ganga mér í móðurstað ef svo bæri undir. Og það var gott að vita af henni í nálægð sinni. Innileg snerting handarinnar af og til sagði allt sem segja þurfti. Hjartað var hlýtt. Að Pálínu stóðu styrkir austfirskir stofnar. Hún ólst upp á menningar- heimili og allt sitt líf lagði hún sig fram um að mennta og efla sín fimm dugmiklu börn og síðar öll barna- börnin sem nutu vel umhyggju henn- ar. Pálína var vel lesin, fjölfróð og vitur. Það var sama hvar gripið var niður, bókmenntir, ljóð, þjóðleg fræði, uppeldismál og trúarbrögð, alls staðar var hún jafn vel heima. Þess vegna var gaman að eiga við hana orðræður, ekki síður en að horfa með henni í þögn uppí himin- blámann. Þá reikaði hugurinn oftar en ekki til fjallanna og fegurðar heimaslóðanna á Stöðvarfirði. Það var oft mikið um að vera á Jaðarsbrautinni á Akranesi, þar sem þau Pálína og Guðmundur Björnsson höfðu búið sér fallegt heimili. Snyrti- mennska og höfðingsskapur var þar í fyrirrúmi. En þegar boðið var til samkomu var það yfirleitt svo að hús- bóndinn, synirnir og aðrir viðstaddir spekingar voru frekir til orðsins, enda ætluðu þeir flestir að frelsa heiminn. Pálína hlustaði á allt þetta fánýta hjal af umburðarlyndi. Svo ég vitni til orða vinar míns Gunnars Dal frá því í sumar um grasið: „Grasið er mesti taó-spekingur lífríkis jarðar. Með mýktinni sigrar það hið harða, með smæð sinni sigrar það hið sterka, með veikleika sínum og und- anlátssemi sigrar það Hina sterku." Auðvitað var frú Pálína sigurvegar- inn í öllum þessum kappræðum með því að segja ekki mikið, en brosa því meir út í annað munnvikið. Hún hafði hlutverki að gegna sem hún sinnti af alúð og hlýtur nú að launum frið og íognuð hjá frelsara mannsins. Henn- ar er Guðs ríki. Far þú í friði Pálína Þorsteinsdóttir. Baldur Óskarsson. • Fleirí minniugargreinar uni Pálínu Þorsteinsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ÓSKAR BENEDIKT PÉTURSSON + Óskar Benedikt Pétursson, gnll- smiður, fæddist í Reykjavík 13. mars 1909. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 10. október siðastliðinn. For- eldrar hans voru Pétur Gunnarsson frá Hundadal í Mið- dölum, f. 16. desem- ber 1882, d. 5. apríl 1972, og Sigríður Bjarnadóttir frá Ytri-Njarðvík, f. 15. september 1868, d. 30. september 1967. Systkini Óskars voru Ásta Bjarney Pét- ursdóttir, f. 18. maí 1910, d. 24 ágúst 1939, og Ingvi Magnús Pétursson f. 23. ágúst 1912, d. 1977. Hinn 11. október 1941 kvænt- ist Óskar Ásdísi Magnúsdóttur og bjuggu þau á Karlagötu 15 alla tíð. Ásdis var fædd á Mið- húsum i Biskupstungum hinn 10. september 1915, hún lést í Reykjavík hinn 30. júní 1996. Foreldrar hennar voru Magnús Gislason frá Efstadal í Laugar- dal, f. 18. ágúst 1872, d. 1943, og Guðrún Brynjólfsdóttir frá Mið- húsum, f. 20. ágúst 1886, d. 1976. Dætur Ásdísar og Óskars eru: 1) Ásta B., f. 24. ágúst 1947, Elsku afi, mikið á ég eftir að sakna þín og heimilisins sem þú og amma byggðuð ykkur á Karlagötu 15. Það verður einkennilegt að í framtíðinni verður það ekki til, heldur fallegur draumur, yfii-fullur af minningum um þig og ömmu. Ég man svo vel eftir verkstæð- inu þínu í kjallaranum og þeim stundum sem ég eyddi þar með þér. Aldrei var ég rekin upp fyrir að trufla þig, heldur léstu mig fá silfurbút til að búa eitthvað til úr. Skemmtilegast þótti mér að valsa bútinn fram og til baka í stóra handsnúna valsinum eða sitja við skrifborðið og teikna myndir og þykjast fylla út eyðublöð fyrir næsta kúnna. Ég gat líka staðið tímunum saman og horft á þig búa til litlu kúlurnar og snúa upp á vír- inn svo úr urðu allavega krúsidúll- ur, lemja með litla hamrinum mörg pínulítil högg og úr þessu komu síðan listavelgerðir víravirkisskart- gripir. Hvemig er hægt að minnast þín án þess að nefna sundið, sem var svo stór þáttur í þínu lífi? En á hverjum degi fórst þú í sund frá því þú varst ungur maður og gekkst í Sjálfsbjörgu. Þetta var hluti af þín- um lífsstíl. Líkaminn var musteri sem átti að rækta og hugsa vel um. Hreyfing, hollur matur og sólböð var það besta sem hægt var að gera að þínu mati. Oft fékk ég að fljóta með í sund, að ógleymdum öllum ferðunum í Heiðmörk og Bollann á góðum sumardögum. Þá fórum við alltaf í göngutúra með kíki og tók- um nokkrar öndunaræfingar eftir Muller. Mikið óskaplega hafðir þú gaman af því að ferðast um landið, og margar urðu líka ferðimar sem við fórum til Akureyrar, í Borgarfjörð, Vaglaskóg, Skaftafell og svo mætti lengi telja. Að ferðast var það skemmtilegasta sem þú gerðir. Alltaf var nú stutt í prakkarann í þér og gleymi ég aldrei þegar þú hengdir klemmu í ömmu og lést hana ganga með hana um allan bæ- inn, og þú sást líka allar spaugilegu hliðamar í lífinu. Þú tókst alltaf upp hanskann fyrir litla manninn og máttir aldrei sjá neinn níðast á minni máttar. Að safna auði og pen- ingum var aldrei þitt takmark í líf- inu, þér fannst því ætti að skipta jafnt mili allra. Elsku afi, nú kveð ég þig með söknuði en ég veit að þú ert kominn til hennar ömmu. En hún var ástin í þínu lífi og því veit ég að þú ert gift Þórði Ág. Hen- rikssyni, f. 27. júní 1942. Börn þeirra eru Linda Björk, f. 4. mars 1968, gift Herði Magnússyni f. 21. febrúar 1965; og Henrik Óskar, f. 19. júlí 1969, kvæntur Elínu Hlíf Helga- dóttur, f. 14. nóvem- ber 1969. 2) Sigrið- ur Ósk, f. 22. febrú- ar 1952, gift Snorra Jóhannessyni, f. 8. febrúar 1952, d. 5. október 1994. Synir þeirra eru Jóhann Davíð, f. 9. júní 1971, unnusta hans er Val- dís Ólafsdóttir, f. 9. september 1976; og Ingvi Pétur, f. 8. mars 1977, sambýiiskona hans er Ás- dís Erla Jónsdóttir, f. 7 septem- ber 1978. Óskar nam gullsmíðar hjá Guð- laugi Magnússyni og starfaði hjá honum við iðnina í nokkur ár eftir að hann lauk námi. Síð- ar starfrækti Óskar sitt eigið verkstæði í kjallaranum á heimili sínu, á Karlagötu 15 í Reykjavík, til starfsloka. Helstu áhugamál Óskars voru sund og útivist. Hann fór daglega í sund fram á síðasta dag. Útför Óskars fór fram í kyrr- þey að hans eigin ósk. kominn á þinn stað. Vertu blessaður afi, vertu blessaður afinn minn. Þín afastelpa, Linda Björk. Óskar B. Pétursson mágur minn er látinn, eftir langa og farsæla ævi. Óskar rak gullsmíðaverkstæði í mörg ár, þar til hann hætti fyrir aldurs sakir. Hann var sérlega fær á fíngerða hluti, svo sem víravirki, og allt var handunnið. Ég get ekki minnst Óskars án þess að geta systur minnar, Ásdís- ar, sem lést 30. júní 1996. Þessi hjón voru mjög samstiga. Þau voru nátt- úruunnendur og höfðu yndi af að ferðast, þótt vegir og farartæki væru ekki eins fullkomin og nú til dags. Margar tjaldferðirnar fórum við með þeim og drengjunum okkar ungum að árum og síðari ár í styttri ferðir um helgai-. Þau voru gestrisin og komu margir við á þeirra hlýlega heimili á Karlagötu 15. Þau voru með af- brigðum ræktai-söm og hélt Óskar því áfram eftir hennar dag. Hann kom í öll stórafmæli hjá okkur systkinunum, sem öll höldum þétt saman. Óskar var lánsamur maður. Hann gat stundað sitt aðaláhugamál, sem var sund, og daglega fór hann í sund, þótt níræður væri, og hélt fullri reisn fram á síðasta dag. En Óskar stóð ekki einn. Hann átti dætur sínar tvær, Ástu og Siggu, og þeirra fjölskyldur, sem umvöfðu hann og voru bans stoð í einu og öllu. Síðasta ferð okkar Óskars var í sumar, er við fórum að skoða Bláa lónið í yndislegu veðri. En ekkert varir að eilífu og nú er komið að leiðarlokum og vil ég þakka fyrir allar góðu stundimar. Ég bið guð að blessa alla hans ástvini. í guðs friði, Hulda Magnúsdóttir. Mánudaginn 18. október kvödd- um við kæran vin, Óskar B. Péturs- son gullsmið, Karlagötu 15 í Reykjavík. í mínu hjarta er hann mér nákominn ættingi. Þó er hann ekkert skyldur mér. Hann var mað- urinn hennar Dísu, móðursystur minnar, en hún lést fyrir fáeinum árum. Nú eru þau saman á ný, Ósk- ar og Dísa, sem í mínum huga hafa alltaf verið sem einn maður. Þetta sterka samband sem dauðinn einn fær sundur skilið. Mér er það mjög minnisstætt þegar ég heimsótti Öskar eftir lát Dísu á Karlagötuna að hann fór að sýna mér myndir af henni ungri og segja mé frá þeirra fyrstu kynnum á tombólu í Reykjavík fyrir stríð. Þá skynjaði ég þessa einu sönnu ást sem alltaf verður ung til endaloka. Óskar var af þessari kynslóð Reykvíkinga sem lifði hvað mestar breytingarnar og mundi tímana tvenna þegar Reykjavík var lítill bær þar sem flestir þekktust. Hann kunni skil á mönnum og málefnum frá þessum tímum þegar menn klæddu sig upp og gengu með hatta og máttu vera að því að fara í heim- sóknir og hafa hugsjónir. Hann hafði eldbeitar skoðanir á flestum hlutum og lá ekki á þeim. Hann var félagslyndur og glaðlyndur. Á Karlagötu 15 byggðu Óskar og Dísa sér einstaklega hlýlegt og fal- legt heimili. Það má segja að Oskar hafi lifað borgaralegu lífi. Hann lærði gullsmíði og rak um árabil gullsmíðaverkstæði og var virtur gullsmiður. Hann þótti með þeim bestu á landinu í víravirki og ávann sér traust og virðingu í sinni grein. Fjölskyldan var honum afar kær og skipaði ávallt fyrsta sæti í hans huga. Hann eignaðist ungur að ár- um bifreið en það var ekki algengt á þeim tíma og ég man að mér þótti mikið til þess koma. Óskar og Dísa nutu þess að ferðast um landið og á hverju sumri fóru þau í sumarfrí. Þau unnu landinu sínu og heimsóttu oft sömu staðina aftur og aftur og áttu sínar lautir og bolla þar sem var tekið upp nesti og notið stund- arinnar. Þau lifðu hamingjuríku lífi í faðmi fjölskyldunnar. Óskar var fastagestur í sundlaug- unum áratugum saman, fyrst í gömlu laugunum og síðan í þeim nýju, og var gerður heiðursfélagi í sundlauginni í Laugardal. í sund- laugunum sótti hann sér heilsubót á sál og líkama. Óskar var einstak- lega heilbrigður í hugsun og æðru- laus þrátt fyrir að vera töluvert fatl- aður, en hann hafði orðið fyrir slysi ungur drengur og er það aðdáunar- vert hvað hann bar það vel og tók lífinu eins og það kom fyrir. Það var oft glatt á hjalla þegar fjölskyldan kom saman, en ðskar og Dísa voru einstaklega ræktar- söm og áttu stóran þátt í samstöðu fjölskyldunnar og okkur systkina- börnunum sýndu þau einstaka um- hyggju. Öll afmælin og fermingar, alltaf voru Óskar og Dísa komin og það eru ófáir krossarnir og hring- amir sem þau komu með færandi hendi, seinna giftingar og síðan skírn okkar barna, alltaf sama ræktarsemin og góðvildin. Fyrir þetta er ég afar þakklát og mun = geyma í minningu minni. Við kveðjum nú gamla tímann, heimilið á Karlagötunni, sem staðið hefur svo til óbreytt í meira en hálfa öld, fastur punktur í síbreytilegri tilveru er horfinn, jólakortin verða ekki stíluð lengur þangað, kveðju- stundin er komin. Og nú þegar haustlaufin falla, kveð ég þig með þakklæti fyrir allt og læt fylgja með síðasta erindið úr kvæði Jónasar Hallgrímssonar, Ferðalok. Það á svo vel við ykkur Dísu. Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. Ég sendi mínar einlægar samúð- arkveðjur til ykkar, Ásta mín og Sigga, og til fjölskyldna ykkar. Guðrún Axelsdóttir (Lillý). H H H H H H Erfisdrykkjur P E R L A N H Sími 562 0200 ÍÍTmxm r 11 r rxx H ». H H H
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.