Morgunblaðið - 27.11.1999, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
AÐVENTA
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 65
hátíðarkvöldsins er í höndum sókn-
arnefndar Digi-aneskirkju.
Annan sunnudag í aðventu (5.
des.) sér KFUM&K um helgistund í
kirkjunni. KFUM&K og Digranes-
kirkja eiga í góðu samstarfí um starf
eldri barna í kirkjunni (tíu til tólf
ára) og einnig er unglingastarfíð í
samstarfi þessara aðila. Einsöngvar-
ar Digi’aneskh'kju skreyta helgi-
stundina með söng sínum og kaffísal-
an á eftir verður til styrktar málefn-
inu „mismunandi kjör bama í heim-
inum“, en það er þemaverkefni sem
unnið hefur verið með í vetur.
Þriðja sunnudag í aðventu (12.
des.) ætlar Guðlaug Erla Jónsdóttir
að kjmna okkur starf Mæðrastyrks-
nefndar Kópavogs. Skólakór
Snælandsskóla sér um tónlistar-
flutning kvöldsins undir stjórn
Heiðrúnar Hákonardóttur. Stjórnun
og undirbúningur er í höndum Safn-
aðarfélags Digraneskirkju.
Fjórða og síðasta sunnudag i að-
ventu (19. des.) syngur Kvennakór
Reykjavíkur. Við þetta tækifæri ætl-
um við einnig að taka á móti söfnun-
arbaukunum „brauð handa hungmð-
um heimi“ og selja friðarkerti fyrir
Hjálparstarf kirkjunnar. Fé sem
safnast við kaffið á eftir rennur
óskipt til hjálparstarfsins. Kaffisalan
er á vegum sóknarnefndar en stjórn
og undirbúningur er í höndum Kórs
Digraneskirkju.
Aðventubyrjun
í Dómkirkjunni
FYRSTA sunnudag í aðventu, 28.
nóvember, kl. 20.30 verður aðventu-
kvöld í umsjá Kirkjunefndar kvenna
Dómkirkjunnar. Ræðumaður verður
Einar Benediktsson, sendiherra.
Skólakór Kársness og Dómkórinn
syngja undir stjórn þeirra Þórannar
Björnsdóttur og Marteins H. Frið-
rikssonar sem einnig leikur á orgel.
Dómkirkjuprestarnir sr. Hjalti Guð-
mundsson og sr. Jakob Agúst
Hjálmarsson leiða dagskrána. Um
morguninn kl. 11 verður messa þar
sem sr. Jakob Ágúst prédikar og
þjónar fyrir altari. í messunni syng-
ur Dómkórinn Sanctus og Agnus Dei
úr Missa Adventus et Qu-
adragersimae eftir Petr Eben. Kl. 12
verður svo stutt helgistund fyrir
böm. Kveikt verður á fyrsta kerti
aðventukransins og sungnir að-
j ventusöngvar.
Fjölskylduguðsþjónusta
og síðdegismessa í
Hafnarfjarðarkirkju
FYRSTA sunnudegi á nýrri aðventu
og nýju kirkjuári 28. nóvember verð-
ur vel fagnað í Hafnarfjai'ðarkirkju.
Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaga-
skólanna hefst þar kl.ll og síðdegis-
messa á aðventu kl.17. Sunnudaga-
skólabörn úr Hvaleyrarskóla koma í
heimsókn með fjölskyldum sínum í
fjölskylduguðsþjónustuna og bætast
þar í hóp þeirra sunnudagaskóla-
barna og fjölskyldna þeirra sem sótt
hafa sunnudagaskólann í safnaðar-
heimilinu Strandbergi. Strætisvagn
fer frá Hvaleyrarskóla kl. 10.55.
Jafnframt því ekur strætisvagn
venjubundna leið til kirkju og báðir
fara þeir til baka um kl. 12.20. Lúðra-
sveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
leikur í fjölskylduguðsþjónustunni.
Eftir hana verður boðið upp á góð-
gæti í safnaðarheimilinu Strand-
bergi. Prestar era sr. Þórhallur
Heimisson og sr. Gunnþór Ingason.
Aðventumessan síðdegis mun auð-
kennast af fögrum tónlistarflutningi.
Árni Gunnarsson syngur þá einsöng
og félagar úr Kór kirkjunnar leiða
annan söng. Natalía Chow leikur á
orgel kirkjunnar. Prestur er sr.
Gunnþór Ingason. Dýrmætt er og
ánægjulegt, að sem flest sóknarbörn
og aðrir sem hug hafa á fagni nýrri
aðventu á merkum tímamótum með
því að taka þátt í helgihaldi í Hafnar-
fjarðarkirkju á fyrsta sunnudegi
hennar.
Prestar Hafnarfjarðarkirkju.
Aðventukvöld og afmælis-
hátíð í Laugarneskírkju
ANNAÐ kvöld kl. 20 verður sérstök
athöfn í Laugarneskirkju sem
hvorttveggja í senn er aðventukvöld
og afmælishátíð í tilefni af 50 ára
vígsluafmæli kirkjunnar. Alla vikuna
frá síðsta sunnudegi höfum við hald-
ið afmælið hátíðlegt með ýmsu móti.
Hæst ber myndlistarsýninguna
„Tíminn og trúin“ þar sem sjö lista-
konur sýna verk sem frumunnin
voru í tilefni af árunum fímmtíu og
árunum þúsund, sem kristni hefur
lifað í landi okkar. Gefst þeim sem
koma til kirkju annað kvöld færi á að
skoða sýninguna og njóta góðra veit-
inga, en sóknarnefndin býður upp á
ekta súkkulaði og smákökur að at-
höfn lokinni. Drengjakór Laugarnes-
kirkju mun syngja ásamt Kór Laug-
arneskirkju, fermingarbörn munu
flytja bænir og sr. Jón Dalbú Hró-
bjartsson prófastur ávarpar söfnuð-
inn í tilefni afmælisins og þjónar við
altarið ásamt sr. Bjarna Karlssyni.
Tónlistarguðsþjónusta og
aðventuhátíð í Hjallakirkju
FYRSTA sunnudag í aðventu verðui-
tónlistarguðsþjónusta í Hjallakirkju
kl. 11. Flutt verður sónata í D-dúr
fyrir trompet, strengi og continuo
eftir G. Torelli, forleikur úr svítu nr.
1 eftir G. Ph. Telemann, lokakórinn
úr kantötu nr. 147 eftir J.S. Bach o.fl.
Jóhann Stefánsson leikur á trompet,
Júlíana Kjai-tansdóttir og Rósa H.
Guðmundsdóttir á fíðlur, Guðrún
Þórarinsdóttir á víólu, Lovisa Fjeld-
sted á selló og Lára Bryndís Egg-
ertsdóttir á orgel. Kór Hjallakirkju
syngur undir stjóm organistans,
Jóns Ólafs Sigurðssonar.
Seinna þennan sama dag kl. 7
verður árleg aðventuhátíð fjölskyld-
unnar í Hjallakirkju. Á aðventuhá-
tíðinni mun kór Hjallaskóla syngja
og leika helgileik undir stjórn Guð-
rúnar Magnúsdóttur og Guðni Már
Harðarson les jólasögu. Eftir stund-
ina bíður safnaðarfélag Hjallasóknar
gestum upp á kakó og piparkökur í
safnaðarsal kirkjunnar. Allir eru
hjartanlega velkomnir.
Hátíð í Hallgrímskirkju
í FYRRAMÁLIÐ, sunnudag kl. 11,
verður hátíðarmessa í Hallgríms-
kh’kju. Biskup íslands, herra Karl
Sigurbjörnsson, mun prédika og
þjóna fyrir altari ásamt séra Jóni
Dalbú Hróbjartssyni, séra Ragnari
Fjalari Lárussyni og séra Sigurði
Pálssyni.
Tilefni hátíðarinnar er margþætt.
Þetta er fyrsti sunnudagur í að-
ventu, nýtt kirkjuár að hefjast og
Hjálparstarf kirkjunnar að ýta úr
vör árlegri jólasöfnun sinni. Þess
verður sérstaklega minnst í mess-
unni og tekin samskot til starfans.
Þá verður helgaður steindur
gluggi sem settur hefur verið upp yf-
ir aðalinngangi kirkjunnar. Glugg-
ann gerði Leifur Breiðfjörð, glerl-
istamaður, og nefnir hann verkið
„Dýrð, vald, virðing“. Þetta listaverk
er dánargjöf Stefaníu Guðríðar Sig-
urðardóttur, en hún lést árið 1993,
gefín til minningar um foreldra
hennar, Sigurð Sigurðsson frá Vigur,
yfirdómslögmann og sýslumann og
Guðríði Stefaníu Arnórsdóttur.
I lok guðsþjónustunnar verður
opnuð, á vegum Listasafns Hall-
grímskirkju og Listvinafélags Hall-
grímskirkju, myndlistarsýning Leifs
í forkirkjunni, er hann nefnir Opin-
berun. Myndverkin eru vatnslita- og
pastelmyndir sem allar tengjast Op-
inberunarbók Jóhannesar. Þess má
geta að Mál og menning gefur þessi
listaverk út á bók ásamt texta Opin-
berunarbókarinnar.
KI. 17 þennan dag mun svo Barna-
og unglingakór Hallgrímsirkju halda
aðventutónleika og flytja Ceremony of
Carols fyrir þrjár raddir og hörpu op.
28 eftir Benjamin Britten og syngja
auk þess nokkur jólalög undir stjóm
Bjameyjar Ingibjai'gar Gunnlaugs-
dóttur. Hljóðfæraleikarar með kóm-
um eru Sophie Schoonjans hörpuleik-
ari og Hörður Áskelsson, organisti.
Aðventusamkoma
í Breiðholtskirkju
HIN árlega aðventusamkoma Breið-
holtssafnaðar verður haldin í Breið-
holtskirkju í Mjódd á morgun, fyrsta
sunnudag í aðventu, kl. 20.30.
Að venju verður fjölbreytt dagskrá
sem miðuð er við alla fjölskylduna.
Kór Breiðholtskirkju og Barnakór
Breiðholtskirkju flytja aðventu- og
jólasöngva undir stjóm organistans,
Daníels Jónassonar, og Árnýjar Al-
bertsdóttur, stjórnanda barnakórs-
ins. Áraý Albertsdóttir og Elín Helga
Jóhannesdóttir syngja tvísöng.
Fermingarböm sjá um stutta dag-
skrá og Helgi Gíslason, æskulýðsfull-
trúi KFUM & K í Reykjavík, flytur
aðventuhugleiðingu. Samkomunni
lýkur með helgistund við kertaljós.
Að samkomunni lokinni verður
kaffisala í safnaðarheimilinu á veg-
um Kvenfélags Breiðholts, en félagið
hefur alla tíð stutt safnaðarstarfið og
kirkjubygginguna af miklum dugn-
aði og rausnarskap og nú síðast lagt
fram drjúgan skerf til kaupa á nýju
orgeli sem vígt var á sl. ári. Einnig
munu fermingarbörn selja friðar-
kerti til ágóða fyrir Hjálparstarf
kirkjunnar.
Aðventusamkomumar hafa löng-
um verið miklar hátíðarstundir í safn-
aðarlífinu og mörgum til gleði og upp-
byggingar við upphaf undirbúnings
jóla. Vona ég að svo verði einnig í ár.
Vil ég því nota þetta tækifæri til að
hvetja sóknarbúa og aðra þá sem
áhuga hafa til að Qölmenna við þessa
athöfii og helja þannig jólaundirbún-
inginn með góðri stund í húsi Drottins.
Sr. Gísli Jónasson.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra kl.
13. Steingrímur Hermannsson, fyrr-
verandi forsætisráðherra og seðla-
bankastjóri, segir frá ýmsu áhuga-
verðu sem á daga hans hefur drifið.
Reynir Jónasson leikur undir fjölda-
söng á harmoniku. Allir velkomnir.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Hjálpræðisherinn. Kl. 13 laugar-
dagsskóli fyrir krakka.
KEFAS, Dalvegi 24. Samkoma í dag,
laugardag, kl. 14. Ræðumaður Helga
R. Armannsdóttir. Sunnudag kl. 14-
17 verður Kefas með basar að Dal-
vegi 24, Kópavogi. Þar verða m.a.
heimabakaðar kökur, skreytingar,
lukkupakkar og ýmsar fallegar
gjafavörur. Nýbakaðar vöfflur með
rjóma og rjúkandi kaffi. Lofgjörðar-
tónlist verður leikin og sungin.
Mánudag: Kvennabænastund kl.
20.30. Þriðjudag: Bænastund kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Útskálasókn: Safnaðarheimilið Sæ-
borg. Kirkjuskólinn kl. 13.30.
Hvalsnessókn. Safnaðarheimilið í
Sandgerði. Kirkjuskólinn kl. 11.
Vídalínskirkja. í dag kl. 14 heldur
Hans Markús sóknarprestur
fyrirlestur fyrir eldri borgara um
starfrslokin. Fyrirlesturinn kallast
„Jákvæð sjónarmið".
mmuf>
Gróðrarstöðin
Agætu
viðskiptavinir
Höfum opnað nýjan gróðurskála með
alhliða blóma- og gjafavöruverslun.
Skreytingarþjónusta fyrir öll tækifæri.
Verið velkomin í öðruvísi umhverfi
Birkihlíð - Hús blómanna
Dalvegi 32, Kópavogi
sími 364 2480 - Opið frá kl. 9-21
INNRÉTTINGAR
HÚSGÖGN
Fjölbreytt úrval húsgagna frá Spáni
Síðumúla 13
sími 588 5108
VERÐ Á BÁÐUM SETTUM
kr. 83.032
LAMPI
kr. 13.138
Ný sending setta og
stakra stóla
STÓLL
kr. 21.196
'Tftc&z&ti
4.990,- STGB.
Topcom Deskmaster 123
Borðsimi með númerabirti
Minni íyrir 90 siðustu númer
sem hringdu ásamt dagsetningu
og klukku. Möguleiki á að hringja
beint úr númerabirtingaminni.
Þrjú hraðvalsminni. Tíu númera
skammvalsmmm ofl.
Telia Distaas
<
5 Borðsími
§ Fimm hraðvalsminni
í Endurval.
SÍMINN
Þjónustumiðstöðvar Símaris
um land allt