Morgunblaðið - 27.11.1999, Side 73
MORGUNBLAÐIÐ___________________
í DAG
Arnað heilla
STJÖRIVUSPA
O A ÁRA afmæli. í dag,
O\J laugardaginn 27.
nóvember, verður áttræð
Lára Einarsdóttir, Grýtu-
bakka 20, Reykjavík. Hún
tekur á móti ættingjum og
vinum á heimili sínu frá kl.
15 í dag.
BRIDS
Í7A ÁRA afmæli. í dag,
I Vr 27. nóvember, verð-
ur sjötug Áslaug Stefáns-
dóttir, Hagamel 30,
Reykjavík. Eiginmaður Ás-
laugar er Bjarni Ingimar
Júlíusson. í tilefni afmælis-
ins verður tekið á móti vin-
um og vandamönnum í húsi
Oddfellow-reglunnar í Von-
arstræti 10, frá kl. 17-20.
Allir hjartanlega velkomnir.
í* r| ÁRA afmæli. í dag,
OU laugardaginn 27.
nóvember, verður sextugur
Björgvin M. Snorrason,
prestur Sjöunda dags að-
ventista í Reykjavfk og
Hafnarfirði, Álííheimum 68,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Ásta Guðjónsdóttir. Þau
eru að heiman í dag.
Umsjón (iuðmuiiilur
l'áll Arnarsnn
Á EINHVERN óskiljanleg-
an hátt enda NS í sex hjört-
um, sem er auðvitað allt of
hátt farið:
Norður
* K864
¥ D92
♦ —
* KD10986
Suður
♦ 4:Á5
¥ KG1087
♦ 10964
♦ Á5
Vestur spilar því miður út
smáum tígli, sem trompaður
er í borði. En hvernig á svo
að spila?
Ekki er líklegt til árang-
urs að trompa út í öðrum
slag, því ef ásinn er ekki
blankur mun vörnin vafa-
laust gefa slaginn og ná
þannig undirtökunum. Ann-
ar möguleiki er að trompa
alla tíglana. Þannig má fá sjö
slagi á tromp, en laufið skil-
ar þá engu og líklega fást
ekki nema fjórir svaitir slag-
ir. Er þriðji möguleikinn til?
Norður + K864 ¥ D92
♦
* KD10986
Vcslur Austur
AD103 4 G972
9 653 ¥ Á4
♦ KG53 ♦ ÁD872
+ 732 + G4
Suður 4 Á5 ¥ KG1087
♦ 10964 + Á5
Já, reyndar. Sagnhafi spilar
strax þremur efstu í laufi.
Hann vonast til að austur sé
með tvflit og ásinn annan í
trompi. Ef austur trompar
þriðja laufið, yfirtrompar
suður og spilar hjarta.
Trompið í borði sér til þess
að vörnin geti ekki tekið tíg-
ulslag og laufið kemur til
með að nýtast. Ef austur
trompar ekki laufdrottning-
una hefur sagnhafi nælt sér
í mikilvægan slag og snýr
sér að því að trompa tvo
tígla í viðbót í borðinu. Sem
dugir til vinnings.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup ofl. lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja
daga fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og sfma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, Sent í bréfsíma
569-1329, sent á netfangið rit-
s!j @mbl.ÍH.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
SKÁK
Kh8 29. Dh5+ - Kg7 30.
Dxg5+ - Kxf7 31. Hxe5 -
Dd6 32. Hf5+ - Ke8 33.
Hel+ - Kd7 34. Dg7+ og
svartur gafst upp.
Hvítur leikur og vinnur.
11 insjoii Margeir
Uéturs.son
STAÐAN kom upp
á opna Monarch
Assurance mótinu í
Port Erin á Isel of
Man í nóvember.
Sergei Kudrin
(2.525), Bandaríkj-
unum, hafði hvítt og
átti leik Kari
Nieminen (2.230),
Finnlandi.
27. Bxf7! - Bxg5
(Auðvitað ekki 27. -
Hxf7 28. Re6+ og
svarta drottningin
fellur) 28. Dxg6+ -
Með morgunkaffinu
... ad muna eftir
afmælinu, en gleyma
árafjöldanum.
TM R*fl. U.S. P«t Ofl. — «11 riflhtt rowvwl
(c) 1999 Lo* Anoeie* Tim«* Byndicate
Ó, ég var næstum búin að
gleyma hveitinu sem ég
kom til að fá lánað hjá þér.
Af hverju læturðu
hana ekki stoppa
í buxurnar þínar?
LiOÐABROT
LAND OG ÞJÓÐ
Land og þjóð er orðið eitt.
Annars væri hvorugt neitt.
Götu vora helgað hefur
hetja mörg, er falhn sefur,
fyrr en stríddi þjáð og þreytt.
Sjórinn, haginn,
heiðin, skaginn
huga barnsins að sér vefur.
Mæðra og feðra arfur er
allt, sem fyrir sjónir ber.
Öll þín sorg og öll þín tár,
öll þín kvöl í þúsund ár,
öll þín frægð og gæfugengi
grípur vora hjartastrengi,
hver ein minning sæt og sár.
Slungið harmi,
barm frá barmi
bergmál tímans varir lengi.
Undir logar orka hljóð:
allt, sem gerir menn að þjóð.
Jón Magnússon.
eftir Frances Ðrake
BOGMAÐUR
Afmælisbam dagsins:
Þú ert snarpur í hugsun
og þér leiðist ef ekki er
stöðugt líf og fjör í kring-
um þig. Mundu að hóf er
best á hverjum hlut.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Farðu þínar eigin leiðir þótt
það kosti einhverja áhættu
því það er kominn tími til að
víkka út sjóndeildarhringinn.
Láttu undrun annarra ekki
spilla fyrir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Stundum er ekki um annað að
ræða en að sætta sig við hlut-
ina en athugaðu fyrst hvort
ekki sé viji fyrir því að menn
komist að samkomulagi.
Tvíburar . .
(21. maí - 20. júní) AA
Þú getur haft þínar skoðanir
á málum en skalt hafa hug-
fast að svo á einnig við um
aðra. Þú gætir til dæmis
margt lært af því að hlusta á
fleiri sjónarmið.
Krabbi jmr
(21. júní - 22. júli)
Þú hefur lagt hart að þér að
undanfömu og átt skilið að
gera eitthvað fyrir sjálfan
þig hvort heldur er að kaupa
nýja flík eða lyfta þér upp.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú geislar af hamingju og
hefur jákvæð áhrif á um-
hverfi þitt. Nú era skilyrði
hagstæð til þess að þú fram-
kvæmir hlut sem þú hefur
lengi ætlað þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) (CÍL
Þótt þú getir verið sveigjan-
legur þýðir það ekki að þú
eigir að láta stjórnast af til-
finningum annarra. Hugsaðu
um eigin velferð.
Vog rxx
(23. sept. - 22. október) A 4*
Fólk sækir oft ráð til þín og
því fylgir sú ábyrgð að vera
fær um að segja hlutina eins
og þeir era og þá skiptir öllu
að vera nærgætinn.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þótt þú sért ekki sammála
yfirmanni þínum í einu og
öllu er ekki þar með sagt að
ekki geti farið vel á með ykk-
ur ef þið virðið skoðanir hvor
annars.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) áU
Oft hættir manni til að taka
öllu í lffinu sem sjálfsögðum
hlut en það sakar ekki að
staldra stundum við og
þakka því auðvitað er ekkert
sjálfgefið.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) 4ÉF
Vertu á verði gagnvart fólki
því ekki era allir þar sem
þeir era séðir. Það sama á við
um þá tilfinningu að eitthvað
sé of gott til að vera satt.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) Gísul
Vertu ekki stífur og þver því
með því ertu að grafa þína
eigin gröf. Enginn nennir að
hafa samband við þig ef þú
ert alltaf neikvæður.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú ert að gera góða hluti og
mátt vera ánægður með
sjálfan þig. Vertu samt ekki
að blása í neina lúðra heldur
leyfðu fólki að koma auga á
það sjálft.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1999 73 ^
Vinsælu dönsku fæðubótarefnin
frá Lekapharm
Náttúrulegt
c-vítamín
Hvítlaukur og
náttúrulegt
c-vítamín
Fæst I apótekum
Ginkgo Biloba
og náttúrulegt
c-vítamín
Dreifing: H. B. K.
sími 892 5944, fax 557 2495.
NÝJAR HÚSGAGNASENDINGAR
Kommóður - náttborð - skápar - borð
Mikið úrval - Ótrúleg verð
Glerskápur nr. 152
Kr. 49.800
Náttborð nr. 271
Kr. 7.700
Náttborð - kommóða
nr. 287
Kr. 8.600
Kommóða nr. 295
Kr. 13.800
Hringborð nr. 50 Skenkur nr. 307
Kr. 14.900 Kr. 51.900
OPIÐ Í DAG KL. 10-16
SUNNUDAG KL. 14.-16.
HÚSGAGNAVERSLUN Vfc.
36 món. Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100 36 mon
|Gjaldþrot«
156
Gjaldþrota fyri 2 árum
-1-
1.5 m. á mánuði í dag!
í