Morgunblaðið - 21.10.1999, Side 64
64 FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Stutt
Bíótónleikar í Háskólabíói í kvöld og á laugardag
- Illa farið
með mann
eða dýr?
►REIÐIR dýraverndunarsinnar í
Kaliforníu kröfðust þess að móts-
haldarar glimukeppni milli
manns og skógarbjarnar, sem
fram fór á dögunum, yrðu kærð-
ir fyrir illa meðferð á dýrum.
j „Þetta er enn eitt dæmið um
hvernig maðurinn ætlar sér að
græða á kostnað dýranna," sagði
Ava Park forstöðumaður sam-
takanna Orange County People
for Animals.
Ekki voru þó allir á sama máli
því björninn, sem nefndur er
Dakota, fór létt með að hafa
glímukappann, Dominic Menaldi,
undir þrátt fyrir að sá síðar-
nefndi vægi rúmlega 131 kíló.
Menaldi sagði enga ástæðu til að
vorkenna birninum því hann
hefði barið sig í klessu og haft
gaman af. Ekki nóg með það
heldur hefðu áhorfendur greini-
lega haldið með birninum ef
I marka mætti hvatningarópin á
meðan á ghmunni stóð.
Sýnt þótt
allir hætti
►ÞEGAR ópera Mozarts „Cosi
fan Tutte“ verður frumsýnd í
Chile 28. október næstkomandi
getur verið að hvorki kórinn né
hljómsveitin muni vera á svæðinu.
' En þrátt fyrir þann augljósa ann-
marka segir Paz Maria Ricard for-
svarsmaður Municipal-leikhússins
í Santiago að sýningin muni verða
eins og ekkert hafi í skorist.
Meðlimir kórsins og hljómsveitar-
innar eru nú á 19. degi verkfalls
vegna óánægju með launakjör.
„Óperan verður sýnd eins og hún
er, án hljómsveitar og kórs, en al-
þjóðlegir söngvarar sem hafa verið
ráðnir munu syngja verkið við
undirleik píanóleikara.
Pele slapp með skrekkinn.
Gátu ekki
rænt átrún-
aðargoðið
►VOPNAÐIR ræningjar sem
reyndu að stela bíl í Sao Paulo í
Brasilíu hættu allsnarlega við
þegar þeir uppgötvuðu að fyrr-
verandi knattspyrnugoðið Pele
sat í aftursæti bflsins. Bfll Pele
f hafði stöðvað á rauðu ljósi í
hverfi borgarinnar þar sem vel-
megun ríkir.
Þjófarnir stukku á bflinn og
beindu byssu að bflstjóranum og
skipuðu honum að opna glugg-
ann. En þegar þeim varð litið í
aftursætið og sáu Pele urðu þeir
^. furðu lostnir, báðust afsökunar
og hlupu í burtu.
Borgarljósin
tendruð
Ungur og reyndur stjórnandi, Frank
Strobel, stýrir Sinfóníuhljómsveit Islands
í kvöld við flutning tónlistarinnar úr
Borgarljósum Chaplins og á laugardag
við flutning tónlistar úr Drengnum
og Iðjuleysingjanum. Pétur Blöndal
hitti hann eftir æfíngu.
^ Morgunblaðið/Sverrir
Frank Strobel á æfingu með Sinfóníuhljómsveit íslands í gær.
FRÓÐLEGT er að fylgjast
með Frank Strobel að störf-
um á palli hljómsveitarstjór-
ans, - inn á milli laga fer hann yfir
hvað má bæta og má heyra hljóð-
færin pískra glaðhlakkalega hvert í
sínu homi. Svo upphefja þau raust
sína og flækingurinn byrjar að
vappa um hvíta tjaldið. Blaðamaður
freistaði þess að tala við manninn
sem er vanur að tjá sig með heilli
sinfóníuhljómsveit.
Strobel er enginn nýgræðingur í
tónlist þótt hann sé aðeins 33 ára og
hefur hann einkum fengist við nú-
tímatónlist, auk leikhúss- og kvik-
myndatónlistar. Margar uppfærslur
Strobels hafa verið sýndar hjá
þýskum sjónvarpsstöðvum í beinni
útsendingu. Auk þess að starfa sem
tónlistarmaður, hefur hann með
höndum umsjón tónlistardeildar
þýska kvikmyndasafnsins í Frank-
furt og leiðbeinir við skipulagningu
kvikmyndahátíða, þar sem sýndar
eru þöglar myndir með tónlistar-
flutningi.
„I fyrsta skipti sem ég stjómaði
hljómsveit við ópem var ég átján
ára,“ segir Strobel. „Ég vissi
snemma hvert hugur minn stóð. Ég
byrjaði í píanónámi en fór að vinna
með hljómsveitarstjórum þegar ég
var 14 ára. Auðvitað verður maður
aldrei fullnuma sem hljómsveitar-
stjóri en ég hef komið víða við. Þeg-
ar ég var 16 ára setti ég upp mitt
fyrsta verk í kvikmyndatónlist og
var það fyrir tvö píanó við þöglu
stórmyndina Metropolitan. Þetta
var árið 1983 og var það flutt yfir
100 sinnum um heim allan, m.a. hér-
lendis árið 1995.“
Strobel hefur stýrt verkum við 35
þöglar kvikmyndir og mörgum upp-
tökum við nýjar kvikmyndir. Hann
var aðalstjórnandi þýsku kvik-
myndahljómsveitarinnar Babels-
berg þar til í fyrra, en það er eina
hljómsveit Vestur-Evrópu sem sér-
hæfir sig í og flytur eingöngu kvik-
myndatónlist. Nú er hann hins veg-
ar orðinn eigin húsbóndi og enn
sem áður hugfanginn af verkefnum
á borð við það sem hann stjómar í
kvöld kl. 20, tónlistinni við Borgar-
ljós Chaplins, og á laugardag kl. 17,
tónlistinni við Drenginn og Iðju-
leysingjann.
„Ég elska kvikmyndir," segir
hann. „Ég fór snemma að stunda
kvikmyndahús og Drengurinn var
fyrsta mynd sem ég horfði á. Amma
var einleikari á píanó og foreldrar
mínir unnu í kvikmyndum og ef til
vill er það þess vegna sem ég hef
alltaf verið hugfanginn af samspili
ímyndar og tónlistar, í ballett, óp-
eru og kvikmyndum. Margir skilja
ekki hlutverk og mátt tónlistar í
kvikmyndum og alla þá möguleika
sem eru fyrir hendi. Mig langaði og
langar enn að virkja þetta afl.“
Chaplin var ekki aðeins aðalleik-
ari, stjórnandi kvikmyndatöku, leik-
stjóri, framleiðandi og handritshöf-
undur mynda sinna heldur samdi
hann líka tónlistina. „Chaplin hafði
skýrar hugmyndir um hvaða ferli
tónlistin ætti að fylgja í kvikmynd-
um og byggjast tónsmíðar hans,
einkum í Di-engnum og Iðjuleysingj-
anum, á því að undirstrika það sem
fram fer á tjaldinu," segir Strobel.
„En síðar meir, t.d. í Borgarljósun-
um, þróaðist tónlistin enn frekai-,
m.a. út í að gera sögupersónurnar
skiljanlegar. Hann vissi hvað hann
vildi segja og þótt hann útsetti ekki
tónlistina sjálfur lýsti hann upp-
byggingunni og laglínunni fyrir tón-
listarmönnum sem útfærðu hana
nánar. Þessar tónsmíðar eru ekki
flóknar en gífurlega áhrifamiklar; í
því felst snilligáfa Chaplins."
Strobel segist ánægður með
hvemig til hefur tekist með Sinfón-
íuhljómsveit Islands. „Það vita allir
hversu góð sveitin er en þó kom
mér á óvart hversu afbragðs vel hún
spilar og hversu sveigjanleg hún er,
sem er afar mikilvægt í kvikmynda-
tónlist þar sem allt þarf að koma
heim og saman við atburðarásina á
hvíta tjaldinu. Á æfingum er vina-
legt og gott andrúmsloft, meðlimir
sveitarinnar vinna hratt og eru ein-
beittir. Ég segi þejtta ekki oft þar
sem ég kem, en Islendingar eiga
mjög góða sinfóníuhljómsveit."
KVIKMYNDIR/Bíóborgin frumsýnir myndina Októ
Cooper og Lauru Dern í leikstjórn Joes Johnstoi
himin eða „October Sky“ með Jake Gyllenhaal, Ch
Á vit ævin-
týranna
námumaður þar til hann leit upp til
himins einn daginn og sá inn í fram-
tíð sína. Hann ákveður ásamt þrem-
ur vinum sínum að gera ævintýraleg-
ar tilraunir gegn vilja föður síns,
harðákveðinn í að takast á við sjálfan
sig, innblásinn af geimöld, sem ný-
lega er gengin í garð.
Með aðalhlutverk í myndinni fara,
auk Jakes Gyllenhaal, Chris Cooper,
Natalie Canerday, Chris Owen og
Laura Dern, sem fer með hlutverk
kennara Homers. Leikstjóri er Joe
Johnston.
„Það gerist ekki oft en stundum
les maður sögu sem hefur sterk til-
finningaleg áhrif á mann og þetta er
ein af þeim,“ er haft eftir honum.
Þekktustu myndir Johnstons eru
„Jumanji“ og „The Rocketeer". Sag-
an birtist fyrst sem grein í Smith-
sonian-tímaritinu þar sem Hiekam
rakti hvernig var að alast upp í
Coalwood og sagði frá tilraunum sín-
um og vina sinna með geimflauga-
Geimflaugadrengirnir í Coalwood; úr bandarísku myndinni Október-
hiniinn.
gerð. Hickam vann bók úr grein
sinni sem hann kallaði „Rocket
Boys“ og kom út árið 1998. „Ég hef
aldrei vitað hlutina ganga eins hratt
fyrir sig við nokkra mynd,“ segir
Johnston. „Það tók minna en ár fyrir
mig að gera hana og það eru aðeins
tvö ár síðan Homer skrifaði tímarits-
greinina."
Handritshöfundurinn Lewis Colick
vann með Homer Hickam við gerð
kvikmyndahandritsins og var áhersla
lögð á að vanda valið í hlutverk
Hickams. „Jake tókst á við hlutverk-
ið af einurð og krafti," segir Johnston
um Jake Gyllenhaaþ sem fer með
hlutverk Homers. „Ég hafði aldrei
hitt hann áður en sá strax að hann
var rétti maðurinn í hlutverkið."
Þekktustu leikararnir í myndinni
eru án efa Laura Dern og Chris
Cooper. Dern hefur leikið í myndum
eins og „Rambling Rose“ og Júra-
garðinum en Cooper hefur leikið
m.a. fyrir John Sayles í myndinni
„Lone Star“ og svo fór hann með
hlutverk í Hestahvíslaranum á móti
Robert Redford.
Frumsýning
DRENGJANNA í kolanámu-
bænum Coalwood í Vestur-
Virginíu á sjötta áratugnum
bíður ekki annað en vinna í kola-
námunum og svo er einnig um
Homer Hickam (Jake Gyllenhaal);
hann hefur enga ástæðu til þess að
ætla annað en að hann muni feta í
fótspor föður síns og vinna við kola-
námurnar. Hann er of lágvaxinn til
þess að hljóta ruðningsboltastyrk við
háskóla og sér enga leið til að
betrumbæta líf sitt. Þar til sovéska
farið Spútnik flýgur yfir októberhim-
ininn og breytir öllu í lífi hans. Ver-
öld Homers verður skyndilega öllu
stærri.
Októberhiminn eða „October
Sky“, sem frumsýnd er í Bíóborg-
inni, er byggð á sannri sögu Homers
Hickams yngri frá Vestur-Virginíu,
sem ólst upp í kolanámubæ og bjóst
ekki við öðru en hann yrði kola-