Morgunblaðið - 27.11.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.11.1999, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Júgóslavar segjast hafa handtekið hóp hryðjuverkamanna „Franskt samsæri“ um að myrða Milosevic Eru sakaðir um þjóðernishreinsanir í Kosovo, fjöldamorðin í Srebrenica og jafnvel banatilræðið við Draskovic Reuters Einn fímmmenninganna í Júgóslavíu, sem voru handteknir fyrir að hafa lagt á ráðin um að myrða Slobodan Milosevic forseta. Belgrad, París. Reuters, AP, AFP. STJÓRNVÖLD í Júgóslavíu sögðu í fyrradag, að þau hefðu handtekið hóp „hryðjuverkamanna" á snærum frönsku leyniþjónustunnar og hefði hann verið búinn að leggja á ráðin um myrða Slobodan Milosevic, for- seta Júgóslavíu. Franska stjórnin vísaði þessum ásökunum á bug í gær og sagði þær hreinan tilbúning. Goran Matic, upplýsingaráðherra Júgóslavíu, sagði í gær, að menn- irnir, fimm að tölu, hefðu verið handteknir í síðustu viku. Væru þeir félagar í samtökum, sem köll- uðust Kóngulóin, og tækju við fyrir- skipunum frá París. Sakaðir um helstu glæpaverk- in á Balkanskaga síðustu árin Matic sagði, að mennimir hefðu ætlað að beita ýmsum aðferðum við að ráða Milosevic af dögum. Meðal annars að skjóta hann úr launsátri, að koma sprengiefni fyrir í bíl við veg, sem hann færi um, og einnig, að 10 þrautþjálfaðir menn ryddust inn á heimili hans. Sagði Matic, að franska leyniþjónustan hefði verið umsvifamikil í ríkjunum, sem áður tilheyrðu gömlu Júgóslavíu, og meðal annars átt þátt í að drepa „óæskilega menn“. Að því er Matic sagði var til- gangur Frakka sá að valda glundr- oða í landinu með því að koma á fót vopnuðum sveitum glæpamanna. Sakaði hann þá einnig um að hafa staðið að baki þjóðernishreinsunum og öðrum glæpum. Nú væri ljósara en áður hvaða þátt Frakkar hefðu átt í upplausn gamla sambandsrík- isins. Franska stjórnin neitaði því í gær, að hún hefði átt nokkurn þátt í áætlunum um að myrða Milosevic og sagði, að ásakanirnar væru til- hæfulausar. Matic sagði, að í Kosovostríðinu hefðu mennirnir komið sér fyrir í júgóslavneska hernum í héraðinu þar sem þeir hefðu rænt og ruplað og drepið fólk af albönskum ættum. Væri nú verið að rannsaka þessi morð. Það voru einmitt fjöldamorð á óbreyttum borgurum, sem voru ein meginástæðan fyrir árásum NATO-ríkjanna á júgóslavneska herinn í Kosovo. Viðurkenndi 50 morð? Matic sagði, að leiðtogi hópsins héti Jugoslav Petrusic og hefði hann júgóslavnesk og frönsk borg- ararréttindi. Hefði hann starfað fyrir frönsku leyniþjónustuna í 10 ár, áður í Bosníu en að undanförnu í Júgóslavíu. Sagði hann, að Petrusic hefði viðurkennt að hafa drepið um 50 manns fyrir frönsku leyniþjón- ustuna og Matic sakaði hann einnig um að hafa átt þátt í fjöldamorðum á múslimum í Srebrenica í Bosníu 1995. „Flokki hans var stjórnað af frönsku leyniþjónustunni en ekki af ráðamönnum í Serbneska lýðveld- inu," sagði Matic. Kvað hann frönsku leyniþjónustuna hafa samið um það við mennina, að þeir yrðu ekki dregnir fyrir stríðsglæpadóm- stólinn í Haag svo lengi sem þeir störfuðu fyrir hana. Matic sagði, að einn mannanna væri sérfræðingur í banatilræðum þar sem vopnið væri vörubifreið hlaðin sandi. Það minnir á tilræðið við Vuk Draskovic, leiðtoga Serbnesku endurnýjunarhreyfing- arinnar, í október sl. Hann slapp lif- andi en fjórir félagar hans biðu bana. Síðar kom í ljós, að bíllinn var í eigu serbnesku leyniþjónustunnar. Jólaann- irnar hafnar HÓPUR jólasveina geng- ur yfir Fimmta breið- stræti á Manhattan í New York-borg í gær, á síð- asta fostudeginum í nóvember. Hefð er fyrir því í Bandaríkjunum að undir- búningur jólanna hefjist þennan dag og hefur þetta lengi verið mesti verslunardagur ársins í landinu. Jólasveinarnir hringja þá bjöllum á götuhomum Manhattan og safna fé handa fátækum. 1 > rj ví'jk¥• i * f jj Sllpj Xr f i 1 ‘HesSafthlW Reuters Ohófleg kaffí- drykkja eykur líkur á fósturláti AP. NIÐURSTÖÐUR nýrrar rannsóknar benda til þess að óhófleg kaffidrykkja móður á meðgöngu auki likurnar á fósturláti. Hins vegar virðist hófleg kaffineysla ekki hafa skaðleg áhrif á fóstur. Rannsóknin var gerð af læknum sem starfa við Nat- ional Institute of Child Health and Human Develop- ement og við Utah-háskóla í Bandarfkjunum, og eru nið- urstöður hennar birtar í nýj- asta hefti læknisfræðitíma- ritsins New England Journal of Medicine. Niðurstöðurnar gefa til kynna að hætta á fósturláti aukist ekki hjá þeim konum sem drekka allt að tvo kaffi- bolla á dag, en að hættan tvöfaldist hjá konum sem drekka sex eða fleiri bolla. Vísindamennirnir rannsök- uðu geymd blóðsýni úr þús- undum kvenna sem urðu þungaðar á árunum 1959- 1966, en á þeim tfma náði kaffineysla í Bandarfkjunum hámarki. Mældu þeir magn paraxantfns í blóðinu, en það er efni sem verður til við það að lifrin brýtur niður koffein. í ljós kom að magn paraxantíns var að jafnaði 30% hærra í blóði þeirra kvenna sem urðu fyrir fóst- urláti. Niðurstöður rannsókna á áhrifum koffeins á fóstur hafa hingað til verið misvís- andi, en barnshafandi kon- um er þó yfirleitt ráðlagt að minnka kaffidrykkju. Nokkrar rannsóknir hafa bent til þess að það sé jafn- vel skaðlegt fyrir fóstur að móðir drekki einn til tvo kaffibolla á dag, aðrar rann- sóknir sýna aðeins aukna hættu hjá konum sem þjást af morgunógleði, og í enn öðrum fundust engin tengsl milli kaffidrykkju og fóstur- láts. Dr. Mark Klebanoff, einn bandarfsku læknanna sem stóðu að nýju rannsókninni, telur að í sumum eldri rann- sóknum hafi úrtakið verið of Iftið til að leiða til gildrar niðurstöðu. Gaullistaflokkur Chiracs Frakklandsforseta Kona líklega kos- in formaður RPR Flokksráðsfundur UUP1 dag Stefnir í tvísýna at- kvæðagreiðslu 860 MANNA ráð stærsta flokks sambandssinna á Norður-írlandi, UUP, kemur saman í Belfast í dag til að ákveða hvort flokkurinn eigi að mynda heimastjórn með Sinn Fein, stjómmálaflokki Irska lýðveldis- hersins (IRA). Atkvæðagreiðsla flokksráðsins gæti ráðið úrslitum um hvort hægt verði að bjarga frið- arsamningi norður-írsku flokkanna frá síðasta ári sem kveður á um að írski lýðveldisherinn afvopnist eftir að heimastjórnin verður mynduð. Ef marka má könnun, sem birt var í breska dagblaðinu The Daily Telegraph í gær, getur brugðið til beggja vona. 50% flokksráðsmann- anna sögðust hlynntir því að friðar- samningnum yrði komið í fram- kvæmd og jafnmargir voru andvígir því. David Trimble, leiðtogi UUP, hyggst reyna að fá flokksráðið til að falla frá þeirri stefnu flokksins að mynda ekki heimastjórn með Sinn Fein fyrr en IRA hefji afvopnunina. Samkvæmt málamiðlunarsamkomu- lagi, sem náðist eftir tíu vikna við- ræður til að bjarga friðarsamningn- um, á IRA að tilnefna fulltrúa í nefnd undir stjórn kanadíska hers- höfðingjans Johns De Chasteleins sem á að hefja samningaviðræður um afvopnun IRA um leið og heima- stjórnin verður mynduð. Margir félagar í UUP eru efins um að írski lýðveldisherinn láti vopn sín af hendi en Trimble reyndi í gær að sefa efasemdarmennina og sagði að heimastjórnin yrði leyst upp ef herinn stæði ekki við loforð sín. Pólitísk framtíð Trimbles í veði Verði samkomulagið samþykkt í atkvæðagreiðslunni í dag verður mynduð heimastjórn undir forsæti Trimbles á fimmtudaginn kemur. Hafni flokksráðið samkomulaginu er nánast útséð um að friðarsamn- ingurinn komist í framkvæmd, auk þess sem líklegt er að Trimble neyð- ist til að segja af sér. París. AFP, The Daily Telegpraph. LÍKLEGT er að kona verði í fyrsta sinn kjörin formaður Gaullistaf- lokks Chaqcues Chiracs Frakk- landsforseta, RPR, í annarri um- ferð formannskjörsins í næstu viku. Michéle Ailiot-Marie varð í öðru sæti í fyrstu umferð, en hún mun nú njóta fulltingis hinna frambjóðend- anna í slagnum gegn Jean-Paul Delevoye, sem varð í fyrsta sæti í fyrri umferðinni og nýtur stuðnings Chiracs. Nær öruggt er talið að AJliot- Marie fari með sigur af hólmi, en það yrði álitið mikið áfall fyrir Chir- ac. Forsetinn hefur raunar verið tregur til að koma opinberlega fram til stuðnings Delevoye eftir að úrslit fyrri umferðarinnar lágu fyr- ir, en frönsk dagblöð segja að kosn- ingavél Chiracs sé ennþánotuð óspart í þágu hans. Stjórnmálaskýrendur telja að Alliot-Marie gæti hleypt nýju blóði í RPR, en flokkurinn er sundraður og hefur tapað miklu fylgi á síðustu árum. Hún gegndi embætti æsku- og íþróttamálaráðherra á árunum 1993-95 og hefur komist til metorða í franska embættismannakerfinu. Jean-Paul Delevoye er hins vegar lítt þekktur, en hann er bæjarstjóri í Bapaume í norðurhluta Frakk- lands. Nái AIliot-Marie kjöri, verður hún fyrsta konan til að gegna for- mannsembætti í einum af stóru stjómmálaflokkunum í Frakklandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.