Morgunblaðið - 27.11.1999, Page 69
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 69
Mánud.-fimmtud. kl. 10-21, föstud. kl. 10-17, laugard.
(1. okt.-30. april) kl. 13-17._______________
BÓKASAFN SAMTAKANNA ‘78, Uugavegi 3: Opið
mán.-fim. ki. 20-23. Laugard: kl. 14-16.___
BORGARSKJALASAFN REYKJAVÍKUR, Tryggvagötu
15: Opið mánudaga til föstudaga kl. 9—12 og kl. 13-16.
Simi 563-1770._____________________________
BYGGÐASAFN ÁRNESINGA, Húsinu á Eyrarbakka:
Opið alla daga frá kl. 10-18 til ágústloka. S: 483-1604.
BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR: Sívertsen-hús, Vest-
urgötu 6, 1. júní - 30. ágúst er opið alla daga frá kl. 13-
17, s: 555-4700. Smiðjan, Strandgötu 60, 16. júní - 30.
september er opiö alla daga frá kl. 13-17, s: 565-5420,
bréfs. 65438. Siggubær, Kirkjuvegi 10,1. júní - 30. ágúst
er opið laugard.-sunnud. kl. 13-17. Skrifstofur safnsins
verða opnar alla virka daga kl. 9-17. _______
BYGGÐASAFNIÐ í GÖRÐUM, AKRANESI: Opið kl.
13.30- 16.30 virka daga. Simi 431-11255.___
FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS, Loftskeytastöðinni
v/Suðurgötu: Opið á þriðjud., fimmtud. og sunnud. frá
kl. 13-17. Tekið er á móti hópum á öðrum tímum eftir
samkomulagi._____________________________
FRÆÐASETRIÐ I SANÐGERÐI, Garðvegi 1, Sandgerði,
sími 423-7651, bréfslmi 423-7809. Opið alla daga kl. 13-
17 og eftir samkomulagi.___________________
GAMLA PAKKHÚSIÐ í Ólafsvík er opið alla daga í sum-
ar frá kl. 9-19.______________________
GOETHE-ZENTRUM: Lindargötu 46, Reylgavík. Opið
þriðjud. og miðvikud. kl. 16-19, fimmtud., föstud. og
laugardaga kl. 15-18. Simi 551-6061. Fax: 552-7570.
HAFNARBORG, menningar og listastofnun HafnarQarð-
ar opin alla daga nema þriðjud. frá kl. 12-18._
KJARVALSSTAÐIR: Opið dagiega frá kl. 10-18. Safna-
leiðsögn kl. 16 á sunnudögum.__________________
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS „ HÁSKÓLABÓKASAFN:
Opið mán.-fimmtud. kl. 8.15-22. Föstud. kl. 8.15-19 og
laugd. 9-17. Sunnud. kl. 11-17. Þjóðdeild lokuð á
sunnud. og handritadeild er lokuð á laugard. og
sunnud. S: 525-5600, bréfs: 525-5615._________
LISTASAFN ÁRNESINGA, Tryggvagötu 23, Selfossi:
Opið eftir samkomulagi. S. 482-2703._________
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Safnið er opið laug-
ardaga og sunnudaga frá ki. 14-17. Höggmyndagarður-
inn er opinn alla daga.______________________
LISTASAFN ÍSLANDS, Frikirkjuvegi. Sýningarsalir,
kaffistofa og safnbúð: Opið daglega kl. 11-17, lokað
mánudaga. Skrifstofa safnsins og upplýsingar um leið-
sögn: Opið alla virka daga kl. 8-16. Bókasafn: Opið
þriðjud.-föstud. kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis á mið-
vikudögum. Uppl. um dagskrá á internetinu:
http//www.natgall.is_____________
LISTASAFN KÓPAVOGS - GERÐARSAFN: Opið dag-
lega kl. 12-18 nema mánud._____________________
USTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR: Safniö er opiö
iaugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Upplýsingar í síma
553-2906. _________________________________
UÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR: Borgartúni 1. Opiö
aila daga frá kl. 13-16. Simi 563-2530.____
LYFJAFRÆÐISAFNIÐ: Neströð, Seltjarnarnesi. Lokað
yfir vetrarmánuöina. Hópar geta skoðað safnið eftir
samkomulagi. ________________________________
MINJASAFN AKUREYRAR, Minjasafnið á Akureyri, Að-
alstræti 68, Akureyri. S. 462-4162. Opiö frá 16.9.-31.6. á
sunnudögum miili kl. 14-16. Einnig eftir samkomulagi
fiu-ir hópa. Skrifstofur opnar virka daga kl. 8-16.
MINJASAFN AUSTURLANDS, Safnahúsinu Laufskógum
1, Egilsstöðum er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-
17 til 1. septcmber. Alia sunnudaga frá kl. 14-17 má
reyna sig við gamalt handbragð í tóvinnu undir leiðsögn
eidri borgara. Safnbúð með mii\jagripum og handverks-
munum. Kaffi, kandís og kleinur. Sími 471-1412, net-
fang minaust@eldhorn.is._____________________
MINJASAFN ORKUVEITU Reykjavíkur v/rafstöðina
v/Elliðaár. Opið á sunnudögum kl. 15-17 og eftir sam-
komulagi. S. 567-9009. ______________________
MINJASAFN SLYSAVARNAFÉWGS ÍSLANDS Þor-
steinsbúð við Gerðaveg, Garði. Opið alla daga í sumar
frá kl. 13-17. Hægt er að panta á öðrum tímum í síma
_ 422-7253.__________________________________
IDNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI, Dalsbraut 1 er opié
frá 1. júní til 31. ágúst kl. 14-18, en lokað á mánudög-
. um. Simi 462-3550 og 897-0206.______________
MYNTSAFN SEÐLABANKA/ÞJÓÐMINJASAFNS, Ein-
holti 4, sími 569-9964. Opið virka daga kl. 9-17 og á öðr-
um tima eftir samkomulagi.___________________
NÁTTÚRUFRÆÐISTOFA KÓPAVOGS, Digranesvegi 12.
Opið miðvikud. og laugd. 13-18. S. 554-0630.__
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ, sýningarsalir Hverfisgötu 116
eru opnir sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. kl.
_ 13.30-16.___________________________________
NESSTOFUSAFN. Yfir vetrartímann er safnið opið sam-
kvæmt samkomulagi.___________________________
NORRÆNA HÚSIÐ. Bókasafnið. 13-18, sunnud. 14-17.
Kaffistofan 9-18, mánud. - laugard. 12-18 sunnud. Sýn-
ingarsalir: 14—18 þriðjud.-sunnud. Lokað mánud.
PÓST- OG SÍMAMINJASAFNIÐ: Austurgötu 11, Hafnar-
firði. Opið þriðjudaga og sunnudaga 16-18. Sími 655-
_ 4321._______________________________________
RJÓMABÚIÐ á Baugsstöðum. Safnið er opið laugardaga
og sunnudaga til ágústsloa frá 1. 13-18. S. 486-3369.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR, Bergstaðastræti 74, s.
551-3644. Sýning á uppstillingum og landslagsmyndum.
Stendur til marsloka. Opin laugardaga og sunnudaga
_ kl, 13.30-16. _____________________________
SJÓMINJASAFN ÍSLANDS, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, er
opið laugard. og sunnud. frá kl. 13-17 og eftir sam-
komuiagi. S: 666-4442, bréfs. 665-4251, netfang:
_ aog@natmus.is.________
SJÓMINJA- OG SMIÐJUSAFN JÓSAFATS
HINRIKSSONAR, Súðarvogi 4. Opið þriðjud. - laugard.
frá U. 13-17. S. 581-4677._________________
SJÓMINJASAFNIÐ Á EYRARBAKKA: Hópar skv. sam-
kl. Uppl, i s: 483-1166, 483-1448.____________
SNORRASTOFA, ReykholU: Sýningar alla daga kl. 10-18.
Slmi 435 1490._______________________________
SÍOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR, Árnagarði v/Suður-
götu. Handritasýning er opin þriðjudaga tii föstudaga
kl. 14-16 til 16. tnai.____________________
STEINARÍKI ÍSLANDS Á AKRANESI: Opið alla daga kl.
13- 18 nema mánudaga. Simi 431-5566._______
MÓÐMINJASAFN ÍSLANDS: Opið alla daga nema
mánudagakl. 11-17._________________________
AMTSBÓKASAFNIÐ Á AKUREYRI: Mánudaga til föstu-
daga kl. 10-19. Laugard. 10-15.______________
USTASAFNIÐ Á AKUREYRI: Opið alia daga frá kl.
14- 18. Lokað mánudaga.___________________
NÁTTÚRUGRIPASAFNIÐ á Akureyri, Hafnarstræti 8L
Opið skv. samkomulagi yfir vetrartímann. Hafið sam-
band við Náttúrufræðistofnun, Akureyri, í síma 462-
_ 2983.__________________________________
NONNAHÚS, Aöalstræti 64. Opið a.d. kl. 10-17 frá 1. júní
_ -1. sept. Uppl. t sima 462 3555.____________
NORSKA HÚSIÐ í STYKKISHÓLMI: Opið daglega í sum-
_ arfrákl. 11-17._____________________________
ORÐDAGSINS
Reykjavik sími 551-0000.______________________
Akureyri s. 462-1840._________________________
SUNDSTAÐIR____________________________________
SUNDSTAÐIR í REYKJAVÍK: Sundhöllin er opin v.d. kl.
6.30- 21.30, helgar kl. 8-19. Opið í bað og heita potta
alla daga. Vesturbæjarlaug er opin v.d. 6.30-21.30, helg-
ar 8-19. Laugardalslaug er opin v.d. 6.50-21.30, helgar
8-19. Breiðholtslaug er opin v.d. kl. 6.60-22, helgar kl.
8-20. Grafarvogslaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helgar
kl. 8-20.30. Árbæjarlaug er opin v.d. kl. 6.50-22.30, helg-
ar kl. 8-20.30. Kjaiarnesiaug opin mán. og fimmt. kl. 11-
16. þri., mið. og föstud. kl. 17-21.________
SUNDLAUG KÓPAVOGS: Opin virka daga 7-22. Laugd.
og sud. 8-19. Sölu hætt háiftima fyrir lokun._
OARÐABÆR: Sundlaugin opin mád.-föst. 7-20.30.
Laugd. og sud. 8-17. Sölu hætt hálftima fyrir lokun.
HAFNARFJÖRÐUR. Suðurbæjarlaug: Mád.-föst. 7-21.
Laugd. 8-18. Sud. 8-17. Sundhöli HafnarQaröar: Mád.-
föst. 6.30-21. Laugd. og sunnud. 8-12.______
VARMÁRLAUG í MOSFELLSBÆ: Opið virka daga kl.
_ 6.30-7,45 og kl. 16-21. Um helgar kl. 9-18._
SUNDLAUGIN í GRINDAVÍK:Opið alla virka daga kl. 7-
_ 21 pff kl. 11-15 um helgar. Slmi 426-7655.__
SUNDLAUG KJALANESS: Opin v.d. 6.45-8.30 og 14-22,
helgar 11-18.
ÞJÓNUSTA/FRÉTTIR
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Danstilburðir voru með ýmsum hætti við upphaf dansmaraþons í Egilsstaðaskóla.
Dansað í sólarhring
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
NEMENDUR í 8.-10. bekk í
Egilsstaðaskóla héldu dansmara-
þon í Félagsmiðstöðinni Ný-ung
á Egilsstöðum nýlega. Þeir söfn-
uðu áheitum og hófu maraþonið
á danssýningu. A sýningunni var
hagpdrætti og dansbingó.
Áheitunum verður varið til
uppbyggingar aðstöðu í félags-
miðstöðinni. Áheitasöfnun gekk
vel og tóku fýrirtæki og einstak-
lingar vel undir að gefa bæði
áheit og vinninga. Mikill undir-
búningur hefur verið að mara-
þoninu en sérstakt skemmtiráð
var skipað til þess að undirbúa
þennan atburð. Þátttaka nemenda
var einnig góð og ekki var annað
að sjá en að hugur væri í nemend-
um í upphafí dansnæturinnar.
Fundur Sam-
taka um líkn-
andi meðferð
JÓLAFUNDUR Samtaka um líkn-
andi meðferð á íslandi verður hald-
inn 29. nóvember _kl. 20 í húsi
Krabbameinsfélags íslands, Skóg-
arhlíð 8, 4. hæð. Fyrirlesari er Sæ-
unn Kjartansdóttir, en hún fjallar
um áhrif þess að annast sjúka.
SUNDMIÐSTÖÐ KEFLAVÍKUR: Opin mánud.-föstud. kl.
7-21. Laugard. kl.8-17. Sunnud. kl. 9-16._
SUNDLAUGIN í GARÐI: Opin mán.-föst. kl. 7-9 og 15.30-
21. Laugardaga og sunnudaga. kl. 10-17. S: 422-7300.
SUNDLAUG AKUREYRAR er opin v.d. kl. 7-21. Laugard.
og sunnud. kl. 8-18. Sími 461-2532._______
SUNDLAUG SELTJARNARNESS: Opin mád.-föst. 7-
20.30. Laugard. og sunnud. kl. 8-17.30.___
JAÐARSBAKKALAUG, AKRANESI: Opin mád.-föst. 7-
21, laugd. og sud. 9-18. S: 431-2643._____
BLÁA LÓNIÐ: Opið v.d. kl. 11-20, helgar kl. 10-21.
ÚTIVISTARSVÆÐI ___________________________
HÚSDÝRAGARÐURINN er opinn alla daga kl. 10-17. Lok-
að á miðvikudögum. Kaffihúsið opið á sama tíma. Fjöl-
skyldugarðurinn er opinn sem útivistarsvæði á veturna.
Simi 5767-800.____________________________
SORPA______________ ~_____________________
SKRIFSTOFA SORPU er opin kl. 8.20-16.15. Endur-
vinnslustöðvar eru opnar a.d. kl. 12.30-19.30 en lokaðar
á stórhátíðum. Að auki verða Ánanaust, Garðabær og
Sævarhöfði opnar kl. 8-19.30 virka daga. Uppl.sími 620-
2205.
------♦ ♦♦--------
Kveikt á
jólatré
Kringlunnar
LJÓSIN á jólatré Kringlunnar
verða tendruð á morgun, fyrsta
sunnudag í aðventu, kl. 14. Ymislegt
verður um að vera í Kringlunni á
sunnudaginn til að gleðja yngstu
kynslóðina. Á morgun eru verslanir
opnar frá kl. 13 til 17, en veitinga-
staðir hússins og Kringlubíó eru op-
in fram á kvöldið.
Að undanfömu hefur Kringlan
verið að kiæðast jólafötunum. Jóla-
skreytingar eru komnar upp í
göngugötum og í verslununum.
Á morgun ki. 14. verða ljósin
tendruð á jólatré Kringlunnar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstóri mun sjá um það. Við athöfn-
ina syngur Skólakór Kársness jóla-
lög undir stjóm Þómnnar Björns-
dóttur.
Jólatré Kringlunnar er myndar-
legt grenitré úr Hallormsstaðar-
skógi. Jólatréð stendur á 1. hæð við
verslunina Dressmann.
Ýmislegt annað er um að vera í
Kringlunni á morgun. Ásta og Keli
úr Stundinni okkar verða fyrir
framan Pennann kl. 14.30 og Inni
ananas úr Ávaxtakörfunni verður á
ferðinni í húsinu seinni hluta dags-
ins, segir í fréttatilkynningu.
Fram til jóla verða allar verslanir
í Kringlunni opnar á sunnudögum,
fyrst frá kl. 13 til 17, en þegar nær
dregur jólum verður opið fram á
kvöld. Veitingastaðir hússins og Kr-
inglubíóið eru með opið fram á
kvöld alla daga vikunnar.
Gönguferðir
undir leiðsögn
á Þingvöllum
Á AÐVENTUNNI mun þjóðgarð-
urinn á Þingvöllum bjóða upp á
gönguferðir með leiðsögn alla laug-
ardaga kl. 13. Náttúran verður
skoðuð í vetrarbúningi og rifjaðar
upp sögur af mannlífi í Þingvalla-
hrauni, auk þess sem vikið verður
að jólaundirbúningi áður fyrr.
Gönguleiðirnar em valdar með
það fyrir augum að hæfí sem flest-
um en nauðsynlegt er að vera búinn
til vetrargöngu. Gott er að hafa heit-
an brúsa og nestisbita meðferðis.
Fyrsta gangan hefst í dag kl. 13
og er gengið í Skógarkot um Sand-
hólastíg. Gangan hefst við þjónustu-
miðstöð þjóðgarðsins. Reiknað er
með að ferðin taki þrjár klukku-
stundir.
Á morgun, sunnudag, verður
guðsþjónusta í Þingvallakirkju kl.
11. Prestur er sr. Heimir Steinsson.
Jólabasar
Kvenfélags
Kópavogs
KVENFÉLAG Kópavogs heldur
sinn árlega basar sunnudaginn 28.
nóvember kl. 14 í húsnæði félagsins,
Hamraborg 10, 2. hæð til hægri.
Seldir verða ýmsir fallegir saum-
aðir og handunnir munir sem henta
vel til jólagjafa og heimabakaðar
kökur svo sem tertur, smákökur,
formkökur og randalínur. Að venju
verður selt kaffi og rjómavöfflur.
Allur ágóði basarsins rennur til
líknar- og menningarmála.
Jólakort Félags
eldri borgara
JÓLAKORT Félags eldri borg-
ara í Reykjavík og nágrenni er
komið út og er því búið að
senda út jólakort til félags-
manna og velunnara þess. Á
jólakortunum er vetrarmynd úr
Laugadalnum í Reykjavík.
Allur ágóði af kortasölunni
rennur í félagssjóð til að standa
fyrir áframhaldandi hagsmuna-
baráttu eidri borgara.
Norðurlanda-
meistaramót
í samkvæmis-
dönsum
SEX íslensk danspör keppa fyrir
íslands hönd á Norðurlandameist-
aramóti í samkvæmisdönsum sem
haldið verður dagana 26.-28. nóv-
ember. Keppnin er haldin í Hró-
arskeldu í Danmörku. Norðurlanda-
mótið er öllum opið í ár sem er ný-
breytni frá því sem verið hefur.
Þau pör sem taka þátt frá íslandi
eru:
Unglingar I:
Hrafn Hjartarson og
Helga Bjömsdóttir, Kvistir
Sandra Espersen og
Sigurður Ámarson, Hvönn
Unglingar II:
Grétar Ali Khan og
Jóhanna B. Bernburg, Kvistir
Hilmir Jensson og
Ragnheiður Eiríksdóttir, Gulltopp-
ur
Áhugamenn:
Ái-ni Þ. Eyþórsson og
Erla S. Eyþórsdóttir, Kvistir
Isak Halldórsson og
Helga Dögg Helgadóttir, Hvönn
í fyrra urðu þau ísak Halldórs-
son og Halldóra Ósk Reynisdóttir
Norðurlandameistarar í aldurs-
flokknum Unglingar II.
Málþing- um
kvikmyndir í
Háskóiabíói
MÁLÞING um kvikmyndir verður
haldið í Háskólabíói, sal 2, sunnu-
daginn 28. nóvember kl. 10-16 í til-
efni af útkomu bókarinnar Heims
kvikmyndanna í ritstjórn Guðna
Elíssonar.
Á málþinginu verða flutt átta er-
indi. Torfí Tulinius fjallar um Adam
og Evu í Júragarðinum. Sigríður
Þorgeirsdóttir fjallar um myndina
The Tmman show. Björn Vilhjálms-
son flytur erindi sem hann nefndir
Gyðlur, Lólítur og önnur kynjadýr.
Heiða Jóhannsdóttir fjallar um frá-
sagnarformgerð hasarmynda. Úlf-
hildur Dagsdóttir fjallar um hroll-
vekjuna í daglegu lífí og starfi.
Matthías Viðar Sæmundsson flytur
erindi sem hann nefnir Nóttin, dög-
unin og dagurinn. Birna Bjarna-
dóttir fjallar um náttúrana í ís-
lenskri kvikmyndagerð. Að lokum
fjallar Kristján B. Jónasson um ís-
lensku hjarðmyndina. I lok mál-
þingsins verða pallborðsumræður.
Ný útgáfa
Pictionary
ESKIFELL EHF. hefur endurút-
gefið teiknispilið Pictionary.
Spilið var gefíð út fyrir mörgum
ámm og varð þá mjög vinsælt. Hef-
ur það verið ófáanlegt um margra
ára skeið. Nýja útgáfan er í nýrri
þýðingu og að auki eru yfír 1000 ný
orð í spilinu.
Pictionary fæst í spila-, leikfanga-
og bókabúðum um allt land og
einnig í stórmörkuðum.
Næturgalarnir á
Sauðárkróki
SÖNGHÓPURINN Næturgalai' frá
Hvammstanga heldur skemmti-
kvöld á Kaffi Krók á Sauðárkróki í
kvöld, laugardagskvöld, kl. 21-23.
Sönghópinn mynda Guðmundur St.
Sigurðsson, Karl Sigurgeirsson,
Ólafur Jakobsson og Þorbjöra
Gíslason. Undirleikai'ar era Elín-
borg Sigurgeirsdóttir og Benedikt
Brynleifsson, auk Ólafs.
Næturgalarnir hafa sungið sam-
an í 10 ár, en á efnisskrá er tónlist í
léttari kantinum, s.s. tvísöngslög og
lög úr írsku umhverfí.
LEIÐRÉTT
Tvær línur féllu niður
í GREIN dr. Þorkels Helgasonar
orkumálastjóra, sem 004; var í blað-
inu í gær, féllu niður tvær línur í
kaflanum sem bar millifyrirsögnina:
Yfiriit yfir virkjunarkosti. Ástæður
þessara mistaka voru að í umbroti
greinarinnar skyggði teikning á
tvær samliggjandi línur í 4. og 5.
dálki með fyrrgreindum afleiðingum.
Um leið og beðizt er velvirðingar á
þessum mistökum er hér umræddur
kafli greinarinnar birtur aftur:
„í 2. töflu eru taldar upp þær
virkjanir sem lengst eru komnar í
undirbúningi og gætu hugsanlega
tekið til starfa fyrir árslok 2005. En
minnt skal á að samkvæmt forsend-
um um álverið í Reyðarfirði, þarf
rafmagn að vera til reiðu þegar í
árslok 2003. Virkjunarkostunum er
skipað í kostnaðarflokka, þar sem I.
flokkur merkir að orkuverð gæti
orðið sambærilegt við orkuverð frá
Fljótsdalsvirkjun, eða lægra. En þá
er aðeins miðað við orkukostnað við
stöðvarvegg, en ekki tekið tillit til
kostnaðar við flutning á orkunni
sem getur verið afar mismikill.
Orkugeta virkjana, annarra en
Fljótdalsvirkjunar, sem gætu hafið
framleiðslu fyrir ársbyrjun 2004 er
samtals um 1.200 GWh/a.
Þai' af er orkugeta nýrra virkjana
á Norður- og Austurlandi aðeins um
600 GWh/a. Afganginn þyrfti þá að
flytja um langan veg með tilheyr-
andi viðbótarkostnaði, og skortir þó
enn nokkuð, eða um 500 GWh/a.
Á töflunni sést að aðeins með því
að reisa Fljótsdalsvirkjun er unnt að
tryggja 120 þúsund tonna álveri á
Reyðarfirði orku fyrir árslok 2003,
enda verði að staðfesta orkuafhend-
inguna fyrir mitt næsta ár.
Á árunum 2004-2005 væri hugs-
anlegt að útvega næga orku, annað-
hvort með flutningi verulegs hluta
orkunnar frá virkjununum á Suður-
og Suðvesturlandi eða með stórauk-
inni virkjun jarðvarma á Norðaust-
urlandi. Fyrri leiðin kallai' annað-
hvort á lagningu háspennulína yfir
Sprengisand, sem myndi hleypa
orkukostnaðinum langt yfir sett
mörk, eða auknar línulagnir frá
Blöndu og allt í Reyðarfjörð, sem
yrðu einnig afar dýrar. Erfitt er á
þessari stundu að fullyrða að hin
leiðin, nýjar jarðgufuvirkjanir á
Norðausturlandi, sé fær. Rannsókn-
arboranir hafa því miður ekki verið
gerðar í þeim mæli að um það geti
verið full vissa.“