Morgunblaðið - 21.10.1999, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 1999 65
Morgunblaðið/Sverrir
Skemmtilegt
eldhúspartí
„RAUNVERULEIKINN er
kannski ekki fullkominn, en hann er
að minnsta kosti eini staðurinn þar
sem hægt er að fá almennilega
steik!“ Þessi orð Woodys Allens eru
meðal þeirra gullkoma sem greypt
eru í glugga veitingahússins Eld-
hússins, sem opnað var í nýbyggingu
Kringlunnar á föstudag. Fjöldi fólks
lagði leið sína í Eldhúsið um helgina
en opnunarkvöldið var haldið veglegt
Eldhúspartí og var mál gesta að
þeim litist alveg sérstaklega vel á
staðinn.
Meðal eigenda Eldhússins er
Victor Sveinsson, hótelstjóri Hótels
Búða á Snæfellsnesi, og fram-
kvæmdastjóri er Elísabet Aust-
mann. Staðurinn er á tveimur hæð-
um, tekur um 200 manns í sæti og er
boðið upp á matseðil með meira en
100 réttum frá öllum heimshomum.
Boðið er upp á nauta- og lambasteik-
ur og ýmiskonar sjávarrétti, ásamt
pastaréttum, pítsum, samiokum,
hamborgurum, salötum og fleira. Yf-
irkokkar Eldhússins era Guðmund-
ur Freyr Ævarsson og Guðni Hall-
dórsson og féllust þeir góðfúslega á
að gefa blaðamanni eina af fjölmörg-
um uppskriftum Eldhússins.
Paella að hsetti
Eldhússins
_______3 msk, ólífuolía___
_______1 bolli hrísgrjón__
______2V2 bolli fisksoð___
4halargf risarækju
4 humarhalar
_________IQOgrækjur___________
________V2 smokkfiskur________
_______200 g hörpuskel________
1 biti gf einhverjum fiski
_______V2 græn paprika________
_______V2 rauð pgprika________
1 lúka grænar baunir
___________V2 laukur__________
2-3 hvítlauksgeirar
_________1 stk. tómatur_______
saffronþræðir, nokkrir
steinselja_________
_____________salt_____________
_________svartur pipar________
sítrónusneiðar, ein stórá mann
Steikið laukinn og tómatana í
hluta af olíunni á pönnu, u.þ.b. 5 mín.
Maukið. Tómatmaukið, smokkfis-
kurinn, græna paprikan og fiskurinn
sett í paellupönnuna og suðunni
hleypt upp. Hrísgrjónum hrært sam-
an við. Soðinu bætt varlega saman
við og látið krauma. Kryddið maukað
í morteli og blandað saman við, paell-
an tekin af hitanum og smökkuð til.
Rauðu paprikunni, baunum, krækl-
ingi og rækjum hrært saman við og
risarækju og humri raðað ofan á. Pa-
ellan sett í 200°C heitan ofn og bökuð
í 30 mín. eða uns allur vökvi er gufað-
ur upp. Tekin út, stykki lagt yfir og
látin standa í um 5-8 mín.
Ath. Mjög áríðandi er að ekkert sé
hrært í paellunni á meðan hún er í
ofninum.
Borið fram með hvítlauksbrauði
og salati.
ÚRVAL AF
GLÆSILEGUM
VETRARFATNAÐI
ctor
B-YOIING
<9
Cinde^ella
FOLKIFRETTUM
Victor Sveinsson, Ólafur Daða-
son, Björn Ársæll Pétursson og
Helga Ingjaldsdóttir.
Guðmundur Freyr Ævarsson út-
býr nokkra af þeim fjölda rétta
sem eru á matseðli Eldhússins.
Síðasta
hraðlestrarnámskeiðið...!!
á öldinni hefst 26. október. Ef þú vilt bæta ár-
angur í námi og starfi skaltu skrá þig strax.
Margfaldaðu afköstin!
HRAÐLESTRARSKÓLINN
Sími: 565-9500 Fax: 565-9501
www.ismennt.is/vefir/hradlestrarskolinn
Blii di blí
Laugavegi 83 • Sími 562 3244
< -
KYNNING í BORGARAPÓTEKI í DAG KL. 14 - 18. Á SAMATÍMA í BORGAR-
APÓTEKI FÖSTUDAG OG í HRINGBRAUTARAPÓTEKI LAUGARDAG.
ettar
Ef þú kaupir Bogense sápuna færðu kaupauka og ef þú kaupir Bogense
sápuna og Bogense pilluna saman þá færðu 20% afslátt og kaupauka.