Morgunblaðið - 27.11.1999, Blaðsíða 75
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 75
FOLKI FRETTUM
Seiðandi stemmningar
TOIVLIST
fi e i s I a d i s k u r
HAPPY NEW EAR
Happy New Ear, geisladiskur með
Eariy Groovers. Upptökustjóri og
höfundur er Örnólfur Thorlacius.
Honum til aðstoðar eru þeir Árni
Kristjánsson, Kjartan Ingvarsson
og Baldvin Ringsted. Hljóðritað og
blandað í Almost There Studio.
Tónjöfnun: Thor og Finnur Hákon-
arson, OZ hljóð. c&(p)2000
Dizorder Recordings.
REYKMETTAÐ LOFT og rauð-
leit birta. Fastakúnnarnir sem hér
hlustuðu á djassistana leika af
fingi-um fram hafa látið afkomend-
um sínum eftir sæti sín á staðnum.
Þótt tölva hafi nú hertekið hornið
þar sem meistaramir léku listir sín-
ar framkallar angurvær trompet
ennþá bláar nótur og hreyfir við sál-
um gestanna. Trommuslátturinn er
að vísu orðinn taktfastari og kulda-
legri en hér er samt seiðandi
stemmning.
Einhvem veginn svona voru hug-
hrif mín er bestu tóndæmi geisla-
plötunnar Happy New Ear léku um
eyru mín. Eg verð að játa vanþekk-
ingu mína og viðurkenna að aldrei
hef ég heyrt minnst á fyrirbærið
Early Groovers sem geislaplata
þessi er skrifuð á. Hins vegar veit
ég að höfuðpaurinn, Ömólfur Thor-
lacius, var aldrei með þáttinn Nýj-
asta tækni og vísindi. Aftur á móti
held ég að Ami Kristjánsson hafi
hér á ámm áður verið gítarleikari í
rokksveitinni Vonbrigðum, en hann
er í hlutverkum listræns ráðunaut-
ar og aðstoðarupptökustjóra Örn-
ólfs í fáeinum lögum á Happy New
Ear.
Tóndæmi plötunnar eru 16 tals-
ins en gætu þó allt eins talist eitt því
hvergi em þagnir á milli dæma. Þau
virðast eiga að hanga saman sem
verk þótt ekki sé ljóst hver megin-
þráðurinn eða þemað sé. í gi-unninn
er tónlistin á plötunni dæmigerð
raftónlist með tilheyrandi trommu-
fomtun (loops), hljóðsörpum og
öðmm tóntæknibrellum. Hætt er
við því með tónlist af þessu tagi að
hún verði leiðigjörn á að hlusta, en
við hlustun á Happy New Ear leið-
ist manni ekki oft. Hljóðsörp em
ákaflega mörg og mjög svo hugvits-
samlega valin og unnin. Mikið hefur
verið sarpað af lifandi hljóðfæram
og mannsröddum sem oft virkar vel
ofan á annars nokkuð einhæfa
granna. Lítilsháttar djassáhrifa
gætir hér og þar og kemur það
einkar vel út. Besta dæmið er lagið
Harsh Realities Of The Season,
stórgott lag sem Baldvin Ringsted
gítai’leikari gerir mikið fyrir af
næmi og smekkvísi. Tvímælalaust
besta lag plötunnar.
Þótt á plötunni sé víða að finna
skemmtilegar og oft á tíðum seið-
andi stemmningar er lítið um eigin-
leg, heilsteypt lög eins og ofan-
greint lag vissulega er. Erfitt er því
að nefna stök lög umfram heildina.
Þó ber að geta lagsins Makin’ It
Clean sem er mjög skemmtileg
pæling. Dæmi um hið gagnstæða er
hins vegar heldur þunnildislegur
bræðingur, At The Scene Of The
Prime.
Þegar á heildina er litið þykir
mér töluvert í plötuna spunnið. Ai-a-
grúi er af góðum hugmyndum innan
um aðrar síðri. Ekki þykir mér
ótrúlegt að Ömólfur Thorlacius eigi
efth- að starfa sem upptökustjóri
og/eða forritari fyrir syngjandi
popptónlistannenn. Hugmyndaflug
hans og tæknikunnátta gefa í hið
minnsta góð fyrirheit.
Orrí Harðarson
Fleiri tónleikum aflýst
ÞAÐ virðist sem trú manna á að
fólk sé tilbúið til að greiða
stórfé til að fara
á tónleika um
árþúsunda-
skiptin sé ekki
á rökum reist.
Þegar hefur
verið sagt frá
því að tón-
leikum Jewel
á heimaslóð-
um sínum,
Alaska, hafi verið
aflýst vegna dræmrar miðasölu.
Nú þarf tónlistarmaðnrinn Sting
að bíth í það sama súra epli, en
tónleikunum „Celebration 2000“
í New York hefur verið aflýst.
Þar átti Sting að koina fram -
ásamt ekki óþekktari stjörnum
en sálardrottningunni Arethu
Franklin og Chuck Berry.
Enn eru fáanlegir miðar á ár-
þúsundaskiptatónleika Billy Joel
í New York, hljómsveitarinnar
Eagles í Los Angeles, Kiss í Van-
couver og Barbra Streisand í
Las Vegas.
Tom Uhm, talsmaður „Cel-
ebration 2000“, sagði þegar
ákveðið var að hætta við tónleik-
ana að miðasala hefði verið
dræm og liann teldi ástæðuna
vera þá að miðaverðið hefði ver-
ið alltof hátt. Þrátt fyrir að ekki
liggi fyrir að fleiri tónleikum
verði aflýst um árþúsundaskipt-
in, enda gæti áhuginn aukist eft-
ir því sem nær dregur, er það
mál manna að miðasala hafi
verið mun slakari en búist liefði
verið við að óreyndu.
Niðursoðinn
sjónvarpshlátur
SJONVARP A
LAUGARDEGI
Lengi hefur sú venja rikt við gerð
erlendra gamanþátta, einkum í
Bandaríkjunum, að hláturgusur
hafa heyrst í ímynduðum sjón-
varpsgestum þegar tilefni hefur
þótt gefast. Þetta
hefur verið kallaður
niðursoðinn hlátur
og stundum lent á
versta stað í út-
sendingu, þegar engum var hlátur
í hug og áhorfendur almennt að
drepast úr leiðindum. Fólk, sem er
ófyndið með öllu hefur fyiir vana
að hlæja hátt og hvellt og í tíma og
ótíma af öllum sköpuðum hlutum,
einkum þegar það situr þar á
þingi, sem hátt launaðir grínarar
hafa verið fengnir til að vera
skemmtilegir. Því finnst það eigi
að hlæja, en grínarinn, sem oftast
er heldur mislukkaður, hressist
allm- við að heyra hlegið. Einkum
er þessi hláturvani áberandi hjá
ungu fólki, sem hefur tekið alltof
alvarlega dagskipunina um að það
eigi allaf að vera kátt og skemmti-
legt og síhlæjandi, hvort sem það
sér hross á beit eða gamanlausan
grínara á sviði sem engum brand-
ara kemur frá sér. Það vom hinir
áhorfendalausu uppistandsmenn
sj ónvarpsþáttanna
sem fundu upp nið-
ursoðna sjónvarps-
hláturinn. Hér á landi
hefur ekki þurft að
gi-ípa til hans, vegna þess að ís-
lendingar halda auðsjáanlega að
þeir eigi að hlæja séu þeir áhorf-
endur í sjónvarpssal.
Ekki er þetta algengt með gam-
anlausu gamansemina, en einstak-
ir flokkar grínara hafa komist svo
langt á hlátrinum í áheyrendum,
að það hefur jafnvel orðið að setja
lögbann á það, svo þeir láti ekki
hlæja nema á einum stað í einu.
Þeir sem em hvað ákafastir við-
hlæjendur þeima em flestir undir
þrítugu og manni verður á að
spyrja; hvers vegna? Hinu er ekki
að neita að hér hafa verið sýndir
gamanþættir, sem reynst hafa
með ólíkindum skemmtilegir; vel
skrifaðir og vel fluttir og átaka-
laust gert fólki glatt í geði. Hér er
um að ræða þætti Spaugstofunnar
og þætti um Heilsubælið í Gerva-
hverfi, en þeir era endursýndir
góðu heilli á Stöð 2 nú um stundir.
Gísli Rúnar samdi og leikstýrði
þeim og leikur sjálfur í þeim
ásamt Eddu Björgvins, konu sinni
og leikkonu. I öllu því leiðinda-
vafstri gamanþátta, sem ungt fólk
virðist halda að sé aðhlátursefni,
bera tvær fyrmefndar þáttaraðir
af, enda unnar af fólki sem hefur
fengið náðargáfu gamanseminnar
í vöggugjöf. Erlendir gamanþætt-
ir sýna okkur hvað miklu þarf til
að kosta, að gera góða gamansama
sjónvarpsþætti. Skal þar fyrstan
telja Seinfeld, sem er þó ekki alltaf
í forgmnni þáttanna. Með honum
vinnur afbragðsfólk, sem skyggir
jafnvel á hann á stundum. Hand-
ritsgerð er vönduð og á sinn þátt í
því hve vel þættirnir takast.
Indriði G. Þorsteinsson
Ævintýri sem enda vel
GOÐGERÐARFELAGIÐ Stoð og
styrkur hélt útgáfufagnað vegna
tveggja bóka sinna fyrir skömmu.
Em það bækumar A lífsins leið II
og Ævintýri alþingismanna. Sú íyrr-
nefnda er gefin út til styrktar
Bamaspítala Hringsins og forvam-
arstarfi. f hana rita 26 kunnir ein-
staklingar minningar sínar um
eftirminnilega atburði og fólk.
Ameðal höfunda em Bjöm Bjama-
son menntamálaráðherra og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri.
í Ævintýmm alþingismanna,
sem Vigdís Stefánsdóttir ritstjóri
skráði segja 13 alþingismenn frá
ævintýralegum atburðum úr lífi
sínu. Hún er gefin út til stuðnings
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
bama og forvamastarfi. A myndinni
era þeir höfundar kafla í bókinni,
sem tök áttu á að koma til útgáfu-
fagnaðarins, frá vinstri: Ingibjörg F.
Hjartar, Páll Daníelsson, Guðrún
Ebba Ólafsdóttir, Hjálmar Jónsson,
Bjöm Bjamason, Atli Dagbjar-
tsson, Valgerður Sverrisdóttir, Geir
Jón Þórisson, Jón Helgason, Guð-
rún Pétursdóttir, Sævar Gunnars-
son, Ari Teitsson, Oddur Ólafsson
vegna Kristínar Sigfúsdóttur og
Anna Þrúður Þorkelsdóttir.
ALLRA SÍÐUSTU DAGAR
ALLT A AÐ SEUAST
Geriö hagstæð jólainnkaup
iþrött
&
gé
OPIÐ:
Mán.-fös. 10-18,
lau. 1 0-1 6, sun. 1 3-1 7. Skipholti 50d, sími 562 0025.
/Zkzinu