Morgunblaðið - 21.10.1999, Qupperneq 61
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 61
í DAG
BRIDS
Árnað heilla
I iusjiín (iuðmundur
l'iíll Aruurson
Landsliðsmaðurinn ungi,
Sigurbjörn Haraldsson,
varð íslandsmeistari í ein-
menningi um síðustu helgi.
Hér er spil úr mótinu, þar
sem Sigurbjörn sýnir listir
sínar sem sagnhafi í fjórum
hjörtum:
Vestur gefur; AV á
hættu.
Norður
♦ 983
¥ D96532
♦ K7
♦ 102
Vestur Austur
AKD
VK7
♦ D109852
*865
A 10752
¥ 1084
♦ G4
* DG74
Suður
AÁG64
¥ ÁG
♦ Á63
+ ÁK93
pT /\ÁRA afmæli. í dag,
V/fimmtudaginn 21.
október, verður fimmtugur
Guðfinnur S. Halldórsson
bifreiðasali. Hann er stadd-
ur erlendis á afmælisdaginn
ásamt sinni heittelskuðu
Bergþóru Bertu Guðjóns-
dóttur nema.
Ljósmynd: Albert.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 11. júlí sl. í Knotten-
ried í Þýskalandi af sr. Sol-
veigu Láru Guðmundsdóttur
Guðríður Elísa Jóhanns-
dóttir og Kjartan Örn Stein-
dórsson. Heimili þeirra er í
Múnchen í Þýskalandi.
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass Pass 2 grönd
Pass 3tíglar* Pass 3hjortu
Pass 4 hjörtu Allirpass
Vestur kom út með tígul-
tíu og Sigurbjörn tók slag-
inn í blindum á kóng til að
svína hjartagosa. Vestur
drap á kónginn og spilaði
næst tígulníu yfir á gosa
austurs og ás suðurs. Eftir
að hafa tekið á hjartaás
reyndu margir sagnhafar
að komast inn í borð með
því að trompa tfgul, en þá
yfirtrompaði austur. En
Sigurbjörn „las“ tígulstöð-
una og ákvað að spila frek-
ar ÁK í laufi og trompa
þriðja laufið. Inni í borði
tók hann á hjartadrottn-
ingu og lét síðan spaðaátt-
una rúlla yfir á drottningu
vesturs.
Nú eru tíu slagir öruggir
og baráttan um ellefta slag-
inn hafm. Vestur spilaði
tígli um hæl, sem blindur
trompaði, og austur henti
spaða. Þetta var upplýsandi
og þegar Sigurbjörn tók nú
síðasta trompið varð austur
að halda eftir hæsta laufinu
og fara niður á spaðatíuna
blanka. Sigurbjörn þóttist
þá viss um að spaðamir
væru 1-1 eftir á höndum
mótherjanna og felldi
spaðakónginn stakan fyrir
aftan ásinn. Spaðagosinn
varð þannig ellefti slagur-
inn.
SKAK
Uinsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í undan-
rásariðli Evrópukeppni
skákfélaga sem fram fór í
Abufeira í Portúgal um
mánaðamótin.
Bretinn Stuart Conquest
(2.555) • sem teflir fyrir
Parísarfélagið Clichy hafði
hvítt og átti leik gegn Igor
Efimov (2.445), sem teflir
fyrir CS Surya frá Ítalíu.
22. BxfS! - Rxf6 23. Rg5+ -
Kg8 24. Dxf6 - Hf8? (Svart-
ur varð að reyna 24. - Df8)
25. He8! og svartur gafst
upp, því mátið blasir við.
Beer-Sheva frá Israel
lagði Clichy að velli í spenn-
andi úrslitaviðureign og
komst í úrslit.
Með morgunkaffinu
Ast er...
...að hafa alltaf tíma til
að tala við hana í síma.
TM Reg. U.S. P l — «B nghts rescrvod
(c) 1999 Los. ■geles Times Syndicale
HÖGNI HREKKVÍSI
LJOÐABROT
STÖKUR
21. desember 1844
Enginn grætur íslending
einan sér og dáinn.
Þegar allt er komið í kring,
kyssir torfa náinn.
Mér er þetta mátulegt,
mátti vel til haga,
hefði ég betur hana þekkt,
sem harma ég alla daga.
Lifðu sæl við glaum og glys,
gangi þér allt í haginn.
I öngum mínum erlendis
yrki ég skemmsta daginn.
Sólin heim úr suðri snýr,
sumri lofar hlýju.
Ó, að ég væri orðinn nýr
og ynni þér að nýju.
Jónas Hallgrímsson
STJÖRIVUSPA
eftir Frances Itrake
VOG
Afmælisbarn dagsins:
Þú kannt vel að meta lífsins
gæði en sérstaklega þó að
hlusta á góða tónlist með
sælkeramat á borðum.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Nú er rétti tíminn til þess að
fara í gegnum sambönd þín
við aðra. Sum mega deyja út
en önnur þarftu að styrkja.
Einbeittu þér að þeim.
Naut
(20. aprfl - 20. maí)
Vinir og vandamenn treysta á
þig sér til stuðnings. Reyndu
að hjálpa þeim eftir bestu
getu en varastu að ganga of
nærri sjálfum þér.
Tvíburar t ^
(21. maí - 20. júní) 'A A
Þú færð hverja hugmyndina á
fætur annam svo þú átt erfitt
með að henda reiður á þeim
öllum. Gefðu þér tíma tíl að
vinsa þær bestu úr.
Krabbi
(21. júnl - 22. júlí)
Fjarlægðin dregur og þig
langar til að leggjast í ferða-
lög. Kannaðu fjárhaginn og
sjáðu hvað er á þínu færi.
Annað lætur þú þig dreyma
um áfram.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þig langar til þess að deila
gleði þinni með öðrum en það
er vandi að gera það svo vel
fari. Peningar koma þessu
ekkert við.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) ©ÍL
Það hefur ekkert upp á sig að
berja höfðinu við steininn.
Reyndu að sýna lipurð og
samstarfsvilja og þá muntu
ná takmarkinu.
Vog m
(23. sept. - 22. október) &&
Þú þarft að ná tökum á tilfinn-
ingalífi þínu því það er ekki
hægt að jafnvel smæstu hlutir
komi slíku róti á það að þú
sért ekki mönnum sinnandi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Fylgdu eðlisávísun þinni jafn-
vel þótt aðrir eigi bágt með að
skilja gjörðir þínar. Þú munt
standa uppi með pálmann í
höndunum í lokin.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Það getur verið nauðsynlegt
að hafa öll smáatriðin á
hreinu en stundum er líka
nauðsynlegt að gefa sér tóm
til að virða fyrir sér heildar-
myndina.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) mB
Það er margt hægt að læra af
samferðamönnum sínum ef
maður er vel á varðbergi og
vinsar aðeins það úr sem já-
kvætt er og gott.
Vatnsberi ,
(20. janúar -18. febrúar) CíiR
Stundum getur manni orðið
það ofviða að taka þátt í lífi
vina og vandamanna. Þá er
ráðið að draga sig í hlé og
byggja sig upp til áframhald-
andi athafna.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) )W
Lífið getur verið harður hús-
bóndi en alltaf má nú finna
einhverja stund til að gleðjast
yfir þeim góðu hlutum sem
manni era gefnir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár a f þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Allir gamlir og nýir vidskiptavinir velkomnir í
MFR losun Slökunarnudd Bandvefsnudd, Djúpvefjanudd
Sjúkranudd Triggerpunktameöferö íþróttanudd
SJÁLFSDÁLEIÐSLA
EINKATÍMAR/NÁMSKEIÐ
Nániskeiðið hefst 2. nóvember
STYRKUR
fjf/
Þ»r i»í
Bamamyndatökur á
kr 5000,00
Upppantað í október
framlengt fram í nóv.
Ljósmyndastofan Mynd súni: 565 42 07
Ljósmyndastofa Kópavogs sími: 554 30 20
r
Eg er farirw að nudda í Mecca Spa
Nýbýlavegi 24-26, síma 564 1011
Sími 694 5494
Með dáleiðslu getur þú sigrast á kvíða og
ójafnvægi og aukið getu þína og jákvæða
uppbyggingu á öllum sviðum.
Leiðbeinandi: Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslufræðingur.
Eiríkur Sverrisson C.M.T.
^Boulder^School^ofJlassage^hera^^Co^JSA^^^^^jvww^simneLis/emkiirs^
Kynnum nýju
vetrartískuna
frá OROBLU í
dag kl. 14-18
20%
kynningar-
afsláttur af
öllum OROBLU
sokkabuxum
I tilefni I árs afmælis
veröum viö meö ýmis tilboð næstu daga
Komdu
og geröu
góð kaup!
b@ylEÍi<gp@
Laugavegi 46
s. 561 4465