Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 34

Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 34
34 LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Sýningum lýkur Listahornið Akranesi MÁLVERKASÝNINGU Þóru Einarsdóttur í Listahorninu, Kirkjubraut 3 á Akranesi, lýkur sunnudaginn 28. nóvember. Þóra sýnir málverk máluð á silki. Sýn- ingin er opin alla virka daga kl. 11- 17. Gallerí Fold, Rauðarárstíg Sýningu Soffíu Sæmundsdóttur lýkur á sunnudag.Soffía nefnir sýn- ingu sína Dalbúa og á henni eru 18 olíumálverk ýmist máluð á striga eða tréplötu. Gallerí Fold er opið á virkum dögum kl. 10-18, laugar- daga og sunnudag kl. 17. Áhaldahús Vestmannaeyja Sýningu Rúríar, sem tileinkuð er Sigríði frá Brattholti, lýkur á sunnudag. Sýningin er opin frá kl. 14-18. Aðgangur er ókeypis. .— Verk eftir Ingu Rún Harðar- dóttur í Galleríi Smíðar og skart. Inga Rún í Galleríi Smíð- ar og skart INGA Rún Harðardóttir opnar sýningu á verkum sínum í Galleríi smíðar og skart, Skólavörðustíg 16a, í dag, laugardag, kl. 14. Þar sýnir hún keramik og myndlist. Inga Rún lauk námi frá ieir- listadeild MHÍ1993. Hún nam síð- ar við Intemational keramik studio í Késcemet, Ungveijalandi og Institut for unika, Kunsthand- verkerskolen í Kolding í Dan- mörku. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og í Danmörku. Sýningin er opin á verslunar- tíma og lýkur 27. nóvember. Frá Helsinki til Hafnarborgar ÁGÚST Ólafsson, barítón, og Kíril Kozlovski, píanóleik- ari, halda tónleika f Hafnarborg, annað kvöld, sunnudag- skvöld, kl. 20.30. Þeir em báðir nemendur við Síbelíusarakadem- íuna í Helsinki. Þeir munu flytja Dichter- liebe eftir Schumann, sönglög eftir Grieg; rómönsur eftir Tsjai- kovskíj og aríur eftir Rachmaninov. Ágúst og Kiril hafa starfað saman sem ljóðasöngs-dúo frá haustinu 1998. Saman hafa þeir sótt meist- arakúrsa (mastercl- ass) hjá próf. Hartmut Höll (píanó) í Ijóða- flutningi á vegum Síb- elíusarakademíunnar. Ljóðasön; Sumarið 99 vom þeir borg: A þátttakendur í Iokuð- um Liedmeistarakúrs próf. Höll og Mitsuko Shirai (mezzosopran) í Savonlinna, Finnlandi. Þeir sóttu einnig meistarakúrs próf. Alexanders Rohm Russian vocal music (mars 99). Veturinn '98:99 tóku þeir þátt í söngstúdíókúrs í S.A. sem ljóðasöngs-dúó og í vetur munu þeir vinna frekar að Ijóða- fsdúóip sem kemur fram í Hafnar- gúst Ólafsson og Kíril Kozlovski. tónlist með Ilmo Ranta (píanó). Ágúst og Kiril hafa komið fram saman á ýmsum smærri tónleikum á vegum S.A. og í gegnum skólann hafa þeir einnig haldið tvenna ljóðasöngstónleika í Helsinki. Næstu tónleikar þeirra verða í Klettakirkjunni í Helsinki í mars 2000. Myndlistar- konur á Garðatorgi ÁTTA myndlistarkonur sýna í Sparisjóðnum, Garðatorgi 1, Garðabæ, í dag, laugardag, kl. 13. Listakonumar eru Áslaug Davíðs- dóttir, Hrönn Vilhelmsdóttir, text- íllistamenn, Dröfn Guðmundsdótt- ir, Guðný _ Jónsdóttir, glerlista- menn, Árdís Olgeirsdóttir, Charlotta R. Magnúsdóttir, Sigríð- ur Helga Olgeirsdóttir og Þóra Sigurgeirsdóttir, leirlistamenn. Þær hafa allar viðurkennt myndlistamám að baki og hafa tekið þátt í fjölda sýninga. Þær reka ásamt sjö öðrum listakonum gallerí Listakot, Laugavegi 70. Sýningin verður opin á afgreiðslu- tíma Sparisjóðsins frá kl. 8:30-16 alla virka daga og stendur til 31. desember. -----4-f-4--- Ljtífar nótur í Mtílanum HLJÓMSVEIT Agnars Más Magnússonar og Ólafs Stolzen- walds koma fram á djasstónleikum á vegum jassklúbbsips Múlans á efri hæð Sólonar íslandusar á sunnudagskvöldið kl. 21. Hljómsveit Agnars og Ólafs leik- ur alla vega jazz í ýmiss konar út- setningum og munu þeir leitast við að draga úr jólastressi með þægi- legri dagskrá á ljúfum nótum. Hljómsveitin samanstendur af áðurnefndum Agnari Má Magnús- syni á píanó og Ölafí Stolzenwald á bassa, auk þeirra leika Helgi Svav- ar Helgason á trommur og Birkir Freyr Matthíasson á trompet. ♦ ♦ ♦ Harmonikku- tónlist í Ráðhúsinu HARMONIKKUFÉLAG Reykja- víkur heldur „létta“ tónleika í Ráð- húsi Reykjavíkur í dag, laugardag, kl. 15. Yfírskrift tónleikanna er Dagur harmonikkunnar og eru flytjendur á öllum aldri. Meðal annars koma fram nokkrir nemendur Karls Jónatansson og Matthíasar Kormákssonar. Þá koma fram systurnar Hekla, Inga og Ása Eiríksdætur, Matthías Kor- máksson, hljómsveitin Stormurinn undir stjóm Amar Falkner, Jóna Einarsdóttir, Jassband Þóris og Léttsveit Harmonikkufélags Reykjavíkur undir stjórn Jóhanns Gunnarssonar. Kynnir er Jóhann Gunnarsson. Fjdrir hljóta viður- kenningu FIH f TILEFNI tuttugasta starfsaf- mælis Tónlistarskóla Félags ís- lenskra hljómlistarmanna hefur stjóm FÍH ákveðið að veita viður- kenningu þeim sem sýnt þykir að hafí stutt við og unnið að framgangi lifandi tónlistar á árinu. Athöfnin fer fram í dag, laugardag, kl. 17, í Rauðagerði 27. Á tónlistardeginum 24. október 1998 var í fyrsta skipti veitt viður- kenning til veitingamanna fyrir að búa hljómlistarmönnum fram- úrskarandi vinnuaðstöðu og varð veitingastaðurinn Broadway hlutskarpastur. í ár er ákveðið að afhenda þessa viðurkenningu á 20 ára starfsaf- mæli Tónlistarskóla Félags ís- lenskra hljómlistarmanna. Eftir- taldar stofnanir og aðilar og fá viðurkenningu í ár: Reykjavíkur- borg og Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir borgarstjóri fyrir stofnframlag borgarinnar til Stórsveitar Reykja- víkur. Kópavogskaupstaður og Sig- urður Geirdal bæjarstjóri fyrir að stuðla að stórbættri tónleikaað- stöðu fyrir íslenska hljómlistar- menn með byggingu _ Salarins. Súðavíkurhreppur og Ágúst Kr. Bjömsson sveitarstjóri fyrir að stofna Listasumar á Súðavík, Veit- ingastaðurinn Broadway og Ölafur Laufdal fyrir að búa hljómlistar- mönnum framúrskarandi vinnuað- stöðu. Opinberir nemendatónleikar verða í salnum kl. 15 í dag. NEYTENPUR Rapsolía lækkar kólesterói hvað mest Ólífuolían síður en svo varhugaverð | Morgunblaðið/Golli Guðmundur Hermannsson úrsmiður hefur safnað gömlum klukkum um árabil. Um helgina er hann með sýningu á klukkunum og fræðir fólk um sögu þeirra Hlutfall mettaðra fitusýra í... Smjöri FRÉTT á forsíðu Morgunblaðsins síðastliðinn fimmtudag vakti tölu- verða athygli, en þar var sagt frá danskri rannsókn sem sýndi að ólífuolía hækkaði kólesterólið og væri því ekki eins holl og af er látið. Laufey Steingrímsdóttir forstöðu- maður Manneldisráðs segir að þarna hafí verið um villandi frétta- flutning að ræða. „Hið rétta er, að kólesteról í blóði lækkar ef fólk not- ar ólífuolíu eða aðra fljótandi jurta- olíu í staðinn fyrir smjör eða hart smjörlíki. Hitt er svo annað mál, að ef ætlunin er að finna þá olíu sem lækkar kólesterólið allra mest, er ólífuolían ef til vill ekki besti kost- urinn. Þá eru aðrar olíur áhrifa- meiri, ekki síst rapsolían sem ein- mitt var fjallað um á neytendasíðu Morgunblaðins ekki alls fyrir löngu.“ Mettaða, harða fítan hækkar kólesteról „í umræddri rannsókn var verið að bera saman áhrif ólífuolíu og þeirra olía sem hafa mest og best áhrif á kólesterólið. í fljótandi olíum er mjög lítið af mettaðri fítu, en í smjöri, smjörva og flestum tegundum af smjörlíki er mikið af mettaðri eða harðri fitu. Það er mettaða, harða fítan sem hækkar kólesterólið. Sem dæmi má nefna að í ólífuolíu eru um 17% fit- unnar mettaðar fitusýrur, í sojaolíu er mettuð fita 15%, í sólblómaolíu 12% og raspolíu 10%. I smjöri er sambærileg tala 61% og smjörva 58%. Það er því grundvallarmunur á olíum annars vegar og smjöri eða smjörlíki hins vegar hvað þetta varðar og áhrifín á kólesterólið eru Ólífuolíu I f 17% Sojaolíu I 115% Sólblómaolíu I 112% Rapsolíu | 110% Nýr verslunarkjarni í Bæjarlind Englar, kökur og kristall Gamlar klukkur allt frá 18. öld, kristall, heilsu- dýnur og ekta ensk jólakaka er meðal þess sem hægt er að rekast á þegar rölt er um versl- unarkjarnann í Bæjarlind í Kópavogi. ÞAÐ ERU aðeins nokkrar vikur síðan fyrstu verslanirnar þar voru opnaðar. Kökuhornið heitir bakarí sem var opnað þar fyrir nokkrum vikum og er hægt að setjast niður og fá sér kaffisopa við kertaljós. Á aðventunni verður boðið upp á heitt súkkulaði með rjóma og jólasmá- kökur. Eigendurnir voru í óðaönn að búa til aðventukransa úr trölla- deigi þegar bakaríið var heimsótt en þeir hafa ekki áður rekið bakarí og leggja mikið uppúr að hafa stemmninguna jólalega á aðvent- unni. Við hliðina á bakaríinu er búðin Luxor sem selur sérstæð húsgögn og skrautvöru m.a. frá Egyptalandi og Rússlandi. Gamall draumur varð að veruleika Kristall og postulín heitir ný búð sem þama er til húsa. Þar eru seld- ar vörur frá fyrirtækinu Mikasa, skrautmunir úr kristal og ýmsar gjafavörur. Gyða Jónsdóttir er eig- andi verslunarinnar. Hún segir þetta fmmraun sína í verslunar- rekstri en það hafi verið draumur sinn frá því hún átti heima í Banda- ríkjunum að opna verslun með þessar vörur. „Það er einmitt gam- an að opna á þessum árstíma þegar jólin eru að næsta leiti. Fyrst svo var ákvað ég að panta inn sérstakar jólavörur úr kristal og bjóða þær á tilboðsverði." Annars segist Gyða vera með vörur sem henti ekki hvað síst í brúðkaupsgjafir. „Mat- !

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.