Morgunblaðið - 21.10.1999, Side 60
60 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Sigurveraramir í íslandsmótinu í einmenningi ásamt fyrrverandi for-
seta Bridssambandsins. Talið frá vinstri: Kristján Kristjánsson, en hann
afhenti verðlaunin, Sigurbjöm Haraldsson Islandsmeistari, Stefán
Garðarsson og Runólfur Jónsson.
Sigurbjörn Haraids-
son Islandsmeistari
í einmenningi
BRIDS Hróðmar Sigurbjörnss. - Gunnl. Kristjánss. 573
-------------------- Jón Alfreðsson - Eiríkur Jónsson 563
B r i d s h ö 11 i n B-riðill
ÍSLANDSMÓTIÐ í
EINMENNINGI 1999
84 þátttakendur - 15.-16. október
SIGURBJÖRN Haraldsson frá
Bridsfélagi Akureyrar sigraði með
nokkrum yfirburðum í Islandsmót-
inu í einmenningi sem fram fór um
síðustu helgi. Sigurbjörn hlaut sam-
tals 2328 stig en meðalárangurinn
var 1980 stig.
Mótið hófst á föstudagskvöld og
var spilað í sjö tólf manna riðlum.
Eggert Bergsson leiddi mótið eftir
fyrsta hlutann en strax í fyrstu lot-
unni á laugardag fékk Sigurbjörn
118 stig af 120 mögulegum og eftir
það héldu honum engin bönd. Annar
andstæðinga Sigurbjörns í þessari
lotu var Jón Stefánsson sem ekki var
meðal efstu manna fyrr en í síðustu
lotunni, en þá skoraði hann 853 stig
þar sem meðalskor er 660. Skor Jóns
er tæplega 65% og vantaði hann að-
eins 10 stig til að ná öðru sæti móts-
ins. Fyrir þriðju lotuna, en mótið var
spilað í þremur lotum, hafði Jón ver-
ið í 44.-45. sæti.
Fleiri spilarar skoruðu grimmt í
lokaumferðinni. Sigtryggur Sigurðs-
son skoraði mjög í lokalotunni eða
831 stig en það var langt á toppinn
því hann var í 51. sæti fyrir síðustu
lotuna.
Lokastaða efstu manna:
Sigurbjöm Haraldsson 2328
Stefán Garðarsson 2166
Runólfur Jónsson 2165
Jón Stefánsson 2157
Sigfus Þórðarson 2152
Hrólfur Hjaltason 2150
Gísli Haíliðason 2140
Sigríður Hrönn Elíasd. 2120
Sigtryggur Sigurðsson 2119
Sverrir Armannsson 2112
Stefán Garðarsson og Runólfur
Jónsson spiluðu báðir í A-riðlinum í
lokaumferðinni en 12 efstu menn
fyrir síðustu umferð spiluðu í þeim
riðli. Stefáni gekk afleitlega í lokalot-
unni en Runólfi vel, en góð staða
Stefáns fyrir lokaumferðina gaf hon-
um silfrið.
Sveinn Rúnar Eiríksson sá um
keppnisstjórn og útreikninga.
Stefaía Skarphéðinsdóttir var móts-
stjóri en Kristján Kristjánsson,
fyrrverandi forseti Bridssambands-
ins, afhenti verðlaunin í mótslok.
Sjö kvölda
hausttvímenningnr BR
Annað kvöldið af sjö var spilað
með Hipp-hopp tvímenningi. 48 pör
spila í 2 Mitchell riðlum. Meðalskor
kvöldsins var 459 og efstu pör voru:
A-riðill
NS
BjömTheodórsson7PáljBergsson 517
Rúnar Einarsson - ísak Öm Sigurðsson 509
Hafþór Kristjánss. - Andrés Asgeirss. 507
AV
Jóhann Stefánsson - Birkir Jónsson 633
NS
Helgi Sigurðsson - Helgi Jónsson 575
Guðm. Þ. Gunnarsson - Runólfur Jónsson 550
Jóhanna Siguijónsdóttir - Una Amadóttir 549
AV
DröfnGuðmundsd.-AsgeirAsbjömss. 503
Guðrún Jóhannesd. - Bryndís Þorsteinsd. 496
Efstu pör eftir 2 kvöld eru:
Oddur Hjaltason - Hrólfúr Hjaltason 1136
Jóhann Stefánsson - Birkir Jónsson 1089
HelgiSigurðsson-Helgi Jónsson 1061
DröfnGuðmundsd.-ÁsgeirÁsbjömss. 1044
Garðar Garðarsson - Óli Þór Kjartansson 1029
Hróðmar Sigurbj.ss. - Gunnl. Kristjánss. 1014
Miðvikudaginn 13. október var
spilaður eins kvölds tölvureiknaður
Mitchell tvímenningur með forgefn-
um spilum. 20 pör spiluðu 9 umferðir
með 3 spilum á milli para. Meðalskor
var 216 og efstu pör voru:
NS
Frímann Stefánss. - Daníel M. Sigurðss. 281
Guðrún Jóhannesd. - Sævin Bjarnason 249
Haraldur Ingas. - Jón V. Jónmundss. 233
AV
Jóhannes Guðmannss. - Unnar A Guðm.ss. 246
Friðjón Þórhallsson - Hrólfur Hjaltason 244
Sigtryggur Jónss. - Guðmundur Ágústss. 229
14 pör tóku þátt í Verðlaunapott-
inum. Guðrún og Sævin fengu 1.
Verðlaun, 4.500 kr og Friðjón og
Hrólfur fengu 2. Verðlaun, 2.500 kr.
BR er með eins kvölds tvímenn-
inga í allan vetur á miðvikudags- og
fostudagskvöldum. Spilaðir eru
Mitchell og Monrad Barómeter tví-
menningar til skiptis. Spilamennska
byrjar 19:30 á miðvikudögum en
19:00 á fostudögum. Á miðvikudög-
um gefst pörum kostur á að taka þátt
I Verðiaunapotti og á föstudögum er
Miðnætursveitakeppni strax eftir að
tvímenningnum lýkur. Spilarar sem
eru 20 ára og yngri spila frítt á mið-
vikudögum og föstudögum.
Reykjavíkurmótið
í tvímenningi 1999
Reykjavíkurmótið í tvímenningi
1999 fer fram laugardaginn 23. októ-
ber. Spilaður verður Barómeter eða
Monrad Barómeter eftir því sem
þátttaka leyfir. Spilamennska byrjar
kl. 11:00 og er reiknað með að móts-
iok verði í kringum kvöldmatarleyt-
ið. Efsta sætið gefur rétt til að spila
í úrslitum í Islandsmótinu í tvímenn-
ingi 1999. Þátttökugjald er 4000 kr.
á par. Tekið er við skráningu hjá
BSÍ, sími 587-9360.
Bridgedeild FEBK í Gullsmára
BRIDGEDEILD FEBK í Gull-
smára spilaði tvímenning mánudag-
inn 18. október. Fjórtán pör mættu
til leiks. Stjórnandi var Hannes Al-
fonsson. Efst urðu:
NS
Amdís Magnúsd. - Karl Gunnarsson 146
Guðmundur Pálsson - Sigurþór Halldórss. 135
Þorgerður Sigurgeirsd. - Stef. Friðbjamars. 130
AV
Dóra Friðleifsd. - Guðjón Ottósson 156
Sigríður Ingólfsd. - Sigurður Bjömsson 154
Haldór Jónsson - Þórhallur K. Amason 150
I DAG
VELVAKAMD
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Góð þjónusta
hjá Félagi
eldri borgara
ÉG efast um að aldrað fólk
viti almennt hve frábæra
þjónustu það getur fengið
hjá Félagi eldri brogara
þurfi það á ráðleggingum
að halda við starfslok.
Ég er að verða 67 ára og
á því rétt á ellilífeyri en
get fengið að vinna til sjö-
tugs. Nú er úr vöndu að
ráða og var ég í mikium
vafa um hvað ég ætti að
gera.
Þá benti vinkona mín
mér á að ég skyldi fara til
Félags eldri borgara því
þar skiptust 2 konur á að
veita upplýsingar um
tryggingamál, Margrét
Sigurðardóttir og Mar-
grét Thoroddsen. Ég fór
þangað í viðtal og fékk
þær bestu viðtökur sem
ég get hugsað mér. Var
tekið á móti mér af alúð
og reiknaðir út alls konar
möguleikar. Fór ég þaðan
alsæl og þurfti jafnvel
ekkert að greiða fyrir
þjónustuna, þar sem ég er
félagi í Félagi eldri borg-
ara.
Fanney.
Myndir eftir Sölva
Helgason
MYNDIR eftir Sölva
Helgason eru til hjá mörg-
um einstaklingum víða um
land. Af skiljanlegum
ástæðum er ekki jafnauð-
velt að vita hvar þær eru
niðurkomnar og ef um op-
inbera aðila væri að ræpa
(t.d. Þjóðminjasafn Is-
lands). Þetta er tilkynning
til þeirra einkaaðila sem
eiga myndverk eftir Sölva
Helgason í fórum sínum.
Undirritaður er væntan-
legur útgefandi bókar um
myndlist Sölva og væri
mjög þakklátur fyrir að fá
upplýsingar um myndir
hans, þær sem eru í einka-
eign. Bið ég þá sem málið
er skylt vinsamlega að
hafa samband við Ólaf
Jónsson, pósthólf 7077,127
Reykjavík eða í síma
895 9852. Beðið er um
nafn, heimilisfang og síma-
númer viðkomandi og upp-
lýsingar um myndverkið
(helst ljósrit af því).
Þakkir fyrir greinar
ÉG vil þakka Morgunblað-
inu fyrir birtingu á grein-
um um samkynhneigð sem
birst hafa undanfarnar
vikur. Sérstaklega vil ég
þakka Ragnari Fjalari fyr-
ir hans skrif í blaðið. Ég
hef fylgst með umræðunni
um samkynhneigð undan-
farnar vikur og fagna því
að komin er málefnaleg
umræða um þessi mál og
vona að hún haldi áfram.
Ég hef velt þessum málum
fyrir mér og skoðað þessi
mál enn frekar eftir um-
fjöllunina, því þar hafa
birst upplýsingar sem ég
vissi ekki um áður og
fmnst mér gott að geta les-
ið um þessi mál.
Guðmundur Ólafsson.
Tapað/fundið
GSM-sími týndist
GSM-sími týndist líklega á
Gauk á Stöng eða í mið-
bænum sl. laugardags-
kvöld. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 566 6492
eða 696 4836.
Dýrahatd
Hvíta læðu
vantar heimili
VANTAR heimili fyrir
hvíta 5 mánaða læðu vegna
ofnæmis á núverandi
heimili. Upplýsingar í síma
567 8188.
Köttur týndist
frá Háteigsvegi
BRÖNDÓTT læða, svört
og brún, merkt á eyra R
7172 týndist sunnudaginn
17. október frá Háteigs-
vegi 18. Hún er með rauða
ól og fer inn um alla
glugga og inn í allar komp-
ur, svo hún gæti verið læst
inni. Þeir sem hafa séð til
hennar vinsamlegast hafi
samband við Auði eða Ra-
kel í síma 562 0141.
Svört læða týndist
frá Hverfísgötu
SVÖRT læða, 6 mánaða,
týndist frá Hverfisgötu 39
sl. þriðjudag. Hún er
ómerkt og ólarlaus. Læðan
er inniköttur. Þeir sem
hafa orðið hennar varir
hafi samband í síma
6954220. Jón.
Á h'nuskautum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Víkverji skrifar...
NÝLEGA var tekin í notkun brú
yíir Miklubraut í Reykjavík
við Skeiðarvog. Þetta er fallegt og
þarft mannvirki. Veggjakrotarar
hafa greinilega rennt hýru auga til
brúarinnar því að þeir hafa krotað
á hana, sem er til mikillar óprýði.
Borgaryfirvöld hafa reynt að hamla
á móti því að brúin verði vettvang-
ur veggjakrotara með því að þrífa
krotið af brúnni, en þeir virðast
vera fljótir að mæta á svæðið með
úðabrúsa sína. Flestum er mikill
ami að veggjakroti, sem setur víða
leiðinlegan svip á hús og mannvirki.
Vonandi geta Reykvíkningar sam-
einast um að láta veggjakroturum
ekki líðast að skemma nýju brúna.
xxx
ARANGUR nýliða Hamars frá
Hveragerði í úrvaldsdeild
karla í körfuknattleik er í senn
glæsilegur og óvæntur. Liðið hefur
unnið alla þá fjóra leiki sem félagið
hefur leikið í deildinni og er núna í
efsta sæti. Liðið hefur lengst af
verið í annarri deild, en hefur á fá-
um árum unnið sig upp um tvær
deildir og leikur núna við bestu
körfuknattleikslið landsins. Fyrir-
fram var því spáð að liðið myndi
þurfa að heyja erfiða baráttu í vet-
ur við að halda sér í deildinni. Nú
lítur út fyrir að liðið ætli sér að
blanda sér í toppbaráttuna. Fróð-
legt verður að fylgjast með hvernig
liðinu vegnar í næstu leikjum, en
þá þarf liðið að takast á við félög
sem fyrirfram var reiknað með að
myndu berjast um toppsætin.
Hamar er reyndar ekki fyrsta
körfuknattleiksfélagið sem kemur á
óvart í úrvalsdeild karla. ísfirðing-
ar komu mjög á óvart í fyrra þegar
liðið náði mjög góðum árangri, en
liðið var þá að koma upp úr fyrstu
deild. Það er athyglisvert að af tólf
körfuknattleiksliðum sem keppa í
úrvalsdeild kemur aðeins eitt úr
Reykjavík, en það er KR. Hin fé-
lögin koma annaðhvort af Suðu-
nesjum, Hafnarfirði eða af lands-
byggðinni. Fróðlegt væri að vita
hver skýringin er á þessum slaka
árangri Reykjavíkurfélaganna.
VÍKVERJI hefur oft furðað sig á
hve lítið er um að afgreiðslufólk
beri saman undirskriftir á korta-
kvittunum við undirskriftir á
kredit- og debetkortum. Reynsla
Víkverja er sú að algengast sé að
afgreiðslufólk skili kortinu til við-
skiptavinar áður en hann er búinn
að skrifa undir kvittun til staðfest-
ingar á því að viðskiptin hafi farið
fram. Raunar er orðið algengt í
mörgum stórmörkuðum að fólk
sem vinnur á afgreiðslukössum sé
farið að stimpla inn vörur frá
næsta viðskiptavini áður en sá sem
er á undan er búinn að skrifa undir
greiðslukvittun.
Greinilegt er á öllu að stjórn-
endur verslana leggja áherslu á
við starfsfólk sitt að flýta af-
greiðslu sem mest má vera. Hætt
er við að það geti í einhverjum til-
vikum verið á kostnað öryggis í
viðskiptum. Raunar virðist Vík-
verja sem álag á starfsfólk stór-
markaða sé mjög mikið og ber-
sýnilegt að margir vinna langan
vinnudag.