Morgunblaðið - 27.11.1999, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAUIÐ
LANDIÐ
Fyrstu heiðursfélagar í Félagi
fuglaáhugamanna á Hornafírði
Ætíð verið miklir
náttúruunnendur
FÉLAG fuglaáhugamanna á
Homafírði hefur gert hjónin Elín-
borgu Pálsdóttur og Benedikt Þor-
steinsson að heiðursfélögum, en
þau hafa um áratugaskeið fylgst
með fuglum og skráð komur þeirra
til Hafnar. Þau hjónin hafa ætíð
verið miklir náttáruunnendur og
hefur Elínborg haldið dagbók í 35
ár þar sem hún hefur skráð niður
ýmislegt sem hún og fjölskyldan
hefur orðið vör við í náttúrunni í
gegnum árin. Fyrsta færslan var
gerð 17. október 1964 en þar lýsir
hún komu auðnutittlings í garðinn.
Jafnframt því að fylgjast með
fuglum hafa þau Elínborg og Bene-
dikt safnað steinum um langt skeið,
og eiga þau orðið stórmerkilegt
steinasafn á heimili sinu, þar sem
finna má þúsundir steinategunda.
Þau Elínborg og Benedikt hafa
búið á sama stað í 54 ár i notalegu
húsi við Ránarslóð 6 á Höfn, en i
grónum og vistlegum garðinum
þar hafa líklega hvergi sést fleiri
fuglategundir í görðum á íslandi.
Þau hjónin fóru að gefa fuglun-
um um það leyti sem Elínborg fór
að færa dagbókina. Einnig hafa
þau verið með fúglabað í garðin-
um, volgt vatn í fati, sem er mikið
notað. Það hænir mikið að á vet-
uma segir Elínborg. Þá koma fúgl-
amir bæði til að baða sig og til að
éta og drekka.
Algengustu fuglamir í garðinum
em þrestir og algengustu flæking-
amir em svartþrestir og gráþrest-
ir og hettusöngvari er árviss gest-
ur. Einnig em laufsöngvari og
grásöngvari tíðir gestir. Þá hafa
komið mjög sjaldgæfir fuglar og
segir Elínborg að minnisstæðastur
sé kannski kjarrbíturinn, sem var
sá fyrsti sinnar tegundar sem sést
hefur hér á landi.
Það em stundum margir fuglar í
garðinum, en flestir hafa flæking-
amir verið 5 á sama tíma í einu.
Elínborg segir að það sé alltaf
spennandi að fylgjast með fugla-
komum á vorin og ekki síst á haust-
in, en þá koma flestir flækingarnir.
Sumir fuglanna hafa haldið til all-
an veturinn í garðinum og notið
þess að fá þar mat og vatn, og
minnist Elínborg turtildúfú sem
hélt til hjáþeim um vetrartíma, en
turtildúfur fara til Afríku á vet-
uma og sjást þá hvergi í Evrópu.
„Við höfum fengið mikið út úr
þessu. Við höfum einnig ferðast
mikið og gengið á fjöll og þá er
maður alltaf að fylgjast með nátt-
úmnni og fuglunum og ekki síst
steinaríkinu," segir Elínborg.
Þau Elínborg og Benedikt eiga
orðið veglegt steinasafn, sem þau
hafa ákveðið að gefa Náttúm-
gripasafni Austur-Skaftafellssýslu,
þegar safnið eignast nógu stórt og
gott húsnæði til að taka við steina-
safni þeirra hjóna.
Morgunblaðið/Eiríkur P.
Elínborg Pálsdóttir og Benedikt Þorsteinsson með heiðursskjalið frá
Félagi fuglaáhugamanna og skreytingu sem fylgdi með.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hörður, María og Bjarni með viðurkenningar fyrir bestu hrútana.
Sauðfjárræktar-
menn verðlaunaðir
Hrunamannahreppi - Öflugt
sauðfjárræktarstarf fer fram
víðsvegar á landinu sem kunn-
ugt er og svo er einnig hér á
Suðurlandi. Allmargir áhuga-
menn í sauðfjárrækt komu sam-
an að Þingborg í Hraungerðis-
hreppi í síðustu viku þar sem
eigendur tólf hrúta í Árnessýslu
fengu verðlaun fyrir kynbóta-
gripi sína. Ráðunautar Búnaðar-
sambands Suðurlands boðuðu til
fundarins og fluttu gagnmerkar
skýrslur frá ræktunarstarfinu
svo og Jón Viðar Jónmundsson,
ráðunautur hjá Bændasamtök-
unum.
Venja var, til fjölda ára, að
halda héraðssýningar á hrútum
fjórða hvert ár en samkvæmt
nýjum búfjárræktarlögum er
búnaðarsamböndunum í sjálf-
svald sett á hvern veg fyrir-
komulagi sýninganna er háttað.
Ekki er lengur leyfilegt að halda
hrútasýningar eins og gert var á
árum áður vegna sauðfjárveiki-
varna. Aðeins voru sýndir vetur-
gamlir hrútar nú síðastliðið
haust og fóru ráðunautarnir
heim til bænda að skoða gripina
og gefa þeim stig. Alls voru 212
veturgamlir hrútar sýndir í
haust í Árnessýslunni. Þá eru
lambhrútar einnig valdir og gef-
in stig. Bakvöðvi er mældur með
ómsjá og lífgimbrar til viðhalds
ærstofninum valdar á sama hátt.
Fanney Ólöf Lárusdóttir skýrði
frá hrútasýningum í haust á Suð-
urlandi.
Sæðingarstöðin
þýðingarmikil
Sauðfjársæðingarstöð í Laug-
ardælum hefur verið starfrækt
allt frá árinu 1968 og er mál
manna að mikill árangur hafi
náðst í kynbótastarfinu eftir til-
komu hennar, er dæmi þess að
um 2.000 ær hafi fengið með
sæði úr sama hrútnum á sama
ári. Þeir Jón Vilmundarson og
Guðmundur Jóhannesson
greindu frá starfsemi stöðvar-
innar í máli og myndum og af-
kvæmarannsóknum á hrútum en
nákvæmar skýrslur eru haldnar
um afurðir og vaxtarlag fjárins,
en fram kom að of fáir haldi þó
slíkar skýrslur.
Jón Viðar Jónmundsson flutti
fróðlegt erindi um kynbótastarf-
ið í saúðfjárrækt og sagði hann
að um greinilegar framfarir væri
að ræða. Halla Eygló Sveins-
dóttir skýrði frá íslensku sauðfé
í Norður-Ameríku. Kom fram
hjá henni að mikil ánægja væri
með íslenska stofninn vegna
mikils vaxtarhraða og kjötgæða
auk þess sem ullin þykir fín, létt
og æskileg til handiðnaðar.
Sagði hún að nú væru um 1.600
íslenskar kindur í Norður-Amer-
íku og að verið væri að senda 419
skammta af sæði þangað um
þessar mundir.
Sem fyrr sagði fengu tólf hrút-
ar viðurkenningu. Bak, malir og
læri gefa flest stig til verðlauna.
Hæst dæmda hrúturinn, sem
Brútur heitir, er í eigu Bjarna
Þorkelssonar á Þóroddsstöðum
en hann er kunnur fyrir hesta-
mennsku og hrossarækt. Sló Jón
Viðar á létta strengi og sagði að
þessi góði kynbótagripur væri
nánast gallalaus, helst mætti
finna að honum að hann væri
ekki nógu vel taminn. Bjarni
keypti þennan kostagrip af þeim
Maríu Pálsdóttur og Herði
Guðmundssyni á Böðmóðsstöð-
um í Laugardal í fyrrahaust en
þau áttu þann hrút sem stóð í
öðru sæti er Stefnir heitir. Hann
er tvílembingur á móti Brúti.
Gott hjá þeirri ánni að gefa tvo
slíka kynbótagripi af sér á sama
árinu. Sveinn Sigurmundsson
framkvæmdastjóri sagði að ætl-
unin væri að halda slíka upp-
skeruhátíð á vegum Búnaðar-
sambands Suðurlands árlega.
Nýkomin sending af sófasettum
Vandað Mantelassi sófasett
II . . , . . M/leðri aðeins kr.
Litir dokkkomaksbrunt
Ijóskoníaksbrúnt
Jaeði í fjórum litum.
M/áklæði aðeins kr.
198.000.- 178.000.-
Vönduð gæðohúsgögn
ágéðuverði!
Hjá okkur eru Visa- og
Euro-ra&amningar
ávísuná staðgreiöslu
ti
usqoqn
Ármúla 8 - 108 ReyKjavík
Sími 581-2275 ■ 568-5375 ■ Fax 568-5275
Morgunblaðið/Líney
Loðnir gestir
á leikskóla
Þórshöfn - Hvolparnir Spori,
Bósi, Smali ogg Vælukjói komu í
heimsókn á leikskólann Barna-
ból og gerðu mikla lukku hjá
börnunum, svo litiir og mjúkir
að halda á þeim. Það var þó
betra að halda ekki of lengi á
þcim, því hvolpar hafa ekki
bleyju. Fljótlega fóm þeir allir
fjórir aftur heim til sín í sveit-
ina, að Hvammi, reynslunni rík-
ari.