Morgunblaðið - 27.11.1999, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.11.1999, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Refsivert að fram- leiða og dreifa barnaklámi Skipulagssljori segir lög um mat á umhverfísáhrifum illa framkvæmanleg nema til komi aukið fjármagn til grunnrannsókna Spurning hver eigi að greiða fyrir grunnrannsóknir SKIPULAGS- og byggingarlög og lög um mat á umhverfisáhrifum eru illa framkvæmanleg nema hér séu öflugar rannsóknarstofnanir sem hafí nægt fjármagn til að sinna grunnrannsókn- um. Þetta kom fram í máli Stefáns Thors, skipu- lagsstjóra, á ársfundi Náttúrufræðistofnunar ís- lands í gær. Stefán segir að þær rannsóknarstofnanir sem fyrir hendi séu, skorti hvorki vilja né faglega þekkingu til að sinna verkefnum sínum, en hins vegar væri spurning hver ætti að greiða fyrir grunnrannsóknir. Hann segir Skipulagsstofnun sennilega svara því til að frumkvæði þess og ábyrgð sé í höndum sveitarfélaganna, en sveitar- félögin myndu eflaust segja að þau hefðu enga tekjustofna til að standa undir þessum kostnaði. Rannsóknarstofnanirnar myndu svo vafalaust segja að fjárveitingavaldið sé búið að gera kröfu um svo hátt sértekjuhlutfall að ekkert sé til af- lögu í grunnrannsóknir. Stefán segir nauðsynlegt að vinna markvisst að því að leysa þennan vanda og telur hann einu raunhæfu lausnina þá að rannsóknarstofnanir eins og Náttúrufræðistofnun, og aðrar stofnanir sem sinna grunnrannsóknum, fái stóraukið fjár- magn til að geta að eigin frumkvæði stundað nauðsynlegar grunnrannsóknir. Hann vonar að á næstu árum takist að tryggja nægt fjármagn til að standa megi þannig að verki þannig að litið verði á landið sem auðlind og ákvarðanataka verði byggð á faglega traustum grunni. Forstjóri Náttúrufræðistofnunar gagnrýnir Rannsóknarráð Islands A fundinum gagnrýndi Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar, Rannsóknar- ráð Islands fyrir hvemig staðið væri að styrk- veitingum. Hann gerði athugasemd við að und- anfarin ár hefði enginn af vísindamönnum Náttúrufræðistofnunar verið beðinn um að taka sæti í fagráði, úthlutunarnefnd eða öðrum nefndum á vegum Rannsóknarráðsins. Morgunblaðið/Golli Nemendur sjötta bekkjar D í Kársnesskóla ásamt kennara sínum Björgu Eiríksdóttur og Siv Friðleifsdóttur, umhverfisráðherra. Kynntu verkefn- ið fuglabjargið Fasteignagjöld hækka um 12% í Reykjavík NEMENDUR sjötta bekkjar D í Kársnesskóla kynntu afrakstur söguaðferðarinnar við náttúru- fræðikennslu á ársfundi Náttúru- fræðistofnunar íslands í gær. Björg Eiríksdóttir kennari bekkjarins segir söguaðferðina hafa reynst afar vel og hún sé bæði gagnleg og skemmtileg að- ferð við kennslu og segjast krakk- arnir sammála því. Skipulag verkefnis með sögu- aðferðinni er eins og saga, það hefur ákveðna uppbyggingu, kafla og söguþráð. I Kársnesskóla er aðferðin notuð við kennslu ýmissa námsgreina, til dæmis náttúrufræði, landafræði, sögu og. kristinfræði. Hún er notuð í öllum bekkjardeildum og er unnið við hvert verkefni í nokkrar vikur. Nemendumir koma sjálfir með hugmyndir, kennarinn hjálpar þeim að þróa þær og í lok hvers verkefnisins er haldið for- eldrakvöld þar sem árangurinn er sýndur. Þá hanga uppi vegg- spjöld, myndir og fleira sem þau hafa útbúið og þau flytja sögu- brot, fróðleik og leikatriði sem þau hafa sjálf búið til. Verkefnið sem krakkamir kynntu í gær heitir Fuglabjargið og íjallar um Vilmund vitavörð sem auglýsir eftir fjölskyldu til að sjá um vitann sinn í nokkrar vikur á meðan hann fer suður á bóginn. Nemendur bekkjarins komu upp hver af öðrum, sumir fræddu við- stadda um alls kyns fugla, li'fið við hafið og verndun umhverfisins, aðrir sögðu frá Vilmundi og fjöl- skyldunni sem var valin til að sjá um vitann og enn aðrir brugðu sér í hlutverk fréttamanna sem tóku viðtöl og sögðu fréttir af ýmsu sem kemur upp á í nábýli manna við hrikalega náttúruna. Fundarmenn fögnuðu kynningu nemenda með góðu lófataki og þrátt fyrir að þeir starfi flestir hjá Náttúrufræðistofnun eða séu velunnarar hennar hafa þeir ef- laust lært eitthvað nýtt af þessari skemmtilega óvenjulegu fræðslu- stund. FASTEIGNAGJÖLD munu hækka um 12% í Reykjavík í kjölfar hækkunar á fasteignamati, en sú hækkun verður mest á höfuðborg- arsvæðinu. Þar mun fasteignamat hækka um 18% en á mörgum öðr- um þéttbýlisstöðum á landinu verð- ur hækkunin 7-10%. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið að fasteignagjöld muni hækka um 12% í Reykjavík, en ekki um 18% þar sem hækkun fasteignamats hefur áhrif á fast- eignaskattinn og holræsagjaldið en ekki vatns- og sorphirðugjöld. Borgarstjóri segir borgarbúa einn- ig njóta þess núna að hlutfall fast- eignaskattsins var lækkað í fyrra úr 0,421% í 0,375%. Hækkun fast- eignagjalda mun leiða til um 430 milljóna króna tekjuauka borgar- sjóðs. Miðað við 12% hækkun fast- eignagjalda má gera ráð fyrir að hækkunin nemi í ílestum tilfellum 5-10.000 krónum á ári eftir stærð íbúða. Eigandi húseignar í Reykja- vík, sem metin var skv. fasteigna- mati á 8 milljónir, mun eftir 12% hækkun þurfa að greiða rámum 7.000 krónum meira í fasteigna- gjöld á næsta ári. Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni vega fasteignagjöld 2,2% í vísitöluútreikningum og gæti hækkun fasteignagjalda hækkað vísitölu neysluverðs um 0,22%. Ekki er þó ennþá ljóst hversu mikil þessi hækkun verður, þar sem sveitarfélögin eiga hvert fyrir sig eftir að ákveða hversu mikið fast- eignagjöldin hækka eftir 1. desem- ber. Mismunandi mikil hækkun í aðalatriðum mun fasteignamat á landinu hækka á eftirfarandi hátt: íbúðarhús og íbúðarlóðir, at- vinnuhús og atvinnulóðir á höfuð- borgarsvæðinu svo og sumarhús og sumarhúsalóðir á landinu öllu hækka um 18%. SAMFYLKINGIN hefur lagt fram og hefur í undirbúningi að leggja fram níu frámvörp og þingsálykt- unartillögur sem varða réttindi barna og unglinga. Guðrán Ögmundsdóttir, þingmaður Sam- fylkingarinnar, segir að tilefnið sé ekki síst 10 ára afmæli bamasátt- mála Sameinuðu þjóðanna. Hún segir að megintilgangurinn sé sá að skoða öll lög sem varða böm og unglinga út frá barnasátt- málanum. Hún sagði að frumvarp um breytingu á almennum hegning- arlögum fæli í sér að refsivert verði að framleiða og dreifa barnaklámi en í dag er ekki lögð sérstök refsing við því. Lagt er til að refsing við slíku verði allt að tveggja ára fang- elsi. Þá verði lögð fram fmmvörp til að bæta réttarstöðu barna til um- gengni við báða foreldra sína og frumvarp til laga um breytingu á lögum um staðfesta samvist felur í sér rétt samkynhneigðra tO þess að stjúpættleiða böm. Frumvarp til laga um breytingu á bamalögum feli í sér aukinn rétt feðra. Lagt er til að bamalögum verði breytt þannig að karlmaður geti höfðað mál til að gengið sé úr skugga um faðerni hans. Guðrán segir einnig mikilvægt að mótuð verði heildarstefna 1 málefn- um barna. Markmiðið sé að tryggja hag þeirra og búa þeim sem jöfnust skilyrði til uppvaxtar og þroska. 1 tillögu til þingsályktunar um bætta stöðu barna samkvæmt bamasáttmála Sameinuðu þjóð- anna er lagt til dómsmálaráðherra skipi nefnd til að gera úttekt á lög- um er varða réttarstöðu barna með það að markmiði að uppfylla skil- yrði Bamasáttmála Sameinuðu þjóðanna. I tillögu til þingsályktunar um bætta stöðu þolenda kynferðisaf- brota er lagt til að dómsmálaráð- herra skipi nefnd sérfræðinga sem hafi það verkefni að kanna og gera tillögur um bætta stöðu þolenda kynferðisafbrota, einkum barna og unglinga. I tillögu til þingsályktunar um aukinn rétt foreldra vegna veikinda þarna er lagt til að skipuð verði nefnd sem tryggi betur réttindi for- eldra vegna veikinda barna sinna. íbúðarhús og íbúðarlóðir í þétt- býli á Arskógsströnd, í Fellabæ og Nesjum í Hornafirði hækka um 15%. íbúðarhús og íbúðarlóðir í Gerðahreppi, Vogum, Akranesi, Borgamesi, Hellissandi, Rifi, Ól- afsvík, Grundarfirði, Dalvík, Höfn, Vestmannaeyjum, Stokkseyri, Hveragerði og fjölbýli í Stykkis- hólmi hækka um 10%. íbúðarhús og íbúðarlóðir í Grindavík, Sandgerði, Keflavík, Njarðvík,, Egilsstöðum, Selfossi og sérbýli á ísafirði hækka um 7%. Matsverð íbúðarhúsa og íbúðar- lóða á Patreksfirði, Þingeyri, Flat- eyri, Raufarhöfn, Eskifirði, Búðum í Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og Djúpavogi er óbreytt. Matsverð allra annarra fasteigna í landinu hækkar um 3,5%. Vegna fyrninga, sem gilda um einstakar tegundir húseigna verður hin al- menna hækkun að jafnaði aðeins lægri eða um 0-1% á íbúðarhúsnæði og 1-2% á annað húsnæði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.