Morgunblaðið - 27.11.1999, Side 2
2 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bókavefur á
mbl.is
Einn aðili fær byggða-
kvóta Vesturbyggðar
OPNAÐUR hefur verið bókavefur í
Morgunblaðinu á Netinu, mbl.is,
þar sem eru upplýsingar um nýjar
bækur sem eru að koma út.
A bókavefnum eru upplýsingar
um 476 bókartitla frá 85 útgefend-
um. Upplýsingar um bækurnar eru
fengnar frá Félagi íslenskra bóka-
útgefenda. Hægt er að leita eftir
bókum með því að slá inn nafn höf-
undar eða bókartitil. Þar er einnig
hægt að skoða sölulista sem er sam-
antekt Félagsvísindastofnunar Há-
skóla Islands fyrh- Morgunblaðið,
Félag íslenskra bókaútgefenda og
Félag bóka- og ritfangaverslana. Að
auki er tenging við Amazon.com,
stærstu bókaverslun á Netinu.
STJÓRN Byggðastofnunai- úthlut-
aði í gær byggðakvóta Vesturbyggð-
ar og Breiðdalsvíkur. I báðum til-
fellum vai- aðeins einum aðila úthlut-
að öllum byggðakvóta sveitarfélag-
anna.
Saltfiskverkandinn Jón Þórðar-
son á Bíldudal fékk úthlutað öllum
byggðakvóta Vesturbyggðar, alls
205 tonnum. Fyrir liggur vilyrði um
að lagður verði á móti að minnsta
kosti jafn mikill kvóti til vinnslu í
byggðinni. Uthlutað var samkvæmt
umsögn sérstaks ráðgjafa Byggða-
stofnunar, en áður hafði stjóm
hennar hafnað tillögu sveitarstjóm-
ar Vesturbyggðar þess efnis að
byggðakvótinn yrði leigður hæst-
bjóðanda. Að sögn Egils Jónssonar,
stjómarformanns Byggðastofnunar,
samrýmist slíkt ekki þeim vinnu-
reglum sem stjómin setti sér í upp-
hafi, auk þess sem vafi leiki á að slík
úthlutun standist lög.
Utgerðarfélag Breiðdælinga fékk
úthlutað öllum byggðakvóta Breið-
dalsvíkur, eða 181 tonni og mun fé-
lagið leggja jafn mikinn kvóta á móti
til vinnslu í sveitarfélaginu.
Nú hefur verið úthlutað til allra
þeiiTa sveitarfélaga og byggða sem
fengu byggðakvóta til ráðstöfunar í
júlí nema kvóta Drangsness og
Grímseyjar. EgOl segir að á Drangs-
nesi hafi verið óskað eftir frestun
uns ýmis mál innan byggðarinnar
skýrist. Hann á ekki von á að úthlut-
un á þessum stöðum dragist, enda
eigi hún að vera tiltölulega auðveld.
„Óll erfið mál hafa nú verið afgreidd
og ég tel að í öllum tilvikum hafi vel
tekist til,“ segir Egill.
I land
eftir róður
Morgunblaðið/RAX
Notendur Netsins heimsækja mbl.is
Færri
sækja um
leikskóla-
kennara-
nám
TALSVERT brottfall nemenda
hefur orðið á leikskólaskor í
Kennaraháskóla íslands. 65
nemendur innrituðust í námið
sl. vor í þremur bekkjum, þar
af einum bekk í fjamámi. Jó-
hanna Einarsdóttir skorar-
stjóri segir að rætt sé innan
Kennaraháskólans að bjóða
upp á tveggja ára námsbraut
fyrir starfsfólk leikskóla.
Það yrði tveggja ára hagnýt
starfsnámsbraut sem lyki með
diplómu. Inntökuskilyrði yrðu
miðuð við aldur og störf jafnt
sem menntun. Þeim sem lykju
þessu námi yrði síðan gefinn
kostur á að setjast í leikskóla-
kennaranám sem yrði tveggja
ára viðbótamám. Með þessum
hætti væri unnt að gefa starfs-
fólki á leikskólum, sem að
óbreyttu uppfyllir ekki almenn
skilyi'ði til leikskólakennara-
náms, tækifæri til að ljúka slíku
námi á fjómm árum.
Umtalsvert færri umsækj-
endur vom um nám fyrir þetta
skólaár en áður. Námið tekur
þrjú ár og er krafist stúdents-
prófs, annarrar menntunar eða
starfsreynslu sem talin er sam-
bærileg.
Kennaraháskólinn hefur
fengið að taka 90 nemendur í
leikskólakennaranám annað
hvert ár og 70 nemendur hin
árin. „Það er alveg ljóst að það
em færri sem sækjast eftir því
að fara í þetta nám en áður.
Fyrir u.þ.b. fimm ámm tókum
við ekki inn í skólann nema
þriðjung af umsækjendum.
Menn horfa náttúrlega til þess
að leikskólakennarar em mjög
illa launaðir og við hljótum að
leita skýringa í því,“ segir Jó-
hanna.
GAMALL trébátur sem hefur
endað ævi sína í húsagarði á
Stokkseyri er fyrirtaks leik-
munur yngstu kynslóðarinnar.
Þessir hressu krakkar eru
greinilega að flýta sér í land
eftir vel heppnaðan róður. Það
skemmir ekki að vera vel
klæddur því útlit er fyrir
áframhaldandi kulda á næst-
unni. Veðurstofan spáir norðan
og norðaustanáttum í dag um
mest allt landið og éljum um
norðaustanvert landið og með
austurströndinni en björtu
veðri annars staðar. Afram
verður frost og ekki útlit fyrr
en að þiðni fyrr en í fyrsta lagi
á þriðjudaginn kemur.
að jafnaði 2,4 sinnum í viku
UM 70% þeirra sem nota Netið heimsækja net-
miðlana tvo, Morgunblaðið á Netinu og Vísi.is.
Rúm 33% heimsækja mbl.is 3-5 sinnum eða oftar í
viku en mm 26% heimsækja Vísi.is 3-5 sinnum
eða oftar í viku. Að meðaltali heimsækja netnot-
endur mbl.is 2,4 sinnum á viku en Vísi.is 1,9 sinn-
um. Þá heimsækja þeir textavarp Ríkisútvarpsins
á Netinu að jafnaði 0,4 sinnum í viku. Þetta er
meðal niðurstaðna fjölmiðlakönnunar Gallups,
sem gerð var í október á notkun netmiðla og
textavarpsins.
Af þeim sem tóku þátt í könnuninni hafa 63,8%
aðgang að Netinu. 29,7% hafa aðgang að Netinu á
heimili eða vinnustað, 18,1% hafa aðeins aðgang
að Netinu á heimili en 16% hafa aðeins aðgang að
Netinu á vinnustað. Að meðaltali nota þeir Netið
3,7 sinnum á viku, karlar oftar en konur, eða 4,4
sinnum á móti 2,9 sinnum. Þá nota íbúar höfuð-
borgarsvæðisins Netið að jafnaði 4,1 sinni á viku
en íbúar landsbyggðarinnar 2,8 sinnum á viku.
Sömu hlutföll koma fram þegar heimsóknir á
netmiðlana cra mældar. Þannig heimsækja karlar
mbl.is að jafnaði 3,2 sinnum á viku en Vísi.is 2,4
sinnum á viku. Konur heimsækja mbl.is að jafnaði
1,5 sinnum á viku en Vísi.is 1,2 sinnum. Ibúar
Reykjavíkur og Reykjaness heimsækja mbl.is 2,6
sinnum að jafnaði á viku en Vísi.is 2 sinnum og
íbúar landsbyggðarinnar heimsækja mbl.is 1,9
sinnum á viku að jafnaði en Vísi.is 1,6 sinnum.
Notendur netmiðlanna voru spurðii' hversu vel
eða illa þeir höfðuðu til þeirra og var gefin ein-
kunn á kvarðanum 1-5. Að jafnaði fékk mbl.is ein-
kunnina 3,9 en Vísir.is 3,8. Textavarpið fékk með-
aleinkunnina 3,4.
Þegar þeir sem nota Netið voru spurðir hversu
oft þeir heimsæktu netmiðlana sögðust 4,1%
heimsækja mbl.is oft á dag og 1,9% heimsóttu
Vísi.is oft á dag. 7% sögðust heimsækja mbl.is
daglega, 6,1% heimsóttu Vísi.is daglega og 0,8%
textavarpið.
22% sögðust heimsækja mbl.is 3-5 sinnum í
viku, 19,5% heimsóttu Vísi.is 3-5 sinnum í viku og
8,3% textavarpið. 18,7% sögðust heimsækja
mbl.is 1-2 sinnum í viku, 24,1% sögðust heim-
sækja Vísi.is 1-2 í viku og 11% heimsóttu texta-
varpið 1-2 sinnum. 18,8% sögðust heimsækja
mbl.is sjaldnar, 20,1% sögðust heimsækja Vísi.is
sjaldnar og 19,9% sögðust heimsækja textavarpið
sjaldnar. Þá sögðust 29,4% aldrei heimsækja
mbl.is, 29,5% heimsóttu Vísi.is aldrei og 59,3%
heimsóttu textavai-pið aldrei.
m sSmm
Á LAUGARDÖGUM
I JjOlHm
©[LÆ\©^ # GS D ;'
Jólamatur,
gjafir og föndur
Morgunblaðinu í dag fylgir 64 síðna blaðauki, Jóla-
matur, gjafir og föndur. I blaðaukanum er að finna
gnótt uppskrifta að réttum, drykkjum, kökum og
konfekti, auk þess sem leiðbeiningar eru veittar um
matseld, föndurgerð og skreytingar. Litríkar myndir
fanga hátíðarstemmningu á heimilum fjölmargi-a við-
mælenda sem lýsa amstri aðventunnar og ýmsum til-
brigðum við jólahald.
Nærri 30 milljónir til undir-
búnings ÓL í Sydney / B1
Utrecht í Hollandi býður Vikt-
ori þriggja ára samning / B1